Morgunblaðið - 26.03.1982, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 26.03.1982, Qupperneq 1
67. tbl. 69. árg. FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Jenkins vann í Hillhead (.la-sgow. 25. marz. AP. ROY JENKINS frambjóðandi Jafn- aðarmannaflokksins brezka bar sig- ur úr býtum í aukakosningunum í Hillhcad-kjörda'mi Glasgow-borgar i dag, og vann þingsæti, sem íhalds- flokkurinn hafði haldið i 63 ár. Telja stjórnmálaskýrendur sigurinn afar mikilvægan fyrir Jafnaðarmanna- flokkinn, og einnig Jenkins, sem tal- inn er öllu líklegri til að verða út- nefndur leiðtogi flokksins og leið- togi þingflokks kosningabandalags Jafnaðarmannaflokksins og Frjáls- lynda flokksins. Jenkins, sem síðast sat á þingi 1977, hlaut 10.106 atkvæði eða 2.038 atkvæðum fleira en fram- bjóðandi íhaldsflokksins, Gerry Malone, sem hlaut 8.068 atkvæði. David Wiseman, frambjóðandi Verkamannaflokksins, hafnaði í þriðja sæti með 7.846 atkvæði, en skozkir aðskilnaðarsinnar þóttu bíða afhroð og hlutu aðeins 3.146 atkvæði. Kjósendur í Hillhead-hverfinu fylktu á kjörstaði í aukakosning- unum, sem taldar eru þær þýð- ingarmestu frá stríðslokum. Samkvæmt síðustu könnunum þótti Jenkins sigurstranglegri í kosningunum en frambjóðendur Ihaldsflokksins og Verkamanna- flokksins. Hafði Jenkins unnið hægt og sígandi á, því hann kom lakar út úr fyrri könnunum en helztu keppinautar hans. Kosið var í fegursta veðri í dag, og er það talið eiga sinn þátt í kjörsókninni, en hún hefur aldrei verið jafn góð. IRA vegur þrjá brezka hermenn Bvlful. 25. marz. AP. HRYÐJUVERKAMENN hins ólöglega írska lýðveldishers (IRA) geröu brezkum hermönnum fyrirsát á götu í vesturhluta Belfast, felldu þrjá og særðu tvo óbrevtta borgara. Mikil skelfing greip um sig meðal mannfjöldans á götunni þegar hryðjuverkamennirnir hófu skotárás. í tilkynningu IRA um atburðinn sagði að herinn vildi minna á til- veru sína, hann væri órjúfanlegur hluti af írsku þjóðlífi. Skotárásin var gerð tæpum sólarhring eftir að lögreglustjórinn í Norður- Irlandi sagði að hryðjuverka- samtökin riðuðu til falls. Hermennirnir voru á eftirlits- ferð í Springfield Road-hverfinu þegar a.m.k. fimm hryðjuverka- menn hófu skothríð á tvær Land Rover-bifreiðir þeirra. Höfðust hryðjuverkamennirnir við í húsi, sem þeir lögðu undir sig í gær og héldu þeir fjórum íbúum þess í gíslingu. Fjöldi fólks, einkum börn og fullorðnir, var utandyra og naut veðurblíðunnar og varð mjög óttaslegið þegar skothriðin hófst. Brezku hermennirnir þrír eru hinir fyrstu sem falla á Norður- Irlandi það sem af er þessu ári, og samtals hafa 346 hermenn týnt lífi þar frá því í odda skarst milli kaþólskra og mótmælenda fyrir rúmum tólf árum. Árásarmenn- irnir komust undan. Nicaragua vill viðræður Samcinuðu þjóðunum, 25. marz. AP. DANIEL Ortega leiðtogi herstjórn- arinnar í Nicaragua tjáði Öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna að Sandin- istar og skæruliðar vinstri manna í El Salvador væru tilbúnir til að hefja beinar viðræður við Bandaríkja- menn strax til þess að jafna ágrein- ingsmál þessara aðila. Ortega sagðist hafa umboð til þess að hefja viðræður við Banda- ríkjastjórn fyrir hönd skæruliða vinstri manna í E1 Salvador, „strax og án nokkurra skilyrða". Ortega sagðist einnig hafa umboð Castro Kúbuleiðtoga til þess að tilkynna vilja Kúbumanna til við- ræðna við stjórn Reagans forseta. Sagði Ortega viðræður geta farið fram í þriðja landinu, sem báðir aðilar gætu orðið ásáttir um. Jorge Castaneda utanríkisráð- herra hefur lagt til að viðræður af þessu tagi hæfust í Mexíkó í næsta mánuði. Walesa harð- neitar að ræða við her- stjórnina YarsjÁ, 25. marz. AP. LECH Walesa, leiðtogi óháðu verkalýðshreyfingarinnar í Pól- landi harðneitar að eiga samn- ingaviðræður við herstjórnina og krefst þess að Jaruzelski hers- höfðingi komi og „krjúpi fyrir sér“ að sögn embættismanns stjórnarinnar. „Meðan hann er svo einarður verður ekki gerð tilraun til að tala við hann,“ sagði önnur heim- ild. Talið er ólíklegt að eitthvað verði úr viðræðum háttsettra manna og leiðtoga Samstöðu, mcðan Walesa situr fast við sinn kcip. Hermt er að ósveigjanleiki Walesa í garð herstjórnarinnar hafi átt sinn þátt í því að hann fékk ekki að vera viðstaddur skírn dóttur sinnar í Gdansk á sunnudag. Diplómatar sögðust í dag hafa haft spurnir af verkföll- um í Ursus-dráttarvélaverk- smiðjunum, en óljóst var hversu alvarleg eða víðtæk þau voru. Krafizt hefur verið átta ára fangelsis yfir leiðtoga Sam- stöðu í Bielsko Biala, Patrycj- usz Kosmowski, fyrir að stofna til ólöglegra verkfalla og að skipuleggja starfsemi neðan- jarðarsamtaka. Jafnframt hef- ur saksóknari krafizt fjögurra ára fangelsis Jerzy Jachnik, sem sagður er hafa falið Kosm- owski. Pólska þingið kom saman til tveggja daga fundar í dag, þar sem utanríkis- og landbúnað- armál voru efst á baugi. Jozef Czyrek utanríkisráðherra veittist harðlega að Banda- ríkjastjórn og refsiaðgerðum hennar gegn Sovétríkjunum og Póllandi. 0 Olga fer vaxandi á Vesturbakkanum: Israelskur hermaður veginn úr launsátri Nahlus, 25,marz. AP. ÍSRAELAR settu tvo áhrifamikla palestínska borgarstjóra á Vesturbakkan- um af í dag, með þeim afleiðingum, að arabískir upphlaupsmenn á hcrnumdu svæðunum gerðu ísraelskum hermönnum fyrirsát, felldu einn og særðu þrjá til viðbótar. Róttæk samtök palestínskra skæruliða lýstu ábyrgð á sprengju- árásinni, en síðar vildi PLO, sem stendur saman af þessari hreyfingu og sjö öðrum, ekkert kannast við árásina. Hermaðurinn féll er hand- sprengjum var varpað úr fyrir- sátri á ísraelska herflutningabif- reið á Gaza-svæðinu. Hann er fyrsti ísraelski hermaðurinn sem fellur í vikulöngum ofbeldisað- gerðum á hernumdu svæðunum, en þær hafa kostað fimm araba lífið og 21 hefur særst. Tveir grímuklæddir arabar vörpuðu handsprengjunum að bíl hermanna, sem sprakk í loft upp. Ein handsprengja sprakk rétt við bíl araba og særðust þrír þeirra er í bílnum voru. Árásarmennirnir komust undan með því að hlaupa inn í nálægan appelsinulund og felast þar. Einnig var ráðist á bíl ísraela í þorpinu Adna við Hebron og kveikt í honum. Einn ísraelanna særðist í grjótkasti er hann reyndi að hlaupa frá árásarmönnunum. Að sögn yfirstjórnar hersins voru borgarstjórarnir í Nablus og Ramallah settir af „fyrir endur- teknar tilraunir til þess að stofna til ófriðar á Vesturbakkanum". Israelskir hermenn tóku sér stöðu í borgunum og kom til átaka. Unglingahópar hentu grjóti og flöskum að hermönnunum, sem svöruðu með því að varpa tára- gassprengjum. Glasatvíburar fæðast í Kanada Oakvillc, 25. marz. AP. ENSKHKENNARI í menntaskóla ól í dag tvibura, sem getnir voru í tilraunaglasi, hinir fyrstu sinnar tegundar í Norður-Ameríku, að sögn Trafalgar-sjúkrahússins í Oakville í Ontaríó. Fyrstu glasatvíburarnir fædd- ust í Ástralíu í júní í fyrra, drengur og stúlka, en nú fæddust tveir drengir. Drengirnir komu í heiminn með 11 mínútna milli- bili, og vó annar tæpar 14 merk- ur, en hinn rúmar 12. Eru dreng- irnir og móðir þeirra við góða heilsu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.