Morgunblaðið - 26.03.1982, Page 3

Morgunblaðið - 26.03.1982, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982 3 Utanríkisráðherrar ræddu heimsmálin og aukna spennu UtanríkLsráðherrar Norðurland- anna funduðu í Keykjavík í gær. Ka'ddu þeir heimsmálin og þá auknu spennu, sem er að Tærast í aukana milli ýmissa þjóða. Lýstu þeir ydr vilja Norðurlandanna til að reyna að vinna gegn þeirri þróun. I>á ræddu þeir ástandið í 1‘óllandi, Austurlöndum nær, Suður-Afríku og Mið-Ameríku og lýstu áhyggjum sín- um yfir síauknum mannréttinda- brotum í heiminum. Þá skiptust þeir á skoðunum um hugmvndina um kjarnorkulaus Norðurlönd og voru sammála um að halda umræðum um hana áfram. Þeir, sem tóku þátt í umræðun- um voru frá vinstri: Svend Stray, utanríkisráðherra Noregs, Kjeld Olesen, utanríkisráðherra Dan- merkur, Ólafur Jóhannesson, utanríkisráðherra, Ola Ullsten, utanríkisráðherra Svíþjóðar og Pár Stenbáck, utanríkisráðherra Finnlands. I.jósmynd Mbl. Kristjan. A-listinn Reykjavík: Röð átta efstu manna óbreytt frá prófkjörinu K()f) 8 efstu manna á framboðslista AlþýðuMokksins í Reykjavík vegna borgarstjórnarkosninganna í vor verður óbreytt frá prófkjöri flokks- ins í febrúar, samkvæmt tillögum uppstillingarnefndar, sem sam- þykktar voru síðastliðinn miðviku- dag. Uppstillingarnefnd gerði þó fyrirvara um víxlun á tveimur sætum ofan við það 11. Tillögur nefndarinnar verða lagðar fyrir fulltrúaráð flokksins í Reykjavík eftir næstu helgi til staðfestingar. Samkvæmt tillögum uppstill- ingarnefndar verða 10 efstu sætin skipuð eftirtöldum mönnum: 1. Sigurður E. Guðmundsson, 2. Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, 3. Bjarni P. Magnússon, 4. Guðríður Þor- steinsdóttir, 5. Bragi Jósepsson, 6. Ásta Benediktsdóttir, 7. Snorri Guðmundsson, 8. Grétar Geir Nik- ulásson, 9. Ragna Bergmann Guð- mundsdóttir og 10. Bryndís Schram. Þær Ragna Bergmann og Bryn- dís Schram tóku ekki þátt í prófkjörinu, en auk þeirra átta, sem efstu sæti skipa tóku eftir- taldir þátt í prófkjörinu: Guð- mundur Haraldsson, Skjöldur Þorgrímsson, Jón Hjálmarsson og Marías Sveinsson. Iljörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra og dr. Paul Miiller við upphaf álviðræðnanna í gærmorgun. Ljósm. Mbi. Kmilía. Alviðræðum hald- ið áfram í dag „ÞAÐ VGRII einkaviðræður okkar dr. Miiller í um það bil eina klukku- stund i morgun, en eftir það komu aðstoðarmenn okkar inn í myndina. Um sjálfar viðræðurnar í dag get ég ekkert sagt efnislega. Viðræðunum verður haldið áfram í fyrramálið og er ekkert um þær að segja fyrr en að þeim loknum," sagði Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gærkvöldi að loknum viðræðum um samskipti Islands og Alusuissc. Viðræður Hjörleifs Guttorms- sonar og dr. Paul Múller hófust klukkan 9.30 í gærmorgun í Ráð- herrabústaðnum. Um klukkan 11 bættust fleiri í viðræðuhópinn og meðal ráðgjafa iðnaðarráðherra voru Ingi R. Helgason og Vil- hjálmur Lúðvíksson. Þeir Ragnar Halldórsson forstjóri og Halldór H. Jónsson stjórnarformaður IS- AL voru meðal þeirra sem tóku þátt í viðræðunum með dr. Múller fyrir hönd Alusuisse. Dr. Múller borðaði hádegisverð með þeim Hjörleifi Guttormssyni, Steingrími Hermannssyni og dr. Gunnari Thoroddsen, en þessir þrír mynda álviðræðunefnd ríkis- stjórnarinnar. Fundur viðræðunefndanna hófst á ný um klukkan 17 í gær og lauk honum um klukkan 18.30. Gert er ráð fyrir að álviðræðunum Ijúki síðdegis í dag. Selur Arnarflug DC-6 vél íscargo? „VIÐ HÖFUM tekið að okkur, að hafa milligöngu um sölu á DC-6 vél íscargo,“ sagði Gunn- ar Þorvaldsson, framkvæmda- stjóri Arnarflugs, á fundi með blaðamönnum. — Vegna málsins eru staddir hér Bandaríkjamenn, sem hafa lýst áhuga sínum á kaupum. Fyrirtæki þeirra rekur 8 vélar af þessari gerð til flutninga á skepn- um, sagði Gunnar ennfremur. Þá sagði Gunnar aðspurður, að ekki væri um neina beina sam- vinnu félaganna að ræða. Arnar- flug fengi einfaldlega sín umboðs- laun fyrir söluna ef af henni verð- ur. BAHIA STRATOS Gæðasett fyrir fólk sem gerir kröfur Opið til kl. 7 í kvöld i3ídsfeócjar Símar: 86080 og 86244 Húsgögn Ármúli 8

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.