Morgunblaðið - 26.03.1982, Síða 13

Morgunblaðið - 26.03.1982, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982 13 Gjörbreytt stefna stjórnvalda forsenda fyr- ir vexti útflutnings- og samkeppnisiðnaðar eftir Lárus Jónsson alþingismann Nýlega flutti Hjörtur Eiríks- son, forstjóri Iðnaðardeildar SÍS, ræðu á atvinnumálaráð- stefnu á Akureyri. Fram kom í ræðu hans að hagdeild Sam- bands ísl. samvinnufélaga hefði gert athugun á rekstrarskilyrð- um útflutningsiðnaðar tímabilið 1976 til 1980. Niðurstaðan varð sú, að hlutfallsleg hækkun út- gjalda vegna innlendrar verð- bólgu varð miklum mun meiri en hækkun tekna í krónum og reyndust skilyrði ullar- og skinnaiðnaðar hafa versnað um rúm 21% á þessu tímabili. Á ár- inu 1981 snöggversnuðu þessi rekstrarskilyrði enn og var það „langversta rekstrarár í mjög langan tíma“, að mati Hjartar. Hér er um afar athyglisverðar upplýsingar að ræða — burtséð frá pólitísku dægurþrasi — vegna þess að það er auðvitað borin von að útflutnings- eða samkeppnisiðnaður geti orðið burðarás í vexti atvinnulífsins, eins og allir stjórnmálaflokkar segja í orði, ef þessi mynd er nálægt sanni. Til þess að svo megi verða, þarf gjörbreytta at- vinnustefnu. Könnun Hagdeildar SÍS Niðurstaðan úr könnun hag- deildar SIS um rekstrarskilyrði ullar- og skinnaiðnaðar kemur glöggt fram á meðfylgjandi mynd. Tekjumegin er sýnt hvernig verðlag í OECD-löndum hefur þróast í krónum miðað við 100 1976 og einnig gen^isþróun bandaríkjadollars. Utgjalda- megin er sýnd hækkun á aðföng- um og kostnaði á sama tíma miðað við 100 árið 1976. Innlent verðlag hefur hækkað gífurlega miklu meira en hækkun tekna í krónum á þessu tímabili ein- faldlega vegna þess að verðbólg- an innanlands hefur ekki verið viðurkennd í gengisskráning- unni, svo sem nauðsynlegt væri vegna rekstrarskilyrða þessara HÆKKUN TEKNA OG ÚTGJALDA I ULLAR-OG SKINNAtÐNAEK Lárus Jónsson „Segja má, að árið 1981 hafi einkennst af því í atvinnumálum, að stjórnvöld bönnuðu ís- lenskum iðnaði að selja vörur sínar á kostnaðar- verði, bæði innanlands og utan.“ útflutningsiðngreina og enn- fremur kemur þetta niður á samkeppnisiðnaði, sem keppir við innflutning á þessu gengi. Barnaleikur miðaö við þróunina 1981 Þegar svona er búið að vaxt- arbroddum atvinnulífsins, er ekki þess að vænta að hagræð- ing og vélvæðing, sem er þessum iðngreinum lífsnauðsynleg, gangi eins greitt og skyldi. Þess vegna m.a. koma ár eins og 1981 forráðamönnum þessara at- vinnugreina í enn opnari skjöldu. Sannleikurinn er sá, að vond rekstrarskilyrði á fyrr- greindu tímabili voru hreinn barnaleikur samanborið við þá þróun sem varð á árinu 1981. Þá hækkuðu kauptaxtar um 42%, lánskjör um 47%, en gengi bandaríkjadollars um 31,4%, v- þýsks marks um 13,9% og sterlingspunds aðeins um 4,8% frá ársbyrjun til ársloka. Á því ári bjó samkeppnisiðnaðurinn við hörðustu verðlagshöft sem um getur frá stríðslokum að auki, þannig að segja má, að ár- ið 1981 hafi einkennst af því í atvinnumálum, að stjórnvöld bönnuðu íslenskum iðnaði að selja vörur sínar á kostnaðarverði, bæði innanlands og utan. Koma þarf í veg fyrir kostnaðarhækkanir Ut er komin fróðleg skýrsla um starfsskilyrði atvinnuveg- anna. Þar er m.a. fjallað um stefnuna í gengismálum og um það segir svo orðrétt: „Á þessum vanda verður ekki ráðin bót með breyttri stefnu í gengismálum einni saman“, og er þá átt við sambúðarvanda sjávarútvegsins og iðnaðar að því er varðar gengisskráning- una. Þetta er hverju orði sann- ara, en í augum uppi hlýtur að liggja, að útflutningsiðnaður, og raunar fiskiðnaður einnig, þrífst ekki ef tekjur hækka ekki í hátt við útgjöldin árum saman. Ann- að tveggja þarf að koma til. Minni hækkun á aðföngum og kostnaði, eða viðurkenning á því að gjaldeyrir kostar þeim mun meira í krónum, sem nemur kostnaðarauka við öflun hans á hverjum tíma. FAGURRI ATHOFN HÆFIR GÓÐUR FATNAÐUR fatnaður sem nýtist hvenær sem er eftir ferminguna Buxurnar eru úr 100% bómull og litir eru dökkblátt eða grátt, vestispeysan er til í dökkbláum lit og hvítar tvíhnepptar skyrtur. verð: Buxur kr. 395,- skyrtur kr. 290,- peysur kr. 295,- bindi kr. 90,- LAUGAVEGI47,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.