Morgunblaðið - 26.03.1982, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982
Verdbólga í Bandaríkjunum
er nú á hröðu undanhaldi
Frá Önnu Kjarnadóttur, fróttaritara
Mbl. í Wa.shinf;ton. 24. marN.
VKKDBÓLGAN í Bandaríkjunum
hcfur hjaðnaA jafnt og þétt síðan í
október og sú tregða virðist halda
áfram. Nýjustu tölur atvinnumála-
ráðuneytisins sýna að vöruverð
hækkaði aðeins um 3% í febrúar.
Verðbólgan hefur hjaðnað hraðar en
ríkisráðunautar og hagfræðingar
áttu von á og er nú 7,7% að meðal-
tali fyrir siðustu 12 mánuði. Verð-
bólga í Bandaríkjunum hefur ekki
verið svo lág síðan í júlí 1978.
Verð á olíu og bílum er þökkuð
þessi þróun. Bensínverð hefur
lækkað á síðustu vikum og bílasal-
ar bjóða afslátt á nýjum bílum.
Mikið framboð á olíu á alheims-
markaði hefur haldið olíuverði
niðri og eftirspurn eftir bílum hef-
ur verið minni en nokkru sinni það
sem af er árinu. Hækkanir á olíu
eru ekki fyrirsjáanlegar og samn-
ingar við starfsmenn bílaiðnaðar-
ins um lægri laun ættu að halda
verðbólgunni niðri. Gott upp-
skeruár heldur verði á matvöru í
skefjum.
Ráðamenn í Hvíta húsinu fagna
verðbólguþróuninni en eru ánægð-
ir yfir að-vextir hafa ekki lækkað
að sama skapi. Kaupsýslumenn í
Wall Street virðast ekki sann-
færðir um að verðbólgan sé end-
anlega á niðurleið. Paul A. Volck-
er seðiabankastjóri er meðal
þeirra sem telja að það sé ekki nóg
að ná verðbólgunni niður til að
vextir lækki heldur verði hallinn á
fjárlögum fyrir árið 1983 að vera
leiðréttur. Hallinn á fjárlögum
sem Reagan lagði fyrir þingið er
um 100 milljarðar dollarar en
repúblikanar og demókratar úr
báðum deildum þingsins leita nú
^leiðar til að minnka hann. Þeim
hefur orðið lítið ágengt fram til
þessa.
Efnahagskreppan í Bandaríkj-
unum er mjög alvarleg og er háum
Utanríkisráðherra Kínverja
vildi ekkert láta hafa eftir sér
um þetta tilboð Sovétmanna,
sem er hið þriðja síðan ríkin
áttu síðast viðræður um landa-
mæradeilurnar í júní 1978.
Sagði hann, að tilboð Sovét-
manna hefði ekki verið yfirfarið
af stjórnvöldum.
Kínverjar hafa sagt, að
nokkrir umdeildir staðir séu á
hinni 7250 km löngu landa-
vöxtum fyrst og fremst kennt um.
Atvinnuleysi í febrúar var 8,8%.
Fjöldi smærri fyrirtækja hefur
orðið að loka og fólk sem hefur
búið við efnahagslegt öryggi þarf
nú að leita aðstoðar ríkisins. Von-
ast er til að eftirspurn aukist á
næstu mánuðum þegar verðbólgan
heldur áfram að hjaðna og hag-
kerfið nái sér loks upp úr þeirri
djúpu lægð sem það nú er í.
mæralínu á milli ríkjanna, en
Sovétmenn vilja ekki kannast
við að svo sé. Hafa Kínverjar
farið þess á leit, að Sovétmenn
kalli herlið sitt heim frá þeim
stöðum, eigi grundvöllur fyrir
viðræðum að vera fyrir hendi.
Kínverjar hafa látið í það
skína, að samskipti þeirra við
Bandaríkjamenn kunni að fara
kólnandi, verði ekkert lát á
vopnasölu þeirra til Taiwan.
Fréttaskýrendur á Vesturlönd-
um halda því frafn, að Sovét-
menn vilji nota tækifærið á
meðan kólnandi sambúð Kin-
verja og Bandaríkjamanna sé
yfirvofandi og friðmælast við
forna fjendur sína.
Tillögum Brezhnevs fálega tekið:
Kínverjar þögul-
ir sem gröfin
l’eking, 25. mars. Al*.
KÍNVERJAK EKII þögulir sem gröfin og hafa ekkert látið uppi varðandi þau
ummæli Leonid Brezhnevs, forseta Sovétríkjanna, að þeir væru „reiðubúnir
hvenær sem er“ til viðræðna um landamæradeilur ríkjanna.
ÁBYRGÐARTÉKKAR Á ÚTVEGSBANKANN ERU
ÖRUGGUR
GIALDMHMLL
Utgeíandinn sýnir þér skilríki sem sannar heimild hans til útgdíu
dbyrgðartékka. Á skírteininu stendur hve hár tékkinn megi vera.
Bankinn ábyrgist innlausnina.
ÚTVEGSBANKINN
Greinilega bankinn fyrir þig líka.
Ráðist á
páfa í Tékkó-
slóvakíu
l’rag, 25. mars. Al*.
OPINBERT málgagn í Tékkóslóv-
akíu gagnrýndi Jóhannes Pál páfa II
harðlega fyrir að ganga í lið með
Kandaríkjamönnum í árásum þeirra
á sósíalískt ríki.
Bandaríkjamenn og kirkjan
hafa oftlega orðið fyrir árásum
opinberra fjölmiðla í landinu, en
árásin í dag þótti mun harðari en
venja ber til.
Sagði blaðið, Tvorba, að kirkjan
stæði að baki Samstöðu í Póllandi.
Sagði blaðið ennfremur, að páfi
hefði innleitt nýjan hugsunarhátt
Vatikansins gagnvart ríkjum
Austur-Evrópu. Hernaðarmál
væru ofarlega í hugum leiðtoga
Vatikansins og það væri stefnu-
breyting mjög svo til hins verra.
James L Dozier hefshöfðingi ber vitni fyrir réttinum í Verona i síðustu
viku. í baksýn má sjá annað rimlabúranna, sem sakborningarnir voru
hafðir i á meðan á réttarhöldunum stóð.
Ræningjar Doziers dæmdir
Verona, 25. mars. Al*.
DOMAK voru í dag kveðnir upp
yfir ræningjum James L Dozier
hershöfðingja. Voru þeir nokkru
vægari en saksóknari hafði farið
fram á. Voru dómarnir frá 26 mán-
uðum og allt upp í 27 ár.
Antonio Savasta, yfirlýstur
leiðtogi hópsins, fékk 16 ára og 6
mánaða dóm, og var hann þyngri
en krafist hafði verið. Vægustu
refsinguna hlaut Volinia, sem ók
bifreiðinni, sem notuð var við
ránið á Dozier. Var hann dæmd-
ur í 26 mánaða fangelsi.
Þyngsti dómurinn kom hins
vegar í hlut Caesare di Lenardo,
sem handtekinn var í árás lög-
reglunnar á fylgsni mannræn-
ingjanna. Alls voru 17 mann-
ræningjar sakfelidir, en átta
þeirra voru dæmdir að þeim
fjarverandi.