Morgunblaðið - 26.03.1982, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982
15
„Vinátta ’82“
Wojziech Jaruzelski, yfirmaður herstjórnar Póllands, yfirmaður a-þýska hersins, Heinz Hoffmann og sovéski
marskálkurinn, Viktor Kulikow, yfirmaður herliðs Varsjárbandalagsins, bera saman bækur sinar á heræfingu í
Norður-Póllandi undir nafninu „Vinátta ’82“.
Vörður drepinn í
handtökum ráðherra
*
Utgöngubanni aflétt í Bangladesh
Dacra og Nýju I>elhi, 25. mar.s. AP.
HINIR NÝJII valdhafar í Bangladesh létu í dag til skarar skriða og hófu
handtökur fyrrverandi ráðherra. Var einn vörður drepinn í átökum, sem urðu
við handtöku forsætisráðherrans. Vitað er með vissu um handtökur fimm
fyrrverandi ráðherra. Ostaðfestar fregnir herma, að forsætisráðherrann,
ásamt tveimur ráðherrum öðrum, hafi verið i felum er til hans náðist.
utan hvað stúdentar við háskól-
ann í Dacca efndu til mótmælaað-
gerða vegna byltingarinnar og af-
náms mannréttinda. Ekki var
nánar vitað hvernig tekið var á
mótmælendunum.
HERSTJÓRNIN í Bangladesh af-
létti í dag útgöngubanni, sem ver-
ið hefur í gildi frá því hún komst
til valda eftir byltingu aðfaranótt
miðvikudags. Var almenningi
leyft að fara ferða sinna á nýjan
leik, en hundruð varðmanna voru
á götum úti. Verslanir, þjónustu-
stofnanir og skólar voru opnaðir á
ný og daglegt líf varð samt og áð-
ur.
Allt virtist með kyrrum kjörum,
Sím»mynd-AP.
Hossain Mohammcd Ershad, leiðtogi herstjórnarinnar i Bangladesh.
Fyrirhuguðum „degi hersins",
sem vera átti í dag og fjöldagöngu
til að minnast sjálfstæðis lands-
ins, sem vera átti á morgun, hefur
verið frestað af yfirvöldum.
Tengsl landsins við umheiminn,
sem voru rofin við byltinguna,
komust að nokkru leyti í samt lag
í dag. I „All-India“ útvarpsstöð-
inni í Indlandi var frá því greint,
að leiðtogar stjórnarandstöðu-
flokkanna sex hefðu verið hand-
teknir.
Þá var því lýst yfir, að þeir, sem
gerðu sig seka um að mótmæla
stjórninni á einn eða annan hátt,
yrðu fangelsaðir. Ennfremur þeir,
sem staðnir yrðu að því, að stunda
pólitískar athafnir af einhverju
tagi. Þá var almennum borgurum
hótað fangelsun sæist til þeirra
með vopn. Dauðarefsing mun síð-
ar bíða þeirra, sem bera vopn.
Hægrimenn
segja bylt-
inguna gefa
nýja von
(■ualcmalaborg, 25. mars. AP.
HAFT ER eftir leidtoga eins
stjórnniálaflokkanna, sem
beid ósigur í nýafstöönum
kosningum í Cuatemala, aö
med byltingunni hafi gefist
tækifæri til að koma reglu á
stjórnskipan i landinu, sem
hafi verið í lamasessi eftir að
upp komst um svik í kosning-
unum fyrir þremur vikum.
Leiðtoginn, Vinicio Cerezo, sem
tilheyrir flokki hægrisinnaðra
kristilegra demókrata, sagði í gær,
að byltingin hefði opnað leið fyrir
bjartari framtíð þessa Mið-
A.meríkuríkis og um leið aukið
möguleikana á varanlegum friði í
landinu.
Annar hægrimaður, Mario
Sandoval Alarcon, leiðtogi Þjóð-
frelsisfylkingarinnar, sagðist vera
ánægður með þá ákvörðun hersins
að bylta stjórn, sem reynt hefði að
verja kosningasvikin.
Byltingin virðist fyrst og fremst
hafa verið gerð í því augnamiði að
koma í veg fyrir, að hinn nýkjörni
forseti, Angel Anibal Guevara,
tæki við völdum.
Viðbrögð Bandaríkjastjórnar
við byltingunni hafa einkennst af
varfærni. Sú skoðun Bandaríkja-
manna, að mannréttindi séu fyrir
borð borin í Guatemala, hefur
ekki breyst við valdatöku hersins.
Að sögn yfirmanns mannréttinda-
stofnunar Bandaríkjanna, taldi
hann erfitt að segja til um hvort
byltingin leiddi til aukins lýðræð-
is.
Njósnari dæmd-
ur til dauða
Bcrlín, 24. mars. AP.
HERDÓMSTÓLL í Austur-Berlín
dæmdi í dag V-Þjóðverja til dauða
fyrir njósnir. Rúdiger Noll frá
Hamborg, en svo heitir maðurinn,
er ákærður fyrir að hafa njósnað
um hernaðarleyndarmál í A-
Þýskalandi allt frá árinu 1974. Er
hann sagður hafa komið á 140
fundum með samstarfsmönnum
sínum í Austur-Berlín.
Óttast að skæruliðar reyni
að eyðileggja kosningarnar
Atök á milli stjórnarhersins og skæruliða í El Salvador
San Salvador, 25. mars. AP.
í BRÝNU sló á milli stjórnarhersins og skæruliða snemma í morgun í
fjallahéruðum skammt frá flugvelli rétt utan við höfuðborgina. Ekki er
vitað um manntjón. íbúar í nágrenninu sögðu skærurnar ekki eins harðar
og þær, sem urðu í gær.
Kosningabaráttan er nú í al-
gleymingi. Hervörður á götum
úti var öflugri en verið hefur.
Ekki hafði frést af neinum erj-
um, en talið er víst að skæruliðar
muni reyna að spilla friði á
sunnudag, þegar gengið verður
að kjörborði.
Vinstrimenn sniðganga kosn-
ingarnar algerlega, en kristilegir
demókratar, sem réðu ríkjum í
Iandinu áður en sameiginleg
stjórn almennra borgara og
hersins tók við völdum, líta á
þær sem síðasta hálmstráið í
baráttunni gegn hugsanlegri
valdatöku kommúnista.
Útvarpsstöð skæruliðanna
sagði í sérstæðri útsendingu í
dag, að þeir hefðu stjórn á öllum
þjóðvegum í norðurhluta lands-
ins og hefðu gert nokkrar árásir
á borgir í þeim landshluta. Vöru-
og farþegaflutningar til norður-
og austurhluta landsins liggja
niðri vegna hótana skærulið-
anna.
Athöfn, sem fara átti fram í
dómkirkjunni í San Salvador, til
minningar um að tvö ár eru liðin
frá því að Oscar Arnulfo Romero,
erkibiskup í landinu, var ráðinn
af dögum, var frestað af ótta við
uppþot. Var hans minnst víða um
borgina í minni kirkjum og kap-
ellum.
Vinstrimenn í landinu segja
kosningarnar hreinan skrípaleik
og aðgerð Bandaríkjamanna til
að styrkja valdastöðu hægri-
manna. Segja þeir að jafnvel þótt
þeir vildu bjóða fram í kosning-
unum myndu þeir ekki hætta á
það af ótta við að frambjóðendur
þeirra yrðu drepnir.
Þeir 150 útlendingar frá 40
löndum, sem komið hafa til
landsins í boði stjórnvalda til að
fylgjast með kosningunum, hafa
fengið leyfi til að ferðast um
landið þvert og endilangt að vild.
Hafa yfirvöld boðið fram alla
hugsanlega aðstoð.
Alexander Haig, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sendi fyrr
í þessum mánuði nefnd til Hav-
ana til að reyna að fá ráðamenn
á Kúbu ofan af stuðningi sínum
við skæruliða í E1 Salvador.
Vernon Walters, hershöfðingi,
ræddi við Fidel Castro í fjórar
klukkustundir.
Þá hefur New York Times eftir
ónafngreindum embættismanni
að stjórn Reagans myndi fallast
á samningaviðræður á milli
nýrrar stjórnar E1 Salvador og
skæruliða svo framarlega, sem
þeir færu ekki fram á valda-
hlutdeild í stjórn landsins.
ÍSLANDS
Lestun í erlendum
höfnum
AMERÍKA
PORTSMOUTH
Junior Lotte 5. april
Selfoss 7. april
Mare Garant 16. april
Junior Lotte 30. april
NEW YORK
Mare Garant 26. marz
Junior Lotte 7. april
Selfoss 8 april
Mare Garant 19. aprn
HALIFAX
Hofsjökull 29 marz
Selfoss 16. april
BRETLAND/
MEGINLAND
ROTTERDAM
Eyrarfoss 29 marz
Alafoss 5. april
Eyrarfoss 12. apríl
Alafoss 19. april
ANTWERPEN
Eyrarfoss 30. marz
Alafoss 6 april
Eyrarfoss 13. april
Alafoss 20. april
FELIXSTOWE
Eyrarfoss 31. marz
Alafoss 7. april
Eyrarfoss 14. april
Alafoss 21. april
HAMBORG
Eyrarfoss 1. april
Alafoss 8. april
Eyrarfoss 15. april
Alafoss 22. april
WESTON POINT
Helgey 30. marz
Helgey 13. april
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
BERGEN
Dettifoss 31. mars
Dettifoss 13. april
Dettifoss 26 april
KRISTIANSAND
Dettifoss 30 marz
Mánafoss 19. april
Mánafoss 3. mai
MOSS
Dettifoss 30. marz
Manafoss 6. april
Dettifoss 13. april
Mánafoss 20. april
GAUTABORG
Dettifoss 31. marz
Mánafoss 7. april
Dettifoss 14. april
Manafoss 21 april
KAUPMANNAHÖFN
Dettifoss 1. april
Mánafoss 8. april
Dettifoss; 15 apríl
Manafoss 22. apríl
HELSINGBORG
Dettifoss 2. april
Manafoss 9. april
Dettifoss 16. april
Manafoss 23. april
HELSINKI
Mulafoss 1. april
Irafoss 19. april
RIGA
Irafoss 23 april
GDYNIA
Mulafoss 8 april
Irafoss 24 april.
THORSHAVN
Mánafoss 1 apnl
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
- framog til baka
frá REYKJAVÍK alla mánudaga
frá ISAFIRDI alla þriójudaga
frá AKUREYRI alla fimmtudaga
EIMSKIP
SÍMI 27100