Morgunblaðið - 26.03.1982, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.03.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982 17 Systurskip Hvítabjarnarins Veður hamlaði að þyrla færi strax frá Hvítabirninum Danska þyrlan af Hvítabirninum: Varð að fara til lands vegna bilunar er tveim ur hafði verið bjargað HANNES Þ. Hafstein, fram- kvæmdastjóri Slysavarnafélags ís- lands, sagði í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins í gærkveldi, að fyrst hefði frést um erfiðleika Suðurlands klukkan 12.55 í gær, en þá heyrði Hornafjarðarradíó neyð- arkall frá skipinu. Þá var það statt 35 til 40 sjómílur norður af Myki- nesi i Færeyjum. Þá var kominn um 60 gráðu halli á skipið, og óskuðu skipverjar aðstoðar. Vindur var þá 7 til 8 vindstig af suðsuðvestri og mikill sjór. — Skömmu síðar sagði Hannes að skipverjar hefðu til- kynnt að maður hefði fallið fyrir borð, og ekki náðst aftur, og kváð- ust þeir vera að yfirgefa skipið. Hannes Hafstein sagði, að þeg- ar hefði verið haft samband við fjölmarga aðila vegna málsins; flotastöð Dana í Færeyjum, þar sem þær upplýsingar fengust að varðskipið Hvítabjörninn væri í um klukkustundarsiglingu frá Suðurlandi, en vegna veðurs væri „ÞETTA var hálf nöturleg vist í gúmmíbjörgunarbátnum, enda höfðu menn ekki haft tíma til að klæða sig vel og ég var til dæmis á skyrtunni, hljóp beint úr koju þegar óhappið dundi yfir,“ sagði Sveinn Steinar Guð- jónsson, 2. stýrimaður á Suðurlandi, en hann var annar skipverja sem danska þyrlan af varðskipinu Hvíta- birninum bjargaði 35 mílur frá Myki- nesi i Færeyjum í haugasjó í gær. Við vorum búnir að vera á ára- bátnum og gúmmíbjörgunarbátnum um það bil l'A klukkustund þegar ekki unnt að senda þyrlu á loft. Haft var samband við Landhelgis- gæsluna um leitarflug héðan, og einnig við Varnarliðið á Keflavík- urflugvelli, þar sem Hercules- flugvél og björgunarþyrla voru hafðar til taks. Enn var haft sam- band við björgunarstöð í Skot- landi, sem sendi þyrlu frá breska flughernum af stað frá Lossie Mouth-stöðinni á Inverness í Norður-Skotlandi. Skömmu síðar fór Nimrod-leitarþota einnig það- an. Þá var Hercules-flugvél bandaríska hersins, sem var á leið frá Bretlandi til íslands, beðin að fara inn á það svæði sem leitað var að skipverjanum er féll fyrir borð. — Er hér var komið sögu sagði Hannes að talið hefði verið heppilegast að hafa flugvélarnar hér á landi á bakvakt, ef á þyrfti að halda, í stað þess að senda þær þegar á vettvang. Klukkan 14.32 sagði Hannes, að skilaboð hefðu komið frá Færeyj- danska þyrlan kom á vettvang og náði okkur tveimur um borö, en hún tók ekki fleiri í einu,“ sagði Sveinn Steinar. „Það var skuggalegt að lenda í þessu og sárt var að missa mann. Skipið valt geysilega eftir að slagsíðan kom á það og við áttum í miklum erfiðleikum að losa björg- unarbátana frá skipinu. Það munaði litlu að álbáturinn sem var okkar síðasta von eftir að við höfðum misst gúmmíbjörgunarbátana, færi hreinlega niður með skipinu, því um þess efnis að þyrla frá Hvíta- birninum hefði fundið gúmmí- björgunarbát af Suðurlandi, og að tekist hefði að bjarga tveimur mönnum úr honum um borð í þyrluna, og yrði flogið með þá til Vogeyjar í Færeyjum. Þá bárust fréttir um að breska þyrlan hefði bjargað hinum átta, og flogið yrði með þá til Þórshafnar. Þangað var komið klukkan 17.42, en skipverj- arnir tveir er danska þyrlan bjargaði fóru til Þórshafnar, ak- andi frá Vogey. Klukkan 17.42, er breska þyrlan var lent i Þórshöfn, var jafnframt tilkynnt að Suður- land væri sokkið. Hannes Hafstein sagði, að brezku björgunarmennirnir hefðu enn einu sinni unnið mikið björg- unarafrek við erfiðar aðstæður, og hið sama mætti segja um Danina, sem björguðu skipverjunum tveimur. hann festist undir daviðunum og hálffylltist af sjó, en það bjargaðist á síðustu stundu. Halldór skipstjóri og Ingimar stýrimaður urðu að synda frá skip- inu í haugasjó, 8—9 vindstigum og rigningarsudda. Sjógangurinn var ofboðslegur og þegar við vorum að reyna að keyra skipið upp til að halda því sem lengst á floti, slitnaði línan í gúmmíbjörgunarbátnum. Það er fátt sem hemur afl hafsins „ÞEGAR okkur hafði tekist að ná upp tveimur íslendinganna í bátn- um, urðum við frá að hverfa, og þyrlan varð að fara þegar í stað til lands aftur vegna bilunar," sagði einn skipverja um borð í danska varðskipinu Hvitabirninum í sam- tali við Morgunhlaðið i gærkvöldi. Hann sagði allar aðstæður á slysstað hafa verið mjög erfiðar, og laust eftir klukkan 22 í gær- kvöldi var leit að skipverjanum er féll útbyrðis hætt. Þá var enn slæmt veður á þessum slóðum, sex til sjö vindstig og auk þess mikill straumur. „Við höfum því neyðst til að hætta leitinni án þess að NIMR()D-1H)TA frá breska flughern- um, llercules-flugvél frá bandaríska hernum og danska varðskipið Hvíta- björninn, heyrðu öll neyðarkall frá gúmmíbjörgunarbáti Suðurlands í gær, og var á þann hátt unnt að miða nákvæmlega út staðsetningu bátsins, og senda þvrlur mönnunum til bjarg- ar, sagði Mik Magnússon, blaða- fúlltrúi Varnarliðsins á Kelfavíkur- flugvelli i samtali við Morgunblaðið í þegar það er í ham. Við urðum stanzlaust að ausa álbátinn undir róðrinum, því það gaf svo til sam- fellt yfir hann. Það var líka all- þröngt um borð því við vorum 10 í bát sem er gefinn upp fyrir 8 menn, en þetta gekk upp og þeir voru snöggir að hífa okkur upp, þyrlu- mennirnir, þegar þeir komu á vett- vang og óneitanlega var það þægileg tilfinning þótt maður sveiflaðist fram og til baka eins og poki í bandi þessa 40 metra hæð sem hífingin tók.“ finna skipverjann af Suðurlandi, því rniður," sagði Daninn um borð í Hvítabirninum. „Við förum því inn til Færeyja og bíðum átekta þar til á morgun." Hann sagði langa stund hafa liðið þar til tókst að bjarga þeim átta, sem enn voru eftir í björgun- arbátnum, er dönsku þyrlunni hafði tekist að ná tveimur. Þeir hefðu verið kaldir og hraktir, er loks tókst að ná þeim, og líðan skipverjanna verið orðin mjög slæm. Seint í gærkvöldi var enn unnið að viðgerð á þyrlunni af Hvíta- birninum, en ekki var þá ljóst, hve alvarleg hún var. gærkvöldi. Mik sagði, að um væri að ræða sjálfvirkan neyðarsendi, svonefnd ERT-merki, sem gúmmíbjörgunar- báturinn sendi frá sér. Mjög lág- skýjað hefði verið á hafsvæðinu um- hverfis slysstaðinn, og því hefðu björgunarskip og flugvélar orðið að miða björgunarbátinn út. Venju- legar herflugvélar sagði Mik Magn- ússon ekki hafa tæki á UHF- bylgjulengd, sem næði sendingum ERT-tækisins, en þessi móttökutæki hefðu verið um borð í Hercules- og Nimrod-vélunum, sem hefðu því náð þeim. Flugstjóri Hercules-vélarinnar bandarísku er David Hughes, majór í bandaríska hernum. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við hann þar sem hann var kominn til Keflavíkur í gærkvöldi. Kvaðst hann hafa verið á leið frá Bretlandi til Keflavíkur, er ósk kom um að fara af leið og svipast um eftir Suðurlandi. Þar hefði verið mjög lágskýjað, og þeir því lítið séð niður til sjávar. Það sem þeir sáu hefði þó verið mjög úfinn sjór og erfiðar aðstæður niðri á haffletinum. Nimro-þotuna sagði hann fyrst hafa náð neyðarskeyti björgunarbátsins, en síðan einnig þá í Hercules-vélinni og Danina um borð í Hvítabirninum. Merkin hefðu gert það að verkum, að unnt var að staðsetja mennina í sjónum, og hefði áhöfn Nimrod-þotunnar getað gert það sjálf, en ekki hefði spillt fyrir að þrír björgunaraðilar heyrðu skeytin og hefðu þannig getað gert nákvæma staðarákvörðun. „Við náðum björgunar- bátnum á síðustu stundu“ — segir Sveinn Steinar Guðjónsson, II stýrimaður á Suðurlandi Tvær flugvélar og varðskip miðuðu stað- setningu bátsins út Helgi Hálfdanarson: Ad ad að að að að að Mörg er skemmtileg fjöl- breytnin í íslenzku máli og mál- venjum. Þar er eitt með öðru sú hefð, sem bindur ákveðnar for- setningar við tiltekin staðanöfn. Jafnan er sagt í Hafnarfirði og á Siglufirði, en aldrei öfugt, þegar átt er við kaupstaðina sjálfa. Sagt er í Keflavík og á Hólma- vík, en ekki öfugt; og svo mætti lengur telja. Mig minnir að Baldur Jónsson háskólakennari hafi einhvern tíma í útvarpi sett fram reglu um þessar forsetn- ingar með nöfnum kaupstaða og kauptúna (jftir landshlutum; en ekki er ég viss um að ég færi rétt með hana. Gaman væri að fá hana á þrykk. Um nöfn sveitabæja gegnir líku máli; jafnan hefur sagt ver- ið á Hvoli, í Garði, á Völlum, í Nesi o.s.frv. Þó að ekki sé þar um einhlítar reglur að ræða, mega frávikin kallast fátíðar undan- tekningar. Að undanförnu hefur þó viss breyting verið að færa sig upp á skaftið. Vera má, að við mal- arbúar, sem vitum ekki lengur hvað snýr aftur og fram á kú, séum farnir að ruglast í ríminu og því hættir að þora til við for- setningarnar í og á. En þá hefur slyngum mönnum komið í hug, að í fornu máli og góðu má sjá forsetninguna að hafða með bæj- arnöfnum, ef svo ber undir. Og þá er ekki að sökum að spyrja; með oddi og egg er gengið að því að útrýma forsetningunum í og á, og að sett í stað þeirra beggja. Nú mætti það þykja blendinn kristindómur að amast við fornri fyrirmynd í notkun máls. Ekki skal það heldur gert. For- setningin að í þessum notum hefur einmitt vegna fornra dæma fengið tiltekinn blæ, sem gefur henni sérstakt gildi í máli, ef hún er notuð í mjög góðu hófi, svo sem löngum hefur tíðkazt. En því gildi glatar hún með öllu, ef henni er sólundað á bæði borð, svo sem gert hefur verið nú um sinn. Þá á hún það eitt fyrir sér að enda í fullkominni lágkúru. Fyrir nokkru var þulin í út- varp tilkynning embættismanns um fundi á tilteknum stöðum. Þar var um að ræða bæjanöfn, sem forn málvenja hafði bundið ákveðnar forsetningar við, svo sem verið hefði: á Grund, í Tungu, á Gili, á Melstað, í Saurbæ, í Hólkoti, á Barði. í stað þess að virða þessa hefð, sagði maðurinn allsstaðar að, bæði fyrir i og á: að Grund, að Tungu, að Gili, að Melstað, að Saurbæ, að Hólkoti, að Barði. Með þessu lagi tapast fyrr en varir úr málkennd almennings þessi skemmtilega tilbreyting, og truntuleg einhæfni kemur í stað- inn. En að-súgurinn er ekki ein- göngu gerður að bæjanöfnum; hann nær einnig til stofnana, samkomustaða, veitingahúsa; sagt er ad Hótel Borg og að Bif- röst, þó að löngum væri sagt á Hótel Borg og í Bifröst. Meira að segja götur og götunúmer í bæj- um fá ekki að sleppa. Menn eru sagðir til heimilis að Grettisgötu 2 og að Tjarnargötu 3, og fundur- inn var haldinn að Klapparstíg 4, þó að föst málvenja hafi verið: á Grettisgötu, í Tjarnargötu og á Klapparstíg. Nýlega sá ég í blaði fyrirsögn af því tagi, að þjófnað- ur hefði verið framinn að Soga- vegi. Og gamli maðurinn, sem á afmæli, dvelst ekki á heilsuhæl- inu í Kristnesi, heldur að heilsu- hælinu að Kristnesi, ef hann er þá ekki staddur að heimili dóttur sinnar að Einimel 123, þar sem hann fær vonandi svo góða að- hlynningu sem hann á skilið, og helzt betri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.