Morgunblaðið - 26.03.1982, Síða 22

Morgunblaðið - 26.03.1982, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982 Hljóm- plotur Finnbogi Marinósson Leiðinleg til lengdar Dcpeche Mode Speak and Spell MUDE STUMM 5 Það voru fjórir ungir piltar sem stofnuðu Depeche Mode í bænum Basildon á Bretlandi á meðan þeir sátu enn sveittir yfir skólabókunum í gagnfræðaskól- anum. Þeir eyddu öllum sínum frístundum heima hjá Vince Clarke þar sem þeir sátu með heyrnartólin límd við eyrun og slógu hljóðlaus lög á nótnaborð hljóðgerflanna. Móðir Vince var ekki ýkja hrifin af svellunum sem nóturnar á hljómborðstækj- unum gáfu frá sér en þeir voru þó betri en ærandi hávaðinn í venjulegum rokkurum. Hægt og rólega fóru þeir að færa sig út fyrir æfingaplássið og í fyrstu voru það diskótek og aðrir slíkir staðir sem þeir spiluðu á. Þrír þeirra með hlóðgerfla og einn Hið heimsfræga stórkostlega snjalla körfuknattleiksliö HAR- LEM CLOBETROTTERS leikur gegn WASHINGTON GENER- ALS í Laugardalshöll 19. og 20. apríl nk. Leikur tveggja banda- rískra superliöa, sem allir VERÐA að sjá. I hálfletk sýna bandarískir rúlluskauta-anillingar tistir sínar, töframenn og sprellikarlar koma fram. Stórkoatiag akemmtun fyrir alla fjölskylduna. FORSALA aðgöngumiöa hefst á morgun kl. 13—17 aö Hótel Esju og íþróttavallarhús- inu, Keflavík. Miðapantanir utan af landi teknir í símum 85949 - 82448 - 82465 á sama tíma. Ath. Aöeins þessir 2 leikir. FLUGLEIDIR Coke Trade-mírk <& :j. Horlem lobetrotters til íslands með hljóðnemann, seiddu þeir ungt fólk til fylgis við sig og að- dáendahópurinn óx hratt. Eftir að hafa spilað sem slíkir um nokkurt skeið var gefin út lítil plata og á henni er lagið „Dreaming of Me“, sem gekk sæmilega vel. Aðra sögu er að segja af næstu litlu plötu. A henni er lagið „New Life“ og það fór upp í 11. sæti breska smá- skífulistans í ágúst á síðasta ári. í september sendu piltarnir frá sér þriðju smáskífuna og lag af henni fór í 8. sæti 17. október 1981. Leiðin til frægðar var að mestu rudd og tilboðum um út- gáfu og hljómleika rigndi yfir þá. En þeir vildu ekki slíta sam- starfinu við vin sinn, Daiel Mill- er. Það var einmitt hann sem gaf út smáskífur þeirra þrjár og var einnig upptökustjóri. Breiðskífa var það sem allir biðu eftir og hún leit dagsins ljós í nóv. sl. Þessa plötu hefur SPOR svo ný- lega gefið út. Ein breyting hefur orðið á flokknum síðan hann hóf að leika saman. Vince Clarke er hættur að koma fram með Dep- eche Mode en helgar sig nú að öllu leyti tónsmíðum. Þeir þrír sem eftir eru eru: David Cahan söngur, Martin Lee Gore og Andrew John Fletcher, báðir á hljóðgerfla. Tónlistin sem pilt- arnir spila tilheyrir hinni svo- kölluðu nýrómantísku stefnu (t.d. Ultravox). Hún er fyrst og fremst til þess að dansa við og til slíks er hún nokkuð góð. Það er ekki alveg rétt að segja að þetta sé diskótónlist en það fer samt nærri. A plötunni eru 11 lög sem öll eiga það sameiginlegt að hafa allnettar laglínur og stundum hreint góðar. Ef eitthvað ætti að tiltaka mætti nefna lög eins og „Boys Say Go“ og „Nodisco". Annars er það eitt lag sem er öllum öðrum skemmtilegra, „What’s Your Name“. Ef vel er hlustað þá má finna gamlan mikið notaðan rokk-frasa í nýj- um búningi. Stundum er grunnt á frumlegheitunum hjá sumum af þessum hljómsveitum. Þó hef- ur Depeche Mode eitt fram yfir flestar aðrar nýrómantískar hljómsveitir en það er söngur- inn. Hann er mun fjölhæfari og jafnvel skemmtilegur á þessari plötu og er það meira en hægt er að segja um marga aðra flokka sem tilheyra þessari stefnu. Svona í stuttu máli er hægt að segja að „Speak and Spell" sé góð skemmti- og danspiata en annars rís hún ekki hátt. FM/AM Dans- tónlist B-52’s Mesopotamia Island ISSA 4006. Bandaríska hljómsveitin B- 52’s hefur nú sent frá sér sína 4. plötu. Hún ber nafnið „Mesopot- amia“ eins og eitt af sex lögum sem þar er að finna á plötunni. Hijómsveitin var stofnuð í New York og var í fyrstu aðeins partý-hljómsveit. Hana skipa: Ricky Wilson gítar og hljóm- borð, Cindy Wilson söngur, Keith Strikland hljómborð og fl., Fred Schneider söngur, Kate Pi- erson söngur, hljómborð o.fl. Vegur hljómsveitarinnar fór þó ört vaxandi og að lokum varð flokkurinn að færa sig úr heima- húsum og út í stærra húsnæði svo allir þeir sem á vildu hlýða eða dansa með, kæmust að. Tvær fyrstu plöturnar eru mjög góðar þó sérstaklega sú seinni, „Wild Planet". Þriðja platan fór eitt- hvað fyrir ofan garð og neðan og gerði ekkert til að auka hróður B-52’s. Tónlistin sem B-52’s spila er diskó. Inn í hana spinnast svo áhrif frá tónlist Afríkúbua og hin ýmsu hljóð setja einkenni sín á tónlistina. Á „Mesopot- amia“ halda þau áfram að spila þetta undarlega sambland sitt og tekst misvel upp. Ekki vil ég taka einstakt lag út úr heldur segja að í heild sé að finna hluti sem teljast til áframhaldandi þróunar í tónlistinni og svo aftur á móti eru þarna hlutir sem eru staðnaðir, eða þá að bara er komin þreyta í lagasmíðina. Þetta hefur í för með sér að tón- listin er annað hvort mjög leið- inleg og þreytandi eða fram úr hófi áhugaverð. Mér finnst ekki vera hægt að leggja neinn ákveðinn dóm yfir þessa plötu, heldur ætti hver og einn að segja til um hana sjálf- ur. Hinu verður ekki neitað að vonbrigðin urðu meiri en ánægjan. FM/AM. Sauðárkrókur: Sæluyikan á fullu Sauóárkróki, 24. marz. SÆLUVIKAN er hér í fullum gangi. Leikfélag Sauðárkróks frumsýndi „Einkalír’ eftir Noel Coward síð- astliðinn sunnudag. Leikstjóri er Elsa Jónsdóttir. Sauðárkrókskirkja var þéttsetin á mánudags- og þriðju- dagkvöldið en þar var fjölbreytt dagskrá. Kirkjukór og einsöngvarar sungu, ræður voru fluttar og hljóð- færaleikararnir Jóhannes Eggerts- son, Siguröur Marteinsson og Þor- valdur Steingrímsson úr Reykjavik léku. Þeir heimsóttu sjúkrahúsið og þóttu góðir gestir. Einnig fóru þeir í tónlistarskólann og spiluðu þar og ræddu við nemendur. í gærkvöldi söng karlakórinn Heimir í Bifröst við góðar undir- tektir og á föstudag og laugardag syngur Skagfirska söngsveitin úr Reykjavík hér. Leiksýningar og kvikmyndasýningar eru alla daga og dansleikir síðustu kvöld vik- unnar. Kári. Miðinn kostar 45 kr. og íœst í síma^82399 og 33370 Landshappdrcetti SÁÁ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.