Morgunblaðið - 26.03.1982, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982
25
Langholtsbúar,
látum drauma
þeirra rætast
Það er vor í lofti, draumar um yl
og skrúð sækja fastar og fastar að.
Einn á falið fræ í foldu og draum
um það sem jurt; annar að vorvall-
arstarf hans í skólanum verði tek-
ið gilt og hann fái leyfi til að
ganga út á sumarstarfsvöll lífsins.
Ekki veit ég, hvaða draumur bær-
ist í þínu brjósti, en ég bið samt að
hann rætist og vera þín öll fyllist
gleði yfir því að fá að vera til, fá
að taka þátt í því ævintýri sem
lífið vissulega er. Ég bið þess líka í
dag að draumur Kvenfélags Lang-
holtssóknar um kirkjuna sína full-
búna fái rætzt sem allra, allra
fyrst.
í þrjátíu ár hafa þær unnið og
beðið, í þrjátíu ár hafa þær komið
með gjafir sínar, rétt þær fram og
sagt: Breytið þessu í gróðurreit
fyrir þá kenning er Kristur bar til
jarðar, svo að framtíð íslenzkrar
þjóðar megi vera henni vigð.
Árangur þeirra er ævintýri líkast-
ur. Gjafirnar þeirra hafa reynzt
milljónir, á síðasta ári réttu þær
starfinu hér rúmlega 82 þúsund
krónur. Það þarf bakstur til, það
þarf mörg nálspor til, það þarf
starf og lifandi trú til.
Á sunnudaginn kemur, eftir
guðsþjónustu, munu þær bjóða
fram merkin sín, bjóða fram
veizlukaffið sitt í von um að þú
viljir vera gestur þeirra, viljir
taka þátt í að draumur þeirra um
fullbúna kirkju rætist.
Þær ætlast ekki til hárra fram-
laga af okkur hverju og einu, en
þær trúa því, að með því að taka
saman höndum, þá vgrði létt verk
að ljúka þessum gróðurreit á vor-
velli þeirra æsku er hér á eftir að
alast upp. Svo létt, að það sé jafn-
vel hægt að taka þátt í því með því
að bera merki í barmi, baka köku,
drekka kaffi við veizluborð.
Tökum þátt í þessu með þeim.
Breytum draumi þeirra í vöku-
mynd. Hafi þær þökk fyrir starf
sitt, og þú þökk fyrir liðsinni þitt.
Sig. Hatikur
Langholtskirkja
Sauðkrækingar álykta:
Ríkisstjórnin af-
greiddi tillögu
iðnaðarráðherra
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun, þar sem
hvatt er til þess að hraðað verði
afgreiðslu á ákvörðun um stað-
setningu steinullarverksmiðju á
Sauðárkróki:
„Sameiginlegur fundur bæj-
arstjórnar Sauðárkróks, sýslu-
nefndar Skagafjarðarsýslu,
stjórnar Steinullarfélagsins hf.
og Iðnþróunarfélags Skaga-
fjarðar haldinn á Sauðárkróki
23. mars 1982 beinir þeim ein-
dregnu tilmælum til ríkis-
stjórnarinnar að hún afgreiði
tillögu iðnaðarráðherra um
staðsetningu steinullarverk-
smiðju án tafar, eins og Alþingi
hefur falið henni með lögum um
steinullarverksmiðju nr.
61/1981.
Þetta mál hefur verið alllengi
í undirbúningi í Iðnaðarráðu-
neytinu, enda er tillaga iðn-
aðarráðherra rækilega
rökstudd í áliti steinullarnefnd-
ar og mati sérfræðinga ráðu-
neytisins á áætlunum áhugaað-
ilanna.
Ekki hefur verið unnt að
vinna að tæknilegum og fjár-
hagslegum undirbúningi máls-
ins nú um nokkurt skeið meðan
beðið var eftir ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar. Því er nauðsyn-
legt að hún afgreiði málið nú
þegar til þess að ekki komi til
frekari tafa á undirbúningi og
framkvæmdum."
S. 26900
URVALS
Páskaferð til Akureyrar
7.—12. apríl
Hótel Varöborg — Hótel Akureyri
Verö frá kr. 1.565,- í 5 nætur m/morgunveröi
í Hlíðarfjalli er eitt besta skíðasvæði landsins, hvort
sem er fyrir svig, brun eða göngu. Einnig er boöið
upp á skíðaleigu og skíðakennslu.
AKIBETU
INMSU
Þú hef ur sjödagaskilaf rest
Electrolux ryksugan er hljóðlát, sogkrafturinn rafeindastýrður
og aðlagar sig sjálfkrafa að þykku teppi eða trégólfi.
Fótrofi til að ræsa mótorinn og til að draga inr^^iruna.
Stýrishjól undir henni miðri auðveldar keyrslL^^^mi-
púðar á hliðum og lipur sogbarki.
AUKAHLUTIR:
SOGSTYKKI með Ijósi og rafknúnum bursta sem bankar
teppið um leið og sogað er.
PÚSSIKUBBUR sem sveiflast upp í 18000 snúninga á min.
Sogið hreinsar allt ryk undan kubbnum.
á Electrolux
ryksugum
Vorumarkaðurinn ht.
ÁRMULAIa