Morgunblaðið - 26.03.1982, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982
Sigfús Halldórsson
- Minningarorð
Fæddur 20. janúar 1922
Dáinn 15. mars 1982
Nú er horfinn sjónum okkar
I)úddi eins og hann var kallaður.
Hans jarðneska líf tók enda þann
15. mars vegna hans veikinda. Með
nokkrum orðum langar mig að
minnast þessa góða manns, sem
öllum vildi vel og taldi ekki eftir
sér að gera öðrum greiða. Fram í
hugann koma minningarnar, hver
annarri ljúfari.
Við systkinin tókum miklu ást-
fóstri við hann og hans fjölskyldu.
Hann var okkur eins og annar
pabbi þegar við vorum börn, og
heimsóttum við þau Boggu frænku
og hann suður til Reykjavikur í
þvottalaugarnar, og hefur alltaf
haldist gott samband milli okkar
fjölskyldna. Síðast þegar ég sá
Dúdda, var það á 25 ára afmæli
mínu á síðastliðnu ári, alltaf var
hann jafn góður og hlýr sem fyrr.
En nú er Dúddi allur. og hans
skarð autt. En hækkandi sól og
nálægö vorsins minnir okkur á
hvern mann hann hafði að geyma.
Efst í huga okkar allra er að hafa
verið í samvistum við jafn góðan
mann.
Við systkinin vottum þér elsku
Bogga mín, börnum þínum og
ömmu Guðrúnu samúð okkar. Guð
gefi þér styrk og þeim sem eiga
um sárt að binda.
Kveðja,
Anna, Hjörleifur Helgi og Vignir.
Það er skrýtið að hugsa til þess
að afi okkar sé horfinn. Eiga aldr-
ei eftir að sjá brosið hans eða
heyra hann syngja framar. En við
eigum þó alltaf minningarnar eft-
ir. Allar þessar góðu minningar,
því hann var besti afinn í heimin-
um.
Hann hafði alltaf tíma fyrir
okkur. Hann mataði okkur og
sagði okkur sögur á meðan svo að
við kláruðum allan matinn okkar.
Hann fór með okkur inn í rúm og
söng fyrir okkur á meðan við vor-
um að sofna. Þó við værum óþekk
var hann ætíð góður við okkur.
Elsku afa okkar þökkum við
fyrir að hafa fengið að þekkja
hann. Við hefðum viljað hafa
hann alltaf hjá okkur. En við vit-
um, að nú líður honum vel og er
engill uppi hjá Guði og passar
okkur alltaf.
Guð blessi elsku afa.
Bylgja Ilögg og Sigfús.
Kgill Örn og Sif.
Skjótt hefur sól hrugóiA sumri,
því séó hef ég fljúga
fannhvíU svaninn úr sveitum
til sóllanda fegri.
Sofinn er nú songurinn Ijúfi
í svolum fjalldölum,
{;rátþö)rull harmafugl hnipir
á húsgafli hverjum."
J.H.
Megi þessi fáu kveðjuorð fylgja
Dúdda yfir móðuna miklu, þar
sem foreldrar, tvær systur og fjöl-
margir aðrir ættingjar og vinir
bíða hans fagnandi.
Þessi hægláti ljúflingur er horf-
inn héðan, en eftir standa eigin-
kona, börn og tengdabörn harmi
lostin.
Góður guð styrki þau og varð-
veiti í þeirra miklu sorg.
Við hjónin þökkum innilega
liðnar samverustundir, öll ferða-
lögin og útilegurnar á mörgum
undanförnum árum, sem veittu
okkur ölium svo mikla ánægju og
hvíld. Og hvað við hlógum oft að
græskulausri kímni Dúdda, sem
fylgdi honum til hinstu stundar.
Aldrei lagði hann illt til nokkurs
manns. Alltaf reyndi hann að
bæta úr, væri þess nokkur kostur.
Slíkum mönnum er erfitt að
gleyma.
Við þökkum samfylgdina af öllu
hjarta.
Edda og Siggi
í dag kveðjum við Sigfús Hall-
dórsson hinstu kveðju. Hann lést
að morgni 15. mars síðastliðin eft-
ir stutta sjúkrahúslegu. Við, sem
vorum vanir að hitta hann á
vinnustað á hverjum morgni, sjá-
um nú óvænt skarð fyrir skildi.
Sigfús var verslunarstjóri hjá Þ.
Jónsson & Co og hafði starfað þar
nær samfellt í 17 ár. Hann var
einstaklega traustur starfsmaður
og ávann sér virðingu þeirra, sem
hann vann með, og ekki síður
þeirra, sem til hans leituðu. Ár-
vekni hans og samviskusemi í
starfi var slík, að ekki sá hnökra á
og hann reyndist alls þess trausts
verður sem á hann var lagt. Hann
hafði til að bera létta lund, sem
laðaði að unga sem aldna og í
daglegum störfum lífgaði hann
vinnustaðinn á sinn Ijúfa hátt.
Það var alltaf gott að leita til
hans með vandamál sín og hann
lagði sig ætíð fram um að líta á
björtu hliðar málanna og leysa
þau á farsælan hátt.
Það er lán að fá að kynnast
manni sem Sigfúsi og starfa með
honum og ég þakka samfylgdina
og harma að hún varð ekki lengri.
Við vinnufélagarnir sjáum á
bak traustum félaga og vini og við
vitum, að missir fjölskyldu hans
er mikill.
Þegar kallið kemur fyrirvaralít-
ið eru viðbrigði snögg og söknuð-
urinn sár.
Fyrir hönd starfsfélaga hans vil
ég votta eiginkonu hans, Sigur-
borgu Helgadóttur, og öllum að-
standendum innilega samúð
okkar.
Guðmundur Ragnarsson
Þeir sem hljóðast ganga skilja
oft mest eftir sig, og þeim er
kannski erfiðast að senda hina
síðustu kveðju. Margt leitar á
hugann og minningarnar hrann-
ast upp, en á orðunum stendur.
Sigfús var fágætt ljúfmenni,
óeigingjarn og ósérhlífinn, krafð-
ist aldrei neins sér til handa, en
kappkostaði að gera vel við aðra.
Síðustu stundirnar sem við áttum
saman og Sigfús lá sárþjáður,
vildi hann ekkert um veikindi sín
tala, hugurinn var allur bundinn
framtíð og velferð hans nánustu.
Ekkert annað komst að, og er þar
kannski lífssaga hans í hnotskurn.
Sigfús var annálað traustmenni
í starfi, og þeir munu margir sem
sakna hljóðrar en hlýrrar fram-
komu hans og bónfýsi. Það er erf-
itt að kveðja þann sem svo nærri
manni stendur, en þó kveðju-
stundin sé óumflýjanleg mun Sig-
fús ávallt eiga tryggan sess í hug-
um okkar og minningin um góðan
mann lifa.
Jóhann Páll
Hann er dáinn hann Dúddi.
Þessi fegn barst mér klukkan að
ganga 12 mánudaginn 15. mars
síðastliðinn. Mig setti hljóðan,
hann var að vísu búinn að vera
veikur undanfarnar vikur eftir
slæmt hjartakast, en virtist nú
heldur að hressast, en þá kom
kaliið og eitt sinn skal hver deyja.
Það er lögmál lífsins, það verða
allir að sætta sig við. En þó eru
menn misjafnlega við því búnir.
Það er ekki langt síðan ég heim-
sótti hann og lyfti glasi honum til
heiðurs á sextugsafmæli hans.
Ekki datt mér þetta þá í hug að
hann yrði allur tæpum 2 mánuð-
um síðar, já maður veit nú minna
en það.
Dúddi hét Sigfús Halldórsson
fullu nafni. Hann var fæddur á
Dalvik 20. janúar 1922 og var því
rétt orðinn sextugur þegar hann
lést. Hann var sonur hjónanna
Guðrúnar Júlíusdóttur, Daníels-
sonar frá Syðra-Garðshorni í
Svarfaðardal og Halldórs Sigfús-
sonar Jónssonar frá Grund í sama
dal. Hann var þvi af góðum
svarfdælskum ættum kominn.
Sigfús ólst upp í foreldrahúsum á
Dalvík þeim góða og vinsæla stað,
þar sem brimaldan stríðir við
fjörusand, þarna norður við
Dumbshaf. Þar tók hann sín
fyrstu spor, þar ólst hann upp við
öll sjávarstörf eins og títt var um
unga menn á þeim tíma. Beitti
línu, gerði að fiski og vann annað
það sem til féll. Ég minnist þess
einkum stuttu eftir að frystihúsið
á Dalvík tók til starfa undir stjórn
Kristjáns Jóhannessonar að ég
kom þar að sem Sigfús, eða Dúddi
eins og hann var alltaf kallaður,
var að flaka fisk. Fórst honum það
vel og hönduglega. Ég man þetta
sérstaklega því ég lærði að flaka
fisk nokkru síðar þarna á sama
stað.
Svo líða æskuárin við leik og
störf. Dúddi var mjög músíkalsk-
ur, spilaði á harmoniku sem hann
fékk sér og náði þar góðum
árangri. Hann var söngvinn vel,
hafði mjúka og þýða rödd, var í
karlakórum svo sem Karlakórnum
Fóstbræðrum hér í Reykjavík.
Þegar Dúddi hafði aldur til tók
hann bílpróf og má þá segja að
æfistarfið væri ráðið, því fljótlega
eftir það gerðist hann leigubíl-
stjóri á Akureyri hjá Kristjáni á
BSA í nokkur ár. Þá lá leiðin suð-
ur til Reykjavíkur þar sem hann
byrjaði leiguakstur á eigin bíl hjá
Borgarbílastöðinni. Þar var hann í
nokkur ár ýmist við leiguakstur
eða afgreiðslu. En þegar þreytan
fór að gera vart við sig í þessari
atvinnu og þegar honum bauðst
afgreiðslustarf í Varahlutaverslun
Þ. Jónssonar og Co. tók hann það
og var þar uns yfir lauk.
Þegar ég nú kveð kæran bróður
minn við hinstu dyr er mér efst í
huga innilegt þakklæti til hans
fyrir samleiðina okkar og bið svo
guð að blessa hann.
Konu hans, Sigurborgu Helga-
dóttur, votta ég dýpstu samúð
mína og bið góðan guð að gefa
henni styrk í raunum hennar.
Börnum og tengdabörnum svo
og barnabörnum, nákomnum ætt-
ingjum og vinum votta ég dýpstu
samúð mína. I guðs friði.
Július Halldórsson
I dag er til moldar borinn mág-
ur minn, Sigfús Halldórsson, en
hann andaðist 15. mars sl. eftir
stutta en stranga sjúkdómslegu.
Sigfús var fæddur á Dalvík 20.
janúar 1922, sonur hjónanna Guð-
rúnar Júlíusdóttur frá Syðra-
Garðshorni og Halldórs Sigfús-
sonar frá Grund, bæði úr Svarfað-
ardal. Þau fluttu til Dalvíkur og
settu saman bú þar og var Sigfús
þar uppalinn ásamt 5 systkinum
sínum. Tvær systur hans eru látn-
ar og er hann því sá þriðji úr þess-
um systkinahópi sem fer yfir móð-
una miklu. Hann ólst upp við störf
bæði til lands og sjávar eins og
algengt var á hans uppvaxtarár-
um. Hann fluttist til Akureyrar
snemma á 5. áratugnum og kvænt-
ist Sigríði Sigurðardóttur á Akur-
eyri og áttu þau saman tvö börn,
Anton, kvæntan Magneu Þor-
finnsdóttur, búa þau í Vestmanna-
eyjum, og Jóhönnu, gifta Sigurði
Sigurðssyni, en þau búa í Garða-
bæ. Sigfús og Sigríður slitu sam-
vistum.
Kynni okkar Sigfúsar hófust
1951, er hann flutti til Reykjavík-
ur og kvæntist systur minni Sig-
urborgu Helgadóttur frá Unaðsdal
á Snæfjallaströnd. Sigurborg og
Sigfús eignuðust saman fjögur
börn: Guðrúnu, gift Jóhanni Páli
Skagaleikflokkur-
inn frumsýnir
Leynimel 13
Skagaleikflokkurinn frumsýnir í
kvöld kl. 20.20 leikritið Leynimelur
12. I.eiksljóri er Guðrún Alfreðsdótt-
ir. Önnur sýning verður á sunnudag
og sú þriðja á mánudag, báðar kl.
20.20.
Þetta er 16. verkefni Skaga-
leikflokksins frá því hann var
stofnaður árið 1974. Fyrsta verkið,
sem sett var upp, var Járnhausinn
eftir Jónas Árnason. Hefur mikil
gróska verið í starfsemi félagsins
undanfarin ár. Fyrr í vetur var
barnaleikritið Litli Kláus og stóri
Kláus tekið til sýninga á Akra-
nesi.
Með helstu hlutverk í leikritinu
fara þau Guðjón Þ. Kristjánsson,
Elísabet Jóhannesdóttir, Ásta
Ásgeirsdóttir, Jón Páll Björnsson
og Hrönn Eggertsdóttir. Leiktjöld
eru eftir Bjarna Þ. Bjarnason og
félaga hans. Formaður Skaga-
leikflokksins er Guðbjörg Árna-
dóttir.
\l l.l-VSIV. \SI\IINN KK:
22480
JHorjjnnblotiiíi
Mexíkókynning á
Hótel Loftleiðum
Flugleiðir hafa nú tekið upp skipu-
lagðar ferðir til Mexico. Hér er um
að ræða 16 daga ferðir sem þó er
unnt að framlengja. í tilefni af því
verður Mexico-kynning á Hótel Loft-
leiðum dagana 26., 27. og 28. mars.
Þar munu m.a. koma fram Mexic-
anskir hljómlistarmenn og parið
Karen og Keynir sýna dans. Einnig
verða mexicanskir réttir á boðstól-
um.
Mexico:ferðum Flugleiða verður
þannig háttað að dvalist verður á
fjórum stöðum í hverri ferð, þ.e.
New York, Mexico City, Taxco og
Acapulco. Verða þessar ferðir
farnar 1., 15. og 29. maí, en fyrsti
ferðamannahópurinn lagði af stað
til Mexico 3. apríl sl. Auk þessara
hópferða þar sem fararstjóri sér
um hópinn, verða einstaklings-
ferðir í boði.
Á myndinni eru mexíkönsku
hljómlistarmennirnir sem munu
skemmta á Mexico-kynningu
Flugleiða.