Morgunblaðið - 26.03.1982, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1982
Sigurvegararnir í mótinu með bikarinn
Spennandi keppni í
báðum flokkum
Fyrirtækjakeppni BSÍ var haldin
a<t venju í janúar. Aö þessu sinni
tóku þátt 70 fyrirtæki. Keppt var um
Torkunnarfagran bikar sem Skart-
gripaverslun Jóns og Oskars gáfu.
Keppnin var geysihörð og spenn-
andi, í tveim flokkum A og B.
I A-flokki sigruðu Hængur
Þorsteinsson og Þorsteinn Páll
Hængsson fyrir Hæng Þorsteins-
son tannlækni, næstir urðu þeir
Þorstein V. Þórðarson og Gunnar
Jónatansson fyrir Áburðarverk-
smiðjuna.
I B-flokki sigruðu Bjarni Lúð-
víksson og Magnús Elíasson fyrir
Endurskoðunarskrifstofu Sigurð-
ar Stefánssonar þá Daníel Stef-
ánsson og Pétur Hjálmtýsson
fyrir Hótel Sögu.
Forsala á leiki Har-
lem Globetrotters
hefst á morgun
EINS <x; áður hefur verið frá greint
í Mbl. er hið heimsfræga sýningarlið
Harlem (Bobetrotters væntanlegt
hingað til lands 18. apríl næstkom-
andi og mun liöið leika hér tvo sýn-
ingarleiki gegn feröafélögum sínum
Washington PresidenLs í Laugar-
dalshöllinni 19. og 20. sama mánað-
ar. „Island er 100. landiö sem
Globetrotters heimsækja og við er-
um mjög stoltir af því að þeir skuli
velja Island til slíks áfanga. Þetta lið
hefur lengi haft áhuga á því að koma
til Islands þó ekki hafi orðið af því
fyrr en nú. Þeir bjóða upp á 2,5 klst.
skemmtun scm gengur ekki einung-
is út á körfuknattleik, heldur alls
kyns sprell í og með. Þetta er
skemmtun fvrir alla fjölskylduna.
enda leggja þeir sjálfir mikla
áherslu á það,“ sagði Agnar Frið-
riksson landsliðsnefndarmaður hjá
KKÍ á blaðamannafundi fyrir
skömmu er greint var frá komu
þessa fræga körfuknattleiksliðs sem
hvert mannsbarn kannast við.
KKÍ og Flugleiðum hafa borist
ógrynni fyrirspurna um miðaverð
og sölu. Ekki skal um miðaverð
sagt, en hitt er víst, að forsala að-
göngumiða hefst að Hótel Esju á
morgun klukkan 13.00. Á sunnu-
daginn verður síðan sölu haldið
áfram og er óhætt að hvetja fólk
til að tryggja sér miða fyrirfram,
hætt er við að lítið verði eftir af
þeim er nær dregur.
Fiórir leikir i
blakinu í
Fjórir leikir fara fram á íslands-
mótinu í blaki í kvöld. Þrír eru á
dagskrá í Hagaskólanum og hefst sá
fyrsti klukkan 18.30. Er það viður-
eign HK og Bjarma í 2. deild karla.
Síðan mætast ÍS og Víkingur i 1.
kvöld
dcild karla og loks Þróttur og KA í
1. deild kvenna. Fjórði leikurinn
hefst klukkan 20.00 í íþróttahúsi
lláskólans. Leika þar Fram og
Þróttur frá Neskaupstað.
Islandsmótið
í badminton
íslandsmeistaramót i badminton
1982 verður haldið í Laugardalshöll-
Bláfjalla-
gangan
Næstkomandi laugardag fer fram
almenningsganga á skíðum í Blá-
fjöllum. „Bláfjallagangan'*. (iengin
verður ra. 18 km löng leiö. Þátttaka
er öllum heimil. Tilkynna á þátttöku
til skrifstofu skíðafélags Keykjavík-
ur, Amtmannsstíg 2. þar eru veittar
nánari upplýsingar.
inni, Keykjavik, dagana 3.—4. apríl
og hefst laugard. 3. apríl kl. 10 f.h.
Keppt verður í meistaraflokki,
A-flokki, öðlingaflokki (40—50
ára) og æðsta flokki (50 ára og
eldri), í öllum greinum karla og
kvenna. Spilað verður með „Aero-
plane“-boltum.
Þátttökugjald er kr. 80 í tvíliða-
leik og tvenndarleik og kr. 90 í
einliðaleik. Þátttökutilkynningar
skulu hafa borist BSÍ fyrir 25.
mars nk. og skal senda hjálagt
greiðslu fyrir þátttökugjöldum.
Þorvaldur jafnar
íslandsmet sitt
ÞORVALDUR l*órsson frjálsíþrótta-
maður úr ÍK tekur ekki þátt í móti
þessa dagana öðru vísi en að jafna
eða slá íslandsmet. llm helgina sigr-
aði hann í 110 metra grindahlaupi á
frjálsíþróttamóti í Kaliforníu og
jafnaði eigið íslandsmet í leiðinni.
Var mótinu sjónvarpað á vestur-
strönd Bandaríkjanna, og viðtal tek-
ið við Þorvald, þar sem hann var
spurður m.a. um ísland og íslend-
inga, auk þess sem hann þurfti
margsinnis að endurtaka nafn sitt
fyrir sjónvarpsmanninn, sem vildi ná
hinum eina og rétta framburði.
Þorvaldur hljóp 110 m grind á
14,4 sekúndum, sem er sami tími
og hann náði viku áður, en þá
bætti hann íslandsmetið um tvö
sekúndubrot. Fyrir hálfum mán-
uði jafnaði Þorvaldur þágildandi
Þorvaldur Þórason ur (framför
met Péturs Rögnvaldssonar, og
metin eða metjafnanirnar þrjár á
þremur mótum á hálfum mánuði.
Á sama tíma hefur Þorvaldur náð
sínum tveimur beztu tímum í 400
metra grindahlaupi, hljóp á 52,80
fyrir tveimur vikum, og 53,2 um
helgina.
Um næstu helgi keppir Þorvald-
ur í Irvine í Kaliforníu, þar sem
skóli hans, San Jose State, mætir
Kaliforníuháskóla í Irvine og
Long Beach State.
Á mótinu í San -Jose keppti
Þorsteinn Þórsson ÍR, bróðir
Þorvaldar, í spjótkasti og kastaði
59,30 metra. Þorsteinn er fyrst og
fremst tugþrautarmaður, og kepp-
ir í einni slíkri á Martin Luthei
King-minningarmótinu í Stanford
í Kaliforníu eftir tvær vikur.
Hörð keppni á Ljóma-mótinu
Badmintonfélag Akraness hélt hið
árlega Ljómamót sitt um helgina 20.
og 21. mars og var keppt í öllum
greinum í meistaraflokk og voru úr-
slitaleikirnir leiknir á sunnudegin-
um.
Allir bestu badmintonmenn og
konur voru með í þessu móti og
Kristín Magnúsdóttir TBR vann
þrefalt eins og hún hefur svo oft
gert í vetur. I einliðaleik vann hún
nöfnu sína Kristjánsdóttur sem
einnig er úr TBR nokkuð örugg-
lega í úrslitum og þær nöfnur
unnu svo tvíliðaleikinn án keppni í
úrslitum, því þær Lovísa Sigurð-
ardóttir og Hanna Lára Pálsdóttir
úr TBR mættu ekki í úrslita-
keppnina. Í tvenndarleik vann
Kristín M. ásamt Brodda Krist-
jánssyni úr TBR þau Vildísi K.
Guðmundsson KR og Sigfús Árna-
son úr TBR nokkuð auðveldlega.
Kristín var mjög vel að þessum
sigrum sínum komin og framkoma
hennar þegar hún spilar er alltaf
til fyrirmyndar.
Broddi vann einliðaleik karla á
móti Guðmundi Adolfssyni úr
TBR með 17—16 og 15—11 og fékk
þar með hefnd eftir Reykjavík-
urmótið á dögunum. Broddi tapaði
einni lotu á móti Sigfúsi í undan-
úrslitum. I tvíliðaleik voru þeir
Sigfús Árnason TBR og Víðir
Bragason IA í miklum ham og
unnu þá Brodda og Guðmund með
15-8 og 15-11.
Keppt var um farandgripi sem
Smjörlíki hf. hefur gefið til að
keppa um í þessu móti.
íslandsmótið í fim-
leikum um helgina
Gengur Stefán
til liðs við KR?
íslandmeistaramót FSf verður
haldið í Laugardalshöll 27. og 28.
mars, og hefst kl. 14.00 báða dag-
ana.
Þátttakendur eru frá 3 félögum:
Armanni, Björk og Gerplu, 15 stúlk-
ur og 5 piltar. Nokkrir nýir þátttak-
endur eru i þeim hópi. Meðal pilt-
anna keppir Jónas Tryggvason, sem
er við nám í Kíkisíþróttaháskólanum
í Moskvu.
Stúlkurnar keppa í olympíu-
skylduæfingum FIG fyrri daginn
NM i fimleikum
verður hér á
landi í apríl
DAGANA 24. og 25. apríl nk. veróur
haldið llnglingameistaramót Norð-
urlanda í fimleikum.
Mót þetta er mikill viðburður í
sögu Fimleikasambands íslands
vegna þess að það er nú haldið í
fyrsta sinn á íslandi.
Um 40 unglingar frá öllum Norð-
urlöndunum munu taka þátt i þessu
móti, sem verður haldið í Laugar-
dalshöllinni.
og í frjálsum æfingum seinni dag-
inn.
Piltarnir keppa í skylduæfing-
um fyrri daginn og frjálsum æf-
ingum seinni daginn.
Þá munu íslenskir þátttakendur
verða með í móti í Luxemborg 4.
apríl nk. Eru það 3 piltar frá Ár-
manni sem fara ásamt þjálfara
sínum, Guðna Sigfússyni.
Stefán Halldórsson sem þjálfað
hefur handknattleiksliðið Tý, Vest-
mannaeyjum, í vetur mætti á æfingu
hjá KR í fyrrakvöld. Mun hann hafa
■ hyggju að tilkynna félagaskipti yfir
í KK þegar keppnistímabilinu lýkur,
og æfa undir stjórn Andres I)ahl
næsta vetur. Þá hafa sögur verið á
kreiki um að KK fái fleiri leikmenn
til liðs við sig.
Úrslit í skólamótinu
í körfuknattleik
Framhaldsskólamótið í körfuknattleik hefur verið á fullri ferð að undan-
förnu. Botninn var sleginn í mótið um síðustu helgi og urðu úrslit leikja
þessi:
Víöistaðaskóli — Alftamýrarskóli 12—13 20:23
LangholLsskóli — Oldutúnsskóli 14—15 54:39
Austurbæjarskóli — Olafsvíkurskóli 14—15 39:32
Sauðárkrókssk. — Njarvíkurskóli 14—15 16:96
Borgarnesskóli — Keflavíkurskóli 12—13 26:58
Sauðárkróksskóli — Keflavíkurskóli kvenna 12:32
Keykjaskóli — Langholtsskóli 14—15 36:57
Austurbæjarskóli — Njarðvíkurskóli 14—15 36:80
Álftamýrarskóli — Keflavíkurskóli 12—13 úrslit 20:46 = Keflav.
Víðistaðaskóli — Keflavíkurskóli kvenna úrslit 23:34 = Keflav.
LangholLsskóli — Njarðvíkurskóli 14—15 úrslit 45:57 = Njarðv.