Morgunblaðið - 08.04.1982, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982
Páskablað Morgunblaðsins:
Samgöngubyltingin
Ekki er vitað um staö né atund, an al
bilgeröinni »ö daema ar myndin naum-
aat yngri an aaxtfu ára. Framat aru
systurnar Guöbjörg Gialadóttir og Áa-
dia Gisladóttir Johnaan, kona Gisla J.
Johnaan útgaróarmanns og stórkaup-
manna, aam ar lengat til hasgri. Á milli
ayatranna sést i aéra Jes, bróóur
þeirra, en sá, aem ar aó basla vió dakk-
ió ar óþekktur. Glóggir lesandur ajá, aó
hluti al þaaaari gömlu bílamynd ar
notaóur á lorsíóu mióhluta páaka-
blaósina.
Þaó var akki frekar an f dag tekiö út
maó seeldínni aó skipta um dakk fyrir
saxtfu árum og meira an naegur tfmi til
aó taka Iram og stilla upp myndavél-
inni. Þá voru frúrnar aöalatrióió, eina
og lög gara ráó lyrir, en nú leggjum viö
höfuóáharaluna á bflinn og þann aam
ar aó bardúsa við dekkíó, enda fjallar
páakablaóiö um þá hlið málsina.
MORGUNBLAÐIÐ í dag, skírdag,
er í þremur hlutum, 112 síóur alls.
.Miðhluti blaAsins (49—80 bls.)
fylgdi MorgunhlaAinu í gær, miA-
vikudag, og í dag fá lesendur í hend-
ur þaA, sem á vantar (1. bls.—48.
bls. og 81. bls.—112. bls.)
Páskablaðið fjallar að þessu
sinni um þær öru breytingar, sem
orðið hafa á þessari öld í sam-
göngum í lofti og á landi. Blaðið
hefur snúið sér til fjölmargra ein-
staklinga, sem hafa tekið þátt í
þessari þróun hér á landi. Flug-
samgöngur hafa nánast valdið
byltingu í flutningi varnings og
farþega, og samgöngur á landi
hafa einnig breytzt stórlega á
þessari öld, bæði með þéttara og
betra vegakerfi og sterkum og
fullkomnum bifreiðum. Ýmsir
munu vafalaust sakna skipanna,
en um þau hefur oft verið fjallað,
enda hefur þróunin í vöru- og far-
þegaflutningum á sjó átt sér iang-
an aðdraganda og má raunar
rekja þá hlið samgöngumála allt
til landnámsaldar. Þessi þáttur
samgöngumála er kafli út af fyrir
sig.
Morgunblaðið vonast til þess,
að þær gömlu og merku myndir,
sem greinunum fylgja, svo og
frásagnir þeirra, sem þátt tóku í
samgöngubyltingunni, veki verð-
skuldaða athygli og auki áhuga á
mikilvægi samgangna — og þá
ekki sízt nauðsyn þess að stór-
bæta vegakerfi landsins frá því,
sem nú er. Fordæmin ættu að
vera til örvunar, svo erfiðar sem
aðstæður voru, þegar breyt-
ingarnar urðu mestar. Er ekki
sízt ástæða fyrir alþingismenn að
horfast í augu við þá staðreynd,
að mikill hlutur er eftir í upp-
byggingu vegakerfis á íslandi, ef
við eigum að standast samanburð
við hugsjónir og framkvæmda-
vilja þeirra, sem ferðinni réðu á
fyrra hluta þessarar aldar.
Okkur telst til, að efnið um
samgöngubyltinguna samsvari
10—12 örkum í bókarformi, en
allt páskablað Morgunbiaðsins,
án auglýsinga, jafngildir um 250
síðna bók.
BLAÐSÍÐUR 1-48
Þeir hugrökku fljúgandi menn. Jakob F. Ásgeirsson skrifar
þátt af Loftleiðum ........................................... bls. 12
l>á sat konan þarna inni með nýfætt barn sitt á hnjánum. Sveinbjörn
I. Baldvinsson ræöir við Sigríði Gestsdóttur ................. bls. 18
Kamgöngubylting fólgin i aukinni hagkvæmni og öryggi.
Áslaug Ragnars ræðir við dr. Þorgeir Pálsson ................. bls. 22
Mestmegnis hjólfor yfir móana. Fríða Proppé ræðir við Garðar
Helgason og Reyni Zoega ...................................... bls. 24
BLAÐSÍÐUR 49-80
MaAur hefur einhverntima blótað Kömbunum. Arnaldur Indriðason
ræðir við Bjarna Guðmundsson í Túni........................... bls. 50
Mér Hnnst flugið alltaf dálitið ævintýri.
Sveinbjörn I. Baldvinsson ræðir við Kristínu Snæhólm ......... bls. 54
Gróska kom í flugið upp úr 1940.
Sighvatur Blöndahl ræðir við örn Ó. Johnson .................. bls. 56
Vestfjarðaleið yfir vegleysur. Valgerður Jónsdóttir ræðir við Eyjólf
Halldórsson og Ásmund Sigurðsson ............................. bls. 60
Hestarnir fældust og hlupu á fjöll þegar maAur kom á fyrstu bílunum.
Elín Pálmadóttir ræðir við Guðmund Jónasson .................. bls. 64
Mér finnst bíllinn viðbót viA sköpunarverkið. Jóhanna Kristjóns-
dóttir ræðir við Jónínu Jónsdóttur .....v..................... bls. 70
Urðum að aka á keðjum í aurbleytunni. Hildur Einarsdóttir ræðir
við Pál Sigurðsson frá Kröggólfsstöðum ....................... bls. 72
Söfnuðum fargjaldinu i skókassa.
Jóhannes Tómasson ræðir við Edward Kristin Olsen ............. bls. 74
llestarnir fældust er þeir mættu bilum. Anders Hansen ræðir við
Sveinbjörn Tímóteusson ....................................... bls. 76
BLAÐSÍÐUR 81—112
Vinningur í happdrættinu gerði flugnámið mögulegt.
Ágúst I. Jónsson ræðir við Sigurð Ólafsson ................... bls. 82
Þegar morsinn var lagður niður fór að halla undan fæti hjá okkar stétt.
Guðmundur Guðjónsson ræðir við Bolla Gunnarsson .............. bls. 86
Brjósthimnubólgan gerði mig að bilstjóra.
Sveinn Sigurðsson ræðir við Magnús Guðjónsson ................ bls. 86
í æðum íslenskra bilstjóra hlýtur að renna kalt blóð.
Hallur Hallsson ræðir við Gísla Ólafsson ..................... bls. 88
Flugið byggðist á æsku- og athafnamönnum.
Árni Johnsen ræðir við Agnar Kofoed-Hansen ................... bls. 92
Rjóminn flaut um allt.
Þórarinn Ragnarsson ræðir við Magnús Guðmundsson ............. bls. %
Við sögðum alltaf, að ef einhver hefði fengið jarðræktarstyrk
mætti lenda hjá honum. Ágúst Ásgeirsson
ræðir við Sigurð Jónsson ..................................... bls. 102
Þjónustuliðir og upplýsingar:
Dagskrá úvarps og sjónvarps ................................. bls. 4—5
Dagbók (sjúkrahús, söfn o.fl.) .............................. bls. 6
Messur ...................................................... bls. 33
Hvað er að gerast um páskana ................................ bls. 34
Fermingar ................................................... bls. 36
Minnisblað .................................................. bls. 38
Kvikmyndir um páskana ..................................... bls. 108
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
3, 5, 10, og 12 gíra reiðhjól.
Heimsfræg gæðavara.
Varahluta-og viðgerðarþjónusta á staðnum.
Reiðhjólahandbók Fálkans með leiðbeiningum um
notkun og viðhald fylgir öllum Raleigh reiðhjólum.
Útsölustaðir og þjónusta víða um land.
Fáa grunar líklega, að ein af forsíðumyndum Morgunblaðsins hafi verið
tekin við þær aðsteður, sem þessi mynd sýnir, en ekki í fullkominni Ijós-
myndastofu. Myndina tók Ragnar Axelsson, Ijósmyndari, einn góðviðrisdag-
inn uppi í Mosfellssveit. Hún er af Ilendriku Waage. Dregið var skatthol út
á hlað og á það settir nokkrir ungar og páskaliljur i tilefni hátíðarinnar.
/Eskan, vorið og upprisan eiga samleið á þcssum árstíma.
Samstaða VSÍ og Þjóðviljans:
Launamarkmiði Þjóðviljans
fyrir 1983 er þegar náð
VINNUVEITENDASAMBAND ÍSLANDS vill „að kaupbreytingar ráðist af
aukningu þjóðartekna á mann. Með því að nú eru horfur á minnkandi
þjóðartekjum eru að sjálfsögðu engin verðmæti til skipta ... Þessi afstaða
VSÍ er mjög í samræmi við þá afstöðu, sem fram kom í Þjóðviljanum sl.
haust,“ segir Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins, í grein, sem birtist í Þjóðviljanum í fyrradag. Þar kemur einnig
fram, að laun þeirra lægstlaunuðu hafa nú þegar hækkað jafnmikið og
Þjóðviljinn vildi, að yrði að gert yrði i áföngum fram á árið 1983.
í greininni í Þjóðviljanum segir
Þorsteinn Pálsson: „Föstudaginn
21. ágúst 1981 sagði í forystugrein
Þjóðviljans, undir fyrirsögninni:
l.andíó rís , að á næstu tveimur
árum þyrfti greitt tímakaup lág-
tekjufólks að hækka um 6—10%.
Þar sagði að hiklaust ætti að setja
markið þetta hátt, af því að reikna
mætti með að þjóðartekjur ykjust
um 6—7% innan tveggja ára.
Bjartsýni Þjóðviljans um aukn-
ar þjóðartekjur hefur að vísu
brugðist. Eigi að síður voru al-
menn laun hækkuð um 3,25% í
kjarasamningunum í nóvember sl.
og laun þeirra lægstlaunuðu, í sex
neðstu flokkum launastigans, um
4—15% eða 7,5% að meðaltali.
Þrátt fyrir brostnar þjóðartekjur
hafa laun þeirra lægstlaunuðu
þegar verið hækkuð um jafnmikið
og Þjóðviljinn hefur sagt að gera
ætti í áföngum fram á árið 1983."
Gæzluvarðhald
í GÆR var gæzluvarðhaldsvist
Hallgríms Inga Hallgrímssonar
framlengt til 9. júní. Hallgrímur
hefur setið inni í gæzluvarðhaldi
frá því í desember síðastliðinn, en
hann var handtekinn eftir að hafa
misþyrmt ungri stúlku á hrotta-
legan hátt í Þverholti.