Morgunblaðið - 08.04.1982, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 08.04.1982, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982 HVAÐ ER AÐ GERAST UM PÁSKANA? Tónleikar í Hlégarði Freyr Sigurjónsson og Anna Guðný Guðmundsdóttir halda tónleika að Hlégarði á vegum Tónlistarskólans í Mosfellssveit laugardaginn 10. apríl kl. 14.30. Freyr lauk einleikaraprófi í flautuleik frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1978 og hefur síð- an stundað nám í Manchester. Anna Guðný starfar í London sem undirleikari við Guildhall School og Music and Drama en hún hefur stundað nám við þennan skóla undanfarin ár. Á efnisskránni eru meðal annars verk eftir frönsku tónskáldin Couperin, Pixis, Widor og Jolivet. Tónlistarfólkið mun einnig leika á Akranesi 17. apríl og í Norræna húsinu sumardaginn fyrsta. Sígaunabaróninn í Gamla Bíói Sígaunabaróninn eftir Jóhann Strauss verður á fjölunum í Gamla Bíói á annan páskadag kl. 20.00. Nú hafa verið alls 37 sýn- ingar á Sígaunabaróninum. Með helstu hlutverk fara Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Garðar Cortes, Anna Júlíana Sveinsdóttir og Halldór Vilhelmsson. Hljóm- sveitarstjóri sýningarinnar er Páll P. Pálsson. Aðgöngumiðasala er í Gamla Bíói, frá kl. 16.00 daglega. Ljósmyndasafnið flutt Nú nýlega flutti Ljósmynda- safnið aðsetur sitt að Flókagötu 35, og mun safnið verða opið al- menningi á milli kl. 13 og 16 alla virka daga, en allar upplýsingar munu veittar á venjulegum skrif- stofutíma á milli kl. 9 og 17. Málverkasýning á Húsavík Sigurpáll A. Isfjörð opnaði sýn- ingu í safnahúsinu á Húsavík sl. laugardag og sýnir þar 40 vatns- litamyndir og 20 olíumálverk. Þetta er hans fyrsta einkasýning og stendur hún til 12. apríl. Sýn- ingin er opin frá 14.00 til 22.00. Afmælisfundur AA- samtakanna Afmælisfundur AA-samtak- anna verður haldinn að venju föstudaginn langa 9. apríl í Há- skólabíói kl. 21.00. Þar koma fram ýmsir AA-félagar og einnig koma fram gestir frá Al-Anon og Al- ateen-samtökunum. Kaffiveit- ingar verða eftir fundinn. íslensku AA-samtökin voru stofnuð á föstudaginn langa 1954 eða fyrir 28 árum síðan. 1 dag eru á annað hundrað AA-deildir hér á landi sem hver um sig heldur að minnsta kosti einn fund í viku, en þessa fundi sækja allt frá 10 til 150 manns. Myndlistarsýning á Sauðárkróki Ásta Pálsdóttir frá Keflavík heldur málverkasýningu í safna- húsinu á Sauðárkróki. Sýningin verður opnuð kl. 15.00 á skírdag, 8. apríl, og stendur til 12. apríl. Þetta er fyrsta einkasýning Ástu en áð- ur hefur hún tekið þátt í nokkrum samsýningum. Sýnir hún 42 vatnslitamyndir. Ásta hefur stundað nám við myndlistardeild Ba.0iiiQfmnar.LKefIiyi.lt sL JiiuÁr, Kirkjukvöld i Dómkirkjunni Kirkjukvöld Bræðrafélags Dómkirkjunnar verður á skírdag, 8. apríl, kl. 20.30 í umsjá Sjöunda dags aðventista. Á efnisskrá verð- ur orgelleikur þar sem Marteinn H. Friðriksson leikur, þá flytur ávarp séra Þórir Stephensen dómkirkjuprestur, kirkjukór Aðv- entsafnaðarins syngur með undir- leik Sólveigar Jónsson, Erling B. Snorrason flytur inngangsorð, Árni Hólm syngur einsöng með kirkjukórnum, Björgvin Snorra- son fjallar um kvöldmáltíðina, þá verður fluttur lofsöngur, en síðan fjallar Jón Hj. Jónsson um Grasa- garðinn. Lokaorð flytur Erling B. Snorrason og þá verður fluttur kórsöngur en á eftir honum fer með bæn séra Hjalti Guðmunds- son dómkirkjuprestur og síðan verður sunginn sálmurinn „Son guðs ertu með sanni”. Málverkasýning í Norræna Helgi Guðmundsson myndlist- armaður opnaði málverkasýningu sína í Norræna húsinu á miðviku- daginn sl. Á sýningunni eru 52 olíumálverk en þetta er fjórða einkasýning Helga þar sem hann hefur áður sýnt í Bogasal tvisvar og í Keflavík. Sýningin verður opin til 20. apríl og sýningartími er frá 14.00 til 22.00 á hverjum degi. Ferðafélag íslands: Gönguferðir um páskana Fyrir þá sem ekki fara í lengri ferðir um páskana, en vilja samt njóta útiveru, eru ferðir daglega páskavikuna á vegum Ferðafé- lagsins. Skíðagönguferðir eru alla dagana, nema páskadag, ennþá er nægur snjór og er ástæða til að hvetja skíðagöngufólk að nota snjóinn meðan tækifæri gefst. Gönguferðir eru daglega frá 8.—12. apríl og er miðað við, að börn og fullorðnir geti tekið jafn- an þátt í þeim ferðum. Það er far- ið í allar þessar ferðir kl. 13 frá Umferðarmiðstöðinni, austan- megin, annars er fólki bent á að kynna sér vel auglýsingu í blaðinu í dag. Nú eru margir frídagar fram- undan og blöð koma ekki út fyrr en 14. apríl, en einmitt að kvöldi 14. apríl verður myndakvöld á veg- um Ferðafélagsins. Félagsmenn í íslenzka Alpaklúbbnum munu sýna myndir frá sínu starfi og jafnframt veita upplýsingar um störf Alpaklúbbsins. Mattheusarpassía Bachs í fyrsta sinn í heild á íslandi Pólýfónkórinn minnist 25 ára starfsferils síns með heildarflutn- ingi Mattheusarpassíunnar eftir J.S. Bach í Háskólabíói á föstu- daginn langa. Til liðs við sig hefur hann fengið tvo kóra, Hamrahlíð- arkórinn, sem Þorgerður Ingólfs- dóttir hefur þjálfað og stjórnað frá upphafi og Kór Öldutúnsskóla undir stjórn Egils Friðleifssonar, auk fjölda einsöngvara og eihleik- ara úr öllum áttum, sem einnig leika í hljómsveitunum tveimur, er_ þátt_ taka j_f 1 utnijiKJ1 um _undir _ stjórn Ingólfs Guðbrandssonar, sem stofnaði Pólýfónkórinn fyrir 25 árum og hefur stjórnað honum síðan. Af öllum verkum Bachs skipar Mattheusarpassían ásamt H-moll-messunni öndvegissess. Hún er stærst í sniðum af verkum hans, fyrir 2 blandaða kóra eða 8 raddir auk barnakórs, sem syngur í upphafi verksins og lokakór fyrri þáttar. Tvær hljómsveitir leika með, ýmist hvor fyrir sig eða báð- ar saman ásamt kórunum. í flutningnum taka þátt um 260 söngvarar í kórunum þremur, um 45 hljóðfæraleikarar og 10 ein- söngvarar. Mun uppselt að kalla á föstu- daginn langa, en eitthvað eftir af aðgöngumiðum á laugardaginn fyrir páska. Aðgöngumiðar eru seldir hjá Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds- sonar, Ferðaskrifstofunni Útsýn og Hljóðfærahúsi Reykjavíkur. Orgeltónleikar Corveiras Antóníó Corveiras heldur orgeltónleika í Fíladelfiukirkjunni í Reykjavík á laugardaginn 10. apríl kl. 17.00. Á efnisskrá eru verk eftir J.S. Bach. „Karlinn í kassanum“ Garðaleikhúsið sýnir í Tónabæ leikritið „Karlinn í kassanum" á mánudaginn annan í páskum kl. 20.30. Miðasala hefst kl. 17.00 í Tónabæ. Leikstjóri er Saga Jóns- dóttir. Páskamót Hjálpræðishersins Hjálpræðisherinn í Reykjavík heldur páskamót sitt laugardag og sunnudag. Hefst það kl. 23.00 á laugardagskvöld með miðnætur- samkomu í Hjálpræðishershúsinu en á páskadag kl. 8 fyrir hádegi verður haldinn upprisufögnuður. Þá um kvöldið kl. 20.30 verður lof- gerðarsamkoma þar sem brigader Ingibjörg Jónsdóttir talar og ungt fólk frá Akureyri og Reykjavík syngur og vitnar. Grafíksýning á ísaHrði Laugardaginn 4. apríl opnaði Jenný Guðmundsdóttir grafíksýn- ingu í Bókasafninu á ísafirði á vegum Menningarráðs ísafjarðar. Jenný stundaði nám við Mynd- lista- og handíðaskóla íslands og Myndlistarskólann í Reykjavík. Einnig hefur hún stundað fram- haldsnám við Listaháskólann í Stokkhólmi. Þetta er fyrsta einka- sýning Jennýjar og stendur hún yfir frá 4. til 18. apríl. Sýningin er opin á tímum bókasafnsins og frá 14.00 til 18.00 yfir hátíðirnar. Lok- að verður föstudaginn langa. Flestar myndanna eru til sölu. Samhygð með skemmtun Á laugardaginn verður í Blóma- skálanum í Kópavogi_ milli klukk! an 14.00 og 17.00 selt kaffi og kök- ur og sýnd skemmtiatriði, þar á meðal verður upplestur og jass- músík spiluð af Trad-kompaníinu. Er það félagið Samhygð sem stendur fyrir þessari skemmtun. i Myndir frá S-Amer- íku í Fjalakettinum Nú um páskahelgina, nánar til- tekið á laugardag, hefst í Fjala- kettinum dagskrá með myndum frá og um Suður-Ameríku. Á þess- ari dagskrá eru bæði leiknar myndir og heimildarmyndir. Leiknu myndirnar eru þrjár, frá Bólivíu, Uruguay og Kúbu. Sú bólivíska er eftir leikstjórann Antonio Eguino og heitir Chuqu- iago. State of Siege heitir mynd eftir Gavras. Hún á að gerast í Uruguay og fjallar um hóp skæru- liða sem ræna nokkrum erlendum starfsmönnum í þeirri von að fá pólitíska fanga látna lausa í þeirra stað. Kúbanska myndin heitir De Sierta Manera og er fyrsta mynd- in sem leikstýrð er af konu þar í landi, Söru Gomes. Myndin fjallar um mannleg samskipti og þá sér- staklega samskipti kynjanna. Heimildarmyndirnar á þessari dagskrá eru alls fimm talsins, þar af þrjár frá eða um E1 Salvador. Fjórða heimildarmyndin er frá Nicaragua og heitir Frjálst land eða dauði. Hún er gerð af Antonio Yglesias og Victor Vega árið 1979 og fjallar um borgarastyrjöldina. Að lokum er svo þriðji hluti Bar- áttunnar um Chile sem ber nafnið Afl fólksins. Dagskráin stendur yfir frá 10. til 18. apríl. Rokk í Reykjavík Kvikmyndin Rokk í Reykjavík verður frumsýnd í Tónabíói 10. apríl kl. 17. Fyrstu almennar sýningar eru annan í páskum kl. 5, 7 og 9. Ann- an í páskum verður einnig sýnt í Keflavík. Málverka- sýning í Eden Jónas Guðmundsson heldur málverkasýningu í Eden í Hvera- gerði um páskana, en þar sýnir hann myndir, er voru á sýningu hans í ráðhúsinu í Luxemborg í síðasta mánuði. Ekki er leyft að selja myndir, eða muni í sýn- ingarsal ráðhússins í Luxemborg og því komu allar myndirnar aftur heim til íslands. Sýningin verður opnuð á skír- dag 8. apríl og stendur hún til 25. apríl. Á sýningunni verða olíumál- verk og vatnslitamyndir. Eden hefur opið um páskana. Þjóðleikhúsið um páskana: Sögur úr Vínarskógi eftir Ödön von Horváth verður sýnt í síðasta skiptið nú á skírdagskvöld. Gosi, barnaleikritið sem Brynja Benediktsdóttir útbjó eftir sögu Collodis, hefur nú verið sýnt yfir þrjátíu sinnum. Nú eru aðeins fá- ar sýningar eftir á Gosa, en þó gefast tvö tækifæri til þess að kynnast ævintýrum spýtustráks- ins og ferðafélaga hans nú um páskana, þ.e. á skírdag kl. 14.00 og á annan í páskum kl. 14.00. Amadeus, leikrit Peter Shaff- ers, verður sýnt að kvöldi annars í páskum.,, _., Kennt á skíði yfir páskana Skíðadeild Fram kennir á skíði á skíðasvæði Fram í Eldborgargili dag hvern yfir páskahátíðina frá kl. 15.00 til 17.00. Föstuvaka í Seljasókn Haldin verður vaka frá kvöldi skírdags til guðsþjónustu á föstu- daginn langa í Seljasókn. Hefst vakan kl. 18.00 á skírdagskvöldi en tilgangurinn með þessari vöku er að íhuga pínu og dauða Jesú Krists og með einhverjum áþreif- anlegum hætti leggja eitthvað á , sig þegar þess er minnst. Dagskrá- ' in er sem hér segir: Kl. 18.00 Farið um sögustaði Biblí- unnar. Elísabet Magnúsdóttir sýn- ir litskyggnur og skýrir út. Kl. 19.00 Tónar píslarsögunnar. Sr. Kolbeinn Þorleifsson bregður plötum á fón og skýrir. Kl. 20.30 Túlkun sögunnar. Ást- ráður Sigursteindórsson sýnir litskyggnur frá píslarleikunum í Oberammergau. Kl. 22.00 Lifandi tónlist. Jónas Ingimundarson flytur tónlist í samræmi við boðskap kyrruviku. Kl. 23.00 Herrans pínu ég minnast vil. Sr. Valgeir Ástráðsson stýrir biblíulestri og skýrir. Kl. 24.00 „Tók hann brauðið á þeirri nóttu, sem hann svikinn var.“ Neytt heilags sakramentis. Kl. 08.00 Atburðir föstudagsins langa. Friðrik Ólafsson Schram skýrir í ljósi ritningarinnar og fleiri samtímaheimilda. Kl. 10.00 Helgihald annarra kirkjudeilda. Vakan er öllum opin en hún fer fram í Tindaseli 3. Sóley frumsýnd annan páskadag Kvikmyndin Sóley, sem kvik- myndafélagið Sóley hf. hefur framleitt, verður frumsýnd í Laugarásbíói á 2. í páskum. Leikstjórar myndarinnar eru þau Róska og Manrico Pavolett- oni, og hafa þau líka gert handrit ásamt Einari Ólafssyni. Aðalhlutverkin leika þau Rúnar Guðbrandsson og Tine Hagendorn Olsen, en aðrir sem fara með stærri hlutverk eru þeir Jón frá Pálmholti, Hallgrímur Guðfinns- son, Þórður Hjartarson o.fl. Alls koma nálega 100 manns fram í myndinni. Tónlist við myndina gerði Gunnar Reynir Sveinsson tón- skáld. Kvikmyndatökumenn voru þeir Charles Rose og Mario Gianni. Myndin var fullunnin í Róma- borg og hafði Giuliano Matthioli veg og vanda að klippingu, en hljóðsetningu og hljóðupptöku annaðist Carlo Duca. Framkvæmdastjórn við gerð myndarinnar hafa þeir Guðmund- ur Bjartmarsson og Ólafur Gísla- son annast. Myndin er í litum og fullri lengd, tekur 106 mínútur í sýn- ingu. Efni myndarinnar er sótt í ís- lenskar þjóðsögur og þjóðtrú. Myndin sýnir okkur ferð ungs bóndasonar yfir hálendi íslands í leit að hestum og lendir hann á ferðum sínum í bland við álfa, drauga, huldufólk og útilegumenn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.