Morgunblaðið - 08.04.1982, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982
3
Feröaskrifstofan ÚTSÝN og HAFSKIP H/F
undanfarin ár halda áfram samvinnu í bíl
meginlands Evrópu á hagstæðu veröi. Síglt
mannahafnar á þriöjudögum hálfsmánaöar
Útsýn mun útvega gistingu í Kaupmannal
k m staöar, sé þess óskaö
Ferdaskrifstofan
2 vikur
„ÉG HAFÐI verid beðinn að spila héma fyrir nokkrum árum, en gat þá ekki
með nokkru móti komið þvi við. Ég var hérna um jólin og sá árstími er ekki
hentugur til tónleikahalds,“ sagði Vladimir Ashkenazy, pianósnillingurinn
heimsfrægi, er Morgunblaðið ræddi st1'''1""” viA *”,nn • oær.
Hann heldur eina tónleika hér á
landi að þessu sinni. Verða þeir í
Austurbæjarbíói í dag kl. 14.30 á
vegum Tónlistarfélags Reykjavík-
ur. Verða tónleikarnir eingöngu
fyrir félagsmenn. Nú eru ein fimm
ár liðin frá því Ashkenazy hélt
tónleika hér síðast.
„Þegar Tónlistarfélagið hafði
samband við mig á nýjan leik, sá
ég smugu í tónleikaprógrammi
mínu og því er ég hér,“ sagði
Ashkenazy ennfremur.
Er hann var inntur eftir því
hvaðan hann hefði verið að koma,
svaraði hann því til, að þau hjónin
kæmu frá Sviss, þar sem þau hafa
fast aðsetur. „Eg var einnig með
tónleika víðs vegar um Evrópu
fyrir skemmstu, lék m.a. í Múnch-
en, París og Lundúnum."
— Ætlarðu að dvelja lengi hér-
lendis að þessu sinni?
„Nei, ég tek mér vikufrí eftir
tónleikana, en síðan tekur vinnan
við á nýjan leik. Ég fer strax til
Lundúna þar sem ég mun halda
tónleika. Þaðan liggur leiðin yfir
hafið til New York þar sem ég leik
á nokkrum stöðum. Þaðan held ég
niður til Mexíkó og síðan til Japan
og Kóreu.“
— Þú ert ekkert að hugsa um
að hægja ferðina?
„Það er ekki í eðli mínu að taka
lífinu rólega. Ég er mjög virkur að
eðlisfari. Ég held tónleika 10 mán-
uði á ári og tek mér frí í tvo mán-
uði — alltaf í júlí og ágúst."
— Megum við eiga von á því að
þú og fjölskyldan flytjist hingað
til lands á næstu árum?
„Varla. Mér og fjölskyldunni
líkar ágætlega í Sviss og viljum
vera þar. Hins vegar á ég alltaf
einbýlishúsið mitt hérna og finnst
það frábær verustaður þegar ég
dvelst hérlendis," sagði Ashken-
Þórunn og Vladimir Ashkenazy í gær.
Ljósm. Kmilía.
Danmörk
íbúöir og sumarhús á Sjálandi
Brottför: 4. og 18. júní
Brottför: 2, 16. og 30. júlí
Brottför: 13. ágúst
Drengurinn
sem lézt
Akureyri. B. apríl.
LITLI drengurinn, sem dó af slysfor-
um í Eyjafirði í gær, hét Þórhallur
Valdimarsson, 5 ára, til heimilis á
Ytra-Felli í Hrafnagilshreppi. For-
eldrar hans eru hjónin Ragnhildur
Jónsdóttir og Valdimar Jónsson,
sem þar búa.
Hann hafði verið að leik ásamt
þremur öðrum börnum skammt
frá bænum, þegar snjóhengja á
skurðbakka brast og féll niður og
börnin með. Þórhallur litli varð
undir klaka- eða snjófillu og beið
bana af.
Hin börnin hlupu strax heim til
bæjar og sögðu hvernig komið var.
Hringt var til Akureyrar eftir
sjúkrabíl, en drengurinn reyndist
látinn er komið var með hann í
sjúkrahús.
Sv.P.
Helsingör/Marienlyst Palæ, íbúöarhótel
fbúöarhótel í sórflokki. Stúdíó-íbúðir meö eldhúskróki og baöherbergi. Fagurt um-
hverfi viö eina bestu baöströnd Danmerkur. Á Marienlyst er góöur veitingastaður,
bar, spilavíti og innisundlaug. Góður 18 holu golfvöllur skammt frá hótelinu og stutt í
góöa tennisvelli. Hestaleiga.
Verö frá kr. 4.825,-
Sumarhús viö eina bestu baöströnd Danmerkur:
Rádyrvej 26, Gilleleje. Ringgár
Gott sumarhús fyrir 6 bæk S
manns. fyrir alf
Hybenvej 16, Hom- Möllemé
batk. Gott sumarhús ifarhölk
fyrir 5 manns.
turt
sn
hot
It aö
an
U&JMÚUfiHÉM
Kaupvangsstræti 4, Akureyri, simi 96-22911
Reykjavik, Austurstræti 17, símar 26611 og 20100
„Ekki í eðli mínu að
taka lífinu rólega“
— segir Vladimir Ashkenazý, sem heldur sína fyrstu tónleika í 5 ár á íslandi í dag