Morgunblaðið - 08.04.1982, Síða 23

Morgunblaðið - 08.04.1982, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRIL 1982 23 Geir Hallgrímsson um framkvæmd vamarsamnings: Flugstöðin og neitunarvald Alþýðubandalagsins Geir Haiigrímsson, for- maöur Sjáifstæöisfiokksins, fjallaöi í lokaorðum ræöu sinnar á Alþingi 6. apríl sl., í umræðu um utanríkismál (skýrslu utanríkisráðherra) um framkvæmd varnarsamn- ingsins. Fer sá kafli úr ræöu hans oröréttur hér á eftir: „Um framkvæmd varnar- samningsins hefur mikið ver- ið rætt hér á þingi í vetur og hefur umræðuefnið þá verið t-d. bygging flugskýla, bygg- ing eldsneytisgeyma og bygg- ing flugstöðvar. Það fer fram um byggingu flugskýla og eldsneytisgeyma sem horfir og sýnast þau mál vera í eðli- legum farvegi, þrátt fyrir skemmdarverk Alþýðu- bandalagsins innan og utan ríkisstjórnar. Svokallaður leynisamningur, þar sem Al- þýðubandalaginu var áskilið neitunarvald, ekki eingöngu um byggingu flugstöðvar, heldur og um öll meiriháttar stjórnarmálefni, var á tíma- bili líklegur til þess að hefta eðlilega framvindu mála hvað varnarframkvæmdir snertir, en sem betur fer sýn- ist ekki svo verða hvað snert- ir þær framkvæmdir, sem ég áðan gat um. En neitunar- vald Alþýðubandalagsins varðandi byggingu flugstöðv- ar er auðvitað hagsmunum íslendinga til skaða og raun- ar óskiljanlegt, hvers vegna það setur þetta skilyrði, ef það er þeirrar skoðunar, að samskipti Islendinga og varnarliðsins eigi að vera sem minnst. Væru þeir trúir þeirri skoðun sinni, er það auðvitað skilyrði, að unnt sé að skilja á milli varnarstarf- seminnar á Keflavíkurflug- velli og almennrar flugstarf- semi. Forsenda þess er bygg- ing flugstöðvarinnar. En auk þessa er það íslenzkt hags- munamál, að við höfum sæmilega flugstöð þar sem allir farþegar að og frá land- inu fara um þessa flugstöð. Þetta er hagsmunamál landsmanna sjálfra, en næst- um því hver einasti lands- maður nýtur slíkrar af- greiðslustöðvar, að ég tali nú ekki um með hvaða hætti við viljum bjóða erlenda gesti velkomna. Það ber svo einnig á það að líta, að allar líkur eru til þess, að kostnaður við þessa mikilvægu þjóðnauðsynlegu framkvæmd falli með meiri þunga á okkur íslendinga eftir því sem framkvæmdin tefst. Það er ekki eingöngu réttlætanlegt heldur eðlilegt, með tilvísun til þeirra hags- muna sem varnarliðið hefur af byggingu flugstöðvarinn- ar, að það taki nokkurn þátt í kostnaði við framkvæmdina. Þessu máli á ekki á neinn hátt að blanda saman við kostnaðarþátttöku varnar- liðsins á öðrum framkvæmd- um hér á landi, sem á stund- um hefur verið á dagskrá, en ysá> í Koupmoivnahðfii FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI landi á það við, að um sam- eiginlega hagsmuni er að ræða. Við gerum okkur grein fyrir því, að Bandaríkin hafa ekki varnarlið hér á landi fyrst og fremst okkar vegna heldur sín vegna og við höf- um ekki varnarliðið hér á landi vegna hagsmuna Bandaríkjanna heldur vegna okkar eigin hagsmuna. En um þennan samning má segja, að fari eins og á að fara um alla gagnkvæma samninga, að það er báðum samningsaðilum í hag og meðan varnarframkvæmdir og tilhögun varnarfram- kvæmda og fyrirkomulag varnar- og eftirlitsstöðvar- innar er í samræmi við hags- muni beggja aðila, þá er vel. Við Islendingar hljótum hins vegar að vilja gera okkur grein fyrir því í ein- staka tilvikum, hvort svo sé eða ekki og hlíta ekki að öllu fyrirmælum eða óskum Bandaríkjamanna eða ann- arra Atlantshafsbandalags- þjóða. Á stundum getur ver- ið, að við krefjumst fyllri ráðstafana og meira öryggis og frekari varnarviðbúnaðar. Á stundum getur verið, að þeim framkvæmdum sem farið er fram á. Allt þetta hljótum við að vega og meta með okkar eigin hagsmuni, en einnig með tilvísun til þess, að hér er um sameigin- lega öryggishagsmuni allra vestrænna lýðræðisríkja að ræða og raunar þá vörn, sem lýðræði og mannréttindi í heiminum eiga besta til þess að standast ásókn harð- stjórnar og einræðis. Við leggjum áherzlu á að sameina þjóðina til verndar sjálfstæði sínu og öryggi og fögnum þeirri víðtæku sam- stöðu sem tekizt hefur um þau mál. En það er skylda okkar Islendinga að leggja okkar lóð á vogarskálina í samskiptum þjóða heims, svo að við og sem flestar þjóðir heims njótum friðar, ekki friðar fangelsisins heldur friðar með frelsi. við sjálfstæðismenn erum andvígir. Ég vil minna á, varðandi framkvæmd varnarsamn- ingsins, að þingmenn úr Al- þýðuflokki, Framsóknar- flokki og Sjálfstæðisflokki hafa flutt tillögu um ráðu- naut í öryggis- og varnar- málum, er starfi á vegum utanríkisráðuneytisins. Þessi tillaga er flutt í þeim til- gangi, að við Islendingar tök- um meiri þátt en hingað til í ákvörðunum um tilhögun varna og varðandi starfsemi varnarliðsins hér á landi. Það er sameiginlegt hags- munamál varnarliðsins, Bandaríkjanna annars vegar og íslendinga hins vegar og raunar allra Atlantshafs- bandalagsríkjanna, að fram- kvæmdir varna hér á landi séu slíkar, að fullnægi örygg- issjónarmiðum ailra þessara aðila. Við íslendingar hljótum fyrst og fremst að hugsa um okkar hagsmuni og hljótum að meta og vega þessar varn- arframkvæmdir og tilhögun framkvæmda með hliðsjón af því, hvað samræmist okkar eigin hagsmunum best. Um aðalatriði þessa máls, þ.e. gerð varnarsamningsins sjálfs og dvöl varnarliðs á Is- Jótland Beinar ferðir frá HORSENS á tveggja vikna fresti Næstu ferðir frá Horsens: 26. apríl - írafoss 10. maí - Múlafoss 24. maí - irafoss 07. júní - Múlafoss KAUPMANNAHÖFN Aðalumboðsmenn í Danmörku: DFDS A/S Sankt Annæ Plads 30 DK-1295 K0BENHAVN K. Sími: (01) 156300 Telex: 19435 Umboðs- og vörumóttöku- aðilar í Horsens: Wilh. Chr. Bech Spedition Havnen 43 8700 HORSENS Sími: (05)625444 Telex: 61618 HORSENS - nýr valkostur sem gæti opnað þér nýja möguleika Hafðu samband EIMSKIP Síml 27100 *

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.