Morgunblaðið - 08.04.1982, Blaðsíða 41
41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982
Minning:
Þorsteinn Oskar
Guöbrandsson
Fæddur 26. október 1914
I)áinn 11. mars 1982
Þegar hringt var til mín og mér
sagt að Þorsteinn frændi minn
væri látinn, setti mig hljóðan um
stund, enda þótt ég vissi, að hann
gekk ekki heill til skógar í allmörg
ár.
Þorsteinn óskar Guðbrandsson
var fæddur á Stokkseyri 26. októ-
ber 1914, og því á sextugasta og
áttunda aldursári, er hann lést.
Steini í Stíghúsi var hann lengi
kallaður, því þar ólst hann upp hjá
foreldrum sínum, þeim Valborgu
Bjarnadóttur og Guðbrandi Þor-
steinssyni trésmið.
Ég ætla ekki að tína til störf
Þorsteins, en vil þó minnast þeirra
í aðalatriðum. Eins og algengt er,
fór hann til snúninga í sveit á sín-
um æskuárum, meðal annars til að
smala kvíaám.
Þegar Steini var fimmtán ára
fór hann til sjóróðra í Vestmanna-
eyjum og átti að beita línu framan
af vertíð. Kom þá að notum hve
handfljótur hann var, því hann
reyndist með alfljótustu beitn-
ingamönnum og röskur til allra
verka, sem hann gekk að.
Þetta var fyrsta sjóvinna Þor-
steins, en sjóróðrar urðu hans að-
alstarf, mest frá Stokkseyri, en
þar átti hann heima alla tíð.
Nokkur hin síðari ár vann hann
við fiskvinnu í Hraðfrystistöð
Stokkseyrar. Þorsteinn var félags-
hyggjumaður góður og naut því
trausts starfsfélaga sinna, sem
sést best af því að þeir kusu hann
til hinna ýmsu trúnaðarstarfa.
Eftirlifandi eiginkona Þorsteins
er Sigurbjört Kristjánsdóttir frá
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 81960
Brattlandi í Vestmannaeyjum og
eiga þeu einn son, Borgar, sem býr
á Stokkseyri. Þorsteinn eignaðist
dóttur áður en hann giftist, Ester
að nafni, hún býr í Reykjavík.
Einnig eignaðist Sigurbjört son
áður en hún giftist, Kristján Sig-
urðsson, trésmið í Keflavík.
Er ég kveð þennan vin minn og
frænda er margs að minnast eins
og gerist og gengur hjá skyld-
mennum á svipuðum aldri. Eitt er
það sem kemur ofarlega í hug mér
á þessum tímamótum.
Árið 1931 vorum við Steini
ráðnir til róðra á opinn vélbát í
Staðahverfinu í Grindavík. Bátur
þessi hét Sægammur og formaður
var Jón Helgason, fyrrum vita-
vörður á Reykjanesi. Á þessum
tíma var ekki mikið um bílferðir
yfir Hellisheiði að vetrinum. Við
urðum því að ganga suður „í verið"
eins og það var kallað. Við lögðum
af stað dag nokkurn um hádegi,
seinni part janúar frá Stokkseyri.
Fyrsti áfangi var Kotströnd, og
þar gistum við. Næsti áfangastað-
ur var Reykjavík, sem við náðum
kvöldið eftir. Heppnin lék við
okkur í þessari ferð, það var snjór
yfir jörð, og þar sem Jón Ingvarss-
on á Skipum var að fara til róðra í
Keflavík flutti Ingvar Hannesson,
faðir hans, farangur hans á hest-
asleða og lofaði okkur hinum að
hafa okkar farangur á sleðanum
út á Kambabrún. Þar sneri Ingvar
við. Fyrir þennan góða greiða tók
hann enga greiðslu. Þar sem þetta
var, að ég best veit, seinasta skipt-
ið sem gengið var „í verið", minn-
ist ég þessa. Frá því að þessi ferð
var farin er liðin rúmlega hálf öld.
Um leið og ég þakka Steina
samfylgdina, þakka ég honum
samveruna við leik og störf, og
óska þess að sá sem verndar og
geymir alla að lokum, verndi og
geymi þann sem nú hefur lokið
sínu æviskeiði.
Eiginkonu Þorsteins, börnum og
barnabörnum sendi ég mínar
bestu kveðjur.
Stefán Nikulásson.
Brita
öryggissæti
fyrir börn
Það er mikilvægt að barnið sitji í öruggu og þægilegu sæti, verði
bíllinn fyrir hnjaski. Þegar bremsað er skyndilega er barnið ör-
uggara. Ef þægilega fer um barnið, er það rólegra, - og þar með
ökumaðurinn.
Britax bílstólar fyrir börn eru öruggir
og þægilegir í notkun. Með einu
handtaki er barnið fest, - og losað
Biðjið um Britax bílstóla á bensín-
stöðvum Shell.
Skeljungsbúðin
Suóurlanclsbraut 4
simi 38125
Heildsölubirgóir: Skeljungur hf.
Smávörudeild - Laugavegi 180
sími 81722
Núpsverjar
Nemendur Núpsskóla veturna '60—’61 og \
’61 — ’62: Föstudaginn 14. maí nk. er ákveðiö aö
hittast í Átthagasal Hótel Sögu. Mætum öll og
rifjum upp gömul kynni. Kennarar velkomnir. Hús-
i iö opnað kl. 20.00.
Þátttaka tilkynnist sem fyrst í síma: Lillu og Ómars
73763, Ingigeröar 66644, Svenný 54247, Ellu Dísu
85124.
Sumarhús Edda
Mosfellssveit
Sýnum alla páskavikuna viö Áhaldahús Mosfells-
hrepps viö Þverholt í Mosfellssveit glæsilegt fullbúiö
sumarhús á aðeins kr. 180.000. Húsiö er 37 fm aö
grunnfleti, fulleinangraö meö 3ja tommu glerull og
tvöföldu einangrunargleri. Panelklætt í hólf og gólf.
Komið, sjáiö, sannfærist. Berið saman verö, gæöi og
notagildi.
Nánari upplýsingar á staðnum og hjá undirrituöum:
Hilmar Sigurösson viöskiptafræðingur.
Sími 66501.
........
Oic*"C......
MYNDAR-
LEGAR^
GJAFIR
FRÁKODAK
Vasamyndavélarnar írá Kodak eiga það allar
sameiginlegt að vera sérlega auðveldar í notkun, með
öruggu stuðningshandlangi og skila skörpum
myndum í björtum litum.
Aðrir eiginleikar þessara bráðsnjöllu vasavéla s.s.
aðdráttarlinsur, innbyggð sjálívirk leiíturljós og hraða-
stillingar eru mismunandi eftir gerðum og það er
verðið að sjállsögðu líka.
KODAK TELE-EKTRALITE 600
Glœsileg myndavól með sér-
stakri aðdráttarlinsu og innbyggðu
sjállvirku eilílðarflassi. Fókusinn er
írá l,lmíhiðóendanlega
Verðkr. 1.130-
KODAK EKTRALITE 400
Stúhrein myndavól með
þremur hraðastillingum og inn-
byggðu eilílðarilassi.
Fókusinn er frá l .2 m í hið óendan-
lega Verðkr. 710-
KODAK EKTRA 250
Falleg myndavél með
tveimur hraðastillingum og fókus
frá l ,2 í hið óendanlega
Verð kr 555 -
Vasamyndavél írá Kodak er
mvndarlea gjöf_sem þú getur
verið stoltur af hvar og
r hvenœr sem er.
......
HANS PETERSEN HF
BANKASTRÆTl
S 20313
GLÆSIBÆ
S: 82590
AUSTURVER
S: 36161
UMBOÐSMENN
UMLANDALLT