Morgunblaðið - 08.04.1982, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 1982
47
Skíðamót íslands hefst í dag í Bláfjöllum
Allir bestu skíóamenn landsins
eru meðal keppenda á mótinu
SKÍÐAMÓT íslands fer fram í
Bláfjöllum um páskanna. Mótið
verður sett i dag kl. 10.00 við borg-
arskálann í Bláfjöllum af íþrótta-
fulltrúa Reykjavíkurborgar, Stefáni
Kristjánssyni. Fyrsta keppnisgreinin
1AIVI
er stórsvig sem hefst kl. 12.00. Stór-
svigsbrautin mun liggja frá toppi og
endar svo við skála Breiðabliks.
Göngukeppnin hefst kl. 13. Göngu-
brautirnar verða í hrauninu vestan
við borgarskálann.
Níutíu og fimm keppendur eru
skráðir til leiks í mótið. Fimmtíu
og einn í alpagreinar, þrjátíu og
fjórir í göngu og ellefu í stökkið.
Flestir keppendur eru frá Reykja-
vík, 24, 18 frá ísafirði, 17 frá
Ólafsfirði, 15 frá Akureyri, 13 frá
Siglufirði, 4 frá Dalvík og Húsavík
og 1 frá UIA. Þá munu vera vænt-
anlegir nokkrir frægir göngumenn
til mótsins, sem keppa munu sem
gestir. Það er Skíðaráð Reykjavík-
ur sem annast framkvæmd ís-
landsmótsins að þessu sinni.
Mótsstjóri verður Halldór Sig-
fússon. Agfamyndir hf. sýna
skíðamönnum þann stórhug að
fjármagna allt mótið. —ÞR.
• í dag hefst keppni í göngu á skiðalandsmótinu. Keppt verður i 15,5 og 3,5
km göngu. Kl. 13.00 hefst göngukeppnin með þvi að keppendur í 15 km verða
ræstir við borgarskálann.
Kvennalandsliðið sigraði
ÍSI.KNSKA kvennalandsliðið í blaki ingar innsigluðu sigur sinn með því
sigraði það færeyska í fyrrakvöld að vinna fjórðu hrinuna 19—17.
með þremur hrinum gegn engri og Þess má að lokum geta, að
bætti þar með upp lélega frammi- kvennalandslið Færeyja leikur i dag
stöðu i fyrri leiknum. Hrinurnar við kvennalið UBK í Hagaskólanum
enduðu 15—6, 15—10 og 15—6. Þá og hefst leikurinn klukkan 15.30.
Icku unglingalandslið sömu þjóða og Strax að leik loknum mætast síðan
sigruðu Færcyingar aftur, nú 3—1. Þróttur og færeyska unglingalands-
Fyrst unnu Færeyingar 15—11 og liðið.
síðan 16—14 eftir að ísland hafði _____ , T____
komist í 14—6. Þriðju hrinuna unnu
íslensku piltarnir 15—9, en Færey-
Hraömótið
• Tveimur leikjum er lokið á
hraðmótinu i körfuknattleik kvenna
sem lýkur um hejgina, Nato sigraði
KR 29—21 og Urvalið sigraði ÍS
26—22. Næstu leikir eru á laugar-
dag klukkan 9.00. Keppni lýkur svo
á sunnudag.
Engin úrslit
VEGNA þess hve blaðið fór snemma
i prentun í gær, var ekki unnt að
greina frá úrslitum í Evrópuleik
Þróttar og Dukla Prag, Evrópu-
keppninni í knattspyrnu eða ensku
knattspyrnunni í blaðinu í dag.
Næstu íþróttasíður verða i blaðinu
14. apríl og verður þá greint frá
helstu viðburðum.
Sigursælir Valsmenn
* * mm ÍHKF
Brauðbær
Veitingahús
V/ÓÐINSTORG
Páskar
í Brauðbœ
Opið í dag, skírdag, kl.
11.00—22.00. Lokað föstudag-
inn langa. Opið laugardag kl.
9.00—23.00. Lokað páskadag.
Opið 2. í páskum kl.
11.00—22.00.
Skírdagur 8. apríl
Blómkálssúpa.
Lambagrillsteik „Greme Café de Paris“ meÖ bakadri kart-
öflu, salatvinaigrette og grænmeti.
Ávextir „Grand mavineve“ í súkkulaöi, bolla meöjarö-
arberjakremi.
Verð kr. 110,00.
Sérstakur barnamatseðill. Kr. 18,00 og bestu börn-
in sem klára matinn sinn fá páskaegg í verðlaun.
2. í páskum
Spergilkálsúpa.
Lambapiparsteik meö rjómapiparsósu, salat vinaigrette,
grænmeti og kartöflum rissoles.
ísterta m/heitri súkkulaöisósu. Kr. 110,00.
Heimsókn með fjölskylduna í Brauðbæ svíkur engan.
Við óskum öllum vinum okkar
,gleðilegra páska“.
• íslandsmeistarar Vals i þriðja flokki karla í handknattleik á nýloknu
móti. Piltarnir hafa verið mjög sigursælir. Urðu lika Reykjavíkurmeistarar og
unnu þessa titla einnig í fyrravetur. Með þeim á myndinni eru þjálfari þeirra
Boris og Guðmundur Frímannsson stjórnarmaður í Val.
Biauðbær
Vdtingahús
V/ÓÐINSTORG