Morgunblaðið - 24.06.1982, Qupperneq 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
136. tbl. 69. árg.
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
AP
Leifar bifreiðar, sem sprakk i loft upp i vesturhluta Beirut-borgar i fyrrakvökl. Samkvæmt síðustu fréttum létust
50 manns í sprengingunni en í bílnum hafði verið komið fyrir 20 kg af sprengiefninu TNT.
Nixon boðið
til A-Evrópu
New York, 23. júní. AP.
RICHARD Nixon, fyrrum
Bandaríkjaforseti, mun nk.
laugardag fara í kynnisferð
um fjögur Austur-Evrópuríki
í boði stjórnvalda þar að því
er talsmaður hans sagöi í
dag.
Austur-Evrópuríkin fjögur,
sem hafa boðið Nixon til sín, eru
Rúmenía, Búlgaría, Tékkósló-
vakía og Ungverjaland og mun
Nixon eiga viðræður við leiðtoga
þeirra um alþjóðamál. í vetur
sem leið bauð Nicolae Ceausescu,
Rúmeníuforseti, Nixon til sín og
varð fyrstur til þess af leiðtogun-
um fjórum en hann naut á sínum
tíma gistivináttu Nixons í Hvíta
húsinu, skömmu áður en hann
varð að segja af sér embætti
vegna Watergate-málsins.
I för með Nixon verða talsmað-
ur hans, Nicholas Ruwe, og leyni-
þjónustumenn og munu þeir fara
í fyrsta áfanga ferðarinnar, til
Búkarest, með venjulegu áætlun-
arflugi. Ruwe tók fram, að Nixon
stæði sjálfur straum af öllum
kostnaði við ferðalagið.
Utanríkismálanefnd bandarísku fulltrúadeildarinnar:
Hvatt til stöðvunar á
smíði kjarnorkuvopna
Wa.shington, 23. júní. AP.
Utanrikismálanefnd fulltrúadeild-
ar bandaríska þingsins samþykkti í
dag ályktun þar sem hvatt er til
„gagnkvæmrar og raunhæfrar“
stöðvunar á framleiðslu kjarnorku-
vopna í Bandaríkjunum og Sovét-
ríkjunum. Ályktunin bindur ekki
hendur Reagan-stjórnarinnar, enda
þarf hún samþykki fulltrúadeildar-
innar sjálfrar og öldungadeildarinn-
ar til þess, en er þó talin merkileg
vegna þeirrar umræðu, sem nú fer
fram í Bandaríkjunum um kjarn-
orkuvopn.
„Ályktunin er mikilvægt skref í
átt til allsherjarstöðvunar á fram-
leiðslu kjarnorkuvopna," sagði
Edward Markey, einn nefndar-
mannanna, en hann hefur barist
mjög fyrir þessu máli á banda-
ríska þinginu. Ályktunin var sam-
þykkt með 25 atkvæðum gegn 9 og
sökuðu stuðningsmenn hennar
andstæðingana um að hafa tafið
atkvæðagreiðsluna i tvo daga
vegna ótta við útkomuna.
Níunda júní sl. samþykkti utan-
ríkismálanefnd öldungadeildar-
innar, þar sem repúblikanar eru í
meirihluta, ályktun um eftirlit
með kjarnorkuvopnavígbúnaði en
þar var ekki minnst á stöðvun
framleiðslunnar. Repúblikanar og
demókratar bera hverjir öðrum á
brýn að vilja nota kjarnorku-
vopnaumræðuna flokki sínum til
framdráttar, en hugmyndin um
gagnkvæma stöðvun kjarnorku-
vopnaframleiðslu á mikinn hljóm-
grunn meðal þeirra síðarnefndu.
Helsti talsmaður hennar er
Edward Kennedy, öldungadeildar-
þingmaður, en vegur hans hefur
farið mjög vaxandi að undanförnu
og er hann nú sem stendur talinn
líklegastur frambjóðandi Demó-
krataflokksins í næstu forseta-
kosningum.
HALDIÐ HEIM TIL PORT STANLEY. Rex Hunt, landstjóri BreU á
Falklandseyjum, brosir sínu blíðasta áAur en hann stígur um borA í
breska herflugvél á leiA sinni til krúnunýlendunnar, þaAan sem hann
varA aA hrökklast undan Argentínumönnum. ap.
Breski Verkamannaflokkurinn:
Öfgamönnum til
vinstri hótað
með brottrekstri
l>ondon, 23. júní. AP.
FRAMKVÆMDANEFND breska Verkamannaflokksins, sem er
æðsta stofnun innan hans, samþykkti í dag að gefa öfgafullum
vinstrisinnum og trotskíistum þriggja mánaða frest til að semja sig
að lýðræðislegum vinnubrögðum eða hypja sig úr flokknum ella.
Litið er á þessa samþykkt sem stefnumótandi fyrir Verkamanna-
flokkinn enda hafa hófsamir menn innan hans lengi varað við því,
að starfsemi þessara manna væri á góðri leið með að gera flokkinn
að hornreku í bresku stjórnmálalífi.
Um þriggja ára skeið hafa
verið harðar deilur innan
Verkamannaflokksins um
starfsemi marxista og trotskí-
ista, sem haslað hafa sér völl
innan hans, en þeir hafa sumir
hverjir hvatt til þess, að „al-
þingi götunnar" tæki að sér að
koma stjórn Thatchers frá ef
það auðnaðist ekki í frjálsum
kosningum. í atkvæðagreiðslu
framkvæmdanefndarinnar,
sem 29 menn skipa, voru skila-
boðin til vinstrisinnanna sam-
Urslit á
HM í gær
ÚRSLIT leikja í HM-keppn-
inni í knattspyrnu í gær-
kvöldi urðu þessi:
Ítalía — Kamerún 1—1
Brasilía — N-Sjáland 4—0
Argentína — E1 Salvador 2—0
Þrír leikir fara fram í
riðlakeppninni í dag. Alsír —
Chile, Frakkl. — Tékkóslóv-
akía, og Honduras — Júgó-
slavía.
þykkt með 16 atkvæðum gegn
10 en þrír sátu hjá.
Michael Foot, leiðtogi
Verkamannaflokksins, sem
áður var oddviti hinna róttæk-
ari í flokknum, studdi sam-
þykktina, en Tony Benn, sem
nú er helstur málsvari vinstri-
sinnanna, kvaðst vera í upp-
námi og kallaði hana
„mccarthy-isma“ og „norna-
veiðar". Leiðtogar vinstrisinn-
anna kváðust í dag mundu
berjast gegn samþykktinni og
ekki taka í mál að fara úr
flokknum.
Öfgafullir vinstrimenn í
Verkamannaflokknum hafa
m.a. á stefnuskrá sinni að
þjóðnýta meginhluta bresks
atvinnurekstrar og láta
„verkamannanefndir" stjórna
honum, afnema konungdæmið
og segja Bretland úr NATO.
Hinir hófsamari segja, að ef
þessir menn fengju vilja sín-
um framgengt yrði bundinn
endi á lýðræðislegt fyrirkomu-
lag, þingræðið og frjálsar
kosningar.
Líbanon:
Hörð átök þrátt
fyrir vopnahléið
Tel Aviv, Beirút, 23. júní. AP.
BARDAGAR stóAu í allan dag í
Líbanon og virAast tilraunir Liban-
onsstjórnar og Habibs, sérlegs
sendimanns Bandaríkjaforseta, til
aA koma á raunverulegu vopnahléi
hafa komið fyrir lítiA. ísraelar kváö-
ust i dag hafa hrundiA sameiginlegri
sókn Sýrlendinga og palestínskra
skæruliAa inn á land, sem nú er í
höndum ísraelshers.
Að sögn talsmanns ísraelshers
geisuðu í dag miklir bardagar
skammt fyrir sunnan þjóðveginn
milli Damaskus og Beirút-borgar.
Sýrlendingar og Palestínumenn
hefðu látið þar til skarar skríða
með stórskotaliði og skriðdrekum
en verið hraktir brott eftir ákafar
loftárásir ísraela. í dag sprakk
sprengja, sem komið hafði verið
fyrir í bifreið fyrir utan skotfæra-
geymslur PLO í vesturhluta Beir-
út, og er haft eftir vitnum að
a.m.k. 50 manns hafi látið lífið.
Mark O. Hatfield, öldungadeild-
arþingmaður repúblikana frá
Oregon, hvatti í dag Bandarikja-
þing til að lýsa því yfir, að innrás
Israela í Líbanon væri „ekki leng-
ur varnaraðgerð vinar og banda-
manns" og skoraði jafnframt á
Sameinuðu þjóðirnar að beita þá
refsiaðgerðum.