Morgunblaðið - 24.06.1982, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 24.06.1982, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ1982 47 Ljém. Krifltjái Einarason. • Sigurður GréUrsson í dauðafsri en danska markverðinum tókst að verja snilldarlega gott skot Sigurðar. Jafntef li í f jörugum leik ..Ég er nokkuð ánægður með mina menn. Þetta er í fyrsta skipti sem þessir strákar spila saman og það tekur alltaf tima að kynnast. Danirnir voru mjög teknískir og við vorum iðulega skildir eftir í fyrri hálfleiknum, en þeir voru ekki eins góðir og þeir litu út fyrir að vera. Það kom í Ijós í síðari háifleiknum er islensku strákarnir spiluðu eins og fyrir þá var lagt,“ sagði Jóhannes Atlason, landsliðsþjálfari, eftir að landsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri hafði gert jafntefli við Dani á Laugardalsvellinum í gærkveldi. Hvort lið skoraði eitt mark. Danir voru mun sprækari í fyrri hálfleik og komst íslenska markið þá oft í töluverða hættu. Strax á 2. mín. björguðu íslendingar á línu eftir fyrirgjöf og nokkrum mínút- um seinna átti Jan Heitze gott skot sem Stefán í íslenska mark- inu varði vel. Fyrsta færið sem íslendingar fengu kom á 20. mín. Gunnar Gislason átti þá ágætt skot rétt utan vítateigs en boltinn fór rétt framhjá. Stuttu síðar átti Erling- ur Kristjánsson laust skot fram- hjá af stuttu færi eftir að danski markvörðurinn hafði misst bolt- ann yfir sig eftir hornspyrnu. Danir voru alltaf hættulegir og mark virtist liggja í loftinu. Það kom svo á 37. mín er Mogens Kjeldsen skoraði af markteig eftir fyrirgjöf frá vinstri. Hann fékk knöttinn einn og óvaldaður og gat ekki annað en skorað. Þarna var íslenska vörnin mjög illa á verði. Einni mínútu síðar komust Dan- irnir þrír á móti þremur íslensk- um varnarmönnum inn á teig og stjarna þeirra, Michael Laudrup, sem Barcelona hefur nú fest kaup á, lék mjög snyrtilega á tvo varn- armenn íslendinga en skot hans fór vel framhjá. Lárus Guð- mundsson fékk mjög gott færi til að jafna metin á næst síðustu mínútu hálfleiksins er hann fékk knöttinn mjög óvænt inn í teig en markvörðurinn náði að slæma hendinni í laust skot hans og slá boltann út í teiginn. Jóhannes Atlason hefur greini- lega messað vel yfir sínum mönnum í leikhléi því þeir komu tvíefldir til leiks í síðari hálfleikn- um. Strax á annarri mín. fengu ís- lendingarnir víti. Sigurjón Krist- jánsson komst þá á auðan sjó inn í teig Dananna og hélt danski varn- armaðurinn í hann. Var umsvifa- laust dæmd vítaspyrna sem Sig- urður Grétarsson sá um að skora úr af öryggi. Næstu mínútur sóttu íslend- ingar af krafti og fengu nokkur ágæt tækifæri til að bæta öðru marki við. Inn vildi tuðran þó ekki þrátt fyrir góðar tilraunir. Hættu- legasta sóknin var á 14. mín. Sig- urður tók þá aukaspyrnu frá vinstri og sendi lúmskan bolta til Lárusar Guðmundssonar á mark- teigshorninu. Lárus sneiddi bolt- ann á markið í fyrstu snertingu en hann lenti í markmanninum og aftur fyrir. Eftir hornspyrnuna barst boltinn út að vítateigslínu til Trausta Ómarssonar sem átti mjög gott skot en boltinn fór hár- fínt framhjá. Síðustu mínúturnar skiptust liðin á að sækja en mörkin komust ekki í verulega hættu. Úrslit leiks- ins verða að teljast nokkuð sanngjörn. Bestu menn íslenska liðsins voru Ragnar Margeirsson og Sig- urður Grétarsson. Ragnar hélt boltanum vel á miðjunni og var vel spilandi og Sigurður var síógn- andi í framlínunni. Þá átti Stefán Jóhannsson ágætan leik í mark- inu. Frimann, Laudrup og Kjeld- sen voru hættulegastir í danska liðinu, en áttu það til að einleika of mikið. Guðmundur Haraldsson dæmdi og hefur hann vafalaust oftast dæmt betur. _ SH. Markvörðurinn skorar og skorar! MARKVÖRÐUR júgóslavneska landsliósins, Dragan Pantelic, er sannarlega ekki eins og markverðir eru flestir. Hann er nefnilega mikill markaskorari og segist vera mark- sæknasti markvörður veraldar. „Ég hef engar tölur í höndunum, en tel af og frá að nokkur markvörður ann- Sá gamli þoldi ekki álagiö GAMALL Júgóslavi að nafni Vid Tomanovic þoidi ekki álagið er Ivan Gudelj skoraði eina mark Júgóslava í 1—2-tapleiknum gegn Spáni á dög- unum. Vid gamli var að horfa á beina útsendingu frá leiknum í giftingarveislu mikilli í heimabæ sín- um, Cetjine Montenegro. Þegar Gudelj skoraði fyrsta mark leiksins og náði forystu fyrir Júgóslava greip slík geðshræring karlinn að hjartað bugaðist og var hann þegar allur. Hann frétti þvi aldrei lokatölur leiksins, en Júgóslavia tapaði 1—2 sem kunnugt er. ar í veröldinni slái mér við í marka- skorun,“ segir „hlébarðinn“ hress í bragði, en „hlébarðinn" er gælunafn hans. Pantelic gekk til liðs við Bord- eaux fyrir síðasta keppnistímabil og hann skoraði 6 mörk fyrir liðið í frönsku deildarkeppninni. Tvö síðustu keppnistímabilin fram að því skoraði hann samtals 15 mörk fyrir lið sitt í Júgóslavíu, Radnicki Nis, 7 mörk fyrra tímabilið, en 8 það síðara. Þá skoraði hann tvö mörk fyrir landsliðið í undan- keppni HM, eitt gegn Grikklandi og annað gegn Dönum. Vart þarf að taka fram, að Pantelic skorar fyrst og fremst úr vítaspyrnum, raunar öll umrædd mörk að einu undanskildu. Þá skoraði hann gegn Velez Mostar í deildarleik. Hann varði skot frá einum af framherjum Velez og þar sem hann reis á fætur með knöttinn sá hann að markvörður mótherjanna stóð allt of framarlega í markinu. „Ég ákvað að láta skotið flakka, spyrnti af öllum kröftum og knött- urinn sveif í netið eftir að hafa skoppað einu sinni," segir Pantel- ic. Markvörður Velez var þá Enver Maric, fyrrum landsliðsmarkvörð- ur og enn þann dag í dag einn fremsti markvörður Júgóslavíu. Pantelic skoraði eitt sinn meira að segja þrennu í leik, það var gegn Zagrep og Radnicki fékk þrjár vítaspyrnur. I hvert skipti trítlaði Pantelic upp í vítateig Zagreb og skoraði. „Ég hef auk þess oft skorað tvö mörk í leik,“ segir þessi marksækni markvörð- ur. Pantelic þykir skrautlegur markvörður og hann hefur oft ver- ið gagnrýndur heima fyrir fyrir glæfralega markvörslu. Éitt af því sem hann leikur sér að er að grípa knöttinn með annari hendi undir erfiðum kringumstæðum. Hann er gagnrýndur, en almenningur í Júgóslavíu dáir hann. Zico fór á kostum Knattspyrnustjarnan Zico fór á kostum í gærkvöldi er lið hans, Brasilía, sigraöi Nýja Sjáland 4—0 í sjötta riðli HM-keppninnar. Zico skoraði tvö mörk og lagði upp hin tvö. Jafnframt sýndi hann mikla snilli er hann spilaði félaga sína uppi og opnaði vörn Nýja Sjálands hvað eftir annað og sýndi þá knattleikni eins og hún gerist best í heiminum. Fyrsta mark leiksins skoraði Zico á 29. mínútu og þremur mínútum síðar bætti hann öðru marki við með ofsa skoti af um 15 metra færi. Þriðja mark Brasilíu skoraði Falcao á 59. mínútu eftir góðan undirbún- ing Zicos. Og síðasta mark leiksins skoraði svo Serginho á 69. mínútu. Lið Brasilíu lék eins og áður í keppn- inni af hreinni snilld, þrátt fyrir að leikur þessi hefði enga þýðingu fyrir liðið þar sem það var komið áfram í milliriðil fyrir leikinn. Brasilíumenn hafa nú skorað 10 mörk í þremur leikjum sínum í keppninni til þessa, en aðeins fengið á sig tvö. Það sýnir styrkleika þeirra. Enda hallast nú flestir að því að ekkert lið geti stopp- að þá í keppninni. Lokastaöan í 6. riðli varð þessi: Brasilía 3 3 0 0 10—2 6 Rússland 3 111 6—4 3 Skotland 3 111 8—8 3 Nýja Sjáland 3 0 0 0 2—12 0 Rússland kemst áfram í milliriðil, á betra markahlutfalli en Skotland. En tvo ódýr mörk sem Skotar fengu á sig gegn Nýja Sjálandi urðu liðinu að falli i keppninni að þessu sinni og þeir verða að bíta í það súra epli að fara heim. Belgía og áfram úr Argentínumenn voru ekki í nein- um vandræðum með að sigra lið El Salvador, 2—0, í HM-keppninni í gærkvöldi. Lið Argentínu er þar með komið áfram í milliriðil ásamt liði Belgíu úr 3. riðli. Lið Ungverja verð- ur að halda heim ásamt liði El Salva- dor. Það var fyrirliði Argentínu, Pasar- ella, sem skoraði fyrsta mark leiks- ins í gær úr vítaspyrnu á 21. mínútu leiksins. Þrátt fyrir mikla yfirburði í Argentína 3. riðli öllum leiknum og látlausa sókn að marki El Salvador tókst Argentínu- mönnum ekki að skora aftur fyrr en á 55. mínútu er Daniel Bertoni skor- aði glæsilegt mark með skoti frá vítateigslínu. Lokastaðan í 3. riðli varð þessi: Belgía Argentina Ungverjal. El Salvador 3 2 1 0 3:1 5 3 2 0 1 6:2 4 3 111 12:6 3 3 00 3 1:13 0 Pólland og Italía komast áfram í 1. riðli ÍTALÍA og Kamerún gerðu jafntefli, 1—1, í 1. riðli HM-keppninnar i knattspyrnu í gærdag. Leikur lið- anna þótti frekar slakur og sér í lagi olli lið Ítalíu vonbrigðum. Það var Francesco Graziani sem skoraði mark ítaliu á 61. mínútu. Strax mín- útu síðar jafnaði lið Kamerún leik- inn. Mbida skoraði laglega. Með jafnteflinu tryggði lið Ítalíu sér rétt til þess að leika í milliriðlunum. En ekki er nú árangur þeirra neitt til þess að hrópa húrra fyrir. Lokastaö- an í 1. riðli varð þessi: Pólland 3 1 2 0 5—1 4 Ítalía 3 0 3 0 2—2 3 Kamerún 3 0 3 0 1—1 3 Perú 3 0 2-1 2—6 2 Lið Ítalíu kemst áfrara á hagstæð- ara markahlutfalli en lið Perú. „Eigum 70 prósent möguleika á sigri“ „VIÐ EIGUM nú 70 prósent mögu- leika á því að sigra Chile og kom- ast í milliriðil," sagði Mahhadiene Khalef, þjálfari Alsír, í samtali við AP I gær, en þjóðimar mætast í dag. Chile-menn eiga ekki mikla möguleika, en þeir felast i því að þeir sigri Alsírmenn og Austurrík- ismenn sigri Vestur-Þjóðverja. Þeir hafa ekki gefið upp alla von og þjálfari þeirra segir: „Við erum ekki búnir að gefa upp alla von og þó möguleikar okkar séu nú kannski hverfandi þá munum við kappkosta að sýna góða knattspyrnu og fara ekki heim með skömm í hattin- Golfmót hjá hand- knattleiks- mönnum GOLFMÓT handknattleiksmanna fer fram á föstudaginn á Hvaleyr- arholtsvelli og hefst kl. 17.00. Nán- ari upplýsingar í Golfskálanum á Hvaleyrarholti. \ÆSToe- K3öo- VBjeOAie V'ÍHJIOA H&i STíóeÁte- 'a^tlavJ- Av-Jve- <c\Sv MÍKÍL-U MGTtvJABOR. hoalpusu peÍM •“ttAkJZL ArHEHDuir Oct VEÍPAC I HOOUM ÖTOUTUElI 74/28 Mouuei?mAíeko SCHWAteÐO tSECK, 06, Hoeues ete-'i Li u>i ou bate ru MuUCHEU Av l^ÁvJM v/KOM UA T^eite AVSkTL- ILAU5UM : I ^TSkvvr etásTAEAE I MeuTAUAk ■ '_> ÍT HtlLTí^HSTAkAiv t=>A, £=.1» 3TB.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.