Morgunblaðið - 24.06.1982, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ1982
45
\^L?AKANDI
SVARAR Í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
„Ekki hefna okkur á þeim, heldur
reyna að skilja eðli þeirra“
Ekki eru allir á eitt sáttir, þegar rætt er um dýrahald í þéttbýli.
Ágæti Velvakandi!
Má ég aðeins leggja orð í
belg vegna skrifa um ketti og
hunda. Kaldlynd þykir mér
kona sú er skrifar í dálka þína
20. þ.m. Hún ætlar að ráðast á
varnarlaus dýr með „klóri" og
öðrum eiturefnum. Nú er ég
ekki að mæla því bót að köttur-
inn drap fugl hennar, en því
hafði konan gluggann opinn?
Persónulega finnst mér
hvorki hundar né kettir eiga
heima í borgum, þessi dýr
þurfa að vera frjáls, hundar
eru t.d. dýr sem þurfa að geta
rásað um.
í Reykjavík eru þessi dýr
hrein plága, en við eigum ekki
að hefna okkur á þeim, heldur
að reyna að skilja eðli þeirra.
Tökum þá kettina, þeirra eðli
er að veiða, jafnvel þó að vel sé
séð fyrir þeim á heimili, en það
er hörmulegt þegar ekki heyr-
ist lengur fuglasöngur í görð-
um vegna ágangs kattanna.
T.d. er á einum stað í Skerja-
firðinum um 30 kettir. og hefur i
það svo sannarlega sagt til sín
í görðum nágrannanna, því
varla sést né heyrist fugl leng-
ur.
Þá eru það hundarnir sem
eru önnur plágan til. Hundar
eru yndisleg dýr (eða geta verið
það), en þeir eiga bara ekki
heima í borgum, fyrir nú utan
það að bannað hefur verið
hundahald í Reykjavík með
lögum síðastliðin 40—50 ár, en
að brjóta lög er orðið mjög
hversdagslegt, en hundaeig-
endur sýna frámunalega mikla
eigingirni, að leggja á dýrin þá
miklu fangelsun sem það er að
loka þá inni eða hafa þá í
bandi.
Nú hugsar einhver, nú
manneskjan er á móti hundum,
en það er einmitt af því mér
þykir vænt um bæði hunda og
önnur dýr að ég skrifa þessar
línur, jafnvel minkurinn á
samúð mína að vissu marki. Nú
geri ég mér alveg ljóst að hon-
um þarf að útrýma, og harma
ég það manna mest hvernig
hann hefur leikið hinar fugla-
ríku eyjar Breiðafjarðar, en
mig hryllir við þeim ómannúð-
legu aðferðum, sem oft eru við
hafðar við veiðarnar. Minkur-
inn er skaðvaldur, en hver ber
ábyrgðina? Eru það ekki þeir
sem fyrst fluttu minkinn inn,
fyrir einum 50 árum, var það
ekki sá íslenski trassaskapur
og kæruleysi sem ollu því að
dýrin sluppu út, og af því súp-
um við nú seyðið.
Menn og dýr, við eigum öll
vissan rétt. Við erum alltof
skammt á veg komin í dýra-
vernd, og er aflífun dýra hreint
á villimennskustigi, samanber
mynd er sýnd var í sjónvarpi
fyrir nokkru, en þar eltu ungir
drengir upp fugla og grýttu þá,
þá eru einnig kópar lamdir til
dauða á skerjum uppi. Eða
hvað um bíómyndina, þar sem
skemmt er með því að höggva
hænur.
Með bestu kveðju,
VG
Gildi skógar er ekki
allt bundið við smíðavið
„Skógræktarmaður" nefnist
einn sá sem pistil á hjá Velvak-
anda 22. júní. Hann er að býsnast
yfir þeirri hugmynd að íslenskur
trjáviður verði nýttur til iðnaðar
og þykir það „einhver vitlausasta
hugmynd sem hefur séð dagsins
ljós“.
Það er aldrei nema satt að víða
blása svalir vindar á Islandi og
þar er erfitt að koma upp flestum
fyrirsagnir með myndum af eggj-
um, sem talið var að þar umrædd-
ir menn hafi stolið, en um leið
vitnast það, að íslenzkir bændur
hafi verið að selja þetta og kemur
það í smáfyrirsögn, á öftustu síðu
blaðsins. Þá má geta þess, að við
höfum gert myndir í samvinnu við
Loftleiðir, gamla félagið, og
Ferðamálaráð um það hvernig
tína megi steina hér. Það liggur
við að sagt sé, „vinsamlegast takið
með ykkur grjót heim í stofu".
Þessa mynd sá ég síðastliðinn vet-
ur. Er það þá ekki skrítið, að menn
séu að fjargviðrast yfir því, að út-
lendingar séu hér að tína grjót.
Það er ekki þar með sagt að allir
útlendingar sem hér koma séu
guðs bestu börn, en við verðum
einnig að horfa í eigin barm og þá
axla okkar ábyrgð."
— svar til skóg-
ræktarmanns
trjágróðri. Þó er það svo að sé
byrjað áveðra með harðgerðustu
víðitegundum má víða gjörbreyta
skilyrðunum. Það er líka svo víða í
skógarlöndum að jaðar skógar ber
þess merki, að útvörðurinn nær
ekki sama þroska og sá sem vaxið
hefur í skjóli hans.
„Skógræktarmaður" talar um
að nota „okkar sárafáu ferkíló-
metra moldarríks lands til þess að
vera gróðrarstía fyrir stóriðju".
Hann virðist ekki vita að skógur
getur þrifist þó að landið sé ekki
„moldarríkt". Hann ætti að taka
sér ferð á hendur og skoða Öskju-
hlíðina. Og ef hann kæmist svo
einhverntíma upp í Heiðmörk,
fengi hann ríflegt hugleiðingar-
efni.
Það er mikið moldarlítið land
sem við eigum, þar sem trjágróður
ýmis hefur allgóð vaxtarskilyrði, !
ef vel og skipulega er að unnið.
Þetta land viljum við nýta. En
auðvitað er það framtíðarverkefni
því að það líða áratugir frá því
fræið spírar þar til tréð er vaxið.
En gildi skógar er ekki allt bundið
við smíðavið. Þar sem stórtré eru
felld og unnin í smíðavið fellur til
mikið kurl sem er verðmætt hrá-
efni. Og þegar við hugsum fram í
timann í sambandi við landvernd
og landnýtingu getum við ekki úti-
lokað trjágróðurinn og munum þá
að molar eru líka brauð, og kurl er
verðmætt hráefni.
Það er rétt um það bil að hægt
sé að tala um skógrækt hér á landi
og öll er hún á byrjunarstigi. Þó
hafa menn mikið lært af þeirri
trjárækt, sem hér hefur verið
reynd frá því um síðustu aldamót.
Menn vita t.d. að ein tegund hent-
ar betur en önnur og þó er eflaust
eftir að finna og framleiða þau af-
brigði sem best henta islensku
veðurfari.
Ég trúi því að þær tilraunir sem
þar hafa verið gerðar hafi mikla
og góða þýðingu fyrir búsetu í
landinu og nýtingu þess á kom-
andi öldum. H.Kr.
GÆTUM TUNGUNNAR
Sést hefur: Þeir líta á hvor annan sem bræður og finnst
þeir hafa frjálsan aðgang að eigum hvors annars.
Réttara væri: Þeir líta hvor á annan sem bróður, og þeim
finnst þeir hafa frjálsan aðgang hvor að annars eigum.
Alltaf á fóstudögum
ÁFENGI
Á MEÐGÖNGUTÍMA
Nýlegar rannsóknir sýna aö áfengi, sem
móöir neytir á meögöngutíma getur haft mikil
áhrif á andlega heilsu barnsins síöar á ævinni.
ÍSLENSK KONA
KAUPIR EITT
ÞEKKTASTA
VEITINGAHÚS
í KAUPMANNAHÖFN
Rætt er við unga konu, sem ásamt tveimur
öörum íslendingum hefur keypt hiö sérstæöa
og skemmtilega veitingahús í Kaupmanna-
höfn „7 smá hjern".
Á FISKMARKAÐI
Litiö inn í nýja fiskbúö, sem verslar meö
óvenjulegar fisktegundir.
Föstudagsblaðid ergott forskot á helgina
AUGLVSfNGASTOFA KRISTíNAR Hf