Morgunblaðið - 24.06.1982, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 24.06.1982, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JUNI 1982 41 fclk í fréttum — Betra seint en aldrei rr*W M .. ’* II r/:< Zsa Zsa Gabor með ciginmanni sinum tilvonandi, Pkilipfe d’Alba. Hún sagði einu sinn að hún myndi halda áfram að giftast þar til hún fyndi ástina og nú fullyrðir hún að það hafi tekist. Fyrsti eiginmaðurinn, tyrkn- eski stjórnmálamaðurinn Kurhan Belge. Hjónabandið stóð frá 1937—1941. Zsa Zsa Gabor finnur ástina að lokum + Kvikmyndastjarnan fræga Zsa Zsa Gabor sem hefur verið sjö sinnum gift áður, opinberaði nýlega trúlofun sína og mexík- anska lögfræðingsins Philippe d’Alba. Zsa Zsa kynntist Phil- ippe fyrst fyrir 14 árum síðan í Madrid og þau hafa rekist öðru hvoru hvort á annað síðan í London og París. En þau urðu fyrst ástfanginn í mars síðast- liðnum þegar sameiginleg vin- kona þeirra beggja bauð þeim saman í mat. „Hún vissi ekki að við þekktumst en þegar ég horfði í augu Philippe fór í gegnum mig heitur straumur,” segir Zsa Zsa. Zsa Zsa Gabor segir að Phil- ippe hafi fágæta kosti til að bera sem enginn hinna fyrri eigin- manna hennar hafði búið yfir og hún segist trúa því einlæglega að þetta verði seinasta hjónaband hennar. Zsa Zsa hefur nýlega sótt um skilnað frá fimmta eig- inmanni sínum, lögfræðingnum Michael O’Hara eftir fimm ára hjónaband. Hún segir að skiln- aðurinn verði endanlegur í lok júlí, og fljótlega eftir það muni hún og Philippe ganga í hjóna- band. Phlippe er líka í sjöunda himni. Hann segir að Zsa Zsa sé dásamlegasta kona sem hann hafi nokkurn tíma hitt og mjög vel gefin. Philippe d’Alba er 52 ára gamall og Zsa Zsa Gabor er að eigin sögn 54 ára, þó að það þýði reyndar að hún hafi aðeins verið níu ára gömul þegar hún giftist fyrsta eiginmanni sínum árið 1937. Zsa Zsa Gabor hefur ekki leik- ið í kvikmyndum árum saman, en þrátt fyrir það er hún jafn rík og hver önnur Hollywood stjarna. Hún á hluta í mörgum fyrirtækjum auk þess sem hún kemur fram fyrir hönd stórra fyrirtækja og fær vel borgað fyrir það. Annar eiginmaðurinn, Mt- Þriðji eiginmaðurinn, leibar- Fjórði eiginmaðurinn, Mn- Fimmti eiginmaðurinn, oliu- elkóngurinn Conrad Hilton, inn George Sanders, jöfurinn Herbert L. Hunter, kóngurinn Joshua Cosden, 1942—1947. 1949—1954. 1962—1966. COSPER Maðurinn minn getur aðeins lagt sig í þessari stell- ingu, — hann er nefnilega bílaviðgerðarmaður. Sjötti eiginmaðurinn, lög- fræðingurinn Jack Ryan, 1975—1976. Sjöundi eiginmaðurinn, lögfrrðingurinn Michael O’Hara, 1976—1982. Vantar þig? sumarhús og/eöa vetraríbúð? Gísli Jónsson & Co. hf., Sundaborg 41, sími 86644. Viö kynnum hér stór v-þýsk hjólhýsi sem eru þannig frágengin aö hægt er aö búa í þeim bæöi sumar og vetur. Húsin eru byggö úr svokölluðum „Sandwlch“-einingum, sem þýöir afar góö einangrun, þau eru meö tvöföldu gleri og mjög góöum ofni sem blæs heitu lofti eftir sórstökum hitakanölum um allt húsiö. Húsin eru yfir 6 metra löng og 2,30 á breidd, meö svefnplássi fyrir 6 manns í þrem aðskildum hlutum. Klósettklefi, fullkomiö eldhús með ískáp, gufugleypi, innbyggöu útvarpi og fleiru. Húsin eru útbúin þannig aö bæöi er hægt aö nota 12 volt (t.d. bílgeymi) og 220 volt. Húsin eru byggö á galvaniseraöa grind og tvöfaldan öxul (4 hjól). Hugmyndin er að húsin séu notuö aö sumarlagi sem sumarhús en aö vetrarlagi sem íbúö t.d. fyrir skólafólk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.