Morgunblaðið - 24.06.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚNI 1982
37
Trimmdagurinn:
Ávarp til Reykvíkinga
Lífið er í eðli sínu „rythmiskt"
eða reglubundið, líkt og flóð og
fjara, dagur og nótt. Öndun
manna og hjartsláttur gengur
reglubundið. Svo er og um flestar
íþróttir, þær fela í sér svipaðan
hrynjanda. Að lifa í samræmi við
þessi lögmál náttúrunnar ætti að
vera öllum þægilegt og jafnvel
nautn, og það ætti því ekki að
þurfa að hvetja fólk til þcss að
gera jafn sjálfsagða hluti. Góð
heilsa er eitthvert dýrmætasta
hnoss hvers og eins á öllum skeið-
um æfinnar, og þátttaka í hvers
konar iðkun íþrótta eða líkams-
ræktar er snar þáttur í því að
byggja upp og viðhalda starfsgleði
og orku. Um þetta er núorðið ekki
lengur deilt. Reglubundin hreyf- (
ing, hvort sem um er að ræða inn-
an eða utan skipulegra íþrótta, er
vafalaust einhver einfaldasta og
bezta leiðin í þessu skyni.
íþróttasamband Íslands stofnar
nú til íþrótta- og útivistardags —
„trimmdags" — um allt land og
stofnar um leið til keppni á milli
landsmanna um beztan árangur á
hinum ýmsu stöðum. íþróttafélög-
in í Reykjavik og íþróttabandalag
Reykjavíkur munu veita þessu
framtaki allan sinn stuðning og
mun það nánar kynnt.
Reykjavík hefur jafnan verið í
fararbroddi hvað snertir heil-
brigðis- og íþróttamál og skorum
við undirritaðir á alla Reykvík-
inga að standa saman og láta það
sannast, að þeir muni ekki verða
eftirbátar í „trimmi" eða öðru,
sem þeir láta til sín taka.
Gunnlaugur Pétursson, borgar-
stjóri samkvæmt umboði,
Albert Guðmundsson, forseti
borgarstjórnar Reykjavíkur,
Úlfar Þórðarson, formaður ÍBR.
Fjöldi manns þátttakendur
í göngudegi fjölskyldunnar
SÍMASKRÁNA
íMíóarkápu!
Símaskráin er allsstaðar nauðsynleg. En eftir nokkra
notkun vill hún verða snjáð. Stundum rifna blöð úr
og þá geta skapast vandræði. Forðum því.
Hlífðarkápan frá Múlalundi er lausnin.
Endist ár eftir ár og er ódýr í þokkabót. p
HINN árlegi göngudagur fjölskyld-
unnar fór fram nýlega. Á aðildar-
svæði UMSK voru fjórar göngur
sem iþróttafélög svæðisins sáu um.
UMF Breiðablik sá um göngu fyrir
Kópavoginn og gengu þar 110
manns.
í Bessastaðahreppi sá UMF
Bessastaðahrepps um gönguna og
tóku þátt í henni 50 manns. I
Kjósarhreppi var UMF Drengur
með 40 manna göngu og í Mos-
fellssveitinni gengu 20 manns
undir stjórn UMF Aftureldingar.
Allar göngurnar heppnuðust vel
og voru þátttakendur mjög
ánægðir með þær.
(Úr fréttatilkynningu)
I:
Hafið samband við sölumann.
Múlalundur
Hátúni 10 C. Símar 38400 og 38401 - 105 Reykjavík
citroéna bílasýning
í nýjum og glæsilegum sýningarsal
CX-2000 Reflex
GSA Pallas
Sýndur veröur nýi Citroén Reflex-bíllinn sem hentar jafnt almenningi sem leigubílstjórum. Fáanlegur bæöi meö
bensín- og diesel-vél. Einnig veröur til sýnis hinn stórvinsæli Citroén GSA Pallas.
Opið í dag, fimmtudag og á morgun föstu-
dag, frá kl. 9.00—22.00.
Komið - Skoðið - Sannfærist
Gtobusn
LAGMULA 5, SIMI 81555
CITROEN*