Morgunblaðið - 24.06.1982, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 24.06.1982, Qupperneq 48
Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 jKywtiIrlftfeife Síminn á afgreiöslunni er 83033 J$lt>r)jtmWaí>ií> FIMMTUDAGUR 24. JUNI 1982 Með fullfermi af rekaviði af Langanesi GLÓFAXI frá Vestmannaeyjum kom með frekar óvenjulegan farm til Hafnarfjarðar í fyrradag. í þetta skipti var það ekki fiskur, heldur fullfermi af rekaviði, sem skipverj- ar náðu í á Langanesfjörum. Það er Byggingavöruverzlun Kópavogs sem kaupir rekaviðinn og verður hann ristur niður í sperrur og borð. Bergvin Oddsson, skipstjóri á Glófaxa, sagði i samtali við Morg- unblaðið í gær, að minna hefði ver- ið um rekavið á Langanesi nú, en þeir hefðu haldið vera. Hins vegar væru margar víkur og firðir á Aust- fjörðum fullar af rekaviði og nefndi hann Sandvík, sem dæmi. Bergvin kvað þrjá sólarhringa hafa liðið frá því að fyrsti stórviður- inn fór um borð, þar til búið var að fylla lest og dekk Glófaxa af reka- viði, en Glófaxi er 108 rúmlestir að stærð. Ef vel tekst til við að vinna úr rekaviðnum hjá BYKO, sagði Berg- vin, að ákveðið væri að fara fleiri ferðir. Bæði kvað hann mikið verð- mæti liggja í rekaviðnum og eins væri um mikinn þrifnað að ræða með því að hirða viðinn úr fjörum. Samningayiðræður ASÍ og VSÍ sigldu í strand Aðilar deila um efnahagslegan fyriryara VSÍ Finnst gull- skipið í sand- inum í sumar? MORGUNBLAÐINU er kunnugt um að þeir aðilar, sem á undanförn- um árum hafa leitað gullskipsins á Skeiðarársandi ætla að gera eina til- raun í sumar til að finna skipið. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér, þá hafa mælst útslög á Skeiðar- ársandi, sem ekki hafa mælst áð- ur. Sérstök tæki voru notuð við 'þessar mælingar, en útslögin sýna að málm er að finna. Nokkuð djúpt mun vera niður á þann stað sem útslögin mældust. Til þess að komast niður á staðinn þarf að grafa nokkuð djúpt og til þess þarf stóra kranagröfu. Fuglavarp við Mývatn með seinna móti FUGLAVARPIÐ við Mývatn hefur verið með seinna móti í ár, ef borið er saraan við fyrri ár, sagði Ragnar Sigfinnsson bóndi á Grímsstöðum, sem fylgst hefur náið með fuglavarp- inu við Mývatn í gegnum árin. „Það er lítið um smáfugla við vatnið, þá sérstaklega þresti, en þeir drápust margir í kuldanum í vor,“ sagði Ragnar ennfremur. „Ástandið á andastofninum er þó svipað og í fyrra, bæði hvað varðar fjölda og hve mikið þær i verpa. I Hrafninn hefur gert mikinn usla í varplöndunum að undan- förnu og meira en oftast nær áður. Hvað veldur er ekki hægt að segja um, en það virðast vera áraskipti á þessu. En það hefur lukkast að halda minknum niðri í ár, og er það afar gott, því ef hann kemst í varpið drepur hann allt, sem hann nær í og endurnar yfirgefa hreiðr- in,“ sagði Ragnar Sigfinnsson. VIÐRÆÐUR ASÍ og VSÍ sigldu í strand síðdegis í gærdag og hefur ekki verið boðað til nýs sáttafundar. — Það verður ekki boðað til samn- ingafundar deilduaðila, nema að sáttanefnd meti aðstæður verulega breyttar, eða ef annar hvor aðilinn óskar eftir því, sagöi Guðlaugur Þor- valdsson, ríkissáttasemjari, í samtali við Mbl. Ásteytingarsteinninn í viðræðum aðila er fyrirvari, sem VSÍ vill gera vegna yfirvofandi aflabrests á seinni hluta ársins, þannig að hann verði tekinn inn í dæmið við vísi- töluútreikning, eða komi til frá- dráttar. Vinnuveitendasambandið telur óhjákvæmilegt, að tekið sé tilliti til efnahagslegra aðstæðna í landinu við gerð kjarasamnings nú og vísar í því sambandi til endurskoðaðrar þjóðhagsspár Þjóðhagsstofnunar, sem gerir ráð fyrir mun meiri sam- drætti þjóðartekna, en gert hefur verið ráð fyrir. í spánni í marz sl. var gert ráð fyrir 1% samdrætti, en samkvæmt endurskoðaðri spá er gert ráð fyrir allt að 6% samdrætti. Alþýðusambandið á hinn bóginn telur þennan fyrirvara með ðllu óaðgengilegan og telur að sjálfvirk- ar kauplækkanir komi alls ekki til greina. Það þurfi að skoða málið þegar að því komi. Um fleiri út- gönguleiðir sé að ræða. í fréttatilkynningum frá deiluað- ilum saka þeir hvor annan um að hafa slitið viðræðunum. í frétt frá Aiþýðusambandinu segir, að með tillögum sínum, sem innihaldi fyrrgreindan fyrirvara hafi Vinnu- veitendasambandið gengið á bak fyrri orða sinna og þar með hafnað samningaviðræðum við Alþýðu- sambandið. í frétt Vinnuveitenda- sambandsins segir hins vegar, að Alþýðusambandsmenn hafi slitið viðræðunum. Þeir hafi sett það skil- yrði fyrir áframhaldandi viðræðum um tilboð VSÍ, að Vinnuveitenda- sambandið félli frá tillögu sinni um þennan efnahagslega fyrirvara. Af hálfu Vinnuveitendasambandins hafi því hins vegar verið lýst yfir, að sambandið væri áfram reiðubúið til viðræðna um alla þætti þess heildartilboðs, er það lagði fram 21. júní sl. Ásmundur Stefánsson, forseti ASI, segir í samtali við Mbl., að Al- þýðusambandið muni aldrei sam- þykkja sjálfvirkt kauplækkunar- kerfi, eins og vinnuveitendur leggja til. Það telji Alþýðusambandsmenn einfaldlega jafngilda því, að fram- selja samningsrétt sinn, en Þor- steinn Pálsson, framkvæmdastjóri VSI, segir hins vegar, að með því að hafna þessum fyrirvara sé ASÍ í raun, að vísa málinu til ríkisstjórn- arinnar og afsala sér þar með samningsrétti sínum. Sjá nánar frásagnir og viðtöl á miðopnu. Handfærarúlla og aflstýrir: Ný íslenzk rafeinda- tæki í fjöldaframleiðslu TVÖ rafeindatæki, sem fundin hafa verið upp og hönnuð hér á íslandi, verða innan skamms sett í fram- leiðslu hér á landi. Um er að ræða tölvustýrða handfærarúllu, sérstæða að allri gerð, og rafeindaaflstýrir er bræðurnir Davíð og Níls Gíslasynir á Akureyri hafa fundið upp. Talið er að góður grundvöllur sé fyrir fjölda- framleiðslu á aflstýrinum og geti hann sett strik í reikninginn hvaö varðar raforkunýtingu hérlendis. Þá hefur því verið haldið fram um handfærarúlluna, að hún hafi yfirburði yfir handfærarúllur sem nú eru á heimsmarkaði. Rúllan er nokkuð flókin að gerð og fjölda- framleiðsla hennar því vandasöm. Er ætlunin að fara hægt af stað með framleiðslu hennar. Þá hefur komið upp nokkur ágreiningur milli þeirra bræðra og Style Ltd. í Garðabæ um hönnunarrétt á rúll- unni og hefur hann ekki enn verið leystur. Sjá nánar viðialsgreinar á bls. 18 og 19.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.