Morgunblaðið - 04.07.1982, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ1982
21
Fimmtugur:
CHANDIGARH
Kathmandu
CORíiETT
NATIONAL
PARK
(GANGTOK
JAISALMER
SARISKA
LUCKNOW
Q JAIPUR
JOOHPUR 0
chittorgarhQ *
SHILLONG
KHAJURANO
daan
Veró kr. 27.000
London — Bombay — Fílahellarnir
Aurangabad — Ellorahofin —
W^m Pachora — Ajanta Dehlí — Agra —
Taj Mahal — Gwalior — Varansi Gangesfljót
— Bodh Gaya — Rajgir — Nalanda Patna
— Katmandu í Neapal — Ghatgaon Calcutta —
Bagdogra — Tígrishöföi meö útsýni til Himalayafjalla
j — Ghoom klaustrið Darjeeling — Dehli —
Bombay — London
Möguleiki á aó framlengja
dvölina í London í bakaleió
FERÐASKRIFSTOFAN
URVAL
VI0 AUSTURVOLL SÍMI 26900
Gunnar Snorrason
formaður Kaupmannasamtakanna
GRIOTG
ver ja lakk og luktir
Grindina festum við á meðan þú færð þér kaffi.
Sendum einnig í póstkröfu.
m
BUKKVER
Skeljabrekka 4. 200 Kópavogur. Sími 44100
Aðeins tveir boltar og
grindin er laus.
A morgun, mánudag 5. júlí, er
Gunnar Snorrason, formaður
Kaupmannasamtaka Islands,
fimmtugur. Gunnar fór ungur að
vinna við verzlun. Um fermingu
vann hann hjá Jóni Péturssyni í
verzluninni Portland.
Er Jóhann Jónsson stofnaði
verzlunina Teigabúðina réði
Gunnar sig til hans og hóf þar
störf í marz 1947. Pjórum árum
síðar keypti svo Gunnar Teigabúð-
ina af Jóhanni og gerðist þá þegar
kaupmaður í eigin verzlun, aðeins
nítján ára gamall. Arið 1960 bygg-
ir Gunnar verzlunarhúsnæði inn
við Gnoðarvog og stofnar þar
verzlun sem fær nafnið Vogaver
og rekur hana í fimmtán ár, eða til
ársins 1975, ásamt félaga sínum,
Árna Kjartanssyni.
Þá fær Gunnar verzlunarlóð í
Breiðholti að Lóuhólum 2—6 og
gerir þar sitt stærsta átak og
byggir þar upp verzlunarmiðstöð
og nefnir Hólagarð, sem hann
opnaði í júní 1975. Og hann lætur
ekki staðar numið. í vor hóf hann
byggingu á stóru verzlunarhús-
næði við Lóuhóla, sem stækkar
Hólagarð allt að því um helming.
Þetta er í stuttu máli fram-
kvæmdasaga ungs manns sem
byrjaði sem sendisveinn í Verzlun-
inni Portland fyrir 37 árum. En
jafnframt því að Gunnar hefur
staðið í miklum byggingarfram-
kvæmdum og verzlunarrekstri,
hefur hann gefið sér tíma til að
sinna tímafreku og yfirgripsmiklu
félagsmálastarfi fyrir verzlun-
arstéttina.
Hann var kjörinn í stjórn Fé-
lags kjötverzlana 14. apríl 1966.
Formaður Félags kjötverzlana var
hann kjörinn ári seinna, eða 16.
maí 1967, og gegnir því for-
mannsstarfi til ársins 1974. Gunn-
ar var kjörinn varamaður í fram-
kvæmdastjórn Kaupmannasam-
taka íslands 17. marz 1970. Hann
var kjörinn aðalmaður í fram-
kvæmdastjórn Kaupmannasam-
takanna 9. marz 1971 og þá sem
gjaldkeri. Á aðalfundi Kaup-
mannasamtakanna 24. febrúar
1972 var Gunnar kjörinn varafor-
maður samtakanna. Formaður
Kaupmannasamtaka Islands var
Gunnar svo kjörinn á aðalfundi
15. febrúar 1973, og hefur verið
það síðan, eða í rúmlega níu ár, og
lengur en nokkur annar.
Hér hefur verið stiklað á stóru í
félagsmálastarfi Gunnars, því að
auki hefur hann starfað í ótelj-
andi nefndum og ráðum á vegum
samtakanna og sérgreinafélag-
anna. Hann hefur setið í fulltrúa-
ráði Kaupmannasamtakanna, í
stjórn Matkaups og situr í stjórn
Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og
svo mætti lengi telja. Gunnar hef-
ur valist í þessar trúnaðarstöður
fyrir stétt sína vegna mannkosta
sinna og dugnaðar.
Hann hefur í stjórnartíð sinni í
KÍ lagt áherslu á að stækka og
treysta þann félagslega grunn sem
Kaupmannasamtök Islands eru
byggð á, m.a. með því að stofna
kaupmannafélög út um lands-
byggðina og styrkja þau sem fyrir
voru. Af sama toga var einnig
spunnin sú ákvörðun að KI gengi í
Vinnuveitendasamband íslands,
en Gunnar er þar í framkvæmda-
stjórn.
Kona Gunnars er Jóna Valdi-
marsdóttir og eiga þau fjögur
mannvænleg börn. Gunnar hefur
notið þeirrar gæfu að vera vel
giftur og að eiga samhenta fjöl-
skyldu sem hefur lagt sig fram við
rekstur verzlananna.
Þau hjón hafa búið sér fallegt
heimili að Lundahólum 5, og gætir
þar í ríkum mæli smekkvísi og
listrænnar sköpunargleði hús-
bændanna.
Starf Gunnars Snorrasonar
fyrir kaupmenn er ekki hægt að
meta til peninga, en ég sem starf-
að hefi með honum öll árin hér hjá
Kaupmannasamtökunum get bor-
ið um það að ef þurft hefur, hefur
hann lagt nótt við dag í starfi
fyrir samtökin.
Kaupmannasamtök Islands
senda Gunnari Snorrasyni og fjöl-
skyldu hans hugheilar árnaðar-
óskir á þessum merku tímamótum
í ævi hans, og við vitum og vonum
að hann eigi enn fyrir höndum
langan og farsælan starfstíma.
Starfsfólk skrifstofu Kaup-
mannasamtakanna árna honum
og fjölskyldu hans allra heilla og
persónulega sendi ég honum bestu
afmælisóskir og þakka honum
tveggja áratuga ánægjulegt sam-
starf. Jón I. Bjarnason
sirnanúr 367 I (\ex\ð 'Tt
AUCLÝSINCASTOFA MYNOAMÖTAHF
INDL AND.NEPAL
23. október — 16. nóvember. Fararstjóri: Sig. A. Magnusson
ÖRFÁUM SÆTUM ÓRÁÐSTAFAÐ
í ÞESSA EINSTÆDU ÆVINTÝRAFERÐ