Morgunblaðið - 04.07.1982, Side 36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 1982
V F Hvað ættum við að lesa I
I J E í sumarleyfinu? I
texti JOHA.W A
KHISTJÓNSDÓTTIH
Faðir og sonur
eftir Simenon
Georges Simenon er ekki af-
þreyingabókahöfundur í þeim
skilningi sem margir leggja í orð-
iö, en bækur hans eru afar að-
gengilegar og sameina marga
kosti skemmtibóka og alvarlegra
bókmennta. Frægur er lögreglu-
foringi hans Maigret, söguþer-
sóna í tugum, ef ekki hundruöum
bóka. Sú bók sem hér er valin er
þó af öðrum toga og sögusviðiö
Bandaríkin, heldur óvenjulegt í
Simenonbókum. Dave Galloway
er miöaldra úrsmiður, sem hefur
annast son sinn, Ben, frá því
konan hans hljóp í burtu fyrr
óralöngu. Galloway hefur annast
son sinn af mikilli umhyggjusemi
og telur sig eiga trúnað sonar
sins og vináttu óskiþta. Það
kemur í meira lagi flatt uþþ á
hann, þegar Ben hverfur allt í
einu að heiman og það kemur í
Ijós að hann hefur farið með
stúlku með sér, sem býr í ná-
grenninu. Einhver undarleg
martröð hefst sem gengur öld-
ungis á skjön viö það reglu-
bundna og tilbreytingarlausa líf
sem úrsmiðurinn hefur lifaö.
Lögreglumenn sækja hann heim,
það kemur í Ijós að sonurinn hef-
ur skotiö mann og stoliö bíl.
Galloway verður einnig að kyngja
því að sonur hans vill hvorki
heyra hann né sjá og viröist enga
eftirsjá á honum aö merkja
vegna þess sem hann hefur gert.
Undir lokin verður Galloway þó
að viöurkenna aö á sínum tima
haföi hann brotizt undan valdi
fööur síns og griþið til sinna
ráöa, þótt þaö heföi ekki sams
konar afleiðingar og gjörð Bens.
Hann horfist í augu viö oröinn
hlut og úr þússi sínu dregur hann
þrjár myndir, eina af fööur sín-
um, aöra af sjálfum sér og þriöju
af Ben og lætur ramma þær
saman. Kannski þeir hafi ekki
verið jafn ólíkir, þegar öll kurl
koma til grafar.
Sumarleyfistíminn er genginn í garö og honum er
variö á ýmsan hátt, sumir fara um fjöll og firnindi,
sækja á strendur sólarlanda og allt þar í milli. I
sumarleyfinu er ekki hvaö sízt gott aö velja sér
áreynslulítið og þekkilegt lestrarefni, meiri hvíld í
slíku en lærðum skýrslum eöa bókum sem verulega
kalla á heilabrot. Afþreyingabækur þurfa hreint ekki
að vera lítilmótlegar, þær veita ánægju á meöan þær
eru lesnar, og stöku meira en það og þær gera á þann
hátt sitt gagn. Undanfarin sumur höfum viö gluggaö í
hvaö fýsilegt gæti verið aö grípa meö sér í sumarleyf-
iö og tökum upp þráöinn enn á ný.
Simenon er sem fyrr leikinn í
að skapa andrúmsloft, sem gríp-
ur áhuga lesandans og þótt per-
sónan Ben sé heldur óljós er sú
mynd sem hann dregur upp af
Dave Galloway meistarastykki.
To Love Again
eftir Danielle Steel
Danielle Steel er mikill tízku-
höfundur vestanhafs um þessar
mundir, einkum hjá þeim sem
eru drjúgir kaupendur pappírs-
kilja, ég man ekki betur en ég
hafi séð að tvær bækur hennar
væru á pappírskiljametsölulist-
anum um þessar mundir. Ég hef
einhvern tíma í þessum dálkum
minnzt á bókina Going Home,
hún var fjarska viökvæmnisleg
og upphafin, og þessi hefur öll
sömu einkenni. Sögusviöiö er ít-
alía, þar búa falleg hjón Amadeo
öllum lögmálum skemmtisög-
unnar, harmur, dulin ást, leiö til
björgunar, afturkippur og enda-
lok góð. Við lestur bóka Daneille
Steel veröur Ijóst aö hún getur
skrifað liðlega og þaö er hægt aö
komast þrautalítið í gegnum bók
eftir hana — en maöur þarf samt
aö hvíla sig á henni á milli.
sjá, kannski ekki sízt þeir sem
liföu ekki hryllinginn. Það kann
auðvitað að hafa nokkra þýö-
ingu, þá fellur hryllingurinn ekki i
gleymsku og dá, en hins vegar á
stundum er liklega á mörkum
hverju menn trúa um mannlega
grimmd.
Þaö er ekki mannleg grimmd
- SEX
SIGNS
JUDITH BENNETT
tvefy woman's
JACK HtGGINS
— THEíAGLE
HAS LAHDED
og Isabella. Þau reka stórfrægt
tízkuhús, sem er aö því er virðist
merkilegasta tízkuhúsiö i heimin-
um, enda þau hjón miklir snill-
ingar. Við sögu kemur vinur
þeirra Bernando, hann varar þau
hjón við aö sýna ekki meiri
gætni, á þessum síöustu og
verstu mannræningjatímum. Síð-
an kemur aö því að Amadeo
verður fórnarlamb mannræn-
ingja og Isabella reynir árang-
urslaust aö safna lausnargjalds-
upphæöinni, en allt kemur fyrir
ekki aö Amadeo finnst myrtur
daginn eftir.
Síöan fylgir sagan dyggilega
Storm Warning
eftir Jack Higgins
Jack Higgins er vel þekktur
hér fyrir bók sem var þýdd eftir
hann og kom út á íslenzku fyrir
nokkrum árum „Örninn er setzt-
ur“. Síðar held ég að kvikmynd
hafi verið gerð eftir þeirri bók.
Higgins er að þvi er mér sýnist
einn af ótal mörgum höfundum
sem sækir efni sitt í atburöi úr
siðari heimsstyrjöldinni, þaö er
seint sem hún ætlar aö ganga til
þurrðar sem efniviöur bóka,
sjónvarpsþátta og kvikmynda og
alltaf er fólk sólgið i aö lesa og
sem verður ofan á í sögu Higg-
ins, heldur göfugmennska og
hetjulund, þegar óvinir leggjast á
eitt til aö bjarga fólki úr sjávar-
háska. Skipið Deutschland haföi
lagt úr höfn í Brasilíu meö all-
marga farþega innanborös, sem
fundu sig knúöa til aö komast
heim til Þýzkalands, þótt ástand-
iö þar væri augsýnilega hiö öm-
urlegasta. Eftir mikla hrakninga
er skipið aö nálgast, fariö er fram
hjá Skotlandsströndum í band-
vitlausu veöri og skipiö rekur
stjórnlaust upp aö smáeynni
Fhada. Þar er í haldi þýzkur kaf-
bátaforingi og stríöshetja. Er þá
ekki aö orölengja þaö, aö áhöfn
á þýzkri orrustuvél og brezkir
eyjaskeggjar — undir stjórn hins
hugprúöa þýzka kafbátaforingja
leggjast á eitt og leggja mikiö í
sölurnar til aö reyna aö bjarga
fólkinu á Deutschland. Um þaö
þarf ekki að orðlengja aö fyrir
vikiö fær kafbátaforinginn að
stela sér bát og reyna aö komast
í burtu, stúlkunni Janet til sárrar
hrellingar, sem hefur lagt ást á
manninn. Sagan endar á þessa
leiö og það er til dæmis ekki víst
aö kafbátaforinginn hafi sloppiö,
en mjög trúlegt, því aö maöurinn
er mikill garpur.
Læsileg bók, og Jack Higgins
hefur aö því leyti sérstööu miöaö
viö ýmsa höfunda, aö honum
virðist vera nokk sama þótt hann
þurfi aö fórna nokkrum vænum
sögupersónum fyrir sennilegan
þráö. Þaö getur á stundum verið
ágætt, og gefur skrifum Higgins
raunverulegra yfirbragö fyrir vik-
iö.
Sex Signs
efftir Judith Bennett
Allir hafa áhuga á aö lesa um
stjörnumerki, hversu tregir sem
ýmsir eru nú aö viðurkenna þaö.
Þaö leynist meö okkur ótrúlega
mikil forvitni aö lesa um þaö
hvernig viö séum nú innrætt,
hverjar séu okkar langanir og
hverjir séu okkar ókostir og svo
framvegis og ættum viö þó aö
vita þetta margt. Okkur finnst
fjarskalega skemmtilegt aö lesa
um þaö, hvernig merkin eiga
saman, þó svo aö það þurfi ekki
aö vera vitundaragnarögn aö
marka neitt af því og þaöan af
síður aö viö förum eftir því þegar
við erum aö velja okkur aöila til
náinna samskipta. SEX Signs
Judith Bennettt er dálítiö ööru-
vísi bók en margar þær sem ég
hef gluggaö í áöur um þessi
fræöi, hún er til dæmis langt frá
þvi aö vera jafnréttislega sinnuö,
því aö í bókinni er aöeins kven-
mönnum sinnt, Judith Bennett
hefur engan áhuga á aö skrifa
um hvernig karlmenn bregöist
viö undir hinum og þessum
kringumstæöum. Svo er aukin
heldur búin til sérstök kvenvera
sem heitir „The Cosmic Woman“
og ef viö erum ekki ánægöar
meö þann vitnisburð sem viö
fáum hjá okkar merki getum viö
leitaö á miö annarra merkja en
þó er langtrúlegast aö vlö séum
komnar svo langt aö viö séum aö
sameinast The Cosmic Woman.
Dálítiö fráleit bók en verulega
skemmtileg aflestrar.
TOYOTA
rafmagns lyfftari 2ja tonna
Lítið notaður, í mjög góðu ásigkomulagi.
Allar nánari upplýsingar hjá sölumanni.
TOYOTA
P. SAMÚELSSON & CO. HF.
UMBOÐIÐ
NÝBÝLAVEGI 8
KÓPAVOGI
SIMI44144
Júlí
S IVI Þ M F F L
í 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
Feröaáætlun SAS DC-8 flugs til Narssars-
suaq og Kaupmannahafnar. Hafiö samband
viö feröaskrifstofurnar, eða SAS, Laugavegi
3, 2. hæð
Búnaðarbanka-
húsinu — símar:
21199/22299.