Morgunblaðið - 04.07.1982, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 1982
ANNA BJARNADOTTIR
Washingtonbréf
Látum glepjast af
tískufyrirbærum
Krá fréttaritara Mbl. Önnu Kjarnadóttur.
„Korsetinn reyndist vera indælis
martur,“ skrifaði Frank Johnson í
Times of l,ondon eftir heimsókn
Ronald Reagans til London fyrir
skommu. „Ilann var lifandi da mi
um hversu hollt það er að forðast
skokk, heilsufæði og sálgrein-
ingu.“ Allt þrennt er enn í tísku í
Bandaríkjunum þótt ýmislegt
bendi til að þreitu sé farið að gæta
á hollustunni. Kin vísbendingin
um það eru vinsældir brandara-
bókarinnar „Real men Don’t Kat
(iuiche“ eftir Bruce Feirstein.
A undanförnum árum og enn í
dag þykir varla nokkur maður
með mönnum nema hann hreyfi
sig mikið, borði létt fæði og
gangi til sálfræðings. Hreyfingin
getur eiginlega ekki bara falist í
því að labba í vinnuna eða gera
léttar morgunæfingar. Öruggast
er að skokka um úti í dýrum
búningi eða spila tennis. Ekki er
heldur nógu gott að borða mátu-
lega mikið og passa uppá að
þyngjast ekki. Það á að borða
léttgrillað kálfakjöt, salat og
kiwi-ávexti. Og enginn er fær
um að leysa sín vandamál sjálf-
ur, sálfræðingar finna skýringar
á fýlu og skapvonsku aftur í
bernsku og hjálpa hugsjúkum í
gegnum raunir sínar.
Síðasti áratugur er oft kallað-
ur „ég áratugurinn". Stór hluti
íbúa Kalifornínu og New York
fylltist þá áhuga á sjálfum sér.
A ströndum Kaliforníu heyrðust
hraustlegar stelpur í stuttbux-
um og strigaskóm tala um
hópsálgreiningarráðgjafann
sinn og fólk á restauröntum í
New York talaði eins og Woody
Allen og Diane Keaton í mynd-
inni Manhattan. Reagan hefur
búið í áratugi í Kaliforníu en
hann lét ekki glepjast af fyrir-
bærinu. Jimmy Carter var í
Washington þegar skokkbakteri-
an beit hann, myndin af honum
fölum og sveittum eftir að hann
næstum drap sig á hlaupum í
Maryland er fræg um allan
heim.
Tískufyrirbrigði berast fljótt
til Washington og eiga auðvelt
með að skjóta þar rótum. Mikill
fjöldi íbúa borgarinnar vinnur
fyrir sér með því að fylgjast
með, hvort heldur sem stjórn-
málamenn og starfsmenn þeirra,
sendiráðsstarfsmenn eða blaða-
menn. Flestir eiga það sameig-
inlegt að vera aðkomufólk í
borginni og vilja síst af öllu
þykja sveitó. Nú er í tízku meðal
barnslauss fólks að búa á Capitol
Hill eða í Adams Morgan. í þess-
um hverfum eru nýuppgerð göm-
ul hús með þakgluggum og íbú-
arnir bjóða til sín gestum og
ræða gjarnan skokk og stjórn-
mál.
A þessum árstíma á við að
bera fram nýsoðinn krabba og
salat. Setið er við að plokka
fiskinn langt fram á kvöld og
gestirnir kynnast betur og betur
eftir því sem bjórflöskunum
fækkar. Nýlega voru saman-
komnir í húsi starfsmanns sam-
taka ríkisstjóra Bandaríkjanna
þýsk flugfreyja og maður hennar
frá Tennessee, fulltrúadeildar-
þingmaður repúblikana frá
Rhode Island og maður hennar
og einhverjir fleiri. Eiginmaður
þingmannsins var reyndar haf-
fræðingur sem hafði sótt þing
haffræðinga á íslandi fyrir
nokkrum árum og var enn hissa
á að íslenskur ráðherra hafði
ávarpað þingið og talað lengi á
Ceimeyru eru það allra nýjasta
i Washington í dag.
íslensku án þess að erlendum
gestum væri gefin nokkur skýr-
ing á hvað maðurinn væri að
segja. Þingmaðurinn var klædd-
ur í svartan síðan kjól, silfurskó
og með stóra silfurkonfektslaufu
í hárinu. Hún átti auðveldara
með að skilja islenskan hreim en
það sem landi hennar frá Tenn-
essee hafði að segja.
Gestgjafinn var klæddur í
gallabuxur eins og flestir aðrir
og gæddi gestum á Haagen
Dazs-ís eftir matinn. Haagen
Dazs er frábær ís framleiddur í
Brooklyn, New York. Flestir
standa í þeirri meiningu að hann
sé hollenskur eða danskur og eru
því tilbúnir að borga meira fyrir
hann en gamaldags Baskin-
Robbins-ís, sem er þó síst verri,
en allir vita að er amerískur.
Með ísnum var borið fram kaffi
kryddað með amaretto-bragð-
efnum og kanel en venjulegt
kaffi var ekki til í húsinu. Skokk
og stjórnmál voru rædd fram-
undir miðnætti. Þá kom í Ijós að
gestgjafinn átti langt EST-
námskeið fyrir höndum næsta
dag. Þá átti að hjálpa honum að
komast í tengsl við tilfinn-
ingarnar og tími var til kominn
að fara.
Sagt var um þá sem studdu
John Anderson í forsetakosn-
ingabaráttunni 1980 að þeir ætu
Brie-ost, drykkju hvítvín og
keyrðu um á Volvo. Það þótti
benda til að fólkið væri heldur
frjálslynt og nokkuð vellaunað.
Ekki er ólíklegt að sama fólkið
lesi í dag „Real Men Don’t Eat
Quiche“ og hafi gaman af. Bókin
er leiðarvísir um „allt það sem er
karlmannlegt". Það kemur í ljós
að sannir karlmenn láta ekki
glepjast af tískufyrirbrigðum og
þeir hafa ekki tekið nokkuð
mark á kenningum kvennahreyf-
ingarinnar, að karlmenn séu
innst inni alveg jafn næmir og
viðkvæmir og konur.
Sannir karlmenn borða ekki
Quiche, sem er létt franskt pæ,
heldur vilja þeir almennilega
steik og bakaða kartöflu. Abra-
a) Þau eru sæt á krökkum ... b) en á fullorðnum mönnum???
vernda lakkið - var na ryði
Svartir og úr stáli. Hringdu í síma 44100.og pantaðu, þú færð þér svo
mhm kaffi meðan við setjum þá undir.
\ Sendum einnig í póstkröfu.
lAj biikkver
Skeljabrekka 4. 200 Kópavogur. Sími 44100
Hveragerði:
Gáfu nýja leik-
skólanum ágóða
af hlutaveltum
Hveragerði, 28. júní.
ÞESSIR ungu Hvergerðingar á með-
fylgjandi mynd heita Guðmundur
Reynisson, Guðmundur Gústafsson
og Kristmar Geir Björnsson. Nýlega
héldu þeir tvær hlutaveltur og sam-
eiginlegan ágóða þeirra, kr. 100,
gáfu þeir nýja leikskólanum í Hvera-
gerði, sem taka á í notkun eftir
nokkrar vikur.
Sögðu fóstrurnar á leikskólan-
um að þetta væru miklir fyrir-
myndardrengir, sem kæmu oft og
biðu þeim aðstoð við tiltekt á
leikskólalóðinni og fleiri störf.
Sigrún