Tíminn - 25.07.1965, Page 9

Tíminn - 25.07.1965, Page 9
SUNNUDAGUR 25. júlí 1965 TIMINN Ría-*a Jf Margt er það, sem mönnum verður að öfundarefni, en ég efast um, að lesendumir geti rétt til um hvers vegna við sjálft lá, að ég öfundaði frú Merle Sivertsen sárlega. Ekkj var það af því, að hún er ráðherrafrú, gift mennta- málaráðherra Noregs, ekki heldur af því, að hún er sér- lega aðlaðandi kona, sem sam- eim ar gáfulegt yfirbragð og blíða heiðríkju í svip sínum. Nei, ég öfundaði hana af þeim árangri, sem hún sér af eigin og annarra starfi 1 því, að búa sem bezt að þeim þjóðfélags- borgurum síns heimalands, sem ævilangt hljóta að vera vanmegnugir sakir andlegs van þroska. Áður en frú Sivertsen kom til íslands, vissi ég frá manni hennar, að hún fjallaðgi um málefni vangefinna í borgar- stjórn Oslóar og því var mér sérlega hugleikið að fá að spjalla við hana. Sólin var að þerra áfallið af grasblettunum, Þegar við hittumst snemma morguns í anddyri Hótel Sögu. áður en þau hjón og fleiri gest ir flugu af stað til Norður- lands, í boði menntamálaráð- herra. Hve lengi hafið þér átt sæti Sigrfður Thorlacius ræðir við ráðherrafrú Merle Sivertsen Ljósmynd Tíminn. koma okkur ölíum víi — segir Merle Sivertsen ráðherrafrú í borgarstjóm, frú Sivertsen? Ég hef setið þar í sex ár og allan tímann starfað í þeirri nefnd, sem fjallar um málefnj vangefinna. í fjögur ár hef ég verið formaður nefndarinnar og sem slík á ég sæti í stjórn þeirra einkastofnana, sem Styrktarfélag vangefinna og Rauði krossinn starfrækja. Hve margar stofnanir og hverrar tegundar eru það, sem annast vangefið fólk í Osló og næsta nágrenni borgarinnar? Borgin sjálf starfrækir barna heimilið í Orkeröd, sem tekur eitt hundrað börn. Þar eru vist uð þau börn, sem verst eru farin. Þar er vinnustofa og bömin hnýta teppi, riða körf- ur, o.s.frv., auk þess sem þeim eru kennd bókleg fög nokkra tíma í viku. Fyrir fullorðið fólk starfrækir borgin heimil- ið Toftes Gave. Þar dveljast um 80 manns. Þetta heimili er á eyju í rólegu umhverfi og vistmennirnir umgangast ná- granna sína á frjálsan og eðli- iegan hátt. Þarna eru margar innustofur. þar er ofið, riðn rr körfur fengizt við smíðai og fleira. Styrktarfélag vangefinna Stöttelaget for ándssvake." á Ragna Rjngdals dagheimili, en á því dvelja um eitt hundrað manns, allt frá þriggja ára og til fullorðins aldurs. Þar era barnadeildir, vinnustofur og vinnuþjálfunar-deildir, auk þess sem þar eru tvær svo kall- aðar verndaðar deildir, sem fá verkefni frá ýmiskonar iðnfyr- irtækjum. Tveir kennarar ann ast bóklega kennslu. Félagið er líka nýbúið að opna dagheimili á Holmenkollen fyrir 70 börn. Sem stendur eru þar einkum lítil börn, en með tímanum verður sköpuð þar fjölbreytt starfsaðstaða fyrir fleiri aldurs flokka. Þá starfrækir félagið rann- sóknarstöð, em er í senn sjúkrahús og athugunarstöð, þar sem allir, sem læknar eða aðstandendur óttast, að séu á einhvern hátt vangefnir, eru rannsakaðir. Sumir koma að- eins i skoðun, aðrir dvelja lengri tíma, svo sem þeir, sem þarfnast sérstaks mataræðis, en það á einkum við um þá, sem haldnir eru Föllingssjúkdómn um, en hann er þess eðlis. að finnist hann nógu snemma op börnunum séð fyrjr sérstöku mataræði vissan tíma, þá verða bau alheilbrigð. annars þrosk ast heilafrumurnar ekki og þau verða mikið vangefin. Þarna er líka fullkomin efnarannsóknar stofa. Á stofnuninni rúmast um 80 börn og þau eru tekin þar inn nýfædd, ef þess gerist 'pörf. Ennfremur starfrækjr félag- ið verndaðar heimavistir fyrir ungar stúlkur og pilta hvor í sínu húsi. Það em íbúðarhús í venjulegu íbúðahverfi og í hverju húsi búa tíu ungling- ar undir vernd og umsjá hjóna, sem raunverulega ganga þeim í foreldra stað. Þetta unga fólk gengur til vinnu sinnar ejns og þeir, sem alheilbrigð- ir em, en heimilisástæður hafa af ýmsum ástæðum verið þann ig, að það gat ekki dval- ið heima. Þetta er merkilegt starf og ánægjulegt að heyra, að það gefur góða raun. Hvernig tóku nágrannarnir þessum heimii- um í fyrstu? Ekki get eg neitað þvi. að áður en heimilin tóku til starfa, hreyfðu nágrannarnir andmæium og töldu sig mundu verða fyrir ónæði af þessu unga fólki, en það gjörbreytt ist á skömmum tíma og nú heyrist enginn hafa orð á bví að umhverfið hafi ama af þeim. Er fyrirhugað að reisa fleiri heimili af þessari stærð og að hafa þau umfram allt í venju- legum íbúðarhverfum, svo að vistmennirnir einangrist ekki um of. Auðvitað eru það að- eins þeir, sem getu hafa til einhverra starfa að staðaldri, sem vistaðir eru á þessum heim ilum. Auk þeirra stofnana, sem borgin og Styrktarfélagið eiga. þá starfrækir Rauði krossinn heimili og skóla, sem heitir Grimebakken. Þangað koma yngst 12 ára börn og þau eru minna vangefin en þau, sem vistuð eru á Orkeröd. Þarna eru margs konar vinnustofur, auk þess sem kennd er garðrækt og landbúnaðarstörf. Heimilið á tvö lítil bú, og á hvoru eru vistaðir 8—10 unglingar hjá einum hjónum. Þeu annast bú reksturinn með þeim, bæði kvikfjárrækt. skógarhögg og hvað eina, sem til fellur. Sam- tímis er þeim séð fyrir kenn'slu í bóklegum greinum. Þessir þrír aðilar. borg in. Styrktarfélagið og Rauði krossinn, hafa sameiginlega skrifstofu, sem er i sambandi við rannsóknarstöðina. en þar starfa saman læknar, sálfræð- ingar, félagsráðgjafar og skrif- stofufólk, sem gegnir störfum fyrir allar þær stofnanir, sem ég hef talið. Teljið þér að fullnægt sé þörf fyrir stofnanir til að ann- ast vangefna í borginni og ná- grenni hennar? Nei, þó nokkuð vantar á það. Fyrirhugað er meðal annars að byggja nýtt dagheimili í nýju bæjarhverfí, sem taka á ný börn og einnig er brýn þörf á fleiri vernduðum vinnustöðum. Á stað, sem heitir Vardásen, á að byggja stóra stofnun, sem rúmi 200—250 manns. Þar á að vera aldrað fólk, sem þarfnast hjúkrunar, sérlega erfiðir ung- lingar, og þeir sem ekki geta samlagazt venjulegum umgengn isháttum. Þar eiga þeir að vera, sem mestrar umönnunar þarfn ast, svo að hinar stofnanirn- ar geti verið svo opnar og frjálsar, sem tök eru á. Hvernig ér nú háttað fjár- málahlið allra þessara stofnana? Einkastofnanirnar fá bygg- ingalán frá lífeyrissjóðum eða öðrum peningastofnunum, sem að vísu liggja ekki alltaf á lausu en borgarsjóður ábyrg- ist lánin oðg greiðir síðan af þeim vexti og afborganir, svo að raunverulega verða húsin eign borgarinnar, en félögin sjá um byggingaframkvæmdir og annast rekstur stofnan anna. Árlega eru gerðar rekstrar- áætlanir og daggjöld reiknuð út eftir þeim. Félagsmálaráðu- neytið verður að samþykkja áætlanírnar, en síðan greiða riki og bær sameiginlega allan rekstrarkostnað stofnanna, þannig að ríki greiðir 4/10 hluta.og borgin 6/10 hluta. For eldrar þeirra barna, sem búa heima, fá örorkulífeyri frá rík- inu, en séu börnin á vistheim- ilum, rennur lífeyririnn að sjálfsögðu þangað. í gærkveldi minntust þér á það, frú Sivertsen, að sonur yðar, sautján ára gamall, hefði í sumar unnið í sumarbúðum fyrir vangefin börn, leiðbeint þeim í íþróttum og leikjum og haft eftirlit með þeim. Hver stendur að Þeirn sumarbúð- um? Dagheimilin hafa sumardval- arstaði handa börnunum úti i sveit og það er mjög algengt, að ungt namsfólk, sem er að lesa sálarfræði, félagsfræði og aðrar skyldar greinar. starfi þar með hinu æfða og lærða starfsliði. Börnin dvelja þarna nokkrar vikur og þá geta for eldrarnir tekið sér frí á með an, sem einnig er mjög nauð synlegt. Hve mörg börn eigið þið hjónin? Við eigum þrjú börn. Elzta dóttir okkar, sem er 23 ára, er að mennta sig til þess að rannsaka afbrigðileg böm. Ég held að áhugi hennar á því hafi vaknað við að starfa með vangefnum börnum í sumar- leyfum. Ég verð að játa, að ég öf- unda yður af því, hve ve) ei séð fyrir þörfum vangef ins fólks í Osló. Við eigum svo langt í land hér, bæði með að fá reistar nauðsynlegar stofn anir og líka með að vekja svo skilning opinberra aðila, að beir geri þjónustunni við van- gefnu börnin jafn hátt undir höfði og þjónustu við þau heil brigðu. Það hafa víst flestir þá sögu Framhald á bls 13 V,

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.