Tíminn - 27.07.1965, Qupperneq 14
ÞRIÐJUDAGUR 27. júE 1965
L4
TÍMINN
ANSGAR
Framihald af bls. 9
einungis til að hefja þetta merka
kristniboð, heldur einnig til að
halda því áfram, þrátt fyrir ótelj-
andi hættur og erfiðleika allt til
hinztu stundar, meðan aðrir
komu og fóru.
Sem erkibiskup Hamborg —
Brima kemur hann fram sem
kænn og slyngur kirkjuhöfðingi,
semur við konunga og stórmenni
og kemur sér í mjúkinn hjá þeim
með klókindum og höfðinglegum
gjöfum. Þessum þætti má heldur
ekki gleyma í trúboðsstarfsemi
Ansgars.
Mjög fljótlega eftir lát sitt var
Ansgar gerður að dýrlingi í Norð-
ur-Þýzkalandi. En það var eins og
Danmörk og Norðurlönd gæfu því
naumast gaum. En það var af því,
að eftirmenn Ansgars’í Hamborg
og Brimum héldu ekki merki hans
á lofti á sigurgöngu kristninnar
um Norðurlönd, og þá ekki síður
vegna hinnar langvinnu baráttu
dönsku kirkjunnar gagnvart yfir-
gangi Norður-Þjóðverja, þegar
hún stofnaði erkibiskupssetur í
ÞAKKARÁVÓRP
Öllum þeim, sem heimsóttu mig, færðu mér blóm
og aðrar stórgjafir á afmælinu mínu 16. júlí, þegar és
var 100 ára, vil ég votta mínar alúðarþakkir. Sveitar-
stjórn Aðaldæla fyrir innrammað, skrautritað ávarp,
með heiðursborgaravali. Já, einnig þeim, er fluttu mér
ljóð og kvæði. Öllum þeim fjölda, er sendu mér heilla-
skeyti og kveðjur, og síðast en ekki sízt, öllu starfsliði
sjúkrahússins á Húsavík fyrir alla umönnun við mig
og kærleik, já og höfðinglegar móttökur gesta minna
á afmælisdaginn.
Fyrir allt þetta sendi ég ykkur mínar hjartans þakk-
ir og bið guð að blessa ykkur öll-
í júlí 1965
Friðfinnur Sigurðsson, Rauðuskriðu,
sjúkrahúsinu á Húsavík.
Eg þakka innilega öllum þeim, sem glöddu mig á sjö-
tugsafmæli mínu 17. júlí síðastliðinn.
Eysteinn Björnsson, | jfj,
Guðrúnarstöðum.
Maðurinn mlnn og faðir okkar,
Kristirm Ingvarsson
organlelkari,
andaðist laugardaginn 24. júIf s. I. Jarðarförln ákveðin síðar
Guðrún Sigurðardóttir og daetur.
Hugheilar þakkir scndi ég öllum þeim er með einu eða öðru móti
auðsýndu hluttekningu og vinsemd við fráfall og útför mannsins
míns,
séra Jakobs Kristinssonar
fyrrv. fræðslumálastjóra.
Guð blessl ykkur öll.
Inglbjörg Tryggvadóttir.
Innilegar þakkir færum við öllum sem auðsýndu samúð og hlut-
tekningu við fráfall og útför eiginmanns míns,
Tryggva Jónssonar
afgreiðslumanns, Akureyri.
Sérstaklega þölckum við Kaupfélagi Eyfirðinga, sem heiðraði minn-
ingu hans við útförina og starfsfólki Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri fyrir frábæra umönnun í veikindum hans.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna,
Hallgríma Árnadóttir.
Maðurinn minn,
Ólafur Geirsson
iæknlr
verður jarðsunglnn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 28. þ. m.
kl. 2 e. h. — Óskað er eftir að ekki verði send blóm eða kransar.
Erla Egilson.
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför,
Guðrúnar Styrkársdóttur
Miklubraut 76,
Unnur Sigfúsdóftir, Styrkár Guðjónsson,
systkini og venzlafólk.
Móðir okkar,
Dómhildur Ástríður Gísladóttir
lézt að heimili sínu 23. júlj. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunnl,
föstudaginn 30. júlí kl. 14.00.
María Ragnarsdóttir, Þór Simon Ragnarsson.
Lundi sem frjáls og sjálfstæð kirkja
Norðurlanda. Það er því fyrst á
allra síðustu tímum, að skilning-
ur á framlagi og brautryðjenda-
starfi Ansgars hefur aukizt og
hann metinn að verðleikum.
í sögn Ansgars segir Hrímbjart
ur frá samtali þeirra Ebos bisk
ups í Reims og Ansgars. Því lýkur
með þessum orðum postula Norð-
urlanda og er spámannlegur arn-
súgur í vængjaþyt vona og trúar:
,Eg er þess fullviss, að það
starf sem hér er hafið í nafni
Krists, mun bera ávöxt í Drottni.
Það er mín trú og heilög sann-
færing, þótt syndin sé þar oft
þröskuldur í vegi, muni það aldrei
stöðvað sem nú er byrjað
í Drottni, heldur bera ávöxt
fyrir Guðs náð og heppnast í Herr
ans nafni, allt til enda heims.“
Þannig var trú þessa postula
Norðursins. Og því gafst hann
aldrei upp, þrátt fyrir ofsóknir og
stöðuga baráttu við óteljandi erf
iðleika, þegar biskupsdæmið han's
var nær lagt í auðn og heiðnir og
herskáir víkingar brenndu borg
hans og heimili. Þannig þökkuðu
þeír honum í fyrstu. Það var
skilningur þeirra, sem hann helg-
aði lífsstarf sitt og var reiðubú-
inn að fórna lífi sínu fyrir. Aldrei
kom honum hefnd í hug, þótt sárs-
aukinn nísti hjarta hans, en
hann bað um miskunn og líkn
óvinum óg ofsækjendum til handa.
Hann sigraði ekki með vopna-
valdi heldur í anda og krafti hans,
sem sagði:
„Elskið óvini yðar og biðjið
fyrir þeim, sem rógbera yður og of-
sækja.“
Brennandi í andanum, með
áhyggjum og ákafa bað hann grát
andi fyrir fámennum hópi fylgj-
enda sinna meðal herskárra ræn-
ingja og skilningslausra sjálfbirg
ingslegra höfðingja. ' j j
Mun til sú dögg, sem4ietur hpfi
svalað veikburða gróðri í vorhref-
um ofsókna og misskilnings? Er
ekki vandfundið svæði í heimin-
um öllum þar sem orðið hefur meiri
umbreyting á ekki lengri tíma en
þar sem herskáir víkingar hafa
eignazt það hugarfar, sem engin
styrjöld fylgir. En það er helzta
hrósun, og bjartasta skart í menn
ingu Norðursins, gróið fram af
tárasáði og trúarþreki fyrsta sáð-
mannsins í akri kristninnar „Post-
ula Norðurlanda" Ansgar, sem var
vopn guðanna í baráttunni fyrir
sigri kærleikans.
Reykjavík 9-6 1965.
_____________Árelíus Níelsson.
ERLENT YFIRUT
Framhaíd af 5. síðu
unum öllum, þar sem áformin
um hann geri ráð fyrir sameig-
inlegu eftirliti.
ALLT eru þetta alvarlegar
áminningar um, hve erfitt
verður að að komast að niður
stöðu í Genf (en tvö af fimm
kjamorkuveldum heims, Frakk
land og Kína, eiga þar ekki
fulltrúa) Ekki þarf þc að Jita
á aðvörun Þjóðverja sem al-
gera afneitun. Þeir flýttu sér
að koma á íramfæri yfiriýs-
ingu um, að þeir óskuðu ekki
eftir kjarnorkuvopnum enda
er engan veginn ]jo.st. hver
ætti að láta þau í té (og Þjóð-
verjar eru samkvæmt samningi
skuldbundnir til að tramleiða
ekki kjarnorkuvopn.)
• Þegar þess er gætt, að kosn
ingar í Þýzkalandi eru skarnmt
undan, verður varia sagt, að
Schröder hefði getaö tekið
minna upp í sig en hanr gerði.
Og Rússar kunna einnig að
líta þannig á málið. Að
minnsta kosti hafa þeir ekki
enn sýnt annað eða meira cn
vanabundin viðbrögð við yíir
lýsingu hans. Allt getur þetta
horft nokkuð öðruvísi við að
afstöðnum þýzku kosningunum
en þær fara fram 19. septem-
ber. En hvað sem öBu þessu
líður, er ekki nema gott eitt
um það að segja, að hafizt
sé handa í Genf á ný.
(Þýtt úr The Economist.)
ÍÞRÓTTIR
Framhald af bls. 13
Kristleifur Guðbjörnss., KR 4:05,3
Halldór Jóhannesson, HSÞ 4:10,7
Gestir:
Henning Nielsen IFK 4:03,0
Bjarne Hein, IFK 4:27,9
Nils Olsson, Utby IK 4:28,1
Kringlukast:
Þorsteinn Löve, ÍR 47,28 m.
Þorst. Alfreðsson, UBK 46,81 m.
HalJgrímur Jónsson, ÍBV (Týr)
45,00 m.
Kringlukast:
Ragnheiður Pálsdóttir, HSK 33,08
Fríður Guðmundsdóttir, HVÍ 32,33
Guðbjörg Gestsdóttir, HSK 30,80
Gestur:
Margit Olsson, GKIK 17,68
Sleggjukast:
Þórður Sigurðsson, KR 51,30 m.
Jón Magnússon, ÍR 47,99 m.
Jón Þormóðsson, ÍR 47,15 m.
Langstökk:
Meðvindur.
Björk Ingimundard. UMSB 5,23 m.
Magnea Magnúsdóttir, ÍA 5,00 m
María Hauksdóttir, ÍR 4,95 m
Sólveig Hannam, ÍR 4,63 m
Sigurl. Guðmundsd., HSK 4,61 m
Gestur:
Ann Bramer, GKIK 5,18 m
Þrístökk:
Karl Stefánsson, HSK 14,05 m
Guðm. Jónsson, HSK 13,69 m
Ingólfur Ingólfsson, UBK 12,34 m.
Stangarstökk:
Valbjörn Þorláksson, KR 4,00 m.
Páll Eiríksson, KR 3,75 m.
Kári Guðmundsson, Á. 3,45 m.
SKIPAÚTGCRÐ RIKISINS
M.s. Herðubreið
fer austur um land í hringferð
31. þ.m.
Vörumóttaka á þriðjudag og
miðvikudag til Homafjarðar,
Djúpavogs, Breiðdalsvíkur,
Stöðvarfjarðar, Borgarfjarðar,
Vopnafjarðar, Bakkafjarðar,
Þórshafnar og Kópaskers.
Farseðlar seldir á fimmtudag.
Bifreiðaeigendur athugið
Frá og með laugardeginum 31. júlí 1965 breytist
lokunartími smurstöðva í Reykjavík og nágrenni
þannig:
Laugardaga lokaðar.
Föstudaga opnar til kl. 20.
Aðra daga eins og venjulega.
Smurstöðvarnar í Reykjavík og nágrenni.
skólastjóra
við Tónlistarskóla Kópavogs er laus til umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum am menntun og
fyrri störf sendist skólanefnd Tónlistarskóla Kópa-
vogs í pósthólf 149, Kópavogi, fyrir 15. ágúst n.k.
TÓNLISTARSKÓLI KÓPAVOGS.
IfflMSÍ ö HH fH
Staða
RAFSUÐUTÆKI
ÓDÝR HANDHÆG
1 fasa inntak 20 Amp. Af
köst 120 amp (Sýður vír
3.25 mm. (innbyggt öryggi
fyrir yfirhitun.
Þyngd 18 kíló.
SMYRILL
Laugavegi 170.
Sími 1-2260.
ÞÓRSMÖRK - ÞÓRSMÖRK
Ferðir í Þórsmörk um verzlunarmannahelgina frá
Bifreiðastöð íslands:
Fimmtudag kl. 10.
Föstudag kl. 20.
Laugardag kl. 13.30.
Til baka mánudag.
Farseðlar og upplýsingar á Bifreiðastöð íslands,
sími 18911.
AUSTURLEIÐ HF.