Tíminn - 27.07.1965, Síða 16
I
EJ-Reykjavík, mánudag.
166. fbl. — Þriðjudagur 27. júlí 1965 — 49. árg.
Verða / Kerling-
arfjöllum í kvöld
MB-Reykjavík, mánudag.
Ferðalag fimmmenninganna á
hestum um Öræfin hefur tafizt
nokkuð vegna óvæntra atvika og
munu þeir hafa lagt af stað frá
Tungnafellsjökli í morgun, en
þangaS komu þeir s. 1. fimmtudags
kvöld. Þeir töpuðu þrem hestum
frá sér aðfaranótt föstudagsins og
leituðu þeirra mikið, en hestarnir
komu fram á Brú á Jökuldal á
sunnudagsmorgni.
Þeir félagar fóru úr Hvannalind-
um að Tungnafellsjökli á fimmtu-
dag og var það lengsti áfangi leið-
arinnar. Á_föstudag söknuðu þeir
svo þriggja hesta og leituðu þeirra
mikið, en í gærmorgun komu þeir
að Brú á Jökuldal. í morgun fóru
þeir svo áleiðis í Nauthaga og
áætla að koma þangað í kvöld, og
annað kvöld, þriðjudag, áætía
þeir svo að verða í Kerlingarfjöll-
um. Eins og fyrr hefur verið sagt
frá ætla þeir svo að fara norður
Kjöl og vestur fyrir norðan Lang-
jökul og koma niður að Kalmanns-
tungu, þaðan suður Kaldadal og
niður í Hvalfjörð.
Selfoss kom hingað um helg
ina og flutti m. a. 75 Moskvits-
bifreiðar. Blaðið hafði í dag
samband við Jón Guðjónsson
hjá Bifreiðum og landbúnaðar
vélum og sagði hann, að þetta
væri síðasta sendingin af þess
um árgangi, sem kæmi hingað
til lands, og væri enn sama
verð á þeim. Þá sagði hann, að
nýja árgerðin, sem að útliti til
er frekar ólík eldri árgerðum,
kæmi hingað um miðjan ágúst
mánuð, en áður, eða 2. ágúst
kæmu sýningarbílar.
Myndin ’hér að ofan er tekin
af Selfossi og sjást bílarnir á
dekkinu. — Tímamynd-GE
BAUÐ TELPUM VIN OG ATLOT
- VARÐ 6000 KR. FÁTÆKARI
Skúli Skúlason, rit-
stjóri, 75 ára í dag.
Skúli Skúlason, ritstjóri, er 75
ára í dag. Skúli er fæddur í Odda
á Rangárvöllum 27. júlí 1890.
Hann varð stúdent 1910 og cand.
phil. í Kaupmannahöfn 1911.
Stundaði nám í náttúrufræði og
landafræði. Hann var blaðamaður
við Morgunblaðið og ísafold
Framhald á 3. síðu.
JHM-Reykjavík, mánudag.
Fyrir nokkrum dögum síðan
kom eldri maður að máli við lög-
regluna hér í borg og kvartaði
undan því að frá sér hefði verið
stolið 2.000 krónum. Fimm dög-
um seinna hurfu 4.000 til viðbót-
ar, meðan hann hafði brugðið sér
út. Gamla manninn grunaði tvær
ungar stúlkur um verknaðinn, sem
síðan voru teknar til yfirheyrslu,
þar sem þær játuðu á sig þjófnað-
inn, en bættu við að sá gamli hefði
boðið þeim áfengi og síðan viljað
vera þeim góður.
Stúlkumar, sem eru 14 og 16
ára, höfðu frétt af þessum manni
frá vinkonum sínum, og gengu á
hans fund til að fá lánaða hjá hon-
um peninga til að komast á ball.
Þær heímsóttu manninn, sem
er á sjötugs aldri, og tók hann
þeim vel og bauð þeim upp á vín,
sem þær þáðu með beztu lyst. Nú
vildi karl vera blíður við þær, en
þær sneru sér undan öllu slíku.
Þeim tókst hins vegar að næla sér
í tvö þúsund krónur frá honum,
án.þess að hann tæki eftir því.
Þegar þær fóru, gaf hann þeim
200 krónur, að þeirra eigin sögn.
Karlinn lét þær skrifa nöfn sín
niður, sem síðan reyndust vera
fölsk, en hann mundi hvernig þær
litu út. ,
Fimm dögum seinna vildu litlu
stúlkurnar komast á ball og
ákváðu að heimsækja manninn aft
ur. Þegar þær komu til hans, þá
var hann ekki heima, :svo að þær
skriðu inn um glugga og fundu
4000 krónur, sem þær tóku. Þeg-
ar maðurinn varð var við að pen-
ingarnir voru horfnir, lét hann lög
regluna vita, sem þegar kannað-
ist við lýsinguna á vinkonunum,
enda voru þær kunnugar hjá lög-
reglunni fyrir önnur úiál.
Við yfirheyrslu játuðu þær á
sig verknaðinn, en sögðu um leið
frá því að karlinn hefði boðið
þeim vín og síðan viljað stíga í
væng við þær. Nú var hann kall-
aður fyrir og játaði að hafa bæði
gefið þeim vín og peninga, sem
þýðir það, að nú eru öll þrjú orð-
in brotleg við lögin. Mál stúlkn-
anna verður sent áfram til barna-
verndarnefndar, en gamli maður-
inn verður að svara fyrir dómi,
þar sem það er ekki leyfilegt að
gefa unglingum áfengi.
Fall er fararheill"
EJ-Reykjavík, mánudag.
Fyrsta flugferðin á vegum hins
nýstofnaða félags Húnaflugs var
ekki með öllu áfallalaus, þar sem
fiugvélinni hnekktist á í lendingu
Ari til USA
Ari Bryniolfsson
BÞG-Reykjavík, mánudag.
Hinn þekkti íslenzki vísinda-
maður Ari Brynjólfsson, mag.
scient., sem um árabil hefur
starfað við kjarnorkustöðina í
Hrísey (Risö) í Danmörku er
nú farinn þaðan og tekur við
hærri stöðu í Bandaríkjunum.
Verður hann yfirmaður Army
Natick Laboratories nálægt
Boston, en það er stofnun
Bandaríkjahers, sem sér um
geislun matvæla, segir í skeyti
frá Aðiis, fréttaritara Tímans í
Kaupmannahöfn.
Áður hefur ítarlega verið
skýrt frá starfi Ara hér i Tím-
anum, en þess má sérstaklega
geta, að í fyrra var hann um
tíma í Bandaríkjunum og sá þá
m. a. um smíði stærstu Ko-
Framhald á 3. síðu
á Reykjavíkurfiugvelli, en þó ekki
alvarlega. Sagði Jón fsberg, for-
maður félagsins og aðalhvatamað-
ur að stofnun þess, að félagsmenn
teldu þetta sönnun þess, að „fall
er fararheill“.
Húnaflug hefur enn ekki tekið
upp fast áætlunarflug, að því er
Jón tjáði blaðinu, en mun það lík
lega tekið upp um leið og öll nauð
synleg leyfi hafa fengizt. Á meðan
verður flogið þegar farþegar eru
fyrir hendi. Jón sagði, að Iíúnaflug
hefði þegar farið tvær ferðir. Fyrri
ferðin var á föstudaginn í síðustu
viku, en þá hnekktist vélinni á í
lendingu á Reykjavíkurflugvelli,
en hún skemmdist lítið. Síðara
flugið var sjúkraflug, sem farið
var á laugardaginn. Er flogið
frá flugveliinum að Akri, sem er
í um 12 km fjarlægð frá Blöndu-
ósi.
Flugsýn í Reykjavík sér Húna-
flugi fyrir flugvélakosti, a. m. k.
fyrst um sinn.
Svipuð selveiði í
Strandasýslu
EJ-Reykjavík, fimmtudag.
Guðbrandur Benediktsson, bóndi
á Broddanesi, var hér fyrir sunn
an á dögunum og spjölluðum við
við hann um selveiðina þar um
slóðir. Sagði hann, að selveiðin
hafi verið svipuð og í fyrra, eða
um 100 selir veiðst, þótt veiði hafi
nú byrjað nokkuð seinna en í fyrra
Framhald á 3. síðo
SATTAFUNDUR
EJ-Reykjavík, mánudag.
Klukkan 14 í dag hófst sátta-
fundur í deilu farmanna og vinnu
veitenda og stóð hann enn, þegar
blaðið fór í prentun.
Sáttafundur hefur verið boðað-
ur í vinnudeilunni í Vestmanna-
eyjum klukkan 15 á morgun. Engir
sáttafundir hafa verið boðaðir i
vinnudeilum annarra félaga.
HÉRAÐSMÓT
Snæfellsnes
Héraðsmót Framsóknarmanna
á Snæfellsnesi verður haldið að
Breíðabliki, Miklaholtshreppi
laugardaginn 7. ágúst og hefst
kl. 21. Ræðumenn verða: Pró
fessor Ólafur Jóhannesson,
varaformaður Framsóknar-
flokksins, og Ásgeir Bjarnason,
Ólafur
alÞingismaður. Jón Gunnlaugs
son, skemmtir, óperusöngvarinn
Erlingur Vigfússon syngur ein-
söng. Júnó og Eyþór leika fyr
ir dansi.
V-Skaftafellssýsla
Framsóknarmenn í V-Kkafta-
fells. halda héraðsmót sitt að
Kirkjuhæjarklaustri laugard. 7.
ág. M. 21. Ræðu
maður verður
Björn Fr. Björns
son, aiþm. Ást-
hildur Emils-
dóttir og Björg
Ingad. skemmta
með aðstoð Jóns
Sigurðss. Tóna
bræður leika fyr
Björn ir dansi