Morgunblaðið - 09.11.1982, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 09.11.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1982 13 „Frásögn um margboðað morð“ eftir Marquez komin út Út er komin hjá Iðunni nýjasta skáldsaga sagnaskáldsins frá Kól- umbíu, Gabriel Garcia Marquez sem hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels á þessu hausti. Sagan nefnist Frásögn um margboðað morð. Guðbergur Bergsson þýddi söguna og er þetta þriðja skáld- saga höfundarins sem Guðbergur hefur þýtt á íslensku. Hinar voru Hundrað ára einsemd og Liðsfor- ingjanum berst aldrei bréf. Frá- sögn um margboðað morð kom út á frummáli í fyrra og hefur þegar verið þýdd á fjölda tungumála. Efni sögunnar er kynnt svo á kápubaki: „Sagan greinir frá at- burðum í litlu þorpi á strönd Karabíska hafsins. Allir þorpsbú- ar vita fyrirfram að Santíago Nas- ar á að deyja, allir nema hann sjálfur. Brúðkaup var haldið í þorpinu, en brúðkaupsnóttina sjálfa var brúðinni skilað heim í föðurgarð af því að hún reyndist ekki hrein mey. Heiður fjölskyld- unnar hafði verið flekkaður og bræður brúðarinnar neyða hana til að skýra frá nafni hins seka. Tveim tímum síðar er Santíago Nasar dauður. Hvers vegna reyndi enginn að hindra þetta morð — því fremur sem morðingjarnir báðu nánast um að einhver stöðv- aði þá?“ Gabriel Garcia Marquez er fæddur árið 1928. í seinni tíð hefur hann búið í útlegð í Mexíkó og París. Hann aflaði sér heimsfrægðar með skáldsögunni Hundrað ára einsemd og síðan hefur frægð hans farið vaxandi, uns sænska akademian ákvað í síðasta mánuði að velja hann til að hljóta bók- menntaverðlaun Nóbels í ár. F'rá- sögn um margboðað morð er 140 blaðsíður að stærð. Oddi prentaði. Matargerð sem list á fundi Lífs og lands LANDSSAMTÖKIN Líf og land taka upp á þeirri nýbreytni t starfi sínu að halda reglulega félagsfundi í byrjun hvers mánaðar. Fyrsti félags- fundur samtaka af þessum toga verður í Skólabæ við Suðurgötu 26 10. nóvember og hefst klukkan 20.30. Gestur fundarins verður Sig- mar B. Hauksson og flytur hann er- indi um matargerð sem list. Geysiskvartettinn á sviðinu í Esbjerg Norræn söngkeppni kvartetta: Geyisiskvartettinn frá Akureyri í Akureyri, 3. nóvember. Geysiskvartettinn frá Akureyri tók þátt í norrænni söngkeppni kvartetta, sem haldin var í Esbjerg 9. október. Þar kepptu 9 kvartettar í tveimur riðlum. Geysiskvartettinn keppti í A-riðli ásamt 6 öðrum og hlaut 3. verðlaun. Karlakórasamböndin á Norður- löndum stóðu fyrir keppninni, og fór Geysiskvartettinn í keppnina að ósk Sambands íslenskra karla- kóra. í hinum löndunum fór fram forval, t.a.m. völdu Finnar þrjá kvartetta til keppninnar úr rúm- lega þrjátíu. Keppnin hófst að morgni með því að hver kvartett söng lag, sem ákveðið hafði verið fyrirfram af dómnefndinni, en síðdegis sungu þriðja sæti kvartettarnir tvö lög hver. Eftir það kvað dómnefndin, sem skipuð var tveimur organistum og einum tónlistarkennara frá Kaupmanna- höfn, upp úrskurð sinn, og verð- laun voru afhent. Finnskur kvart- ett hlaut fyrstu verðlaun, sænskur önnur verðlaun og Geysiskvartett- inn þriðju. I Geysiskvartettinum eru: Aðal- steinn Jónsson, 1. tenór, Guð- mundur Þorsteinsson, 2. tenór, sr. Birgir Snæbjörnsson, 1. bassi, og Sigurður Svanbergsson, 2. bassi. Þjálfari kvartettsins og undirleik- ari er Jakob Tryggvason, kirkju- organisti. Sv.P. Reyðarfjörður: 14 bátar að síldveiðum utan við bryggju- sporðinn Keydarfirdi, 8. nóvember. SÍLDARSÖLTUN lauk hér fyrir viku. HeildarsöKun var 23.067 tunn- ur og er þetta mesta magn, sem salt- að hefur verið hér. Fjórar söltunar- stöðvar eru hér á Reyðarfirði og sölt- un kom þannig út, að GSR saltaði í 8.550 tunnur, Verktakar 8.104 tunn- ur, Kópur sf. 6.140 tunnur og Hraun 273 tunnur. Söltunarstöðin Hraun er hér ut- arlega í firðinum og er smá í snið- um, en sýnir dugnað bóndans, sem þar býr. I gær var hér hið bezta veður, logn og spegilsléttur sjór. Það vakti athygli okkar hér á Reyðarfirði í dag, að sjá eina 14 síldveiðibáta, sem voru að veiðum við bryggjusporðinn. Fengu bát- arnir allt upp í 100 tonn sem fer í frystingu. — Gréta. Vestmannaeyjar: Brotizt inn í rafeindafyrir- tækið Óðinn Yestmannacyjum, 8. nóvembvr. ADFARANOTT sunnudags var brot- izt inn í verzlun rafeindafyrir- tækisins Óðins. Þjófarnir brutu rúðu til að komast inn og höfðu á brott með sér hljómflutningstæki, magn- ara og fleiri tæki, auk þess eitthvað af peningum. Talið er að verðmæti þýfisins skipti nokkrum tugum þúsunda króna. Lögreglan vinnur að rann- sókn málsins og hafði hún fundið magnara á víðavangi, skammt frá innbrotsstaðnum. — hki VERÐLÆKKUN Honda bifreið SST Vegna hagkvæmra samninga viö verk- smiöju getum viö nú boöiö eftirfarandi bif- reiöir á ótrúlegu veröi: CIVIC STATION CIVIC SEDAN 4D. ACCORD 2D. HATCHBACK ACCORD SEDAN 4D. Beinskiptur STD kr. 179.500 (var 204.000) Beinskiptur EX kr. 187.000 (var 210.000) Beinskiptur EX kr. 192.500 (var 220.000) Sjálfskiptur EX kr. 193.000 (var 217.000) Beinskiptur EXS kr. 199.000 (var 227.500) H0NDA A ISLANDI VATNAGÖRÐUM 24 S. 28772.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.