Morgunblaðið - 09.11.1982, Blaðsíða 44
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1982
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1982
25
Valsjnenn stungu
IR-inga af
Valsarar lögöu ÍR-inga örugg-
lega aö velli í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í Hagaskólahúsinu
á laugardag, skoruöu 99 stig
gegn 73 og vantaöi því aöeins eitt
stig í 100 stiga múrinn, en í hálf-
leik var staöan 48-37 fyrir Val. ÍR-
ingar töpuðu sjötta leik sínum í
deildinni og þurfa aö fara aö
heröa róöurinn ef þeir ætla aö
vera áfram í deildinni. Það sem
fyrst og fremst háöi ÍR-ingum á
laugardag var skortur á áræöni í
sókninni og hræösla viö að skjóta
á Valskörfuna, því Valur var ekki
þaö yfirburöaliö sem stigin ann-
ars gefa til kynna, fengu mikiö af
auöveldum færum, sem erfitt er
aö klúöra.
ÍR-ingar höföu undirtökin fyrstu
mínútur leiksins og voru óheppnir
ef eitthvaö var að skora ekki enn
betur, fengu mörg færi sem nýttust
ekki og skemmtilegum fléttum brá
fyrir. Um miöjan fyrri hálfleik sigla
Valsarar hins vegar fram úr og ná
10 stiga mun þegar 12 mínútur
voru af leik, en sá munur hélst síð-
an allt til loka fyrri hálfleiks.
Og ÍR-ingar uröu fyrir þvf áfalli
aö tveir þeirra beztu menn, Krist-
inn Jörundsson og Hreinn Þor-
kelsson uröu fyrir skakkaföllum í
fyrri hálfleik og léku því ekki meö í
þeim síöari, en hann var vart haf-
inn þegar Valsarar bókstaflega
stungu af. Eftir fimm mínútur í
seinni hálfleik var staöan oröin
62-43 fyrir Val, skömmu seinna
Barist um boltann í leik ÍR og Vals. Hafsteinn Hafsteinsson fellur í
gólfið en sendir knöttinn frá sér um leiö. Benedikt Ingþórsson og
Kolbeinn Kristinsson ÍR fylgjast meö. Morgunblaóió/Kristján Örn Klíasson.
ÍR — Valur
73:99
77-45, og um miöjan hálfleikinn
var staðan 81-52 fyrir Val. Upp frá
því var hins vegar jafnfræöi meö
liöunum og í lokin munaöi 26 stig-
um.
I heild var leikurinn ekki sérlega
fyrir augaö, mikið um klaufalegar
villur og oft ráðleysi í sóknarleik
beggja. Aö vísu áttu Valsarar mjög
góöa spretti í seinni hálfleiknum.
Villufjöldi beggja liða var gífurlegur
og vítaskotin því mörg, en Valsarar
misnotuöu a.m.k. 15 jæirra og ÍR-
ingar 13. t
Stig ÍR:
Hjörtur Oddsson 8, Kolbeinn
Kristinsson 8, Björn Steffensen 3,
Kristján Oddsson 9, Jón Jörunds-
son 8, Benedikt Ingþórsson 10,
Ragnar Torfason 7, Kristinn Jör-
undsson 6, Hreinn Þorkelsson 10,
Gylfi Þorkelsson 4.
Stig Vals:
Tim Dwyer 25, Jón Steingríms-
son 20, Ríkharður Hrafnkelsson
18, Torfi Magnússon 10, Kristján
Ágústsson 11, Siguröur Hjörleifs-
son 2, Björn Zöega 4, Tómas Holt-
on 6, Leifur Gústafsson 3.
Brazy færði Fram sigurinn
FRAMARAR sigruðu Njarövíkinga
í „Ljónagryfjunni" sl. laugardag
með 95 stigum gegn 92 eftir
framlengdan leik, en að venju-
legum leiktíma loknum var stað-
an 85:85.
Óhætt er aö segja aö þetta hafi
veriö leikur hinna stóru sviptinga,
því að þegar rúmar 5 mínútur
voru tíl loka fyrri hálfleiks voru
Framarar meö 26 stiga forskot,
54:28, en Njarðvíkingum tókst aö
minnka þann mun niöur í 13 stig
fyrir lok síöari hálfleiksins og síö-
an jafna á síöustu sekúndu leiks-
ins.
I upphafi leiksins virtist gæta
nokkurs taugaóstyrks hjá báöum
liðunum, mikiö um ónákvæmar
sendingar og fleiri mistök. Valur
Ingimundarson skoraöi fyrstu körf-
una fyrir Njarðvík á fyrstu sekúnd-
um leiksins en Framarar jöfnuöu
strax. Var síöan jafnt á flestum töl-
um t.d. eftir 3 mínútur, 8:8, og eftir
rúmar 7 mínútur, 18:18, en þá
hljóp allt í baklás hjá Njarðvíking-
um, skoruðu aö vísu eina körfu á 9.
mínútu en síöan skora þeir ekki
körfu næstu 5 mínútur. Var þetta
ömurlegur kafli hjá Njarövíkingum,
mistök á mistök ofan og virtist
sama hversu góö færi þeir sköp-
uöu sér, ofan í körfuna vildi knött-
urinn ekki.
Á sama tíma voru Framarar iön-
ir viö að skora, og skoruöu hvorki
meira né minna en 25 stig á þess-
um 5 mínútum. Þaö var svo loks á
15. mínútu að Alex tókst aö skora
fyrir Njarðvík og skoraði síöan
hverja körfuna á fætur annarri og
tók aö berjast eins og Ijón bæói i
vörn og sókn. En Frömurum tókst
samt að bæta aðeins við muninn
og er tæpar 16 mínútur voru liönar
af leiknum var staðan 52:26 og
síðan nokkrum sekúndum síðar
28—54. En þá tóku Njarövíkingar
viö sér og skoruðu næstu 13 stig
án þess að Frömurum tækist aö
svara fyrir sig. Má segja aö þrennt
Njarðvík
— Fram
92—95
hafi líklega snúiö leiknum svona al-
gerlega viö. Njarövíkingar skiptu
Astþór Ingasyni inn á og gjör-
breyttist allur leikur þeirra viö þaö,
enda átti Ástþór stórleik. Val
Brazy, besti maður Fram fór út af,
þegar 6 mínútur voru til loka hálf-
leiksins, og eins og áður getur, tók
Alex Gilbert aö berjast eins og Ijón
og virtist meö því rífa félaga sína
upp úr ládeyöunni.
Framarar komust ekki meira á
blað það sem eftir var hálfleiksins
og uröu lokatölur hans því, 54:41,
Fram í vil. Njarövíkingar hófu síöari
hálfleikinn af miklum krafti og eftir
tæpar 2 mínútur var munurinn orö-
inn 7 stig, eöa 56:49. En þá tóku
Framarar vel við sér og juku mun-
inn aftur í 11 stig og næstu mínút-
ur ríkti algert jafnræöi meö liðun-
um, 7 til 11 stiga munur. Um miðj-
an hálfleikinn fóru Njarðvíkingar
að smá saxa á forskot Framara og
þegar tæpar þrjár mínútur voru
eftir var munurinn oröinn aöeins 2
stig, eöa 85:83, og meö einstökum
klaufaskap beggja liða hélst þessi
munur óbreyttur þar til aðeins 2
sekúndur voru eftir af leiknum.
Þá fengu Njarðvíkingar innkast
og Gunnar Þorvaröarson kastaöi
beint í innkastinu á Alex sem stóð
undir körfunni og skoraði á síðustu
sekúndu leiksins. Lokatölurnar
uröu því 85:85 aö venjulegum leik-
tíma loknum, og leiknum því fram-
lengt í 5 mínútur. Reiknuöu nú
flestir meö öruggum sigri Njarövík-
inga, enda höfðu þeir veriö hiö
ríkjandi lið mest allan síöari hálf-
leikinn, en Framarar og dómararn-
ir voru bara á ööru máli. Njarövík-
ingar tóku strax forystuna í fram-
lengingunni, 87:85, en Framarar
jöfnuöu jafnóöum. Þegar staöan
var 91:91 voru Njarðvíkingar í
sókn og gáfu knöttinn á Alex undir
körfu. Þrír Framarar hreinlega
böröu manninn niöur og öllum til
mikillar furöu dæmdu hinir lélegu
dómarar leiksins villu á Njarövík.
Val Brazy var fljótur aö þakka fyrir
sig, óö upp og skoraði.
í þeim darraöardansi sem eftir
var tókst Frömurum aö bæta viö
einu stigi úr vítakasti, sem þeir
fengu sem lokagjöf dómaranna.
Eftir að missa niöur 26 stiga for-
skot var Fram langt frá því aö eiga
þennan sigur skiliö, og eftir aö
Njarðvíkingum haföi tekist aö ná
upp því forskoti, getur enginn skil-
iö hvernig þeim tókst aö glopra
niöur sigrinum j framlengingunni,
aö vísu voru dómararnir furöulegir,
en þaö er samt ekki næg skýring.
Stoö og stytta, og langbesti maður
Fram-liösins í þessum leik var Val
Brazy. Hann skoraöi 32 stig, tók
ótal fráköst og byggöi upp flestar
sóknir liðsins. Án hans væri
Fram-liöið hvorki fugl né fiskur.
Bestir af íslendingum í Fram-liðinu
voru þeir Símon og Þorvaldur,
einkum þó Símon, sem auk þess
að skora 21 stig hirti ótal fráköst.
Símon þyrfti þó aö gæta sín á hvaö
hann dvelur lengi undir körfunni ef
hann kæmist í kast viö alvörudóm-
ara. í Njarðvíkur-liðinu var Alex
Gilbert langbestur, þaö er aö segja
eftir aö hann komst í gang, en þaö
tók 13 mínútur.
Hittnin er þó hans baggi, og
sem dæmi má nefna aö hann tók
14 vítaskot án þess aö hitta, en
skoraöi úr 15. Væri ekki ólíklegt aö
ætla aö maðurinn væri meö sjón-
skekkju, því aö stundum snerti
knötturinn ekki körfuhringinn, i
vítaköstunum. Hann skorar ekki
nema aö hann sé fyrir ofan körf-
una, en þá er hann líka góöur. Af
íslendingum var Ástþór Ingason
langbesti maöur liðsins. Það voru
þó liönar um 13 mínútur af leiknum
þegar hann var settur inn á, en
þaö var í fullu samræmi viö aörar
furöulegar innáskiptingar Njarö-
víkurliösins. T.d. fékk Ingimar, sem
á stórleik á móti ÍR aöeins aö vera
inn á í örfáar mínútur. Njarðvíkinga
vantaöi aö vísu hinn frábæra liös-
stjóra sinn, Inga Gunnarsson, og
gæti þaö hafa munað öllu. Þá var
Gunnar Þorvaröarson mjög góöur
að vanda. Valur Ingimundarson
byrjaöi mjög vel, skoraöi fyrstu 8
stig liösins, en lét skapið hlaupa
með sig í gönur og varö aö fara út
af meö 5 villur þegar 7 mínútur
voru eftir aö leiknum. 5. villan var
algerlega óþörf, olnbogapústur viö
töku vítakasts. Jafn leikreyndur
maöur og Valur á ekki aö láta slíkt
henda sig. Dómarar leiksins voru
þeir Þráinn Skúlason og Kristinn
Albertsson. Sá ömurlegasti dúett
sem undirritaöur hefur séö í ís-
lenskum körfuknattleik. Ef þeim
varö á aö flauta á brot var þaö
yfirleitt sá seki sem hagnaöist á
brotinu, því andstæöingurinn var
þá í dauðafæri undir körfu.
Stigin Njarðvík: Alex 42
Valur 20
Gunnar 12
Árni 7
Ástþór 6
Eyjólfur 3
Sturla. 2
Fram: Brazy 32
Símon 21
Þorvaldur 17
Viðar 11
Jóhann 7
Jóhannes 5
Guðmundur 2
Stjörnur Njarðvík: Ástþór Ingason ★ ★★
Gunnar ★ ★
Valur ★
Árni ★
Fram: Símon ★ ★★
Þorvaldur ★ ★
Viöar ★
Jóhann ★
íslenska liðið tapaði
með tveimur fyrir Dönum
- en misnotaði fjögur vítaköst
ÍSLENSKA unglingalandslióíó
mætti því danska í NM-mótinu í
handknattleik á laugardag.
Sennilega hefur leikur íslenska
liösins gegn Dönum verið skásti
leikur liðsins í mótinu. Danir sigr-
uöu naumlega 21—19, eftir að
staðan í hálfleik hafði veriö
13—11. Alls fóru fjögur vítaköst {
súginn gegn Dönum og flest á
slæmum augnablikum í leiknum.
Og það munar um minna í svo
jöfnum leik. En þaö voru ekki
bara vítaköstin sem fóru forgörð-
um, fullt af upplögöum mark-
tækifærum mistókst og því fór
sem fór.
Þaó var jafnræöi meö liöunum
framan af leiknum. Góö barátta
var í íslenska iiöinu og kraftur þrátt
fyrir aö leikiö haföi veriö viö Finna
um morguninn. Danir höföu þó
oftar frumkvæöiö í leiknum og léku
mun betri handknattleik. I síöari
hálfleiknum léku íslensku piltarnir
oft mjög vel en þó var of mikiö af
sveiflum í leik þeirra og færin nýtt-
ust ekki eins og áöur sagöi. Sér í
lagi vantaöi meiri rósemi og yfir-
vegun þegar staöan var jöfn,
19—19. Danir voru sterkari á loka-
sprettinum og sigruöu.
Markvarsla íslands og varnar-
leikur var þokkalegur t leiknum og
oft sáust góöar leikfléttur sem gáfu
vítaköst og góö færi. Ef þau hefðu
nýst heföi sigurinn hafnaö hjá ís-
lenska liöinu en eins og svo oft
áöur brást þaö. Bestu menn ís-
lenska liösins í þessum leik voru
Þorgils Óttar fyrirliöi, Guömundur
Albertsson og Gísli Felix í markinu.
Mörk Islands í leiknum skoruöu
Þorgils 6, Guömundur 6, Óskar 3,
Hermann 2, Karl og Jakob 1 mark
hvor.
— ÞR.
Mörk Islands
ÞORGILS Óttar Mathiesen, FH,
Óskar Þorsteinsson, Víkingi, og
Hermann Björnsson, Fram, voru
markahæstir íslendinganna á
Norðurlandamótinu, skoruðu 14
mörk hver. Guðmundur Alberts-
son KR skoraöi 13, Willum Þórs-
son, KR, 10, Karl Þráinsson, Vík-
ingi, 6, Jakob Sigurösson og Júlí-
us Jónasson (báöir í Val) geröu 3
mörk hvor, Geir Sveinsson, Val,
gerði 2 og Jóhannes Benjamíns-
son, Gróttu, skoraði 1.
MARKAHÆSTIR á Norðurlanda-
mótinu urðu þessir: Mikael
Kællman, Finnlandi, 22 mörk, Jan
Rundhovde, Noregi, 17 mörk,
Lars Ahlert, Svíþjóð, 17 mörk,
Jonas Sandberg, Svíþjóð, 16
mörk og Svein Fossheim, Noregi,
16 mörk.
• Guðmundur Albertsson lengst til hægri skoraöi sex mörk á móti Dönum og lék vel. Hér má sjá hvar hann hefur sent
þrumuskot aö markinu framhjá vörninni. Liósm. köe.
• Jakob Sigurðsson reynir þarna gegnumbrot en er gripinn á lofti og
Stöðvaður. Ljósm. KÖE.
Jafnt hjá Finnum
og íslendingum
ÍSLENDINGAR og Finnar geröu
jafntefli, 19—19, á laugardags-
morguninn í heldur tilþrifalitlum
leik, sem var allan tímann mjög
jafn. íslendingarnir voru tveimur
mörkum yfir stuttu fyrir leikslok
en misstu það niður í jafntefli.
Staðan í leikhléi var 10—9 fyrir
Finna.
islensku strákarnir geröu sig
seka um nokkuó mikil mistök í
leiknum og misnotuöu t.d. þrjú
vítaköst. Varnarleikur þeirra var
góöur á köflum en ekki verulega
sannfærandi sé litiö á heildina.
Island komst í fyrsta skipti yfir á
25. mín., 7—6, er Þorgils Óttar
skoraði en þá höföu íslensku
strákarnir gert þrjú mörk í röö. En
Finnar sigldu aftur fram úr og voru
yfir í hálfleik.
Óskar skoraöi fyrsta mark síðari
hálfleiksins eftir fimm mínútur.
Síöan skiptust liöin á aö skora og
var jafnt á flestum tölum til loka
leiksins. Finnar komust í 11 — 10
en síðan voru íslendingarnir alltaf
á undan að skora og voru komnir
tvö mörk yfir, 17—15, 10 min. fyrir
leikslok. En þaö reyndist ekki nóg
þegar upp var staöið og jafntefli
varö staöreynd, Mikael Kællmann,
þesti maöur Finnska liösins, sem
jafnaði aöeins 16 sek. fyrir lok
leiksins. islendingar héldu boltan-
um síöustu sekúndurnar en náöu
ekki að skora.
Haraldur Ragnarsson stóö sig
vel í íslenska markinu og var hann
inni á mestallan leikinn. Af útispil-
urunum voru þeir Þorgils Óttar
Mathiesen, Óskar Þorsteinsson,
Hermann Björnsson og Guömund-
ur Albertsson atkvæðamestir í
sókninni og Geir Sveinsson sterk-
ur í varnarleiknum. Annars var liö-
iö ekki nógu sannfærandi.
Dönsku dómararnir voru svo
sannarlega óragir að dæma ruðn-
ing á íslensku strákana í leiknum,
og þá sérstaklega í fyrri hálfleik,
oft þegar engin ástæöa virtist til
þess og jafnvel brot á Finna eðli-
legri.
Mörkin: ísland: Þorgils Óttar
Mathiesen 6, Óskar Þorsteinsson
5 (1 v.), Guðmundur Albertsson 4,
Hermann Björnsson 2 (1 v.), Geir
Sveinsson 1 og Willum Þórsson 1
(v). Finnland: Mikael Kællmann 8,
Thomas Nyberg 3, Markus Lind-
berg 3 (2 v.), Thomas Lindahl 2,
Per Friman 2, Ben Söderlund 1 og
Thomas Procope 1.
— SH.
Þorgils Óttar:
„Danir vel
að sigrinum
komnir“
„Úthaldið sprakk bara hjá
okkur í seinni hálfleiknum," sagði
Þorgils Óttar Mathiesen, fyrirliöi
íslenska landsliösins, eftir leikinn
við Svía á sunnudaginn. Þorgils
sagði að menn hefðu reiknað
með að ná þriðja sæti á mótinu
og þaö hefði verið raunhæfur
möguleiki er þeir fóru að sjá hin
liðin.
„Þetta var jafnt mót og mjög
skemmtilegt," sagði Þorgils. „Liöin
hafa staöiö hvert í ööru en Danirnir
eiga sigurinn skilinn. Annars sóttu
Svíar mjög í sig veöriö seinni hlut-
ann og ég er ekki viss um aö Danir
ynnu þá aftur ef liöin léku núna. En
Danirnir eru vel aö sigrinum komn-
ir, þeir eru meö skemmtilegt liö.“
— SH.
• Þorgils Óttar stóð sig vel á Norðurlandamótinu
og sýndi framá að hann er í fremstu röö sem línu-
leikmaður.
Svíar stungu íslendingana
af í síðari hálfleiknum
ÍSLENDINGAR sprungu illilega á
limminu í leiknum viö sænsku
strákana á sunnudaginn. Leikur-
inn haföi verið nokkuð jafn allan
fyrri hálfleikinn en fljótlega í
þeim síðari varð sýnt hvert
stefndi. Er Svíarnir gerðu þrjú
mörk í röð og breyttu stöðunni úr
17—16 í 21—17 voru menn farnir
aö velta því fyrir sér hvar íslenska
vörnin væri. Svíarnir löbbuöu í
gegnum hana eins og ekkert væri
og í sóknarleiknum voru íslend-
ingarnir mjög máttlitlir. Þetta
tímabil var þó ekki það versta
heldur fylgdi annað verra í kjöl-
farið. Eftir að Willum og Óskar
höfðu gert tvö mörk í röð fyrir
ísland hljóp vægast sagt allt í
baklás hjá strákunum, og Svíar
gerðu sex mörk í röö. Staöan var
þá oröin 27—20 og aöeins örfáar
mínútur eftir. Leikurinn endaði
svo meö sigri Svía, 30—22. Stað-
an í leikhléi var 12—14 þeim í
hag.
i upphafi var jafnt á öllum tölum
upp í 6—6 en síðan voru Svíarnir
yfir mest allan tímann. Munaöi þó
aldrei meira en tveimur mörkum í
fyrri hálfleiknum og í upphafi þess
síðari náöu íslendingarnir aö jafna,
14—14. Svíarnir leyföu þeim þó
ekki að komast yfir en munurinn
hélst lítill fyrstu 15 mínútur hálf-
leiksins. En þá hristu Svíarnir ís-
lensku strákana gersamlega af sér
í köflunum slæmu sem lýst var
Gísli Felix Bjarnason þyrjaöi frá-
bærlega vel í markinu og varöi
hvaö eftir annað á upphafsmínút-
um leiksins. Siðan dofnaöi hann
og í lokin kom Haraldur Ragnars-
son í markiö og varöi einnig vel. En
þaö var bara ekki nóg, bæöi varn-
ar- og sóknarleikur liðsins var
langt frá því aö vera nógu góöur
og allan aga vantaði í leik liösins.
Er greinilegt aö strákana vantar
tilfinnanlega leikreynslu og háöi
þaö þeim mjög. Willum Þórsson
kom heldur betur á óvart og skor-
aöi níu mörk í leiknum, þar af þrjú
úr vítaköstum, en þaö virtist því
miður ekki sterkasta hlið Islend-
inganna í keppninni aö nýta víta-
köstin fyrr en Willum fór aö taka
þau.
Mörkin skiptust þannig: ísland:
Willum Þórsson 9 (3v), Óskar
Þorsteinsson 4, Karl Þráinsson 4,
Júlíus Jónasson 3, Guömundur Al-
bertsson 2. Svíþjóö: Lars Ahlert 8,
Jonas Sandþerg 5, Ralf Jansson 4,
Ulf Mansson 4(3v), Kent Anders-
son 4, og Stefan Olsson 1. SH.
Lokastaðan
á NM-
unglinga
Lokastaðan á mótinu varð
þessi:
Danmörk 4 4 0 0 826—71 8
Svíþjóð 4 3 0 1 92—85 6
ísland 4 1 1 2 80—88 3
Noregur 4 1 0 3 80—81 2
Finnland 4 0 1 3 63—82 1
Úrslit leikja
uröu þessi
á mótinu:
ísland — Noregur 20—18
Danmörk — Svíþjóö 22—17
ísland — Finnland 19—19
Danmörk — Noregur 17—15
Danmörk — ísland 21—19
Svíþjóð — Finnland 19—16
Svíþjóð — Noregur 26—25
Danmörk — Finnland 22—20
Svíþjóð — ísland 30—22
Noregur — Finnland 22—18
Fengu flesta
brottrekstra,
alls 32 mín.
ÍSLENSKU piltarnir urðu að
sætta sig viö það að láta
reka sig oftast útaf á Norður-
landamótinu í handknattleik.
í alls 32 minútur voru þeir
utan vallar. Norska liðið fékk
fæstar brottvísanir eöa 18
mínútur alls. En skiptingin á
milli líðanna varö þessi:
Noregur 18 mín.
Finnland 26 min.
Svíþjóð 26 min.
ísland 32 min.
Þeir þóttu
vera bestir
AÐ LOKNU Noröurlandamóti
unglinga i handknattleik var
öllum liðunum boðið í veg-
legt hóf sem Handknatt-
leikssamband íslands hélt
að Hótel Esju. í hófi þessu
voru tilkynnt úrslit í valí á
besta varnarleikmanni
mótsins, besta sóknarleik-
manni og besta markveröi
mótsins. Það voru þrir A-
landsliðsþjálfarar sem voru í
dómnefndinni. Hilmar
Björnsson frá íslandi og
þjálfari Svía og Norömanna.
Tveir íslenskir leikmenn
komu sterklega til álita. Þeir
Þorgils Óttar sem sóknar-
leikmaður og Gísli Felix sem
markvöröur. En hvorugur
þeirra hlaut þó verölaun.
Þeir sem útnefndir voru:
Besti markvörðurinn:
Espen Karlsson, Noregi.
Besti sóknarmaöurínn:
Michel Fenger, Danmörku.
Besti varnarmaðurinn:
Lars Ahlert, Svíþjóð.
Breiöablik
AÐALFUNDUR knattspyrnu-
deildar Breiöabliks veröur
haldinn í félagsheimili Kópa-
vogs og hefst kl. 13.00 laug-
ardaginn 13. nóvember
næstkomandi.
Stuttur stans
Hollendinganna
Hollendingarnir tveir s«>.n
Birmingham festi kaup á í
fyrra fóru báðir frá félaginu á
frjálsum sölum nú i vikunni.
Bud Brocken fór til Groning-
en og Tony van Mierlo fór til
Willem II, síns gamla félags.