Morgunblaðið - 09.11.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1982
29
byr
málamiðlunar milli Friðriks og
Campomanes.
Campomanes sækir stuðning
sinn að langmestu til þróunarríkja
þá fyrst og fremst Asíu og Ame-
ríku. Þó munu nokkur ríki Ame-
ríku styðja Friðrik að því er næst
verður komizt. Það eru Chile, Perú
og Equador, Paraguay og að lík-
indum Venezuela.
Hvað gera Sovétmenn,
Arabar og ríki svörtu Afríku?
Sovétmenn hafa enn ekki gefið
upp hvern þeir munu styðja.
Flestir hallast að því að þeir muni
kjósa Kazic í 1. umferð. Þó er það
engan veginn ljóst, og menn binda
jafnvel vonir við að þeir muni
kjósa Friðrik þegar í fyrstu um-
ferð. Austurblokkin mun vera
klofin í afstöðu sinni og að
minnsta kosti eitt ríki A-Evrópu
hefur lýst í viðræðum við íslenzku
fulltrúana stuðningi við framboð
Friðriks.
Talið er að Kazic sæki einkum
stuðning til Arabaríkja og svörtu
Afríku, enda hafa lengi verið náin
tengsl þar á milli og Júgóslavar
stutt vel við bakið á þróun skák-
listarinnar í þessum ríkjum. Frið-
rik átti í gær fund með fulltrúum
svörtu Afríku og var rætt um
hugsanlegan stuðning við framboð
Friðriks — og binda menn vonir,
við, að þessi ríki styðji Friðrik í 2.
umferð. Meðal Araba mun eitt ríki
hafa lýst stuðningi við Friðrik —
Egyptaland — í Afríku einnig eitt
ríki, Botswana.
Bretar hafa mjög beitt sér í
framboðsmálum Friðriks Ólafs-
sonar og hafa tengsl þeirra við
brezku samveldislöndin komið að
góðum notum. Þó mun Ástralía
standa með Campomanes í kosn-
ingaslagnum og vegur landfræði-
leg lega Ástralíu og Filippseyja
þar þyngst á metunum.
Júgóslavar beittu því mjög fyrir
helgina að framboð Friðriks væri
vonlaust — framboð hans hefði
fengið lítinn hljómgrunn, en þessi
rödd er nú þögnuð. Svo skjótt hafa
veður skipazt í lofti.
Friðrik Ólafsson hefur í vaxandi
mæli sézt á skákstað, rætt við full-
trúa hinna ýmsu sambanda. Fólk
hefur í vaxandi mæli komið á
skrifstofu hans til þess að ræða
aðskiljanleg málefni.
En þó Friðrik hafi verulega sótt
á allra síðustu daga, eru kosn-
ingarnar mjög tvísýnar. Loft er
lævi blandið á fundum hinna
ýmsu nefnda. Um helgina kom"til
umræðu hvar halda skuli næsta
Ólympíumót, nú þegar Puerto
Rico hefur dregið sig í hlé. Líbýu-
menn voru næstir í röðinni, en
þeir hafa líka dregið sig í hlé.
Treysta sér ekki til að halda mótið
1984.
Ólympíumótið 1984 í Indó-
ncsíu — 1986 á íslandi
Indónesar sækja nú fast að fá
Ólympíumótið 1984 og verður það
að líkindum ofan á. Á fundi stóð
Campomanes upp og krafði Frið-
rik svara um það, hvort íslend-
ingar hygðust leggja stein í götu
Indónesa — hvort þeir hygðust
halda mótið 1984, og var greinilegt
að hann var að reyna að reka fleyg
milli íslendinga og Indónesa.
Friðrik kailaði þá á Gunnar
Gunnarsson og bað hann að gefa
svör við þessu. Gunnar sagði að
íslendingar væru ekki í stakk bún-
ir til að svara þessu — sagði að
Skáksamband Islands þyrfti 4
mánaða frest til að gefa svar. En
hann lýsti því jafnframt yfir, að
Indónesar hefðu forgang.
„Það er ýmsum annmörkum háð
að halda mótið á íslandi 1984 og
munar mestu hve naumur tími er
til stefnu. Hins vegar erum við í
stakk búnir að halda mótið 1986
og viljum halda mótið þá. Það eru
allar líkur á að svo verði — Islandi
hefur verið stillt upp sem valkosti
1,“ sagði Gunnar Gunnarsson í
samtali við Mbl.
Tilraun Campomanes til þess að
reka fleyg milli Indónesa og ís-
lendinga fór því út um þúfur. En
baráttan heldur áfram og margs
konar sögur um fjárútlát Campo-
manes ganga hér fjöllunum
hærra. Hann hefur stutt ýmsa
fulltrúa fjárhagslega til að kom-
ast til Luzern. Það hefur heyrzt að
Campomanes greiði 45 þúsund
krónur fyrir atkvæðið — 10 þús-
und krónur fyrirfram og restina
eftir atkvæðagreiðsluna — ef
hann sigrar.
Hver verður næsti forseti FIDE
— úr því fæst skorið á fimmtudag.
Næsta víst er, að tvær umferðir
þarf til þess að skera úr um end-
anlegan sigurvegara. Langflestir
hallast að því að Kazic falli úr í 1.
umferð — en auðvitað er ómögu-
legt að segja til um slíkt með
nokkurri vissu.
Það yrði verulega slæmt fyrir
Friðrik ef Campomanes félli úr í 1.
umferð. Skilin mili þeirra eru það
skörp. Slíku er ekki til að dreifa
milli Kazic og Friðriks — báðir
eru frá Evrópu og báðir eru full-
trúar þjóða sem menn geta vel
sætt sig við í embætti forseta
FIDE. Grikkir og ítalir styðja ein-
dregið við bakið á framboði Kazic
en hafa sagt það við íslenzku full-
trúana, að falli Kazic út í 1. um-
ferð þá muni þeir fylkja sér að
baki Friðriki — ljóst er að svo er
farið með fleiri.
nar hafa staöið
Svíþjóð — ('hile 3—I
Anderson — Morovic I—0
Schussler — ('ifenles 0,5—0,5
Schneider — ('ampos 1—0
Wedberg — Abarca 0,5—0,5
I ísland — Portúgal 2,5—1,5
(■uðmundur Sigurjónsson — Santos 0,5—0,5
Jón L. Arnason — Silva 0,5—0,5
Helgi Olafsson — l)urao 0,5—0,5
Jóhann lljartarson — A. Santos 1—0
Helstu úrslit í 8. umferð:
Sovétríkin — Cngverjaland 2,5—1,5
Karpov — Portisch I—0
Kasparov — Kibli 0,5—0,5
Beljavsky — Pinter 1—0
Vusup<»v — ('som 0—1
Tékkóslóvakía — Kandaríkin 1,5—2,5
llort — Seirawan 0,5—0,5
Smejkal — Kavalek 0,5—0,5
Ktacnik — Tarjan 0,5—0,5
Jansa — ('hristiansen 0—1
Kanada — llolland 2—2
Ivanov — Timman 1-0
Suttles — Sosonko 0—1
Ilerberl — Ree 1—0
Day — Van Der Wiel 0—1
Kngland — Krakkland 3,5—0,5
Speelman — llaik 1—0
Stean — Koutly 1—0
Mestel — (liffard 1—0
Chandler — Roos 0,5—0,5
V-I»ýskaland — Ástralía 2—2
lliibner — Kogers 0,5—0,5
Pfleger — Jamieson 0—1
llecht — Johansen 0,5—0,5
Kindermann — Shaw 1—0
Kúba — Júgóslavía 1—3
G. (>arcia — Ljubojcvic 0,5—0,5
Kodrigues — (iligoric 0—1
var kominn með
;ir aðeins 15 leiki
— Bxe6 vinnur hvítur með 22.
Hxf7.
Islenska kvennasveitin hefur
staðið sig framar björtustu von-
um og hefur m.a. lagt öflugar
sveitir Brasilíu, Kólombíu og
Venezuela að velli.
Hvítt: Sigurlaug Friðþjófsdóttir.
Svart: Kalagar (Kólombíu).
Tískuvörn.
1- e4 — g6, 2. d4 — Bg7, 3. Rc3 —
c6, 4. Rf3 — d5, 5. Be2 — Bg4, 6.
Be3 — dxe4, 7. Rxe4 — Rh6, 8. c3
— Rf5, 9. 0-0 — Rxe3
Hæpin ákvörðun, því nú
opnast f-línan hvítum í hag.
10. fxe3 — 0-0, 11. Db3 — Dc7,12.
Rfg5 — Bf5
Þvingað, því ef 12. — Bxe2 þá
13. Hxf7 og vinnur.
13. Rg3 — h6
Síðasta vonin var 13. — Bh6.
Nú vinnur hvítur með skemmti-
legri fléttu:
14. Rxf7 - Hxf7, 15. Rxf5 — gxf5,
16. Hxf5 — e6, 17. I)xe6 — Ra6,
18. Ilafl — Haf8, 19. Hxl7 —
Hxl7, 20. Bc4 og svartur gafst
upp.
sig vel
llernandez — Kovacevic 0—1
S. (iarcia — llulak 0,5—0,5
Sviss — Svíþjóó 2—2
Korchnoi — Anderson 0,5—0,5
llug — Karlson 1—0
Wirthensohn — Schneider 0,5—0,5
l'artos — Ornstein 0—I
Búlgaría — Kúmenía 0,5—3,5
Tringov — (ihcorghiu 0—1
Velikov — Suba 0—1
Donchev — Ciocaltea 0,5—0,5
l’opov — (ihinda 0—1
ísland — ísrael 2—2
(iuómundur Sigurjónsson — (irunfeld 0,5—0,5
Jón L. Árnason — Murey 0—1
Margeir l’étursson — Birnboim 1—0
Jóhann lljartarson — (ireenfeld 0,5—0,5
Danmork — Indónesía 2,5—1,5
(hristiansen — Ardiashyah 0—1
Kedder — llonoko 0,5—0,5
Ost-llansen — Andianio 1—0
Kries-Nielsen — (iinting 1—0
Staða efstu þjóða eftir 8 umferðir
1. Sovétríkin 22,5
2.—3. Bandaríkin, Kngland 21,5
4.—5. Rúmenia, Kanada 21
6.—9. Ungverjaland, Júgóslavía,
Ilolland,
Tékkóslóvakía 20,5
10.—12. V-Þýskaland, Sviss,
Ástralía 20
13.—14. Svíþjóð, Israel 19,5
15.—18. ísland, Danmörk, Spánn,
Brazilía 19
Norðmenn eru með 18 vinninga,
Finnar 16,5 og Færeyingar 13.
íslenzka kvennasveitin beið
ósigur gegn Ungverjum í 8. um-
ferð eftir að hafa unnið fimm um-
ferðir í röð. Ungversku konurnar
unnu á öllum borðum, úrslit 3—0,
en á laugardag sigruðu íslenzku
stúlkurnar Venezúela 2,5—0,5.
Guðlaug Þorsteinsdóttir og Ás-
laug Kristinsdóttir sigruðu þá og
Ólöf Þráinsdóttir gerði jafntefli.
Ólöf, Sigurlaug Friðþjófsdóttir og
Áslaug tefldu gegn Ungverjalandi.
Sovétríkin eru efst í kvenna-
flokki með 18,5 vinninga. Rúmenía
er í öðru sæti með 16,5 vinninga,
Ungverjaland og Pólland hafa
hlotið 16 vinninga. Island er í
14.—17. sæti með 13 vinninga, en
íslenzka kvennasveitin komst í 7.
sæti eftir sigurinn gegn Venezúela.
Blaðamannafélag Islands 85 ára:
Tveir blaðamenn heiðraðir
HANDHAFAR blaðamannaskírteina númer eitt og tvö voru heiðraðir í
85 ára afmælishófi Blaðamannafélags Islands sl. laugardagskvöld. Þeir
eru Þórarinn Þórarinsson ritstjóri Tímans, handhafi skirteinis eitt, og
Þorbjörn Guðmundsson fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, handhafi
skírteinis númer tvö.
Þórarinn og Þorbjörn hafa
báðir starfað sem blaðamenn í
rúmlega fjörutíu ár og hafa
lengstan starfsaldur starfandi
blaðamanna. Formaður Blaða-
mannafélagsins, Ómar Valdi-
marsson, þakkaði þeim störf
þeirra í þágu íslenzkra blaða-
manna og blaðamennsku og af-
henti þeim heiðursmerki.
Ljósm. Mbl. Emilía Björg
Björnsdóttir.
„Var sleginn
skákblindu“
Guðmundur Sigurjónsson lék
af sér hrók í vinningsstöðu
Krá llalli llalssyni, blaðamanni Mbl. í Luzern.
„ÉG VAR sleginn skákblindu — lék
af mér hróki í vinningsstöðu. Það
var hroðalcgt — ég man ekki eftir
að slíkt hafi hent mig áður,“ sagði
Guðmundur Sigurjónsson, stór-
meistari eftir aö hann tapaði gegn
Spánverjanum Bellon í 9. umferð
Olympíumótsins í skák í Luzern. ís-
land tapaði V/t—2‘/2. Jón L. Árnason
og Martin gerðu jafntefli, Helgi
Olafsson tapaði fyrir Sanz en Mar-
geirPétursson vann Och de Echagu-
en. ísland hefur nú hlotið 20,5 vinn-
inga, en Sovétmenn eru efstir með
24'2 vinning og 2 biðskákir.
íslenzku stúlkurnar tefldu við
ensku sveitina og stóðu sig vel.
Sigurlaug Friðþjófsdóttir vann á
þriðja borði, Ólöf Þráinsdóttir
tapaði á öðru borði en Guðlaug
Þorsteinsdóttir á tvísýna biðskák
við Miles á þriðja borði. Kvenna-
sveitin hefur hlotið 14 vinninga og
á eina biðskák. Sovéska sveitin
hefur mikla yfirburði í kvenna-
flokki vann Pólland 2‘/í — 'k í gær
og hefur nú fjögurra vinninga for-
ustu — hefur hlotið 21 vinning.
Helstu úrslit í 9. umferð.
Sovélríkin — Kngland
Kasparov — Nunn 1—0
l'olugacvsky — SpcHman
Bdjavsky — Sloan 1 —0
Tal — M vstel
Bandaríkin — Kanada
Browne — Ivanov
Scirawan — lleb<*r
Kavalek — Day
Chrisliansen — PelLs
l'ngverjaland — Tékkóslóvakía
Borlisch — llorl
Rihli — Smejkal
Sax — Tfacnik
Csom — l'lachetka
Júgóslavía — llolland
Ljubojevic — Timman
(■ligoric — Sosonok
Kavacevic — Van der W’iel
llulak — Van der Sterren
Kúmenía — V l>v/.kaland
(■heorghiu — l'nzicker
Suba — Pfleger
(■hinda — Ixibron
Koisor — Kindermann
Ástralía — Sviss
Rogers — Korchnoi
West — llutf
Johansen — Wirlhensohn
Shaw — Kranzoni
Sviþjod — ísrael
Anderson — (iruenfeld
Karlsson — Murey
Wedberjj — (.ulman
Ornstein — Kagan
Spánn — ísland
Bcllon — (.uómundur Sigurjónsson
Martin — Jón L Árnason
Sanz — llelgi Olafsson
Och de Kchaj»u<*n — Margeir l'élursson
Brazilía — Danmörk
Sunye — Mortensen
l'adilozi — Kedder
Trois — Osl
llansen
Milos — Kries-Nielsen
Norejjur — Venezuela
llelmers — Kernandez
Agdestein — Kalacios
Bjerke — Ostros
lloen — (.uerra
• *_!/,
1—0
'/i—'/t
1-0
1—0
112—21 *
'í—'i
1 *—1 a
'*—«*
0—1
0—1
1—0
0-1
1—0
*—«2
1-0
0-1
•,—I,
1-0
0-1