Morgunblaðið - 09.11.1982, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1982
„Svisslendingar hafa svikið öll
gefin loforð og alla samningaa
— segir Jóhann I>órir Jónsson útgefandi tímaritsins Skákar
Luzcrn, 4. nóvembcr. Frí ilalli llallsKyni
„MÓTSBLADID hefur mælst vel fyrir.
Þannig segir Hollendingurinn Jan
l>onner art mert útgáfunni hafi hlað
verirt brotið í sögu skáklistarinnar. En
Svisslendingar hafa svikið öll gefin lof-
orö og alla samninga — þetta hefur
haft þart í för mert sér að fjárhagsaf-
blaðamanni Mori»unblartsins:
komu blartsins er stefnt í vorta. Kg hef
hótart Svisslendingunum málaferlum
sjái þeir ckki art sér og virrti gerða
samninga," sagði jóhann Þórir Jóns-
son, útgefandi tímaritsins Skákar, í
samtali virt hlartamann Mbl. í Luzern.
„Þetta er þeim mun raunalegra,
SIJORNUNARFRfEflSIA
FYRIRTÆKIÐ OG
SKIPULAG ÞESS
Markmið: Á námskeiðinu er lögð áhersla á
að gera grein fyrir skipulagi og uppbygg-
ingu fyrirtækisins sem stjórnunareiningar.
Gerð er grein fyrir mikilvægi markmiöa-
setningar, skipulagningu verkefna og rætt
um hvernig takast má á við skipulags- og
stjórnunarvandamál sem upp koma i fyrir-
tækjum.
Efni: Fjallað verður um:
— Stjórnskipulag og tegundir.
— Verkefnaskipting.
— Valddreifing.
— Verkefnastjórnun.
— Skipulagsbreytingar.
— Upplýsingastreymi, ákvarðanataka.
— MBO.
— Hvað er stjórnun?
— Samskipti starfsmanna.
— Samskipti yfirmanna og undirmanna.
Þátttakendur: Námskeiðiö er einkum ætl-
að þeim sem hafa mikil bein samskipti við
samstarfsmenn sína, bæði yfirmenn og
undirmenn og þeim sem annast skipu-
lagningu og stjórnun á atvinnustarfsemi
og tímabundnum verkefnum.
Leíðbeinendur: Höskuldur Frímannsson,
rekstrarhagfræðingur. Lauk prófi frá
viðskiptadeild Háskóla islands 1977 og stundaði síöan fram-
haldsnám í rekstrarhagfræði við University of Bridgeport í
Bandaríkjunum. Starfar nú hjá Skýrsluvélum ríkisins og Reykja-
víkurborgar.
Sigurjón Pétusson rekstrarhagfræðingur. Lauk prófi frá við-
skiptadeild Háskóla islands. MBA-prófi frá Graduate School for
Business Administration — New York University. Starfar nú hjá
Sjóvátryggingafélagi íslands hf.
Sigurjón Péturaton
rekitrarhagfrtaóingur
Staóur: Síöumúli 23.
Tími: 22.-25. nóvember kl. 14—18 — samt. 16 klst.
BOKHALD MEÐ
SMÁTÖLVUM
LeiðtMinandi:
viðekiptalraeóingur.
Tilgangur námskeiðsins er að gefa þátt-
takendum innsýn og þjálfun á tölvuvætt
fjárhags-, viðskiptamanna- og birgöa-
bókhald ásamt hvaða möguleikar skapast
með samtengingu þessara kerfa.
Efni:
— Tölvuvæðing bókhalds og skráninga-
kerfa.
— Sambyggt tölvukerfi og möguleikar
þeirra.
— Kennsla og raunhæfar æfingar á tölv-
ur.
Námskeiöiö er ætlaö þeim aöilum sem hafa tölvuvætt eða ætla
að tölvuvæða fjárhags-, viðskiptamanna- og birgðabókhald sitt
og einnig þeim sem vinna við kerfiö á tölvurnar. Gert er ráð fyrir
þekkingu í bókfærslu.
Staður: Ármúli 36, 3. hæð (gengið inn frá Selmúla).
Tími: 22.—24. nóvember kl. 13.30—17.30.
Ath.:
Fræðslusjóöur Verslunarmannafélags Reykjavíkur greið-
ir þátttökugjald félagsmanna sinna á þessu námskeiöi
og skal sækja um það á skrifstofu VR.
Þátttaka tilkynnist Stjórnunar-
félaginu í síma 82930.
STJÓRNUNARFÉLAG
ISLANDS
SÍÐUMÚLA 23 SÍMI 82930
Áskriftarsíminn er 83033
þar sem ég hafði lagt út í mikinn
kostnað til að gera góða hluti. Sviss-
lendingar lofuðu að safna auglýsing-
um í Sviss í blaðið — þeir sviku það.
Þeir lofuðu að auglýsa blaðið í Sviss,
þeir sviku það. Þeir lofuðu starfs-
fólki mínu góðri aðstöðu — þeir
sviku það. Þeir lofuðu að útvega góða
tölvusetjara, en sviku það.
Svisslendingar áttu að safna sam-
an skákum, eftir hverja umferð —
þeir áttu að yfirfara þær og sjá um
setningu og prófarkalesa, allt þetta
er í molum. Þetta hefur haft þær
afleiðingar í för með sér, að í fyrstu
fjórum tölublöðunum, birtust ekki
allar skákirnar sem tefldar voru.
Þetta er ákaflega slæmt og það ekki
síður að slæmar villur koma fyrir.
Þegar ég kom út skömmu áður en
mótið hófst ásamt starfsliði kröfðust
þeir aukinnar tryggingar — til þess
að dekka kostnað af prentun. Okkur
tókst að leysa þetta vandamál, en þá
kom ný krafa, þrátt fyrir að það
hefði komið fram í okkar viðræðum,
að blaðamenn, starfsmenn og kepp-
endur ættu að fá ókeypis eintak, þá
vildu þeir það ekki — sögðu að engin
lagaákvæði væru fyrir þessu. En svo
töldu þeir sig þurfa 200 eintök og
gerðu mér tilboð: Við viljum 200 ein-
tök eða við komum í veg fyrir að
blaðið komi út: þessu tilboði var ekki
hægt að hafna.
Svisslendingar áttu að útvega til-
boð í prentun blaðsins, en við það
var ekki staðið — þeir sögðu það
ekki hægt. Ég leitaði hófanna hjá
prentsmiðju hér um tilboð og fékk
tilboð sem var 70 þúsund dollurum
lægra, en sú prentun sem Svisslend-
ingar höfðu sett upp. Ég skýrði þeim
frá þessu tilboði og þeir urðu æfir,
en eftir japl, jaml og fuður, þá féll-
ust þeir á þetta verð, en gegn því að
blaðiö yrði sett í prentsmiðjunni,
sem þeir höfðu ætlað til verksins. Úr
varð að blaðið er sett í þessari
prentsmiðju sem þeir höfðu ætlað til
þess, en með óhæfum tölvusetjurum.
En þeim varð ekki þokað með að
útvega blaðamönnum, skákmönnum
og starfsliði mótsblaðið. Þeir neit-
uðu þessu stöðugt. Þeir sögðu við
mig, að það kæmi sér augljóslega illa
fyrir Friðrik fengju blaðamenn og
keppendur ekki blaðið frítt. Svona
kúgun er einsdæmi og ég hef orðið að
gefa blaðamönnum og keppendum
blaðið.
Málið er í hnút. Ég hef sett þeim
skilyrði — þeir verði að útvega full-
komna setningu, safna skákum og
prófarkalesa, þannig að ekki komi til
að fleiri villur verði í blaðinu. Jafn-
framt geri ég fjárkröfur á hendur
þeim fyrir svikin loforð. Þetta hefur
valdið mér miklum vonbrigðum, því
ég hef lagt heiður minn að veði að
þetta takist á sómasamlegan hátt —
sárast er þetta þó fyrir fólkið sem
kom út með mér og hefur lagt nótt
við nýtan dag til þess að leysa þau
vandamál sem upp hafa komið. Það
hefur unnið kraftaverk — Svisslend-
ingar hafa reynt að komast hjá
kostnaði — öll áhætta er hjá mér og
þeir fá 60% af hagnaði. Ég fór út í
þetta því það var mér metnaðarmál
og ég vil gefa út gott blað — um það
hafa Svisslendingar ekki hugsað —
þeir hafa hugsað um hagnað og ann-
að ekki. Á stundum hafa þeir bók-
staflega sett mér stólinn fyrir dyrn-
ar,“ sagði Jóhann Þórir.
Kirkjuþing hefst í dag
KIRKJUÞING hefst í dag kl. 14.00
mert guðsþjónustu í Ilallgrímskirkju.
Allir velkomnir til guðsþjónustunnar.
Að guðsþjónustu lokinni hefjast
þingstörf í safnaðarsal Hallgríms-
kirkju. Þar flytur Friðjón Þórðar-
son ráðherra ávarp og biskup Is-
lands setningarræðu sína.
Þingstörf kirkjuþings standa til
19. nóv. Auk ráðherra og biskups
eru þingfulltrúar 20 talsins og eru
þeir kjörnir til 4 ára. Kirkjuþing
mun koma saman árlega, samkv.
nýjum lögum er Alþingi samþykkti
sl. vor.
Vígslubiskup Norðlendinga, sr.
Sigurður Guðmundsson á Grenjað-
arstað, mun predika við setningar-
guðsþjónustuna. Prestar Hall-
grímskirkju, sr. Karl Sigurbjörns-
son og sr. Ragnar Fjalar Lárusson,
ásamt dómprófasti, sr. Ólafi Skúla-
syni, munu þjóna fyrir altari.
Töfraflautan:
Austurrísk Næturdrottning
á sviðinu í Gamla bíói
Hver er sú kona ægilbgur og
slæg, scm birtist ungum prinsi eins
og af himnum ofan, færir honum
töfraflautu og felur honum það
hlutverk að frelsa dóttur sína úr
klónum á presti nokkrum, engu
síður máttugum. Þessi kona er
valdafikin í mcira lagi og vílar
ekki fyrir sér að skipa dóttur sinni
að drepa prestinn umrædda til að
þjóna hagsmunum sínum. En þrátt
fyrir mikinn mátt og slægð, er við
ofurefli að etja og hún nær ekki
fram fremur óljósum vilja sínum.
Er þessi kona ekkert annað en
furðulegur hugarburður Schik-
aneders textahöfundar, eða má
e.t.v. greina í persónunni austur-
rísku keisaraynjuna Maríu
Theresu? Það er skoðun margra
sem hafa lagt sig fram um að
rýna í sundurlaust táknmál
Töfraflautunnar, óperu Mozarts,
sem Islenska óperan sýnir nú í
Gamla bíói.
Hvað um það, sú kona af holdi
og blóði sem nú syngur hlutverk
Næturdrottningarinnar á sviði
Gamla bíós, er austurrísk, þótt
ekki sé hún keisaraynja. Hún
heitir Lydia Rúcklinger, 24 ára
gömul, fædd og uppalin í Vín.
Lydia var fengin hingað til lands
til að syngja hlutverk Nætur-
drottningarinnar, einfaldlega
vegna þess að það er ekki til inn-
lend „rödd“ í hlutverkið, eins og
það heitir á söngmáli. Þykir
hlutverk Næturdrottningarinn-
ar eitt erfiðasta óperuhlutverk
sem til er, og þarf sérstaka sópr-
anrödd til að syngja það, svo-
kallaðan „dramatískan kólerat-
úr“. En það þýðir á skiljanlegu
máli að röddin þarf að vera mjög
há, en auk þess hljómmikil og
spanna vítt svið.
Næturdrottningin frá Austurríki.
Þegar blaðamaður Mbl.
hringdi í Lydiu og bað um smá-
vegis rabb, tók hún því vel, og
sagðist reyndar sjálf hafa feng-
ist svolítið bið blaðamennsku.
— Hvað segirðu?!
„Já, ég stunda meira að segja
nám í blaðamennsku í Vín.“
— Það kom sér aldeilis vel; þú
getur þá sagt mér um hvað ég á
að spyrja þig.
„Þú getur t.d. spurt mig að því
hvers vegna ég er hingað kom-
in.“
— Já, það er góð spurning.
Hvernig fékkstu hlutverkið?
„Það vildi til að kennari minn,
Helena Karusso, var hér á landi
í sumar með námskeið. Garðar
Cortes kom þá að máli við hana
og gat þess að Islensku óperuna
vantaði söngkonu í hlutverk
Næturdrottningarinnar og
spurði hana hvort hún vissi um
einhverja sem gæti hugsanlega
tekið að sér hlutverkið. Hún
benti á mig, og hér er ég.“
— Hefurðu lært söng lengi?
„Ég hef alltaf haft mjög gam-
an að söng og sungið mikið, en
það eru ekki nema 3 ár síðan ég
byrjaði að læra skipulega."
— Mér er sagt að hlutverk
Næturdrottningarinnar sé gríð-
arlega erfitt. Varstu taugaóstyrk
á frumsýningu? Þetta er þín
frumraun á sviði, ekki satt?
„Það er rétt, þetta er mitt
fyrsta óperuhlutverk. Og ég var
eiginlega alveg hissa á því hvað
ég var lítið taugaóstyrk á frum-
sýningunni. En ég held að skýr-
ingin á því sé sú, að það var æft
mjög mikið dagana fyrir frum-
sýninguna og maður fékk varla
nokkurn tíma til að kvíða fyrir.“
— Reynir hlutverkið mikið á
þig?
„Já, maður verður að nota all-
an sinn kraft í þetta. Ég syng
tvær erfiðar aríur, sem dálítið
langt er á milli, svo það er nauð-
synlegt að halda sér í spennu all-
an tímann."
— Hvernig er að syngja í
Gamla bíói?
„Mjög gott. það er sérstaklega
góður hljómburður í húsinu, og
svo er það svo mátulega stórt og
leikhúslegt í alla staði. Og ís-
lenskir áheyrendur eru frábær-
ir.“
— Hvað tekur við hjá þér þeg-
ar Næturdrottningin syngur sitt
síðasta hér?
„Ég mun halda áfram námi,
bæði í söng og blaðamennsku.
Annars er framtíðin óráðin."