Morgunblaðið - 09.11.1982, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 09.11.1982, Qupperneq 18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1982 18 JIM BRADY BLAÐAFULLTRÚI sem hlaut alvarleg heilameiðsl þegar reynt var að ráða RonaJd Keagan forseta af dögum i fyrra, kom aftur til Hvíta hússins á fóstudaginn og mun taka aftur til starfa. Brady verður nokkrar klukkustundir á viku við skrifborð sitt í Hvíta húsinu en verður áfram í reglulegri meðferð Sovéskri farþega- flugvél rænt Ankara, K. nóvembor. Al*. ÞRÍR Sovétmenn af þýskum upp- runa rændu sovéskri farþegaþotu sem var í áætlunarflugi milli Novor- ossijsk og Odessa á sunnudaginn. Um borð vóru 25 farþegar, auk áhafnarinnar. Þrír farþegar og flug- maðurinn særðust af hnifstungum er til ryskinga kom, en ræningjarnir neyddu áhöfnina til að lenda vélinni í tyrknesk-bandarískri herstöð ná- lægt Synop í Tyrklandi. Vart hafði þotan lent við Synop, en starfsmenn sovéska sendiráðs- ins í Ankara fóru á fund ráða- manna í Tyrklandi og kröfðust þess að flugræningjarnir yrðu framseldir. Ekki mun þó verða úr því, þvi tyrknesk stjórnvöld ákváðu í gær að draga ræningjana fyrir rétt, en í Tyrklandi geta flugræningjar átt yfir höfði sér 5—15 ára fangelsi. Rússarnir þrír báðu um hæli sem pólitískir flóttamenn, en þeirri beiðni var synjað. Spánn: Nýr leiðtogi kommúnista Madrid, 8. nóvember. Al\ MIÐSTJÓRN spánska kommún- istaflokksins kom saman um helg- ina og kaus nýjan flokksleiðtoga, Gerardo Iglesias, 37 ára gamlan námuverkamann frá Asturias-hér- aði. Hann tekur við af Santiago ('arrillo, sem sagði af sér á laug- ardag og kemur afsögn hans í kjölfar mikils ósigurs kommúnista í þingkosningunum á Spáni 28. október sl. ('arrillo, sem er 67 ára að aldri, hefur verið ritari flokksins i 20 ár. Kommúnistaflokkur Spánar var lögleyfður á ný 1977. í þing- kosningum í júní það ár fékk flokkurinn 9,24% atkvæða og 20 þingsæti í neðri deild spánska þjóðþingsins. I kosningum 1979 fékk flokkurinn 10,8% atkvæða og 23 þingsæti, en í kosningunum í október sl. fékk flokkurinn að- ■ eins 3,9% atkvæða og 5 þingsæti. Iglesias, sem varð kolanámu- maður 15 ára gamall, er samherji Carrillos innan kommúnista- flokksins og talinn harðlínu- maður varðandi stefnu flokksins, sem hefur haft tilhneigingu í lýð- ræðisátt að undanförnu. Stjórnmálasérfræðingar eru þeirrar skoðunar, að jafnaðar- menn hafi unnið mjög mörg at- kvæði af kommúnistum í kosn- ingunum í október sl., en þá hlutu jafnaðarmenn hreinan meirihluta á spánska þjóðþing- inu. Klofliingur Genscher endurkjörinn flokksleiötogi FLOKKSÞINGI frjálsra demókrata í Vestur-I>ýzkalandi lauk á sunnu- dag, þar sem Hans Dietrich Genscher var endurkjörinn flokksleiðtogi. í stefnuskrá þeirri, sem samþykkt var á flokksþinginu, kom fram mikil tilhneiging til þess að tak* upp hægri sinnaðri stefnu en flokkurinn hefur fylgt til þessa. Jafnframt var samþykkt með naumum meiri hluta að styðja þau áform að koma fyrir nýjum eldflaugum Bandaríkjamanna í V Þý/kalandi á næsta ári. Mikill klofningur innan flokksins kom fram á þinginu og í lok þess sögðu fimm þingfulltrúar sig úr honum. Genscher var endurkjörinn . stjórnmálaflokks. Kunnasti leiðtogi frjálsra demókrata (FDP) með 222 atkvæðum af 400. Fimm af andstæðingum hans sögðu sig strax úr flokknum, er úrslit kosninganna lágu fyrir og nokkrir þeirra lýstu því yfir, að þeir myndu koma á fót sérsam- bandi frjálslyndra og efna til sérstaks þings í borginni Boch- um síðar í þessum mánuði, þar sem gengið yrði frá stofnun nýs gagnrýnandi Genschers, Ingrid Matthaeus-Maier tilkynnti hins vegar, að hún myndi sennilega ganga í lið með jafnaðar- mönnum. Hinn mikli klofningur í röðum frjálsra demókrata á eftir að gera þeim erfitt fyrir í kosning- um þeim til sambandsþingsins, sem fyrirhugaðar eru í marz nk. Stjórnarkreppa á ný í Færeyjum ínnan FDP Hans Dietrich Genscher (til hægri) ásamt tveimur af helztu andstæðingum sínum innan FI)P, þeim Gerhart Baum til vinstri og Uwe Konneburger í miðið. Sá síðarnefndi fékk næstflest atkvæði sem flokksleiðtogi á þingi FDP um helgina. ■ í fylkiskosningum í Hessen og en 5% atkvæða þarf til þess að Bayern fyrir skömmu fengu þeir fá mann kjörinn á sambands- ekki nema rúmlega 3% atkvæða þingið. Frá Jogvan Arge í Færeyjum. Stjórnarsamvinna borgara- flokkanna þriggja í Færeyjum hef- ur lamazt. Formaður Sjálfstýri- flokksins, Hilmar Kass, segir að landstjórnin geti aðeins setið til bráðabirgða, þangað til hún geti aftur staðið á eigin fótum. Formaður Fólkaflokksins, Oli Breckman, hefur sent öllum aðil- um stjórnarinnar bréf, þar sem hann tilkynnir að hann muni stöðva afgreiðslu fimm tiltek- inna mála, sem heyra undir full- trúa hinna flokkanna tveggja, þar sem hinir flokkarnir hafi stöðvað mál, sem flokkur hans beri ábyrgð á. Sjálfstýriflokkurinn hefur krafizt þess á landstjórnarfundi að bréf Breckmans verði aftur- kallað, þar sem flokkurinn líti á það sem uppsögn á stjórnar- samstarfinu. Breckman hefur svarað því til að bréfið verði ekki afturkallað, en jafnframt lagt áherzlu á að skýrt komi fram í bréfinu að það jafngildi ekki uppsögn. Þriðji stjórnaraðilinn, Sam- bandsflokkurinn, hefur sagt að stöðvun mála verði að hætta og flokkurinn geti ekki sætt sig við að einn einstakur stjórnaraðili komi í veg fyrir alla samvinnu. Stjórnmálaástandið var rætt á landsfundi Sjálfstýrisflokksins um helgina. Pauli Ellefsen lög- maður veitti Fólkaflokknum frest um helgina til þess að hug- leiða málið og taka sameiginlega afstöðu. Bæði Sjálfstýriflokkurinn og Sambandsflokkurinn halda því fram að Oli Breckman standi einn í Fólkaflokknum með hót- unum sínum, en Breckman segir að allur flokkurinn standi að baki sér. „Að vísu hefur verið rætt um form stöðvananna, en við erum allir sammála um inn- tak þeirra," segir hann. Landstjórnin hefur verið tvö ár við völd. Hún tók við af sex ára stjórn sósialdemókrata, Fólkaflokksins og lýðveldissinna. Samstarfið í núverandi sam- steypustjórn hefur verið slæmt frá byrjun og hver stjórnar- kreppan hefur tekið við af ann- arri á þessu ári. Þetta hefur haft greinileg áhrif á störf Lögþings- ins, því að mjög fá mál hafa fengizt afgreidd. Ætla umhverfis jörðina í loftbelgnum Jules Verne Glæsibifreið Hitlers heldur „heim" á ný S< oiLsdale, Arizona, 8. nóvember. Al\ Rapid (’ity, Suóur Dakota, 8. nóv. Al\ OFURHUGARNIR Maxie Anderson MERCEDKS Benz-bifreið Adolfs Hitler er á leið „heim til Vestur- Þýskalands", en eigandi bifreiðarinn- ar, Tom Barrett, hefur selt glæsivagn- inn til safns í Briissel í Belgiu. Fyrst fer Bensinn þó á mikla bifreiðasýn- ingu sem haldinn verður i Kssen í Yestur-Þýskalandi dagana 1.—10. desember. Það eru næstum 40 ár síð- an að bifreiðin var síðast ekið um stræti Þýskalands. Barrett eignaðist bifreiðina alls þrisvar, en hann iætur sér ekki nægja að safna gömlum bifreiðum, hann selur þær einnig. Hann seldi Bensinn fyrst árið 1972, þá fyrir 140.000 dollara. Hann keypti hann síðan aftur fyrir svipaða upphæð, en seldi bifreiðina svo á nýjan leik nú fyrir skömmu. Hann hefur neit- að að gefa upp söluverðið að þessu sinni, „það yrði allt brjálað í Evr- ópu og þá ekki einungis vegna þess hver átti bílinn.“ En hvað um það, þetta eru mikið listaverk og þetta er glæsilegustu og bestu bifreiðir sem Þjóðverjar hafa framleitt. Hér er um átta manna gljásvarta Mercedes-bifreið að ræða. Hún er brynvarin og skotheld og vegur 1,2 tonn. Blæjur eru á bifreiðinni og hægra framsætið má hækka og aðstoðarmaður hans, Don Ida, lögðu í gær af stað í þriðju tilraun sína til að fara umhverfis jörðina í loftbelgnum Jules Verne. Áður hafa þeir farið fyrstir manna á loftbelg yfir Atlantshafið og yfir þver Banda- ríkin og gert tvær misheppnaðar til- raunir til að fara umhverfis jörðina. í febrúar 1981 hófu þeir fyrstu Heróínsmyglari tekinn fastur Y'ínarborg, 5. nóvembt-r. Al\ THAILENDINGUR var tekinn fastur í Vínarborg í dag með heró- ín að verðmæti tæprar hálfrar milljón dollara í fórum sínum. Talið er að dreifa hafi átt eitur- efninu til ýmissa landa V-Evrópu. Heróínið, 2,1 kíló, fannst í leyni- hólfi á ferðatöskubotni. tilraunina í Egyptalandi, en þegar að Himalayafjöllum kom var belg- urinn farinn að leka svo mikið að þeir náðu ekki nauðsynlegri hæð. Var þá hætt við ferðina. I desem- ber á sama ári lögðu þeir svo aftur í’ann frá Indlandi, en komust ekki nema 50 kílómetra áður en máln- ing, sem notuð hafði verið til að mála á belginn, át sig í gegnum efnið og belgurinn fór að leka á ný. Þeir Anderson og Ida hafa hugsað sér ákjósanlega leið, en segja þó: „Það þýðir ekkert að tala um slíkt, við getum ekki stýrt belgnum, aðeins farið upp og niður. Við eigum því allt undir loftstraumnum." Þeir gátu þess þó, að ekki væri fjarri lagi að ferð- in myndi taka 8 til 10 daga, miðað við að belgurinn þjóti áfram á 130—145 kílómetra hraða á klukkustund í 7.600 metra hæð. Ferðin hefst í Suður-Dakota-fylki og þeir félagarnir reikna með og vonast til að henni ljúki ekki fjarri sama stað. Hryðjuverka- maður lést af skotsárum Róm, 5. nóvember. AP. PIKRLUGIGI Pagliai, 28 ára gamall ítalskur hryðjuverkamaður, lést á it- ölsku sjúkrahúsi í gær af skotsárum sem lögreglumenn í Bólivíu veittu honum fyrir nokkru. Pagliai var eftirlýstur vegna sprengjutilræðisins á járnbraut- arstöðinni í Bolognia í ágúst 1980 er 85 manns létu lífið. Til hans spurðist í Bólivíu og lauk viðskipt- um hans við lögregluna þar í landi með þeim hætti að hann var flutt- ur heim til Ítalíu í dái, með skot- sár á höfði og hálsi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.