Morgunblaðið - 09.11.1982, Page 39

Morgunblaðið - 09.11.1982, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1982 47 Ihúsgögn Kannaðir möguleik- ar á orkufrekum iðn- aði í Geldinganesi Már Elísson, fískimálastjóri, setur fískiþing. Auk hans eru frá hægri á myndinni sjávarútvegsráðherra, Steingrímur Hermannsson, Sigfinnur Karlsson, frá Neskaupstaö, Marteinn Jónasson frá Bæjarútgerð Reykjavíkur, Þorsteinn Jóhannesson, Garði, og Hjálmar R. Bárðarson, siglingamálastjóri. Ljösmynd Mbi. RAX Fiskiþing sett í gær: 19% samdráttur á þorsk- afla áætlaður á árinu Heildarafli á ári nú væntanlega helmingi minni en í fyrra FISKIÞING var sett í gær og mun það standa alla þessa viku. Már El- ísson fískimálastjóri setti þingið og fíutti siðan skýrslu um liðið starfsár. Steingrímur Hermannsson, sjávar- útvegsráðherra, ávarpaði þingið cinnig. Mörg mál eru til umræöu og má þar nefna gæði fískafla, selveið- ar, cndurskoðun fískveiðilaga og drauganet og rekstrarskilyrði sjávar- útvcgsins. í ræðu sinni gat fiskimálastjóri meðal annars þess, að útlit í at- vinnumálum þjóðarinnar væri dökkt og að hluta til mætti rekja það til óhagstæðrar þróunar fisk- afla. Samkvæmt áætlun Fiskifé- lagsins yrði heildarafli á þessu ári aðeins á milli 760 og 770 þúsund lestir samanborið við 1.440 þúsund á síðasta ári. Það væri vissulega mikið áfall og mestu skipti að loðnuaflinn á þessu ári er aðeins um 13 þúsund lestir á móti 640 þúsundum í fyrra. Að mati Fiskifélagsins myndi botnfiskafli aðeins minnka um 6 til 7% og verða um 670 þúsund lestir á móti um 715 þúsundum lesta í fyrra. Samt væri aflasam- setning óhagstæðari og ætla mætti að þorskaflinn drægist saman um 19% miðað við síðasta ár og verði um 375 þúsund lestir i stað 460 þúsunda lesta þá. Þá sagði Már: „Taprekstur sjáv- arútvegsfyrirtækja hefur verið geigvænlegur. Ráðstafanir þær, sem gerðar voru í ágúst síðastliðn- um, náðu of skammt. Stöðvun veiðiflotans lýsti örvæntingu manna, sem sáu fram á gjaldþrot með áframhaldandi taprekstri. Stjórnvöld viðurkenna þessa stað- reynd og leita leiða til úrbóta. Gengisbreyting er nauðsynlegt bráðabirgðaúrræði á meðan verð- tryggð verðbólga geisar, en er í sjálfu sér ekki varanlegt úrræði, þegar í kjölfarið fylgja verð- tryggðar hækkanir allra kostnað- arliða atvinnurekstrarins. Því er oft haldið fram, að verð- bólga sé betri en atvinnuleysi, en eru þetta valkostir? Ég held ekki. Ástæðan er einfaldlega sú, að ástand eins og það sem hér hefur ríkt undanfarið, og ef ekki finnst bót á, mun óhjákvæmilega leiða til stöðvunar atvinnurekstar og þar með atvinnuleysis. Þjóðarfram- leiðsla og þjóðartekjur hafa minnkað á þessu ári og útlit fyrir að svo haldi áfram á næsta ári að minnsta kosti. Þetta þýðir í raun lakari lífskjör allra þegna þjóðfé- lagsins. Á þessu ráðum við ekki bót með því að krefjast fleiri en smærri króna í launaumslögin." í skýrslu sinni ræddi Már meðal annars samkeppnisaðstöðu okkar við aðrar fiskveiðiþjóðir og sagði í því tilefni að á síðastliðnu ári hefði norskur sjávarútvegur hlotið 1.400 milljónir norskra króna úr ríkissjóði og þar af hefðu tæplega 600 milljónir farið til uppbóta á fiskverði. ATVINNUMÁLANEFND Reykja- víkurborgar samþykkti nýlega samhljóða að lýsa áhuga Reykja- víkurborgar á því að kannaðir verði til þrautar möguleikar á að álver eða annar orkufrekur iðnað- ur rísi í Geldinganesi. Þetta kom fram á borgarstjórnarfundi nýlega, en þar vakti Magnús L. Sveinsson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins, formaður Atvinnumálanefnd- ar, athygli á þessari samþykkt. í samþykktinni kemur og fram að til þess að orkufrekur iðnaður geti risið á fyrrgreindum stað, verði að uppfylla allar eðlilegar forsendur um hagkvæmni, ör- yggi og mengunarvarnir. Þá leggur nefndin til að Reykjavík- urborg láti fara fram veðurfars- legar athuganir í Geldinganesi og afli upplýsinga um þá staðla sem farið er eftir við mengun- arvarnir erlendis. Tilefni þessarar samþykktar var það, að áfangaskýrsla stað- arvalsnefndar var til umfjöllun- ar í nefndinni, en í skýrslunni eru fimm staðir tilgreindir sem þeir æskilegustu fyrir stóriðju: Geldinganes, Helguvík, Voga- stapi, Vatnsleysuvík og Arnar- neshreppur (Dysnes). Magnús L. Sveinsson sagði í ræðu um þessa samþykkt, að þetta væri stórt og mikið mál og rétt væri að rannsaka það til hlítar. Engu væri enn siegið föstu í þessum efnum, en Reykjavíkurborg vildi halda öll- um möguleikum opnum, þannig að hún dytti ekki út úr myndinni á síðari stigum málsins. 34 teknir grunaðir um ölvun við akstur ÞRJÁTÍU og fjórir ökumenn voru teknir um helgina grunaðir um ölv- un við akstur, samkvæmt upplýsing- um sem Mbl. fékk hjá Óskari Óla- syni yfírlögregluþjóni i gær. Óskar sagði að lögreglan hefði haft fleiri menn við gæslu á föstu- dags- og laugardagskvöld en að undanförnu. Margir bílar hefðu verið stöðvaðir og ástand bílstjóra kannað. Þá hafi sérstakur læknir verið til staðar á Borgar- spítalanum vegna þessara að- gerða. Óskar sagði að tilgangur aðgerðanna hefði verið sá að spyrna við fótum vegna slysaöld- unnar að undanförnu. Helgina áður var 21 ökumaður tekinn grunaður um ölvun við akstur. VERH) HAGSYN og berið saman verð og gæði ÞU ÞARFT EKKI AÐ FARA ANNAÐ BSSBáemÖLLlN BlLDSHÖFOA 20 -110 REYKJAVÍK » 91-81199 og 81410 LANDSNÓNim okkar pakkar og sendir hvert á land sem er. I síma 91-81410 færðu upplýsingar um verð, gæði og afborgunarkjör. _______ J Þaö er okkar starf aö útvega þér vönduö húsgögn á lægra veröi en aðrir geta boöiö. Og mundu aö hvergi nokkurs staöar er úrvaliö meira en hjá okkur. Fiskveiðasjóður. Vanskil hafa tvö- faldast á þessu ári - nema nú um 400 milljónum króna FJÁRHAGSSTAÐA Fiskveiðasjóós er slæm um þessar mundir. Vanskil við sjóðinn hafa tvöfaldast, það sem af er árinu, og nema þau nú um 400 milljónum. Það er þvi Ijóst að lána- geta sjóðsins minnkar og ekki er bú- izt við að mikið verði veitt úr sjóðn- um á næstunni. Auk þess hefur hlutdeild sjóðsins í lánum til skipa- smiða verið lækkuð í 60% úr 75%. Vegna þessa ræddi Morgunblað- ið við Sverri Júlíusson, forstjóra sjóðsins. Sagði hann, að vanskil vegna nýjustu skipanna væru mjög þungur baggi á sjóðnum, vegna þess að lánin væru ýmist gengistryggð eða vísitölutryggð. Lán til nýbygginga væru veitt til 18 ára, en erlend lán til 8 þannig að verið væri að lengja lánstím- ann. Þó skipin væi*u nú með tvö- falda greiðsiu í stofnfjársjóðinn dygði það ekki og og hlæðust van- skilin upp og væri það frumorsök vanda Fiskveiðasjóðs. Þá væru tekjur sjóðsins, auk vaxtagjalda, í formi útflutningsgjalds á sjávar- afurðir, en mótframlag ríkisins hefði verið lagt niður. Þegar van- skil ykjust minnkuðu aðvitað tekj- ur sjóðsins. Þá hefði verið veittur 100 milljóna króna afsláttur á vöxtum til að létta undir hjá út- gerðinni og lánstími á loðnubátum hefð verið lengdur í eitt ár. „Þetta er alvarleg þróun og hef- ur vitanlega áhrif á lánagetu sjóðsins og lítið verður væntan- lega um lán til nýsmíða á næst- unni, enda eru flestir sammála um að ekki skuli smíða mikið af nýj- um skipum nú,“ sagði Sverrir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.