Morgunblaðið - 09.11.1982, Síða 40
^^skriftar-
síminn er 830 33
____iiglýsinga-
síminn er 2 24 80
1>RIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1982
Meðal umræðuefna á Fiskiþingi:
Bátar verði gerð-
ir út á selveiðar
Fiskidcildirnar sammála um nauðsyn þess að fækka sel
Á FISKI1>INGI, sem hófst í gær, eru meöal annars til umræöu tillögur hinna
ýmsu fiskideilda um fækkun í selastofninum. Vestfiröingar leggja til, aö
selur veröi drepinn undir eftirliti sjávarútvegsráðuneytisins og verði til dæm-
is svipaður háttur hafður á og nú er við fækkun refa, það er að gerðir verði út
löggiltir veiðimcnn á vegum ríkisins til að halda selastofninum niðri. Fiski-
deildir i Austfirðingafjórðungi beina því til fiskiþings, að á næsta ári verði
gerðir út í tilraunaskyni einn eða tveir bátar til selveiða og haft verði samráð
við landeigendur um veiöarnar.
Viðskiptabankarnir gagnvart Seðlabanka í september:
Staðan batnaði um
63 milljónir króna
STAÐA viðskiptabankanna gagnvart Seðlabanka íslands var neikvæð um
711 milljónir króna í lok septembermánaðar sl. og hafði hún heldur skánað
frá ágústlokum, þegar hún var neikvæð um 774 milljónir króna. Hins vegar
var staðan jákvæð um 56 milljónir króna í lok septembermánaðar á siðasta
ári. Staðan hefur því versnað um 767 milljónir króna á liðnu ári.
Lausafjárstaða viðskiptabank-
anna var neikvæð um 614 milljón-
ir króna í lok septembermánaðar.
Hafði hún versnað um 107 millj-
ónir frá ágústlokum, þegar hún
var neikvæð um 507 milljónir
króna. Hins vegar ef litið er aftur
til septemberloka á síöasta ári, þá
var lausafjárstaða viðskiptabank-
anna jákvæð um 103 milljónir
króna. Hún hefur því versnað um
717 milljónir króna á liðnu ári.
emberlok í fyrra. Aukningin milli
ára er liðlega 78%.
Innistæður í septemberlok
námu hins vegar 6.960 milljónum
króna, en til samanburðar námu
þær 4.406 milljónum króna á sama
tíma í fyrra. Aukning þeirra milli
ára er því tæplega 58%, eða 20
prósentustigum minni, en aukning
útlána.
Staða sparisjóðanna gagnvart
Seðlabanka var jákvæð um 51
milljón króna í septemberlok og
var jákvæð um 38 milljónir króna
á sama tíma í fyrra. Breytingin
milli ára er liðlega 34%. Sömu
sögu er að segja af lausafjárstöðu
þeirra, en hún var jákvæð um 51
milljón króna á móti 38 milljónum
króna í fyrra.
Þess má geta, að tveir viðskipta-
bankanna voru með jákvæða stöðu
gagnvart Seðlabanka, Búnaðar-
bankinn með 56 milljónir króna og
Iðnaðarbankinn með 5 milljónir
króna. Lausafjárstaða þeirra var
ennfremur jákvæð.
Fiskideildir í Norðlendinga- I
fjórðungi mæla eindregið með því, |
Finnst
ég hafa
meðbyr
- segir Friðrik Ólafs-
son forseti FIDE
Luzern, 8. nóvember. Frá Halli Hallssyni,
blaóamanni Mbl.
„ÉG KK hæfilega bjartsýnn á að
verða endurkjörinn forseti FIDE
— mér fmnst ég hafa meðbyr,“
sagði Friðrik Olafsson, forseti
Alþjóðaskáksambandsins, í sam-
tali við blaðamann Mbl. í Luz-
ern. Forsetakjör innan FIDE fer
fram á fimmtudag og eru menn
sammála um, að um helgina hafi
verulegur árangur náðst í að afla
Friöriki fylgis.
„Auðvitað er of snemmt að
spá um niðurstöðu kosn-
inganna á fimmtudag, en ef
menn láta málefni ráða, þá
kvíði ég engu. Mörg mála hafa
skipast farsællega síðan ég var
kjörinn forseti fyrir fjórum
árum. Ólympíuskákmótið hér í
Luzern ber vott um uppgang
skáklistarinnar í heiminum.
Alls senda 94 þjóðir sveitir í
karlaflokki og 46 í kvenna-
flokki. Aldrei í sögunni hefur
þátttaka verið meiri og aðild-
arlönd FIDE eru nú 119 —
þessar tölur tala skýru máli
um styrk skáklistarinnar í
heiminum," sagði Friðrik
Ólafsson.
Sjá í miðopnu: „Framboð
Friðriks fær byr“.
isdagar á Reykjavíkursvæðinu
3.034 á 2. ársfjórðungi í ár, sam-
anborið við 2.340 í fyrra. Aukning-
in milli ára er því tæplega 30%.
Utan Reykjavíkursvæðisins voru
skráðir atvinnuleysisdagar 5.520
talsins, samanborið við 3.662 í
fyrra. Aukningin þar milli ára er
því tæplega 51 %.
Alls voru 395 skráðir atvinnu-
lausir í ár, samanborið við 277 á
sama tíma í fyrra, en atvinnuleys-
ið sem hlutfall af framboði vinnu-
afls í ár var 0,4%, samanborjð við
0,3% í fyrra.
að skipulagðar verði veiðar á sel
umhverfis allt land og ráðstafanir
gerðar til greiðslu veiðiverðlauna.
Norðlendingar benda á, að hring-
ormur hafi stóraukizt í fiski til
tjóns fyrir markaðsaðstöðu og
mikils kostnaðar fyrir fiskvinnslu.
Fleiri fiskideildir benda á sama
atriði og einnig, að selur éti mikið
af nytjafiski árlega. Fjórðungs-
þing Sunnlendinga leggur til að
áfram verði unnið markvisst að
fækkun sels við landið, en þess
verði gætt, að ekki hljótist um-
hverfisspjöll af. Framkvæmdin
verði falin ákveðnum aðilum,
svæðisbundið. Sunnlendingar
segja, að nauðsynlegt sé að gera
raunhæfar ráðstafanir til að nýta
selinn sem afurð og fullt tillit
verði tekið til hreinlætis og mann-
úðarsjónarmiða.
Fiskideildin í Vestmannaeyjum
styður viðleitni Hringormanefnd-
ar til að halda selastofninum við
strendur landsins innan þeirra
marka, sem faglegar rannsóknir
telja nauðsynlegar. Fiskideildin í
Reykjavík, Hafnarfirði og ná-
grenni þakkar störf Hringorma-
nefndar og hvetur eindregið til
áframhaldandi starfa á hennar
vegum til þess að halda selastofn-
inum ínnan hóflegra marka. Verði
áframhald á starfsemi nefndar-
innar treystir fundurinn því, að
sniðnir verði af vankantar sem
kunna að hafa komið í ljós á árinu
við fækkun sela.
14 til 17 þúsund
Islendingar
eru búsettir í
öðrum löndum
ALLS MUNU nú vera milli 14 og
17 þúsund Islendingar búsettir
erlendis, samkvæmt upplýsingum
er Morgunblaðið fékk hjá Hag-
stofu íslands. Þessar tölur eru
áætlunartölur, þar sem siðustu
nákvæmar tölur eru frá árslokum
1980. í þessum tölum er um að
ræða fólk, sem fætt er á Islandi,
en hefur búsetu í öðrum löndum,
án tillits til þess hvort fólkið hefur
fengið nýtt ríkisfang eða ekki.
Inni í heildartölunni, 14 til 17
þúsund manns, eru námsmenn
búsettir á hinum Norðurlönd-
unum, á annað þúsund manns
með skylduliði samkvæmt upp-
lýsingum Hagstofunnar, en
námsmenn í öðrum löndum eru
ekki á skrá yfir brottflutta,
heldur eru þeir inni í íbúafjölda
hérlendis.
Flestir íslendingar búa í
Bandaríkjunum, eða 4.000
manns. I Svíþjóð eru um 3.500,
3.000 í Danmörku, 1.500 í Noregi
og 1.000 í Kanada.
Útlán viðskiptabankanna í sept-
emberlok námu 8.185 milljónum
króna, en til samanburðar námu
þau 4.595 milljónum króna í sept-
Siglfirðing-
ar vilja fá
LTnPlvAw n f'l 111*
Atvinnuleysi hefur auk-
izt verulega milli ára
Um 52,8% fleiri atvinnulausir á 3. ársfjórðungi í ár, en í fyrra
SKRÁÐIR atvinnuleysisdagar á 3. ársfjórðungi voru 6.448 og hafði þeim
fjölgað um 2.218 frá sama tíma í fyrra, þegar þeir voru 4.230. Aukningin milli
ára er tæplega 52,5%.
Af skráðum atvinnuleysisdög-
um voru 2.451 á Reykjavíkursvæð-
inu, en voru 2.344 á sama tíma í
fyrra. Aukningin milli ára er lið-
lega 4,56%. Utan Reykjavíkur-
svæðisins voru skráðir atvinnu-
leysisdagar á 3. ársfjórðungi 3.997,
en voru til samanburðar 1.886 á
sama tíma í fyrra. Aukningin
milli ára er tæplega 112%.
Á 3. ársfjórðungi voru samtals
298 manns skráðir atvinnulausir,
en voru til samanburðar 195 á
'sama tíma í fyrra. Aukningin
milli ára er því liðlega 52,8%. At-
vinnuleysið, sem hlutfall af fram-
boði vinnuafls var á 3. ársfjórð-
ungi í ár 0,3%, en var til saman-
burðar 0,2% á sama tíma í fyrra.
Ef 2. ársfjórðungur er skoðaður
kemur í ljós, að skráðir atvinnu-
leysisdagar voru 8.554 í ár, sam-
anborið við 6.002 á sama tíma í
fyrra. Aukningin milli ára er því
liðlega 42,5%.
Þar af voru skráðir atvinnuleys-