Tíminn - 31.07.1965, Side 14
LAUGARDAGUR 31. júlí 1965
14
Friðmey Guðmundsdéttir
fædd 15. 2. 1908 — dáin 26.7. 1965
„Guð er eilíf ást,
engu hjarta er hætt.
Ríkir eilíf ást,
sérhvert böl skal bætt.
Lofið guð, sem gaf,
þakkið hjálp og hlíf.
Tæmt er húmsins haf,
allt er Ijós og lif.
(Stefán frá Hvítadal).
Jafn skjótt er ég í fyrsta sinn
hitti Fríðu hreifst ég af glað-
værð hennar og glæsibrag í
hvívetna. Sú hrifning hefur varað
frá fyrstu kynnum og þróastj ein-
læga vináttu okkar millum. Á þess
um árum kynntist ég mannkost
um Fríðu, tryggð hennar og höfð
ingslund, hugrekki og viljastyrk.
Hún var boðin og búin að gera
allt fyrir alla, enda flestir Akur
nesingar notið gestrisni hennar og
manns hennar, Magnúsar Gunn
laugssonar.
Fyrr en varði syrti að, hún var
tekin burt frá öllum ástvinum,
en þó er gott að vita að hún þarf
ekki að líða meira, vegna sjúk-
dóms þess er hún þjáðist af síð
ustu árin.
Á þeim árum er Fríða átti við
sinn sjúkdóm að stríða, sýndi
hún fádæma stillingu og hug-
rekki. Hún var eftir sem áður
hrókur alls fagnaðar. Engan
hefði grunað að hún ætti við dauð
ans kvöl að stríða. Við getum ekki
gert okkur grein fyrir því. En
meðan guð gaf henni þrótt, vildi
hún allt fyrir alla gera.
Við vitum ekki, né sjáum til-
gang þessa lífs. Kannski er eitt-
hvað handan landamæranna, sem
við verðum svo vör við.
Ég bið til guðs, að Fríða fái
að hljóta þá hvíld er hún á skilið
hjá drottni.
Guð veri með öllum ættingjum,
vinum og vandamönnum hennar
og styrki þá og styðji í þessari
þungu sorg.
Ármann Heiðar.
EINU ÁHYGGJURNAR
l'ramhald af 7. síðu
hverju kvöldi þurfti að vita
hvernig þetta stóð allt saman.
Ég man að þá kom maður hing
að til okkar og vildi kaupa hót
elið eða leigja það og taka okk
ur í vinnu. Við hugsuðum lengi
um þetta, og þá einkum um það
hvort hann hefði peninga í
þetta. Hann ætlaði þá að breyta
hérna heilmiklu og fá til þess
lán, en við hugsuðum sem
svo að ef hann gæti fengið lán,
þá gætum við líka fengið það.
Og það varð úr að við héldum
áfram og nú eru öll börnin,
tengdabörnin og barnabörnin
hérna í Reynihlíð ýmist við
búskap eða vinna við hótelið.
Þeta hefði allt tvístrast ef við
hefðum ekki haldið áfram með
hótelið því jarðnæði er hér
ekki mikið, og það er hægt að
lifa á fleiru en búskap hér í
Reynihlíð. Börnin hafa farið í
ýmsar áttir til að læra, en
alltaf komið hingað aftur, og
dettur ekki í hug að flytja héð
an. Þetta er allt í allt 19 manna
hópur þar af 10 barnabörn.
Fyrst þegar ég kom hingað
í Mývatnssveit, leiddist mér
það mikið að ég hugsaði sem
svo að ef ég dæi, vildi ég
ekki láta grafa mig hér, en
nú er ég orðinn reglulega
magnaður Mývetningur og
vildi hvergi hvílast nema hér.
— Og nú ertu hætt að
vinna á hótelinu eða hvað?
— Ja, ég er hætt að fara
JON 6YS I fclNSSON
Bpfrseðingur
ögfræðisl<^uoavegl 11
s>mi ? 1516
fyrst á fætur og síðust í rúm
ið á kvöldin og læsa öllum
dyrum, en ég sé um allan
bakstur fyrir hótelið, hef stór
an og góðan bökunarofn hér
inni og vélar til alls. Amþór
tengdasonur okkar er tekinn
við hótelstjóm, og ég fæ að
fylgjast með. Einu áhyggjurn
ar sem ég hafði fyrir ferða-
lagið var að fá einhvem í
baksturinn fyrir mig, því hann
er alls ekki svo lítill stundum,
eins og í síðustu viku þegar
ég bakaði upp úr heilum
hveitipoka á fjórum dögum.
— Og þú ert óhrædd að
leggja upp í langt ferðalag?
— Já, já, við fljúgum báð
ar leiðir, og ég hef töluvert
flogið hér innanlands með
honum Birni Pálssyni og
kynnzt þannig landinu vel úr
loftí. Það er aðeins eitt sem
ég hef sett sem skilyrði fyrir
þessu ferðalagi, og það er að
fá að fara í kirkju á afmælis
daginn, en þá verðum við að
öllum líkindum stödd í Kaup-
mannahöfn, og núna ætlum
við að bregða okkur í gufubað
ið hér fyrir ofan en þangað hef
ég oftast farið einu sinni í
viku á sumrin, og tel mig hafa
haft mikið gott af því.
____ K.
MÓT í VAGLASKÓGI
Framhald af 2. síðu
keppt í starfshlaupi og e.t.v.
í dráttarvélaakstri. Um
kvöldið verður svo kvöld-
vaka með ýmsum gaman-
þáttum og öðrum skemmti-
atriðum. Á mánudaginn
verður mótinu svo slitið.
NÚ META ÞEIR
Framhald af 16. síðu.
kvæði úr hinni umdeildu bók
skáldsins, Doktor Zhivago.
Ljóðin í Moskvu-útgáfuna
hefur sonur skáldsins, Jevgenij
valið, en formála skrifar skáld
ið og gagnrýnandinn Kornej
Tsjukovskij. Segir þar m. a.
að allt frá barnæsku hafi Past
ernak barizt fyrir hinum raun
verulega sannleika og hann
taldi það heilaga skyldu sína að
draga upp sem sannasta mynd
af lífinu.
Með þessum útgáfum má
segja, að Pasternak hafi endan
lega fengið uppreist í Sovét
ríkjunum.
ÞÓRSMÖRK
Framhald af 16. síðu.
landshlutum. Við verðum með
3 bíla á Vestfjörðum, einn
er viðgerðabíll, en tveir að
stoðar- og upplýsingabílar. Einn
verður frá Akureyri og annar
frá Húsavík. Á Austurlandi
verða tveir bílar, einn frá
Seyðisfirði, og hinn frá Norð
firði. Hér á Suðurlandi verða
nokkrir bílar, einn í Rangár-
vallasýslu, og annar verður
staðsettur á Kambabrún. Þá
er einn á Laugarvatni, bíll á
Þingvöllum, og bíll í Hval-
firði. Einn bíll verður fyrir
Borgarfjörðinn, og annar frá
Ólafsvík fyrir Snæfellsnesið.
— Ekki má gleyma hjól-
barðaviðgerðabílnum frá Hjól
barðaverkstæði Vesturbæjar,
sem er útbúinn með öllum
tækjum, auk þess sem hann
mun selja ný dekk. Hann verð
ur frá Þjórsá og vestur að
Stóru-Mörk. Annar hjólbarða
bíll verður við Þingvelli, en
hann mun aðeins gera við
dekk, og hann er eini bíllinn,
sem ekki hefur talstöð. Allir
hinir eru með talstöðvar.
— Sjúkrabíllinn okkar, sem
einnig verður upplýsingabill,
verður í kringum Stóru-Mörk,
og með honum verður ein bif
reið frá Hjálparsveit skáta.
— FÍB verður alls með 17
bíla á vegum landsins, og ferða
menn sem þurfa aðstoðar með
geta gert þrennt, í fyrsta lagi,
stöðvað bíla sem eru með tal
stöðvar, og beðið þá að kalla
í bíla FÍB í gegnum Gufunes
radíó, Akureyrar^ radíó,
eða Reyðarfj. radíó. Á Vest-
fjörðum má hafa samband við
Flateyri, Þingeyri eða Patreks
fjörð. Þá er hægt að hringja
frá símstöðum í fyrr nefnda
staði. f þriðja lagi, er hægt
að stöðva FÍB aðstoðarbíl, ef
hann ekur hjá.
— Við höfum miðað að því
að hafa mjög náið samstarf
við lögregluna, skátana, og
aðra sem vinna að því að ör-
yggi og lög ríki þar sem lands
menn munu fara um á næstu
þremur dögunum. Við viljum
biðja alla að sýna varkárni, og
taka tillit til FÍB bílanna, sem
annað hvort er að flytja slas
að fólk, eða veita biluðum bíl
aðstoð, það mun auðvelda starf
okkar mjög mikið sagði Magn
ús að lokum.
VIÐBÚNAÐUR
Framhald at 16. síðu.
Leiðir fer með um 200 manns
í ferðir um helgina, þar af
flesta í Þórsmörk. Þá fer Land
sýn með hópa í Þórsmörkina.
Ferðaskrifstofa ríkisins er
með margar ferðir um helgina,
að mestu fyrir útlendinga,
og allar eru þær einsdagsferð.
í dag fóru 100 manns að Gull-
fossi og Geysi. Á morgun,
laugardag, fara um 80 í Krísu
vík, og um 20—30 að Gullfossi
og Geysi. Á sunnudag fara
um 30 í Borgarfjarðarferð, og
30—40 í Þingvallaferð.
Þá fara ótal margir hópar
með langferðabílum í ferðir,
sem eru skipulagðar af fyrir-
tækjum og einstaklingum, og
þúsundir einkabíla munu
leggja leið sína um þjóðvegi
landsins. Helztu ákvörðunai
staðir virðast ætla að verða
Þingvellir, Húsafell, Borgar-
fjörðurinn og Laugarvatn.
KR VANN
f gærkvöldi léku Fram og KR
í íslandsmótinu í knattspyrnu.
KR sigraði með einu marki gegn
engu. — Markið skoraði Ellert
Schram úr vítaspyrnu í fyrri hálf
ieik.
Auglýsið í Tímanum
Aðalfuridur
Rauðakross íslands verður haldinn í Tjarnarbúð
uppi fimimtudaginn 9. september 1965 kl. 20.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Skrifstofustjóri
Opinber skrifstofa óskar eftir að ráða skrifstofu-
stjóra með góða starfsreynslu. Þeir, sem áhuga
hefðu á starfinu, vinsamlega sendi nafn sitt til
blaðsins, merkt „SKRIFSTOFUSTJÖRI“.
ÞAKKARÁVÖRP
Við þökkum
KAUPFÉLAGI VESTUR-HÚNVETNINGA
kærlega fyrir bifreið í tveggja daga skemmtiferð um
Snæfellsnes.
Konur úr Ytri-Torfustaðahreppi-
Maðurinn minn og faSir okkar
Kristinn Ingvarsson
organleikari
verSur jarSsunginn miðvikudaginn 4. ágúst, frá Laugarnesskirkju.
Athöfnin hefst kl. 1,30.
GuSrún Sigurðardóttir og dætur.
Blaðburðarbörn óskast
Blaðburðarbörn óskast til að bera blaðið til kaup-
enda við Háaleitisbraut.
Bankastræti 7 — sími 12323.