Morgunblaðið - 24.11.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 24.11.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1982 53 38 hjúkrunarfræðingar brautskráðir A liðnu hausti útskrifuðust 38 hjúkrunarfræðingar frá Hjúkrunarskóla ís lands. Þeir eru: 1. röð frá vinstri: Adda Tryggva- dóttir, Elín Sigurbjörnsdóttir, Lilja Sigríður Steingrímsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Erla Katharina Kjartansdóttir, Margrét Ásgeirsdóttir, Oddný Þorsteinsdóttir, Ingigerður Anna Konráðsdóttir, Guðrún Sigurjónsdóttir. 2. röð frá vinstri: Þóra Lárusdóttir, Margrét Þórðardóttir, Vera Björk Ein- arsdóttir, Þórgunnur Hjalta- dóttir, Kristín Pálsdóttir hjúkr- unarkennari, Þorbjörg Jónsdótt- ir skólastjóri, Katrín Pálsdóttir hjúkrunarkennari, Elínborg Guðjóna Sigurbjörnsdóttir, Jóndís Einarsdóttir, Hafrún Finnbogadóttir, Anna Día Brynjólfsdóttir. 3. röð frá vinstri: Erna Jóna Sigmundsdóttir, Guð- finna Jónsdóttir, Þórunn Mars- ilía Lárusdóttir, Ragna Ragnars, Þórunn Kristjánsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Rut Petersen, Selma Sigrún Gunnarsdóttir, Sigrún Óskarsdóttir, Anna Guð- ný Björnsdóttir, Hólmdís Hjartardóttir. 4. röð frá vinstri: Sesselja Bjarnadóttir, Guðjóna Sigríður Kristjánsdóttir, Asta Kristín Sæmundsdóttir, Þórunn Ragnarsdóttir, Ólafur Guð- brandsson, Ragnhildur Rós Indriðadóttir, Þórunn Kjart- ansdóttir, Árný Helgadóttir, Birna Hildur Bergsdóttir, Pálína Ása Ásgeirsdóttir. Egilsstaðir: Áhugamenn um iðnþróun þinga á Hallormsstað Jólabasar Vinahjálpar HINN árlegi jólabasar Vinahjálpar verður að Hótel Sögu sunnudaginn 28. nóvember og hefst kl. 2 e.h. Þar verða til sölu margir sérstæðir og fallegir munir, einnig verður happ- drætti með góðum vinningum. í félaginu Vinahjálp eru flestar sendiráðskonur hér í Reykjavík ásamt íslenskum konum. Vinna þær að allskonar handavinnu og halda síðan basar fyrir jólin. All- ur ágóðinn rennur síðan til hjálp- ar bömum, sem eru vangefin eða fötluð á einn eða annan hátt. Nokkrir muna þeirra, sem verða á basarnum, eru til sýnis í Spegla- búðinni á Laugavegi 15. Kgilsstöóum, 21. nóvember. f HAUST fól iðnaðarráðuneytið sam- starfsnefndinni um iðnráögjöf í landshlutunum að annast sérstakt iðnþróunarverkefni. Skyldi verkefni þetta fólgið í því að aðstöða þá ein- staklinga sem fúsir væru að stofna og þróa smáfyrirtæki í framleiðslu- iðnaði. Ákveðið var að aðstoðin skyldi fyrst og fremst fólgin í þvi að hjálpa væntanlegum þátttakendum við að athuga og gera sér grein fyrir hagrænum og tæknilegum forsend- um fyrirtækis þeirra. Samstarfsnefndin fékk síðan sænsk-norska ráðgjafarfyrirtækið Indevo til liðs við sig, en það fyrir- tæki hefur víðtæka og langa reynslu á þessu sviði. í október auglýsti samstarfsnefndin eftir þátttakendum og leituðu 135 ein- staklingar frekari upplýsinga, en 80 sóttu um þátttöku. Úr hópi um- sækjenda voru síðan valdir 22 ein- staklingar til þátttöku í verkefni þessu. Þeir þinguðu í fyrsta skipti nú um helgina á Hallormsstað, en skv. áætlun er gert ráð fyrir að verkefnið taki ár og þátttakendur hittist fjórum sinnum á þeim tíma — en hver og einn vinni að ákveðnu verkefni milli funda und- ir leiðsögn ákveðins leiðbeinanda. Á fundinum á Hallormsstað var fyrst og fremst fjallað um mark- aðshlið viðkomandi fyrirtækja og frekari vinna að markaðsmálum þeirra undirbúin, að sögn Hall- dórs Árnasonar, iðnráðgjafa, sem veitir verkefninu forstöðu. Að sögn Halldórs eru þátttakendur víðs vegar af landinu en nánari upplýsingar fengust ekki. Næsti fundur þátttakenda mun verða einhvers staðar á Vestur- landi að þrem mánuðum liðnum. Ólafur PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS 28.-29. 11. 1982 SKRIFSTOFA STUÐNINGSMANNA PÉTURS SIGURÐSSONAR SKIPHOLTI 31, GÖTUHÆÐ (Vestan við Tónabló) VERÐUR OPIN KL. 12 - 23 ALLA DAGA. SlMAR: 25217 OG 25292 Þýska bókasafnið — Goethe-lnstitut Svissneski ritöfundurinn Gerold Spáth les úr verkum sínum fimmtudaginn 25. nóvember 1982, kl. 20.30 í stofu 102, Lögbergi. Allir velkomnir. Lækningastofa mín opnar aftur mánudaginn 6. desember nk. Viö- talsbeiönum veitt móttaka í síma 86311. Birgir Guöjónsson, læknir, Læknastööinni hf., Glæsibæ. Hvaða rúmgóður luxusbíll eyðir aðeins 9 lítrum að meðaltali og kostar ekki nema kr. 188.900?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.