Morgunblaðið - 24.11.1982, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 24.11.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1982 65 Skiptar skoðanir um fyrirkomu- lag á viðhaldi skólamannvirkja Fr.v. Kristófer Kristinsson, Reykholti, Erlendur Halldórsson, Dal, Finnur Jónsson, Stykkishólmi, og Alexander Stefánsson alþingism. FRÆÐSLURÁÐ Vesturlands hefur gert að tillögu sinni við þingmenn kjördæmisins að þeir beiti sér fyrir því að rikið taki aftur við viðhaldi skóla- mannvirkja og annist það ásamt sveit- arfélögunum. í skýrslu fræðsluráðsins til aðalfundar Samtaka sveitarfélaga í Vesturlandskjördæmi segir sr. Jón Einarsson fráfarandi formaður ráðs- ins: „Viðhaldsmál skólamannvirkja hafa verið og eru verulegt áhyggju- efni fræðsluráðs. I skólaheimsókn- um hefur komið í ljós, að viðhaldi er mjög víða ábótavant og sums staðar Björn Friðfinnsson formaður Sambands ísl. sveitarfélaga: Sameining sveitarfélaga — eða þriðja stjórnsýslustigið í RÆÐU sinni á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga í Vesturlandskjördæmi fjallaði Björn Friðfinnsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, mikið um nauðsyn þess að sveitarfélög sameinuðust tii að vera í stakk búin til að taka við auknum verkefnum og kvað hann nokkuð fast að orði í því efni. Björn var að tala til sveitarstjórnarmanna á Vesturlandi en ræða hans á einnig fullt erindi til sveitarstjórnarmanna annars staðar á landinu og ekki síður til íbúa sveitarfélaganna sjálfra. Hér á eftir fer stuttur kafli úr ræðunni, en ræðuna nefndi hann „Sameining sveitarfélaga eða þriðja stjórnsýslustig- ið:“ „Hér á landi sjáum við nú fram á nokkra þróun til þriðja stjórn- sýslustigsins. Þannig eru komnar svæðisnefndir eða svæðisstjórnir, bæði hvað varðar málefni þroska- heftra og heilbrigðiseftirlit. í drögum að frumvarpi til nýrra iaga um vinnumiðlun er að finna ákvæði um slíkar svæðisnefndir og fleiri dæmi mætti nefna. Hér er um varhugaverða þróun að ræða fyrir sveitarfélögin. Verið er að setja á fót nefndir til þess að stýra mikilvægum málefnum, sem áður hafa heyrt beint undir sveit- arstjórnirnar. En fulltrúar í þess- um nefndum eru án þeirrar fjár- hagslegu ábyrgðar og yfirsýnar yfir málefni sveitarfélaganna í heild, sem fulltrúar í sveitar- stjórnum einir hafa. En ef koma á í veg fyrir slík fyrirbæri tel ég að aðeins sé um tvær leiðir að ræða. Annað hvort verður að styrkja sveitarfélögin með sameiningu þeirra eða snúa sér að því að taka upp þriðja stjórnsýlsustigið með lýðræðislega kjörnum fulltrúum og eigin tekjustofnum, þannig að kjósendur finni tengslin á milli veittrar þjónustu og skattbyrði. I þessu sambandi hefur bæði verið nefnt að styrkja sýslurnar og að formaður sýslunefndar sé þá lýðræðislega kjörinn eins og aðrir nefndarmenn. Einnig hefur verið rætt um að lögfesta landshluta- samtökin og fá þeim verkefni sem sveitarstjórnarumdæmi. Enn ein leiðin gæti verið að taka upp ömt á nýjan leik, en saga amtanna er enn óskráð hér á landi, þótt merk sé. Hún hófst árið 1688, er ömtin urðu stjórnsýsluumdæmi ríkisins. Ömtin urðu síðan sveitarstjórnar- umdæmi 1872, en voru lögð niður 1907. Mér er engin launung á því, að ég er hlynntari því að stjórnsýslu- stigin verði aðeins tvö, ríki og sveitarfélög, en það verður hins vegar einungis með styrkingu sveitarfélaganna. En ef ekki næst fram styrking sveitarfélaganna með sameiningu, þá tel ég heppi- legra að koma á fót þriðja stjórn- sýslustiginu en að fela ríkisvaid- inu eða nefndum án fjárhagslegr- ar ábyrgðar stöðugt fleiri verk- efni. Um þessi mál má lesa margt í álitsgerð verkaskiptanefndar ríkis og sveitarfélaga, sem birt var í Handbók sveitarstjórna nr. 16, og ætla ég ekki að fjölyrða nánar um þær upplýsingar, sem þar koma fram. En lítum nánar á ástandið hér í Vesturlandskjördæmi. í kjördæm- inu bjuggu alls 14.987 íbúar hinn 1. desember sl. Þar af bjuggu 5.267 íbúar á Akranesi. í Borgarfjarð- arsýslu bjuggu 1.460 íbúar í níu hreppum, og búa 315 íbúar í fjöl- mennasta hreppnum, en 67 í þeim fámennasta, þ.e. enginn þeirra nær viðmiðun Grágásarlaga. í Mýrasýsiu bjuggu 2.549 íbúar, þar af 1.655 í Borgarnesi. í hinum 7 hreppunum bjuggu frá 83 upp í 188 íbúar, þ.e. langt neðan við framangreinda viðmiðun. í Snæ- fells- og Hnappadalssýslu bjuggu 4.610 íbúar, þar af 1.233 í Stykk- ishólmi, 1.197 í Ólafsvík, 729 í Eyr- arsveit og 596 í Neshreppi utan Ennis. í hinum 8 hreppum sýslu: nnar eru frá 27 til 150 íbúar. í Dalasýslu bjuggu 1.101 íbúi, þar af 437 í Laxárdalshreppi, en frá 30 til 145 í hinum 8 hreppum sýslunnar. Mér er það ljóst, að forn hreppaskipan á fastan sess í hug- um fólks og færa má þau rök fyrir fámennum hreppum, að stjórn- sýsla þeirra sé ódýr og lýðræðis- leg. En á móti bendi ég á vanmátt slíkra sveitarfélaga til þess að valda auknum verkefnum og bættri þjónustu við þegnana, ég bendi á þróun í átt til ólýðræðis- legs millistigs í stjórnsýslunni og aukinna umsvifa ríkisins á kostn- að sveitarfélaganna. Ég bið ykkur því að íhuga nú alvarlega möguleika á styrkingu sveitarfélaganna í þessu kjördæmi með því að sameina þau í styrkari einingar, sem liggja saman hvað snertir samgöngur og ýmsa fé- lags- og menningarlega þjónustu. Nú kann einhver að segja, að eggið sé farið að kenna hænunni, þegar Samband íslenskra sveitarfélaga eða formaður þess er farinn að hvetja til fækkunar sveitarfélaga. En því geri ég þetta, að ég óttast að ella muni þýðing sveitarfélag- anna fara minnkandi í þjóðfélag- inu og verkefni þeirra falla í ann- arra hendur. Það er þróun, sem ég tel mikilvægast að sporna gegn,“ sagði Björn Friðfinnsson. eru greinilega verulegir gallar á til- tölulega nýlegum byggingum, sem kostnaðarsamt verður að lagfæra, svo að viðunandi sé. Bolmagn sveit- arfélaga til þess að annast þennan mikilvæga þátt virðist mjög tak- markað og því miðar í þessu efni í öfuga átt, þrátt fyrir það að útgjöld vegna grunnskóla séu í mörgum sveitarfélögum langstærsti útgjaldaliðurinn. Einkum á þetta við um þau sveitarfélög, sem auk kennsluhúsnæðis þurfa að standa straum af kostnaði við mötuneyti og heimavistaraðstöðu og auk þess kennarabústaði. Stefnir þarna í mjög mikið óefni, ef ekki er að gert. Getur víða komið til fjárfrekrar endurbyggingar, eða endurnýjunar eldra húsnæðis, ef svo fer fram sem horfir. Kostnaður við slíkar aðgerðir kemur til með að , lenda að verulegu leyti á ríkissjóði. Því er eðlilegt, að spurt sé, hvort ekki sé heppilegra að breyta núgild- andi ákvæðum þannig, að ríki og sveitarfélög, sem sameiginlega eiga þessi mannvirki, standi sameigin- lega að viðhaldi þeirra. Sýnist það koma í einn stað niður fjárhagslega fyrir ríkissjóð, en geta hindrað, að húsin drabbist niður frekar en þeg- ar er orðið. Fræðsluráð telur að breyta eigi lögum til fyrri vegar hið fyrsta Ekki eru allir á eitt sáttir um að hafa þennan hátt á sem fræðsluráð- ið gerði að tillögu sinni. Sturla Böðvarsson fráfarandi formaður Samtaka sveitarfélaga í Vestur- landskjördæmi sagði í skýrslu sinni til aðalfundarins um þessa ályktun fræðsluráðsins: „Hér gætir mikils misskilnings og væri eðlilegra, að aðfinnslur bærust einstökum sveitarstjórnum áður en þess er krafist, að verkefnið sé tekið úr höndum sveitarfélaganna. Með þessari ályktun fræðsluráðs er gengið þvert á þá stefnu, að verkaskipting milli ríkis og sveitar- félaga sé skýr. Hins vegar er það ljóst, að sveit- arfélögin hafa ekki nægar tekjur til þess að sinna öllum þeim verkefn- um, sem þeim er ætlað. Sú lausn sem fræðsluráð leggur til er að mínu mati ekki líkleg til þess að tryggja fullnægjandi viðhald skóla- mannvirkja." HBj. „Harður byggðastefnumaöur“ „Mér líst ágætlega á þetta, ég hef starfað lengi að bæjarstjórn- armálum á Akranesi og hef nýlega hafið mitt þriðja kjörtímabil í bæj- arstjórninni. Það verður síðan að koma í Ijós hvað maður getur fórn- að sér mikið fyrir þetta,“ sagði Hörður Pálsson bæjarstjórnarmað- ur á Akranesi í samtali við Mbl., að loknum aðalfundi Samtaka sveitarfélaga í Vesturlandskjör- dæmi, en þar var Hörður kosinn formaður samtakanna. Hörður sagði einnig: „Þetta er mjög fjölþætt og krefjandi starf og ég geri mér grein fyrir van- mætti mínum en mun gera mitt besta til að þoka málum áfram. Þetta eru ágætis menn sem eru þarna með mér í stjórn og efast ég ekki um að gott samstarf tak- ist í stjórninni. Ég vil geta þess að ég tel að fráfarandi formaður, Sturla Böðvarsson sveitarstjóri í Stykkishólmi, hafi staðið sig mjög vel. Hann þekkir orðið sér- staklega vel til þessara mála í gegnum starf sitt sem sveitar- stjóri og í hinum ýmsu nefndum um sveitarstjórnarmálefni." — Hver verða helstu við- fangsefni SSVK á næstunni? — segir Hörður Pálsson ný- kjörinn for- maður SSVK „Við munum vinna að þeim málum sem verið hafa í gangi undanfarin ár m.a. við að þrýsta á stjórnvöld að gleyma ekki landsbyggðinni. Vegamálin hafa alla tíð frá stofnun Samtakanna verið ofarlega á baugi og þar tel ég að þeim hafi orðið talsvert ágengt. Iðnráðgjafinn hefur ver- ið að ferðast um kjördæmið og athuga hvar hægt er að fitja upp á einhverju nýju. í haust var svo haldin iðnráðstefna á Akranesi, sem tókst vel að mínu mati og verður á næstunni unnið úr því sem þar kom fram en þetta starf iðnráðgjafans er allt í mótun. Við ráðningu hans og umræður um iðnþróun hefur fólk áttað sig á að ýmislegt er hægt að gera og er það vel. Væntanlega mun þetta starf skila áþreifanlegum árangri á næstunni. SSVK hefur látið fræðslumál mikið til sín taka m.a. varðandi Fjölbrauta- skólann á Akranesi og eiga sum sveitarfélögin nú þegar aðild að honum. Annars láta samtökin alltaf öll mál til sín taka sem ofarlega eru á baugi hverju sinni. Þau afla upplýsinga og kynna málin fyrir sveitarstjórnunum." — Sameining sveitarfélaga var nokkuð rædd á aðalfundin- um. „Já, það gera sér allir grein fyrir því að mjög æskilegt er að smæstu sveitarfélögin sameinist en þegar til hefur átt að taka hefur það reynst mjög örðugt því margir hafa talið sál sína í veði við sameiningu. Það er búið að ræða þessi mál lengi en alltaf strandar á því að ekki hefur ver- ið sett löggjöf um skyldu sveitar- félaganna til að sameinast. Á meðan þetta verður ekki lögfest gerist ekkert þó allir sjái nauð- synina. Eitt, sem hefur hindrað þetta, er það að sveitarfélögin eru misjafnlega vel stæð fjár- hagslega og hafa menn ekki komið sér saman um hvernig á að leysa þau mál. Ég segi eins og er að það virðist ekki vera í sjón- máli að þessi mál leysist." — Á fundinum var einnig rætt talsvert um byggðastefn- una svokölluðu. Hvaða skoðun hefur þú á því máli? „Ég er mjög harður byggða- stefnumaður, ég tel að það þurfi að halda byggðastefnunni mjög á lofti. Það er mjög brýnt fyrir landsbyggðina að hafa mikla byggðastefnu. Það er vitað mál að við höldum engu fólki úti á landi ef þar eru einungis frum- vinnslugreinarnar fyrir hendi. Fleira verður að vera til staðar en þessir einhæfu atvinnuvegir, þar á ég t.d. við mikilvægi góðra vega og félagslegrar aðstöðu. Ég vil segja það að lokum," sagði Hörður Pálsson, „að ég hlakka til að takast á við þessi verkefni, það er mjög fjölþætt starf sem samtökunum er ætlað að vinna og horfi ég vel til þess að það takist sem best með sam- hentri stjórn og dugandi fram- kvæmdastjóra, sem Guðjón Ingvi Stefánsson er.“ HBj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.