Morgunblaðið - 24.11.1982, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.11.1982, Blaðsíða 14
62 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1982 VIÐSKIPTI VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF SIGHVATUR BLÖNDAHL Ávísanavidskipti hafa aukizt um 62 prósent milli ára Ávísanaviðskipti jukust um liðlega 62% fyrstu níu mánuð- ina í ár, en þau námu samtals 45.194 milljónum króna, sam- Stálút- flutningur Japan eykst Stálútflutningiir Japana jókst um 1,7% milli mánaðanna ágúst og september sl., eða úr 2,41 milljón tonna í 2,45 milljónir tonna, en milli mánaðanna júlí og ágúst sl. dróst útflutningur- inn saman um 0,4%, eða úr 2,45 milljónum tonna. Verðmæti stálútflutningsins í september er 1,26 milljarðar dollara, sem er 1,6% verð- mætaaukning frá ágústmán- uði, en hins vegar er um að ræða 15,4% samdrátt frá sama tíma á síðasta ári, þegar verðmæti stálútflutnings Jap- ana var 1,49 milljarðar doll- ara. anborið við 27.874 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Mánaðarmeöaltal var um 5.022 milljónir í ár, samanborið við 3.097 milljónir króna í fyrra. Fjöldi ávísana í ár er liðlega 8.112.000, samanborið við um 6.909.000 á sama tíma í fyrra. Þeim hefur því fjölgað um 17,40% milli ára. í september- mánuði sl. var fjöldi ávísana um 959.000, en til samanburðar var fjöldi þeirra í september á liðnu ári um 843.000. Aukningin milli ára er því liðlega 13,76%. Meðalupphæð ávísana fyrstu níu mánuðina í ár er 5.571 króna, en á sama tíma í fyrra var með- alupphæðin 4.034 krónur. Meðal- upphæðin hefur því hækkað um 38,10% milli ára. Hins vegar var meðalupphæð ávísana í sept- embermánuði sl. 6.379 krónur, en meðalupphæðin var 4.381 króna í september á liðnu ári. Þar hefur meðalupphæðin hækkað um 45,61%, eða nokkuð undir verðlagsbreytingum, sem eru vel yfir 50% á þessu tímabili. Norskur iðnaður: Samkeppnishæfnin hefur versnað um 29% frá 1970 4,5% á þessu ári Versnar um 4,0 Samkeppnishæfni norsks iðnaðar hefur versnað um 4,0—4,5% á þessu ári og hefðu ekki komið til gengis- breytingar í ágúst og september, hefði samkeppnisstaðan versnað um liðlega 6%, að sögn Thorvald Moe, fjármálaráðherra Noregs. Ráðherrann sagði, að meiri launahækkanir en í samkeppnis- Iöndunum, minni breytingar til meiri framleiðni og gengisþróunin væru helztu ástæður þess, að sam- keppnisstaða norska iðnaðarins hefur versnað um nálægt 29% á árabilinu 1970—1982. Það kom ennfremur fram hjá ráðherranum, að þessi þróun á samkeppnishæfni iðnaðarins hefði ótvírætt komið fram í auknu at- vinnuleysi og bendir hann í því sambandi á, að atvinnuleysi sem hlutfall af mannafla verðúr trú- lega á bilinu 2,2—2,5% í ár, en til samanburðar var það um 1,7% í fyrra. Þetta eru þó mun lægri töl- ur en þekkjast hjá hinum vest- rænu iðnríkjum. Thorvald Moe sagði ennfremur, að það væri norskum iðnaði bráð- nauðsynlegt, að auka framleiðni sína og hagræða á öllum sviðum eftir mætti. Til að hjálpa upp á sakirnar hefur norska ríkisstjórn- in greitt um 342 milljónir dollara úr ríkissjóði til ýmiss konar styrktar- og hagræðiaðgerða í norskum iðnaði í ár, en það jafn- gildir um 5.523 milljónum ís- lenzkra króna. Fjárfesting hefur dregizt veru- lega saman í Noregi á þessu ári almennt, eða um 18,4%. Ráðherr- ann sagði, að samdráttur í fjár- festingu í iðnaði væri jafnvel enn minni. Þá er gert ráð fyrir, að fjárfesting dragist saman um allt að 17% á næsta ári. Ný þjónusta Eimskips — sækja vöruna til sendanda í Bretlandi: „Þjónustan verður betri og í flestum tilfellum ódýrari“ — segir John D. Howell, starfs- maður Eimskips í Felixstowe „VIÐ höfum orðið varir við stóraukinn áhuga viðskipta- vina okkar á þessum flutn- ingsmáta og því var ákveðið, að hefja þessa þjónustu,“ sagði John D. Howell, starfs- maður MGM, umboðsmanna Eimskipafélags íslands í Bretlandi, í samtali við Mbl., er hann var inntur eftir þeirri nýjung, sem nú er boðinn, þ.e. að sækja vöruna til send- anda, en það er svokallaður „Ex Factory“-fIutningsmáti. „Við höfum skipt Bretlandi niður í fimm svæði, eftir því hversu nálægt þau eru alfaraleið. Við gerum síðan viðskiptavinum okkar tilboð í þessa flutninga eft- ir stöðu þeirra í landinu," sagði John D. Howell. „Það sem við í raun gerum er að nýta flutningabílana, sem fara hlaðnir vörum út frá Felixstowe, sem er ein mesta flutningahöfn Bretlands, en þeir koma flestir tómir til baka. Það er því hægt að semja við flutningafyrirtækin um mun lægra verð en ella, sem kem- ur síðan viðskiptavinum félagsins til góða,“ sagði John D. Howell ennfremur. Tryggið þið ódýrari flutning með þessu móti? „Við erum fullvissir um að þessi flutningsmáti er töluvert hagkvæmari, þegar um stærri sendingar og rúmfrekari er að ræða. Hins vegar bendum við viðskiptavinum okkar á, sem eru með litlar sendingar, að nýta sér þá möguleika, sem fyrir hendi voru, þ.e. annað hvort koma vör- unni til Felixstowe eða Weston Point, þar sem þeim er skipað út, eða þá á eitthvern þeirra fjögurra umhleðslustaða, sem félagið er með og vörur eru sóttar til reglu- lega," sagði John D. Howell. Nánar um fyrirkomulagið í dag, sagöi John D. Howell, að út- flutningshafnir Eimskips væru tvær, þ.e. Felixstowe, en þaðan eru vikulegar ferðir og síðan Weston Point, en þaðan eru ferð- ir á tveggja vikna fresti. „Síðan eru við með nokkurs konar „Depo“, eða umhleðslustaði í Leeds, Birmingham, London og Hull. Viðskipavinir okkar geta sent vörur sína á þessa umhleðslustaði, en þangað eru þær sóttar vikulega. Þetta kerfi hefur í raun gefið mun betri raun en við þorðum að vona, þegar því var komið á á sínum tíma. Kerfið virkar þannig, að þær vörur, sem komnar eru á umhleðslustað fyrir klukkan 16.00 á föstudögum, komast í skip í Felixstowe á John D. Howell l.jósmynd Mbl. RAX. mánudegi," sagði John D. Howell. Aðspurður um flutninga Eim- skips frá Bretlandi sagði John D. Howell, að þeir væru nokkuð svipaðir milli ára, sveiflur væru kannski upp í 15% milli ára, til eða frá. „Staða brezka pundsins hefur líka verið íslendingum fremur óhagstæð undanfarin ár, þannig að viðskipti hafa kannski ekki aukizt, eins og mögulegt hefði verið." Aðspurður um hvort þessi nýja þjónusta myndi hugsanlega auka flutninga félagsins sagði John D. Howel: „Ég á ekki von á því, en hins vegar mun hún gera þjón- ustuna betri og í flestum tilfell- um ódýrari, sem er einmitt höf- uðmarkmið okkar með þessu,“ sagði John D. Howell að síðustu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.