Morgunblaðið - 24.11.1982, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 24.11.1982, Blaðsíða 30
78 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1982 Kórstjórn verði viður- kennd sem kennsla Á myndinni eru frá vinstri: Hjörleifur Gunnarsson, Rósar Eggertsson, Gylfi Pálsson, Birgir J. Jóhannsson, formaður Landssambands stangaveiðifélaga, Sigurður Pálsson og Karl ómar Jónsson. I.jósm. Mbl. KÖE 32. aðalfundur Landssambands stangaveiðifélaga: Nausynlegt að hefja viðræður um að hætta laxveiðum í sjó MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Lands- sambandi stangaveiðifélaga, en þar er greint frá aðalfundi landssambands- ins, sem haldinn var nýlega. Stjórn sambandsins hélt blaðamannafund að loknum aöalfundinum, þar sem greint var frá fundinum. Fréttatilkynningin er svohljóðandi: Aðalfundur Tónmenntakennara- félags íslands var haldinn í Austur- bæjarskólanum 16. október ’82. Akveðið var á fundinum að ítreka ályktun frá síðasta aðalfundi, en hún var á þessa leið: „Aðalfundur Tónmenntakenn- arafélags íslands haldinn í Voga- skóla 3. okt. ’81 skorar á Kennara- samband Islands að vinna að því í komandi samningum að kórstjórn og kórþjálfun verði viðurkennd sem kennsla, og að gert verði ráð fyrir kórstarfi í áætlun um rekstr- arkostnað fyrir grunnskóla." Tónmenntakennarar hafa lengi barist fyrir því að kórþjálfun verði viðurkennd sem kennsla, en mætt litlum skilningi. Hefur verið vísað til félagsmálakvóta skól- anna og greiðslur miðast við störf, sem krefjast miklum mun minni ur.dirbúnings og sérfræðiþekk- ingar en kórstjórn gerir. Undir- búningur fyrir kórstjórn byggist m.a. á samantekt og öflun náms- efnis, þar sem sáralítið hefur komið út af slíku efni fyrir ís- lenska skólakóra. Með kórstarfinu er í flestum tilvikum stefnt að því, að kórinn komi fram opinberlega í nafni skólans, t.d. á hátíðum, skólaskemmtunum, tónleikum eða kóramótum, en slíkt starf kostar Hlé á Nígeríuflugi vegna skoöunar á Flugleiðaþotunni „ÞAÐ er ekki rétt að við séum að hætta þessu flugi í Nígeríu. Hið rétta er að flugvélin sem er í flugi þar kemur heim til skoðunar og eðlilegs viðhalds 27. nóvember næstkom- andi. Hún fer svo aftur niður til Níg- eríu 15. desember,” sagði Björn Theodórsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Flugleiða, í gær en sá kvittur var á kreiki að sá aðili í Níg- eríu, sem Flugleiðir hafa flogið fyrir, hafi sagt upp samningum við félagið og stöðvun á fluginu stæði fyrir dyr- um. Björn Theodórsson sagði að fyrirhugað væri áframhaldandi flug í Nígeríu í vetur samkvæmt samningi sem næði til lengri tíma. Flugið hefði gengið eðlilega fram að þessu og hefði sá aðili, sem flogið væri fyrir, viljað ljúka skoð- uninni af þótt boðin hefði verið annar skoðunartími og hann talið sig geta komist af þann tíma sem vélin væri frá. Sagði Björn að áhafnir þær sem staðsettar væru í Nígeríu kæmu heim með flugvélinni en færu aft- ur 15. desember. ótrúlega mikinn undirbúning af hendi kórstjórans til að sá list- ræni árangur náist, sem stefnt er að. Auk þess þurfa söngstjóri og kórfélagar oft að koma fram á stórhátíðum þegar aðrir kennarar og nemendur eru í fríi. Að lokum má benda á, að fjöldi þátttakenda í kórstarfi er meiri en nemenda- fjöldi í venjulegri bekkjardeild, oftast um 40—50 nemendur eða fleiri, t.d. í fjölmennum skólum þar sem fleiri skólakórar en einn eru starfandi. Af ofanskráðu sést, að kórþjálf- un er talsvert viðameira starf en almenn félagsstörf í skólum, jafn- vel meira krefjandi en venjuleg tónmenntakennsla og telja tón- menntakennarar því að einungis séu gerðar lágmarkskröfur þegar farið er fram á að þetta starf verði viðurkennt sem kennsla. (FrétUtilkynninf;.) Sjálfsmynd Kjarvals, sem nú hefur verið gert kort eftir. Litbrá: Gefur út kort með Kjar- valsmyndum Offsetprentsmiðjan Litbrá hefur gefið út kort eftir þremur málverk- um Kjarvals og einni kritarmynd, sem er sjálfsmynd og gerð árið 1920. Málverkin eru „Snjór og gjá“, málað 1954, „Bleikdalsá", málað 1967 og „Fyrstu snjóar", málað 1953. Kortin eru litgreind af Prent- myndastofunni eftir litljósmynd- um sem Rafn Hafnfjörð ljósmynd- ari tók af málverkunum. Kortin eru prentuð í offsetprentsmiðj- unni Litbrá. Þrítugasti og annar aðalfundur Landssambands stangaveiðifélaga var haldinn á Akureyri 23. og 24. október 1982. Fundinn sátu 65 fulltrúar frá 12 aðildarfélögum en 24 félög eiga aðild að sambandinu. Formaður LS, Birgir J. Jóhann- esson, flutti skýrslu stjórnarinnar fyrir liðið starfsár. í upphafi máls síns minntist formaður Jakobs V. Hafstein, sem var varaformaður Landssambands stangaveiðifélaga 1968—1970. í skýrslunni var skýrt frá samskiptum LS og Könnunar- nefndar úthafsveiða á laxi og niðurstöður nefndarinnar raktar. Þá var einnig skýrt frá ráðstefnu um verndun lax í Norður-Atl- antshafi, sem haldin var í Reykja- vík 18,—22. jan. sl. og gerð var grein fyrir niðurstöðum ráð- stefnunnar. Einnig var fjallað um endurskoðun lax- og silungs- veiðilöggjafarinnar, sótthreinsun veiðitækja, sem veiðimenn koma með til landsins, hert eftirlit vegna ólöglegra veiða í veiðiám og við ósa þeirra og um fræðslu með- al unglinga sem hafa áhuga á lax- og silungsveiði. Gestir fundarins voru Þór Guð- jónsson veiðimálastjóri, Gunnar G. Schram prófessor og Vigfús Jónsson stjórnarmaður í Lands- sambandi veiðifélaga. Tvö fram- söguerindi voru flutt á fundinum af Þór Guðjónssyni og dr. Gunnari G. Schram prófessor. í erindi sínu á þinginu vék Gunnar G. Schram prófessors sér- staklega að hinum nýju ákvæðum Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna um laxveiðar í sjó. í 66. gr. hans er að finna merk ákvæði og nýmæli, sem munu geta komið Islendingum að gagni í baráttunni gegn því að íslenski laxastofninn sé veiddur á úthafinu eða innan efnahagslögsögu Færeyja og Grænlands. í fyrsta lagi leggur sáttmálinn bann við laxveiðum utan efna- hagslögsögu ríkja almennt séð. í öðru lagi heimilar hann uppruna- ríki laxastofnsins að setja heild- arkvóta eða veiðitakmarkanir á afla annarra ríkja. Getur upp- runaríkið jafnvel bannað allar laxveiðar erlendra ríkja á þessum grundvelli í sjó, ef nauðsyn krefur. Með þessu er fengin viðurkenning á því að fé og fyrirhöfn kostar að ala upp laxastofna og því er í fyllsta máta óeðlilegt að önnur ríki hirði afraksturinn af því mikla starfi. Fram til þessa hefur skort slík ákvæði í alþjóðalög og verður hér því um mikla bragarbót að ræða, þegar sáttmálinn tekur gildi. Jafnframt er nausynlegt fyrir ís- lendinga, að áliti dr. Gunnars, að hafa nána samvinnu við aðrar þjóðir við Norður-Atlantshaf, sem rækta lax í ám sínum eða stunda hafbeit, um setningu heildarkvóta á laxveiðar erlendra ríkja utan landhelginnar svo vernd laxa- stofnanna verði sem best tryggð. Þessar ráðstafanir og samvinna eru raunar forsenda fyrir því að íslenskar ár verði áfram paradís stangaveiðimannsins og hafbeit á íslandi eigi nokkra framtíð fyrir sér, sagði Gunnar. Þá flutti Vigfús Jónsson frá Laxamýri kveðju félags síns og kom þar fram meðal annars að ís- lenskir stangaveiðimenn eru bestu viðskiptavinir veiðiréttareigenda. Nokkrar umræður urðu um skýrslur, tillögur og reikninga en að þeim loknum voru eftirfarandi tillögur frá stjórn LS samþykktar einróma. Tillaga 1: Aðaifundur LS hald- inn á Akureyri 23. og 24. október 1982 ítrekar áskorun sína til stjórnvalda um stóraukin fjár- framlög til rannsókna á lífi og göngum islenska laxastofnsins vegna þess að enn í ár hefur veiði farið minnkandi í íslenskum veiði- ám. Þá ber brýna nauðsyn til að hefja nú þegar viðræður við Fær- eyinga og aðrar þjóðir, um að þær leggi niður í áföngum laxveiðar í sjó utan 12 mílna landhelgi. Ný- afstaðnar samþykktir alþjóðaráð- stefnunnar um laxveiði í Atl- antshafi, sem haldin var í Reykja- vík 18.—22. jan. sl. og 66. gr. al- þjóðahafréttarsáttmálans gefa til- efni til að vænta megi árangurs í þeim viðræðum. Tillaga 2: Aðalfundur LS hald- inn á Akureyri 23. og 24. október 1982 leggur til við stjórnvöld vegna hættu á útbreiðslu fisk- sjúkdóma til íslands, að keyptir verði fimm gasskápar til sótt- hreinsunar á veiðitækjum og þeir staðsettir á Keflavíkurflugvelli, Reykjavíkurflugvelli, Akureyrar- flugvelli og við Seyðisfjarðarhöfn og Reykjavíkurhöfn. Tillaga 3: Aðalfundur LS hald- inn á Akureyri 23. og 24. október 1982 skorar á stjórnvöld að efla eftirlit vegna ólöglegra veiða við ósa og í veiðiám, herða eftirlit og hækka fésektir. Nánara samstarfi verði komið á milli eftirlitsmanna, veiðifélaga og lögregluyfirvalda i hverju um- dæmi. Landhelgisgæslan auki vörslu með ströndum fram og á ósasvæð- um. Fulltrúar LS í Nordisk Sport- fisker Union (NSU) eru Gylfi Pálsson og Karl Ómar Jónsson og sóttu þeir fund NSU í Helsinki 19. og 20. júní sl. Þar skýrðu þeir með- al annars frá hugmynd Jóns Her- mannssonar kvikmyndagerðar- manns um gerð heimildarkvik- myndar um laxveiðar í sjó, sem öll aðildarríki NSU tækju þátt í. Einnig skýrðu þeir frá niðurstöð- um alþjóðaráðstefnunnar um verndun lax í Norður-Atlantshafi, sem haldin var í Reykjavík 18,—22. jan. sl. Á síðastliðnu ári efndi LS til happdrættis sem Eyþór Sig- mundsson og Svavar Gests sáu um. Vinningar voru veiðileyfi í lax- og silugsveiðivötnum víðsveg- ar um landið, sem gefin voru af stangaveiðifélögum og veiðiréttar- eigendum. Birgir J. Jóhannsson, sem var formaður LS síðastliðið starfsár, var endurkjörinn en aðrir í stjórn eru Gylfi Pálsson, Mosfellssveit, varaformaður, Rósar Eggertsson, Reykjavík, ritari, Sigurður ívar Sigurðsson, Hafnarfirði, gjald- keri, og Sigurður Pálsson, Kefla- vík, meðstjórnandi. Varamenn í stjórn eru Karl Ómar Jónsson, Reykjavík, Tómas Runólfsson, Akranesi, og Matthías Einarsson, Akureyri. SINDRA STALHE Fyrirligqjandi í birgðastöð PRÓFÍLPÍPUR ni ini ii—M—i i-i i—i m c=ii=i trnD □ czzzic Fjölmargir sverleikar. Borgartúni 31 sími27222

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.