Morgunblaðið - 13.01.1983, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1983
17
Frosti Gunnarsson verkstjóri við stjórntöfluna. MorgunblaðiJ/Úlfar.
Súðavík:
Fullkomin rækjuverk-
smiðja tekin til starfa
NÝLEGA Dutti fyrirtækið Frosti hf.
rækjuverksmiðju sina frá Langeyri og
inn í Súðavík. Hefur nær allur búnaður
verið endurnýjaður og eru tæki, inn-
réttingar og vélar keypt frá fyrirtækinu
Matcon í Danmörku.
Sævar Birgisson, sem hefur unnið
að uppsetningu tækjanna, og Börkur
Ákason, framkvæmdastjóri Frosta
Konur að störfum
hf. vísaði á, sagði í samtali við Mbl:
„Rækjan er flutt í kössum frá bátun-
um og hún losuð í stórt vatnsker,
þaðan er henni dælt í vatni í gegnum
rör inn í pillunarvélarnar þar sem
hún er pilluð. Þá næst í gegnum
sjálfvirkan blásturhreinsara og síð-
an út á færiband þar sem fínhreins-
un fer fram í höndunum. Rækjan fer
þaðan í saltpækil og síðan dælt
áfram inn á færiband sem flytur
hana í lausfrystingu. Þá er rækjunni
pakkað í höndunum og hún vigtuð í
höndunum og hún síðan færð niður í
frystiklefa í lyftu.
Úr stjórnklefa verkstjórans er
hægt að stjórna öllum færiböndum
og vélum, en þær eru sjálfvirkar og
er það aðeins fínhreinsun og vigtun
sem unnin er í höndunum. Millivegg-
ir eru allir úr gleri svo hægt er að
fylgjast með öllu úr stjórnklefa.
Hávaði er dempaður með hljóðein-
angrandi glerveggjum milli vélasal-
ar og starfsfólks.
Sennilega er það þó flutningskerf-
ið sem mestri byltingu veldur en
rækjunni er dælt í vatni um húsið
þvert og endilangt og er það algjör
nýjung,“ sagði Sævar.
Unga konu á þíng
— eftir Jónínu
Ingólfsdóttur,
Ijósmóður, Akranesi
PKÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins
í Vesturlandskjördæmi fer fram
um næstu helgi. Þá gefst sjálf-
stæðismönnum og öðrum stuðn-
ingsmönnum flokksins tækifæri
til að tryggja ungri konu setu á
Alþingi Islendinga næsta kjör-
tímahil. Inga Jóna Þórðardóttir,
viðskiptafræðingur, á Akranesi er
í framboði. Hún hefur til að bera
hæfileika sem nauðsynlegir eru til
að geta unnið kjördæminu og
landinu í heild gagn á viðsjálum
tímum sem framundan eru hjá
þjóðinni.
Vegna dugnaðar síns og at-
orku var henni falið að gegna
starfi framkvæmdastjóra
fræðslu- og útbreiðslumála
Sjálfstæðisflokksins og á und-
anförnum árum hefur hún
gegnt fjölmörgum trúnaðar-
störfum fyrir flokkinn jafnt
innan kjördæmisins sem utan. í
starfi sínu hefur hún m.a. ferð-
ast um allt land og heimsótt
sjálfstæðismean og miðlað
þeim af krafti sínum og þekk-
ingu sinni á stjórnmálum.
Inga Jóna hefur aflað sér
staðgóðrar þekkingar á at-
vinnulífi þjóðarinnar. Hún er
dóttir þekkts skipstjóra hér á
Akranesi og síðar útgerðar-
manns og hefur tekið þátt í
Inga Jóna Þórðardóttir
störfum tengdum sjávarútvegi.
Hún starfaði einnig hjá
skipasmíðastöð Þorgeirs & Ell-
erts hf. sem innkaupastjóri og
fjallaði lokaverkefni hennar í
námi um innlendar skipasmíð-
ar. Auk þessa hefur hún góða
þekkingu á menntamálum
vegna reynslu sinnar sem kenn-
ari við Fjölbrautaskólann hér á
Akranesi.
Öllum sjálfstæðismönnum
hlýtur að vera það kappsmál að
stuðla að einingu í komandi
kosningum til að sigur flokksins
Jónína Ingólfsdóttir,
Ijósmóðir, Akranesi.
verði sem glæsilegastur. Inga
Jóna hefur staðið utan við þau
átök sem átt hafa sér stað inn-
an flokksins og er þess vegna
líkleg til að eiga stóran þátt í að
sameina krafta sjálfstæðis-
manna til sigurs í alþingiskosn-
ingunum.
Ég vil hvetja alla stuðnings-
menn Sjálfstæðisflokksins í
Vesturlandskjördæmi að sjá til
þess að Inga Jóna Þórðardóttir
verði fyrsta kjördæmakjörna
konan fyrir okkar kjördæmi á
Alþingi.
Gerið
svo
vel
að
líta
inn
Útsölu-
markadur
í Kjörgarði (kjallara)
Góðar vörur á lágu
verði
Fatnaður fyrir alla
fjölskylduna
Barnaúlpur verö frá kr. 390.
Dömuúlpur verð frá kr. 490.
Herraúlpur verö frá kr. 490.
Flauelsbuxur verð frá kr. 195 stæröir 2
Flauelsbuxur stæröir 26—40 kr. 295.
Barnapeysur frá kr. 90.
Fulloröinspeysur frá kr. 150.
Vynilstígvél verö frá kr. 295—395.
Sokkar — vetlingar — húfur
og margt margt fleira.
Sendum í póstkröfu
sími 28640
12
Útsölumarkaðurinn
í kjallara Kjörgarðs