Morgunblaðið - 13.01.1983, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1983
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna:
3,5% framleiðsluaukning
FRAMLEIÐSLA frystihúsa Sölu-
miöstöðvar hraðfrystihúsanna
varð 91.342 lestir á síðasta ári og
jókst framleiðslan um 3,5% frá ár-
inu áður, en þá nam hún 88.208
lestum. Útflutningur síðasta árs
nam alls 83.040 lestum á síðasta
ári, en var 88.693 lestir árið áður,
samkvæmt bráðabirgðatölum,
sem Morgunblaðið aflaði sér hjá
SH.
Að vanda var mest flutt út til
Bandaríkjanna eða alls 37.276
lestir á móti 39.752 lestum árið
áður. Til Englands voru fluttar
16.897 lestir á móti 20.036 lest-
um árið áður og til Rússlands
fóru 15.862 lestir á móti 15.787
lestum 1981.
Hvað varðar framleiðsluna er
athyglisverðast að þorskfram-
Akureyri:
Bæjarráð vill rífa
hús við Geislagötu
Á FUNDI bæjarráðs Akureyrar 6.
janúar sl. var samþykkt að leggja
til við bæjarstjórn, að bæjarverk-
fræðingi verði falið að sjá um
niðurrif húsanna Geislagötu 35, 37
og 39 svo og verkamannaskýlis við
Geislagötu; gömlu lögreglustöðv-
arinnar.
leiðslan, blokk og flök, 1982 var
nær 10.000 lestum minni en
1981 eða 26.758 lestir á móti
36.590. Ýsuframleiðslan nam
alls 10.622 lestum 1982 á móti
9.330 lestum 1981. Ufsafram-
leiðslan jókst úr 6.517 lestum
1981 í 8.141 lest 1982, karfinn úr
17.489 lestum í 21.404 lestir eða
um 22%, grálúðuframleiðslan
úr 5.518 í 9.223 lestir eða um
67% og síldarframleiðslan úr
4.703 í 7.363 lestir eða um
56,5%.
Sprengju-
gabb rakið
HÓTUN um að sprengju hefuði
verið komið fyrir í fjölbýlishúsi
við Stigahlíð barst laust eftir há-
degi á mánudag. Maður hringdi til
lögreglunnar og sagði að sprengja
myndi springa innan skamms í
húsinu. Lögregla og slökkvilið
fóru þegar á vettvang og fannst
engin sprengjan. Símtalið var rak-
ið og viðurkenndi 19 ára gamall
unglingur að hafa hringt og til-
kynnt sprengjugabbið.
Fri leiksýningu I Gautaborg.
Friðarvagninn kemur til íslands
NORRÆNT götuleikhús Frið-
arvagninn áætlar að heimsækja
ísland næsta sumar. Þetta er 40
manna hópur af leiklistarbraut
lýðháskólans í Kungálv, Svíþjóð.
Þar hefur myndast sú hefð að
fara árlega í leikferðalag um
Norðurlönd. Þetta eru fjölhæfir
krakkar sem fara um götur með
tónlist, söng og fimleika, klædd
furðulegum búningum og gang-
andi á stultum. Síðan hafa þau
fjölskylduskemmtun á samnor-
rænu máli sem á að skiljast á
öllum Norðurlöndum, og flytja
leikrit sem eru oft samin og mót-
uð af nemendum, og flytja
boðskap friðar á gamansaman
hátt. Þetta ár verður flutt leikrit
eftir H.C. Andersen „Den
Stándaktige". Nokkrir íslend-
ingar taka þátt í sýningunni, en í
þessum norræna skóla hafa að
jafnaði verið nokkrir nemendur
frá íslandi. Hingað er áætlað að
leikhúsið komi 20. júlí, en í ár
heimsækir hópurinn Færeyjar
og ísland.
jr
Arsrit Skógræktar-
félagsins komið út
ÁRSRIT Skógræktarfélags íslands fyrir árið 1982 er komið út og er efni
þess fjölbreytt að vanda. Ritið, sem er yfir eitt hundrað blaðsíður að
stærð, er gefið út í 4000 eintökum og er þar að finna ýmsar upplýsingar
um starfsemi skógræktarfélaganna á síðasta ári auk fróðlegra greina um
ýmislegt er lýtur að skógrækt.
Hreppsnefnd Borgarneshrepps:
Vill bættar sam-
göngur um Hvalfjörð
Horgarnesi, 12. janúar.
HREPPSNEFND Borgarneshrepps samþykkti samhljóða eftirfarandi tillögu á
hreppsnefndarfundi nýlega: „Hreppsnefnd samþykkir að fela sveitarstjóra að
athuga um framgang þingsályktunartillagna er þingmenn Vesturlands hafa
borið fram á undanförnum þingum varðandi bættar samgöngur um Hvalfjörð.
Með tilliti til mikillar umferðar á þessari leið telur hreppsnefnd úrbætur í
samgöngum um Hvaifjörð brýnt verkefni og þjóðhagslega hagkvæmt og vill því
leggja áherslu á framgang þessa máls.“
Meðal efnis í ritinu má nefna
grein eftir Jón Gunnar Ottósson
sem ber heitið „Skordýrin og
birkið" og fjallar um skaðsemi
skordýra á birki og þær átján
tegundir skordýra sem einkum
leggjast á birki. Þá má nefna
grein eftir Sigurgeir Ólafsson um
notkun eiturefna við garð- og
skógrækt, grein eftir Þórarin
Þórarinsson frá Eiðum um
„holts“heitið, grein eftir Hall-
grím Indriðason um útivist,
landnýtingu og skógrækt í þétt-
býli, viðtal Huldu Valtýsdóttur
við Ólaf Einarsson lækni og
spjall við Jón Birgi Jónsson um
Alaskaför 1981. Einnig má nefna
grein eftir Börje Steenberg um
tré í tækni framtíðarinnar auk
þess sem birtar eru skýrslur um
skógræktarstarfsemina í land-
inu. Þá eru minningargreinar um
fimm skógræktarmenn er létust
á síðasta ári, Daníel Kristjáns-
son fyrrv. skógarvörð, Séra
Harald Hope, Odd Andrésson,
Vigfús Jakobsson frá Hofi og
Steingrím Davíðsson skólastjóra
á Blönduósi.
Ritið er gefið út af Skógrækt-
arfélagi Islands og í ritnefnd
sitja: Hulda Valtýsdóttir, Sigurð-
ur Blöndal, Snorri Sigurðsson og
Þórarinn Þórarinsson.
Umræður um bættar samgöngur
um Hvalfjörð hafa nú að undan-
förnu aukist til muna og var m.a.
gerð ályktun um þær á aðalfundi
Samtaka sveitarfélaga í vestur-
landskjördæmi í nóvember sl. Þessi
umræða er ekki ný af nálinni eins
og alkunna er og á sér langa sögu.
Ýmsir áhugaaðilar, sérstaklega á
Akranesi, en einnig víðar hafa nú
sett aukinn þrýsting á málið.
Ýmsar leiðir hafa verið nefndar
svo sem ferja, brú og jarðgöng.
Þótt stytting vegarins um Hval-
fjörð með brú eða öðru sé ein arð-
samasta framkvæmd í vegamálum
okkar íslendinga telja menn ekki
líklegt að hún hætti að daga uppi á
hinu háa Alþingi á næstu árum.
— HBj.
ESIOFOT
UNAN
Um leið og við óskum
viðskiptavinum okkar gæfu
og gengis á nýju ári,
tilkynnum við þeim að við
hjá ACO hf. höfum tekið við
ESKOFOT umboðinu, og
erum með til sýnis og sölu
vélar og tæki til grafísks
iðnaðar. Líttu inn til okkar
að Laugavegi 168.
Það verður tekið vel á móti þér!
acohf
Laugaveg 168