Morgunblaðið - 13.01.1983, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1983
+ Eiginmaður minn, AGNAR LÍNDAL HANNESSON, Hrefnugötu 1, lést í Landakotsspítala mánudaginn 10. janúar. Fyrir hönd vandamanna, Kala Kristjansen.
+ Faöir okkar, ÞÓRARINN KRISTJÁNSSON frá Dalvík, lést aö kvöldi 11. janúar. Anna Stína Þórarinsdóttir, Jóhannes Þórarinsson.
+ Móöir mín, KRISTÍN LÚOVÍKSDÓTTIR, Skagabraut 26, Akranesi, veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. janúar kl. 10.30. Sigrún Magnúsdóttir Holt.
+ Bróöir okkar, GUDMUNDUR GÍSLASON frá Kambsnesi, veröur jarösunginn laugardaginn 15. janúar kl. 14.00 frá Hjarðar- holti í Dölum. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Sjúkrahús Akraness. Ásta og Guófinna Gísladætur.
Faöir okkar, tengdafaöir og 'afi^^" ANNILÍUS B. JÓNSSON, Hraunteig 15, sem lést í Landakotsspítala 31. desember, veröur jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 14. janúar kl. 3. Erna Annilíusdóttir, Henning Weiss, Guómundur Annilíusson, Sólveig Ásgeirsdóttir, og barnabörn.
+ Jaröarför HANNESARSÖLVASONAR, Fossvegi 27, Siglufirói, fer fram frá Siglufjaröarkirkju, 13. janúar kl. 14.00. Börn, tengdabörn og barnabörn.
*
+ Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi, HERMUNDUR V. TÓMASSON, Bústaðavegi 93, er lést 6. janúar, veröur jarðsunginn frá Bústaöakirkju föstudag- inn 14. janúar kl. 13.30. Gyóa Thorlacius, Sigmundur Hermundsson, Stella Pálsdóttir, Bergljót Hermundsdóttir, Kristmann Óskarsson, Auður Hermundsdóttir, Guójón E. Jóhannsson, og barnabörn.
+ Ástkaer móöir okkar, tengdamóöir' amma og langamma, KRISTJANA MARGRÉT SIGMUNDSDÓTTIR frá ísafirði, sem lést á heimilí dóttur sinnar aö Elliöavöllum 11, 6. janúar síðastliöinn, veröur jarösungin frá Keflavikurkirkju föstudaginn 14. janúar kl. 14.00. Hulda Agnarsdóttir, Sigþrúöur Agnarsdóttir, Höskuldur Agnarsson, Áslaug Sigurðardóttir, Svava Agnarsdóttir, Garöar Pátursson, Agnes Agnarsdóttir, Elísabet Halldórsdóttir, Hjartlfna Agnarsdóttir, Jóhannes Bjarnason, Guömundur Agnarsson, Jenní Jakobsdóttir, Erna Agnarsdóttir, Örlygur Þorvaldsson, Margrét N. Agnarsdóttir, Leó Martinez, Sigmundur Agnarsson, Elísabet Víglundsdóttir, Eyjólfur Agnarsson, Sigríður Traustadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
• •
Jóhanna Ogmunds-
dóttir — Minning
Fædd 3. júlí 1919
Dáin 1. janúar 1983
í dag, fimmtudag, kl. 1.30, fer
fram frá Hallgrímskirkju útför
Jóhönnu Ögmundsdóttur. Jóhanna
Ögmundsdóttir eða Hanna eins og
hún var kölluð lést þann 1. þessa
mánaðar.
Andlát hennar kom okkur nokk-
uð á óvart þó að við vissum að hún
hafði átt við veikindi að stríða.
Maður á líka dálítið bágt með að
átta sig á því að þessi lífsglaða
kona, sem létti okkur svo oft í
skapi með sínu glaða viðmóti, sé
allt í einu horfin okkur. Það var
svo stutt síðan við sáum hana
glaða og hressa að því er okkur
virtist.
En er þetta ekki gangur lífsins.
Við skulum þakka fyrir þær
björtu oggóðu minningar sem hún
skiiur eftir í hugum svo margra.
Hanna var ættuð af Snæfells-
nesi. Foreldrar hennar voru
Hermína Jónsdóttir frá Hrísum í
Fróðárhreppi og Ögmundur Jó-
hannesson sjómaður í Ólafsvík.
Hanna missti móður sína er hún
var tveggja ára og var þá komið í
fóstur.
Lengst var hún í Látravík í Eyr-
arsveit hjá þeim mætu hjónum
Kristbjörgu Helgadóttur og Sig-
urði Jónssyni.
Árið 1929 flyzt Hanna svo til
Ólafsvíkur til föður síns, sem þá
var kvæntur seinni konu sinni,
Þórdísi Ágústsdóttur.
Hanna átti fimm hálfsystkini
og einn albróður. Um 17 ára aldur
missir Hanna svo föður sinn svo
það má segja að bernsku og æsku-
ár hennar hafi ekki verið reynslu-
lítil.
6. september 1941 giftist Hanna
eftirlifandi eiginmanni sínum,
Runólfi Kristjánssyni frá Ólafs-
vík, hinum mætasta manni. Þau
eignuðust fjögur börn og eru þau
þessi: Ögmundyr, kvæntur Þór-
eyju Þorkelsdótt jr og eiga þau tvö
börn. Kristján, kvæntur Kristínu
Pétursdóttur og eiga þau tvö börn.
Hörður, kvæntur Mundu Jóhanns-
dóttir og eiga þau fjögur börn.
Sigurður, kvæntur Guðrúnu
Gísladóttur og eiga þau tvö börn.
Barnabörnin eru því orðin tíu, svo
að það er ekki orðinn svo lítill af-
komendahópur.
Að endingu vil ég flytja kveðju
frá mér og fjölskyldu minni fyrir
allt gott á liðnum árum. Ég votta
eiginmanni, börnum og barna-
börnum mína dýpstu samúð.
Jóakim Pálsson
I dag, fimmtudag, 13. janúar
1983, verður jarðsungin frá Hall-
grímskrirkju Jóhanna Ögmunds-
dóttir, sem var fædd í Ólafsvík 3.
júlí 1919, dóttir hjónanna Her-
maníu Jónsdóttur og Ögmundar
Jóhannessonar. Þau hjón áttu tvö
börn, Jóhönnu og Brand. Her-
manía dó 1921 þegar Hanna var
aðeins tveggja ára. Þá var hún
tekin í fóstur að Vík í Eyrarsveit.
Þar var hún til 11 ára aldurs eða
þar til faðir hennar giftist Þórdísi
Ágústsdóttur. Með henni átti
hann fimm börn; Jóhannes Her-
mann, Eirík Leif, Hólmkel Sigurð,
Bergmund og Öglu.
Hanna átti góðar og bjartar
minningar um veru sína í Vík og
talaði oft um hvað gott fólkið þar
hafi verið við sig. En hún var líka
ánægð yfir því að fá að vera hjá
pabba sínum, sem henni þótti
mjög vænt um, og rifjaði oft upp
minningar um hann. Hún vildi að
við systurnar vissum hve góður
maður hann afi okkar var, en
hann dó 1937.
Arið 1941 giftist Hanna eftirlif-
andi manni sínum, Runólfi Krist-
jánssyni. Foreldrar hans voru
Lára Elínmundardóttir og Krist-
ján S. Jónsson.
Hanna og Runni eignuðust fjóra
syni, þeir eru: Ögmundur Her-
mann, sem giftur er Þóreyju Þor-
kelsdóttur, Kristján Lárus, sem
giftur er Kristínu Pétursdóttur,
Hörður, sem giftur er Mundu Jó-
hannesdóttur, og Sigurður'Krist-
ján, sem giftur er Guðrúnu Gísla-
dóttur. Barnabörnin eru 10 og var
Hönnu mjög annt um þau. Hjóna-
band Hönnu og Runna hefur verið
mjög gott og þau verið sérstaklega
samhent og hamingjusöm.
Samband föður okkar, Berg-
mundar Ögmundssonar, og Hönnu
hefur alltaf verið mjög gott og
mikill samgangur á milli heimil-
anna. Þess vegna höfum við syst-
urnar fengið að njóta þessarar
bestu frænku okkar, frá fæðingu.
Við vorum oft hjá henni þegar hún
bjó í 'Ólafsvík og þeirra daga er
gott að minnast. Hún gaf sér góð-
+
Móöir okkar, tengdamóöir, amma, langamma, og langalanga-
amma,
ÞÓRDÍS ÞORLEIFSDÓTTIR
frá Ásgaröi, Grundarfiröi,
verður jarðsungin frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 15. janú-
ar kl. 13.00.
Ferö frá Umferðarmiðstöðinni föstudaginn 14. janúar kl. 14.00.
Þeir sem vifdu minnast hennar eru beðnir að láta Grundarfjarð-
arkirkju njóta þess.
Börn, tengdabörn og aörir niðjar.
Útför + FRIÐRIKS GUÐNASONAR,
fulltrúa, Lindargötu 44b, Reykjavík,
verður gerö frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 14. janúar
kl. 15.00. Helga Þorsteinsdóttir, Kjartan Friðriksson, Auður Friöriksdóttir, Jón Gíslason,
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
útför
ÖNNU MAGNÚSDÓTTUR,
Klapparási 2.
Njáll Guömundsson,
Anna Njálsdóttir Möller, William Thomas Möller,
Baldur Víöarr Njálsson, Tove Víöarr Njálsson,
og barnabörn.
an tíma til að kenna okkur mörg
spil og kapla, en hún hafði mikla
ánægju af að spila, aðallega vist.
Einnig kenndi hún annarri okkar,
sem þá var aðeins 6 ára, að prjóna.
Hanna og Runni fluttu til
Reykjavíkur 1970, en þrátt fyrir
það rofnaði ekki sambandið milli
heimilanna. Þau komu oft hingað
vestur og héldu þá til hjá foreldr-
um okkar. Þau komu á hverju
sumri til að fara til berja og voru
dugleg við að tína ber og búa til
berjasaft og sultu handa fjöl-
skyldu sinni.
Þau komu alltaf vestur til að
gleðjast með okkur á merkisdög-
um s.s. við fermingar, brúðkaup og
afmæli og finnst okkur nú, þegar
við hugsum til baka, að þau séu
tengd öllum gleðistundum okkar.
Það var svo gott að hafa þau í
návist sinni, því þau voru alltaf
svo glöð og skemmtileg. Við mun-
um lengi muna hve innilega
Hanna gat hlegið og komið fólki í
gott skap.
Eftir að við fórum suður í fram-
haldsskóla, þá var Hanna alltaf að
hugsa um velferð okkar. Hún
hringdi til að vita hvernig okkur
liði og hvort okkur vantaði eitt-
hvað. Þau hjónin komu oft við hjá
okkur og þá var verið að skjóta inn
einhverju góðgæti s.s. kleinuboxi
eða hveitikökum. Nú síðast fyrir
jólin komu þau með jólasmákökur
til að lofa okkur að smakka. En
svona var Hanna alltaf að gleðja,
og svo var hún svo elskuleg í við-
móti. Það þurfti ekkert tilefni til
að fara til Hönnu og Runna. Jafn-
an var eins og beðið væri eftir
gestum, því það voru alltaf til
heimabakaðar kökur. Og mörg
matarboðin höfum við og fjöl-
skylda okkar þegið hjá þeim.
Hanna vann talsvert við hann-
yrðir, hún prjónaði, heklaði og
saumaði út. Hún starfaði af alhug
í kvenfélagi Hallgrímskirkju og
gaf fallega og vel gerða muni á
basar félagsins.
Þau hjónin voru dugleg að ferð-
ast og mikið fyrir að vera á meðal
fólks, enda er vinahópur þeirra
stór.
Við vissum að Hanna var oft
lasin, en við bjuggumst ekki við að
hún mundi kveðja svona fljótt, því
kom fréttin um lát hennar sárt við
okkur.
Elsku Runni, missir þinn er
mikill og þú saknar Hönnur þinn-
ar mikið, en við vitum öll að hún
trúði á framhaldslífið og við eig-
um eftir að hitta hana aftur.
tunni, við sendum þér og allri
fjölskyldunni okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Að lokum viljum við, fjölskyld-
ur okkar og foreldrar, þakka
frænku vorri allar samverustúnd-
irnar.
Guð blessi minningu hennar.
Klsa og Þórdís
Hún var fædd í Ólafsvík. For-
eldrar hennar voru hjónin Her-
manía Jónsdóttir frá Hrísum í
Fróðárhreppi og Ögmundur Jó-
hannsson, sjómaður í Ólafsvík.
Þau munu hafa stofnað heimiii
sitt að lokinni fyrri heimsstyrjöld-
inni. Lífsbaráttan var hörð þar
eins og sem víðast annars í landi
voru í þá daga. Dýrtíð var mikil
eftir styrjöldina og fór vaxandi á
árunum eftir stríðslokin og hefir