Morgunblaðið - 21.01.1983, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 21.01.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1983 35 endurskin. Rétt Ijósdreifing skiptir einnig miklu máli, birtan á aö vera mest á þeim hlutum sem viö horf- um á og þar í kring. Æskilegt er aö geta breytt stefnu og dreifingu Ijóssins. í heild má segja aö taka verður tillit til þeirrar starfsemi sem fram fer á heimilunum þegar góö lýsing er valin. Heimiliö gegnir ýmsum hlutverkum, þaö er í fyrsta lagi vinnustaöur og veröur lýsing því aö vera í samræmi viö þaö. í ööru lagi er heimiliö staöur til aö taka á móti vinum og kunningjum og í þeim tilfellum þarf lýsingin aö vera nokkuö glæsileg og koma fólki í hátíölega stemmningu. Síö- ast en ekki síst er heimilið hvíld- arstaöur þar sem heimilisfólk lætur fara vel um sig eftir annasaman dag og þarf því að vera hægt aö bjóöa upp á góöa hvíldarlýsingu sem býöur upp á rólegt og nota- legt andrúmsloft. Góö heimilislýs- ing þarf því aö geta boðið upp á nægilega birtu í öllum þessum til- vikum og þá veröur einnig að gera ráö fyrir mismunandi Ijósþörf heimilismanna, en þaö er mjög einstaklingsbundiö hvaö menn þurfa mikla birtu, Ijósþörf breytist t.d. mjög eftir aldri, taliö er aö miö- aldra maður þurfi helmingi meiri birtu en maöur um tvítugt, og eldra fólk þarf allt aö tíu sinnum meiri þirtu viö svipuö verkfni. Til aö samræma mismunandi verkefni innan heimilanna og mismunandi Ijósþörf einstaklinganna þarf því aö vera hægt aö breyta lýsingunni fyrst og fremst í stofunni sjálfri, t.d. meö Ijósdeyfi sem veitir stiglausa breytingu á Ijósstyrknum og gefur þannig Ijós eftir þörf. En úr upplýs- ingabæklingum Ljóstæknifélags- ins tökum við nokkra almenna punkta um heimilislýsingu sem hér fara á eftir. Lýsing í eldhúsi Eldhúsiö er fyrst og fremst vinnustaður og því nauösynlegt aö koma lýsingunni þannig fyrir aö fólk þreytist ekki aö óþörfu. Lýsing í eldhúsum er almennt of lítil, í Ijós hefur komiö í tilraunum sem gerö- ar hafa veriö aö ef þeir sem vinna í eldhúsunum fengju aö velja birt- una sjálfir völdu þeir almennt um fjórum sinnum meiri birtu en þeir voru vanir aö vinna viö. Ljós þurfa aö vera yfir vinnusvæöum, þ.e. yfir eldavél, vaski, vinnuboröum og matborði. Ljós undir efri skápum þarf aö setja viö fremri brún og skerma vandlega, þannig aö perur eöa flúrpipur sjáist ekki. Baöherbergi Lýsa þarf upp allt baöherbCTgiö meö einu eöa fleiri Ijósum í loftinu. Þá er einnig nauösynlegt aö hafa góöa spegillýsingu, best er að hafa lampa sitt hvorum megin viö speg- ilinn. Snyrting og rakstur krefst oft meiri birtu en haldiö er. Forstofa Forstofan er tengiliöur á milli herbergja, stiga og útiumhverfis. Birtumunur þegar komiö er úr dagsbirtu og gengið inn í forstof- una á því aö vera þægilegur, og gildir þaö sama á kvöldin og nótt- unni með þeirri birtu sem þá er. Þá á birtan í forstofunni og herbergj- unum aö vera í góöu hlutfalli hvor viö aöra. Auk þess ætti aö vera meiri lýsing þar sem speglar eru og er þá gott aö hafa sérstaka spegillýsingu, og á Ijósabúnaður- inn viö spegilinn aö lýsa einungis á þann sem er aö spegla sig, en ekki á spegilinn. Stofan Þar þarf aö vera möguleiki á margs konar lýsingu sem hægt er aö kveikja og deyfa á ýmsa vegu, og því auövelt aö skipta milli hlý- legrar hátíöarlýsingar og vinnulýs- ingar. Heppilegt er aö hafa les- lampa viö hægindastóla og rétt Ijós bak viö sjónvarpiö er nauö- synlegt. Þá er einnig gott aö hafa óbeina lýsingu t.d. í bókahillum og yfir gluggum, en á þann hátt fæst skuggalítil lýsing. Bama- herbergi Þar sem börn eru aö .eika sér, er nauðsynlegt aö hafa góö loft- Ijós, sem gefa jafna birtu yfir allt gólfiö. Heppilegast er aö nota Ijós sem festast beint á loftiö, en auk þess þarf vegglampa viö höföa- gaflinn og stillanlegan borðlampa á vinnuborði. Svefnherbergiö á aö vera þægilegt til hvíldar og getur vel hugsuö staösetning Ijósanna skapaö þau skilyröi. Loftljós þurfa aö lýsa vel inn í skápa og gefa góöa vinnulýsingu viö þrif. Ljósa- búnaöur viö rúmgafla ætti aö vera stillanlegur og hafa vel lagaöan skerm, en almennt gildir sú regla aö enginn lampi má lýsa skært móti augunum þegar legiö er í rúminu. Já nú er hann byrjaöur blessaöur þorrinn eina feröina enn. Aö sjálfsögöu bjóöum viö okkar __ landsþekkta þorrabakka,^^^ sem flestir þekkja aö góöu Nú bjóöum viö heimsendingarþjónustu Já viö sendum þorramatinn í heimahús. Tilvaliö í veizluna hvort sem hún er af stærri eöa smærri geröinni og hægt er aö fá matinn í trogunum okkar góöu. Veröiö er ótrúlega lágt þaö er aö segja OOO Irr sem er hlægilegt verö ZZU Kl« miöaö viö gæöi. Á bökkunum okkar eru; allir vinsælu þorraréttirnir s.s. rúgbrauö, flatkökur, hangikjöt, rófustappa, sviöasulta, haröfiskur, lundabaggar, bringukollar og hrútspungar. Aö sjálfsögðu "verður þorramaturinn á boðstólum hjá okkur í Naustinu, og það er ekki amalegt umhverfi til að snæða öll herlegheitin í Pantiö nú tímanlega í síma 17758 uTjJ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.