Morgunblaðið - 21.01.1983, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.01.1983, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1983 49 + Sænsku konungsbörnin voru mynduð í bak og fyrir nú um ára- mótin og er þessi mynd ein þeirra sem þá var tekin. Samkvæmt því sem móðir þeirra, Silvía, segir kemur þeim vel saman og una sér Sænsk augnayndi við leiki daglangt. Viktoría prins- essa og ríkisarfí smellir þarna rembingskossi á vanga Madeleine, sem lætur sér gott þykja. Karl Fil- ip bíður hins vegar þolinmóður eft- ir að röðin komi að sér ... félK f fréttum rsr + Stephen Barry, fyrrverandi einkaþjónn Karls Bretaprins, hefur nú tjáð löndum sínum að á þeim tólf árum sem hann var í þjónustunni hafí Karl ávallt verið á sínum stað að morgni ... Ekki hafi verið neitt óvænt næturgölt á ríkis- arfanum. „Ef hann átti að vera í rúmi sínu að morgni, þegar ég kom til að vekja hann, þá var hann þar ... aleinn," segir Barry í bók sinni „Royal Service" sem fjallar um tólf ára tímabil það sem hann var einkaþjónn Karls, eða frá 1970 til 1982. Kaflar úr þessari bók, sem ekki er væntanleg á markað fyrr en í vor, voru birtir í tímariti nokkru, sem komi út í síð- astliðinni viku í Bretlandi. Barry fjallar mikið um ferðir þeirra um heiminn í skrifum sínum og segir Karl hafa hrifist mjög af Nancy Reagan þegar hann var á ferð um Bandaríkin árið 1977 og þyki honum mikið til hennar koma. Einnig hafi prinsinum og Grace furstaynju, sem lést í september síðastliðnum, verið mjög vel til vina. Talið er að Díana hafi átt sinn þátt í því að Barry var látinn víkja úr embætti. Karl var ávallt á sínum stað COSPER — Hér stendur: „Til hundsins á heimilinu. Með kærri kveðju frá innbrotsþjófinum." Celebi á ftalíu + Musa Serdar Celebi, sem ákærður er fyrir skotárás á Jó- hannes Pál páfa II, sést hér í fylgd lögreglumanna við komu til Rómar í síðastliðinni viku, en hann var framseldur til Ítalíu frá Vestur-Þýskalandi. Sam- kvæmt fregnum ítölsku frétta- stofunnar ANSA verður hann látinn í klefa andspænis tyrkn- eska hryðjuverkamanninum Me- hmet Ali Agca ... Vanessa stórhuga + Breska leikkonan Vanessa Redgrave tilkynnti í síðastlið- inni viku að hún hefði í hyggju að gera mikla heimildamynd um innrás Israela í Líbanon og því sem hún lýsti sem „fjöldamorð- um síónista í Sabra og Shatila- flóttamannabúðunum". Hún tilkynnti einnig að hún hafi í hyggju að framleiða heim- ildamynd um samvinnu „síón- ista og fasista" á fjórða og fimmta tug aldarinnar ... Sunnlendingar Viö hvetjum stuöningsfólk Sjálfstæöis- flokksins til þátttöku í prófkjörinu um helgina. Tryggjum Guömundi Karlssyni, alþingismanni, öruggt sæti. Stuöningsmenn mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmmmmá Seltjarnarnes - Vesturbær 4 \ Mánudaginn 24. janúar hefst á vegum skólans kvöldtímar í léttum æfingum fyrir konur á öllum aldri. Innritun og upplýsingar í síma 15359 e.h. Ballettskóli Guöbjargar Björgvins, íþróttahúsinu Seltjarnarnesi, Litla sal. Kvennatímar í badminton 6 vikna námskeiö aö hefjast. Einkum fyrir heimavinn- andi húsmæöur. Holl og góö hreyfing. Morguntímar, dagtímar. Leiöbeinandi Garöar Alfonsson. Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur, Gnoöarvogi 1. Blaóburöarfólk óskast! Vesturbær Nesvegur frá 40—82 Skerjafjöröur sunnan flugvallar Tjarnargata frá 39 Nesvegur frá Vegamótum Kópavogur Lyngbrekka Austurbær Freyjugata 28—49 Stórholt Flókagata 53—69 Úthverfi Skeiðarvogur Njörvasund, Karfavogur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.