Morgunblaðið - 21.01.1983, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 21.01.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1983 47 Fjögur blómafrímerki 10. febrúar Frímerki Jón Aöalsteinn Jónsson Nokkuö er um liöiö, síöan frí- merkjaþáttur birtist hér í blaöinu, en þaö var 10. des. sl. Þá var getiö um væntanlegar útgáfur Póst- og símamálastofnunarinnar og birtar myndir af fyrstu frímerkjum á þessu ári, fjórum blómamerkjum. Nú hefur borizt tilkynning um þaö, ao utgatudagur þeirra veröi 10. febrúar nk. Þröstur Magnússon teiknar merkin, en þau eru „sól- prentuð" í Sviss. Á ég ekki von á gáfudagur þeirra enn ekki ákveö- inn. Verðgildi þeirra veröa 1100 og 1300 aurar. Jóla- og líknarmerki 1982 Sjálfsagt er aö halda þeirri venju aö geta hér í þættinum þeirra jóla- og líknarmerkja, sem út voru gefin fyrir sföustu jól. Bolli Davíösson f Frímerkjahúsinu hefur enn sent þættinum þessi merki til birtingar, og þakka ég honum þá hugulsemi. Eins og geröist 1981, fækkaöi út- gefendum líknarmerkja enn um tvo fyrir síöustu jól, því aö Lionsklúbb- merkjaklúbburinn Askja á Húsavík gaf út þriöja jólamerki sitt, og er á því mynd af sr. Birni Halldórssyni í Laufási. Hann var kunnur klerkur og mjög virtur kennimaöur um sína daga. Þá þótti hann skáld gott, og birtust kvæöi hans í blööum. Vegna þessara veröleika hafa Öskjumenn valiö sr. Björn f Laufási á merki sitt, enda birta þeir þing- eysk skáld á merkjum sínum og veröa örugglega ekki í vandræðum meö þaö myndefni næstu árin. Nokkrar hugleiöingar birti ég um jclamerkjasöfnun í þætti 16. janúar 1982 og sé því ekki ástæöu til aö fjölyrða aftur um þetta söfn- unarsviö, en þaö hefur oröiö vin- EUROPA Uif EUROPA^ C CEPT Uééé ; 550 ISLAND ööru en þau veröi falleg, enda á þessi prentunaraöferð hér vel viö, svo sem ég hef oft tekiö fram áöur. Stærö merkjanna er 28x33,4 mm og 50 merki í örkinni. Ég vísa til þáttarins í desember um næstu tvær útgáfur, 24. marz og svo í byrjun maí, þ.e. Noröur- landafrímerki og Evrópufrímerki. Nú hafa þættinum borizt myndir af þessum frímerkjum, þar sem Póst- og sfmamálastofnunin hefur sent frá sér prentaða tilkynningu um frí- merkjaútgáfu sína á árinu 1983. Er hún tölusett sem fyrsta tilkynning póststjórnarinnar á þessu ári. Jafnframt eru í tilkynningunni birt- ar myndir af tveimur merkjum, sem helguö veröa fiskveiöum, en ég sleppi þeim aö sinni, enda út- ur Siglufjaröar og skátahreyflngln gáfu ekki út merkl. Hér veröa þau félög og samtök, sem gáfu út merki til ágóöa fyrir starfsemi sína, nefnd í röö eftir því, hvenær þau hófu útgáfu líknar- merkja sinna. Fyrst veröur þá aö vanda Thorvaldsensfélagiö, en merki þess var helgaö Ári aldraöra. Kvenfélagiö Framtíöin á Akureyri er næst í rööinni og síðan Rotaryklúbbur Hafnarfjaröar. Þá kemur Oddfellow-reglan, Rotary- klúbbur Kópavogs og Lionsklúbb- urinn Þór. Lionsklúbburinn Bjarmi í V.-Húnavatnssýslu sendir jóla- merki meö mynd af kirkjunni á Hvammstanga og Lionsklúbbur Dalvikur hefur nú valiö mynd af kirkjunni á Upsum á sitt merki. Frí- sælt í seinni tfö sem hliöargrein viö frímerkjasöfnun. Frímerkjasöfnun Segja má, aö söfnun frímerkja hafi hafizt, um leið og fyrstu frí- merkin voru gefin út i Englandi 1840. Þeir munu ekki margir nú á dögum, sem komnir eru til vits og ára, sem hafa ekki safnaö frímerkj- um í einhverri mynd, þegar þeir voru á unglingsaldri. Hjá mörgum dofnar svo áhuginn í önnum dags- ins, en kemur oft aftur síöar á ævinni og þá sem afþreying eftir eril daganna. Er þá líka ágætt aö taka sér eitthvaö fyrir hendur, sem er nógu langt frá því, sem menn eru aö bjástra viö flesta daga og ISLAND KómvoííW ISLAND JÖUN1982 $ i Jófin 1982 |f 1 liiliiiiui HvammfMmgaktfkj* 1857 heyrir venjulegu brauöstriti til. Skiptir þá auövitaö ekki alltaf miklu, hvaöa efni er valiö til tóm- stundaiöju, en einhvern veginn hefur fariö svo, aö söfnun þessara litlu bréfmiöa, sem fundnir voru upp til greiöslu buröargjalda undir sendingar bréfa og böggla meö póstum um lengri eöa skemmri veg, hefur oröiö vinsælasta tóm- stundagamaniö. Hafa jafnt ungir sem gamlir, ríkir sem fátækir, læröir sem leikir sótt ánægju og hvíld í frímerkjasöfnun þau 140 ár, sem frímerki hafa veriö gefin út. Auövitað getur þessi söfnun orðiö að áráttu eins og margs konar önnur söfnun. Vandinn er aöeins sá aö kunna aö sníöa sér stakk eftir vexti. Ég á von á, aö flestir haldi til haga þeim frímerkjum, sem berast til þeirra á póstsendingum, þótt þeir líti ekki á sig sem safnara. Öll- um er oröiö þaö Ijóst, aö þessir bréfmiöar eru einhvers viröi, en því miður mikla menn þetta oft fyrir sér og afleiöingin verður vonbrigði, þegar á reynir. Hér á sem sé viö hinn ágæti málsháttur: Ekki er allt gull, sem glóir. Frímerkjasöfnurum hefur fjölgað mjög á liönum ára- tugum og viö þaö eftirspurn eftir alls konar frimerkjum og frímerkja- efni. Má segja, aö frímerkjaútgáfa hafi oröiö blómstrandi atvinnuveg- ur margra póststjórna utan viö beina þörf og um leið þeirra fjöl- mörgu kaupmanna, sem selja söfnurum frímerki og annan varn- ing þeim tengdan. Eins hefur margvíslegur iönaöur risiö upp í sambandi viö frímerkjasöfnun, því aö safnarar þurfa alls konar albúm og bækur undir merki sín, svo aö vel fari um þau. Þá hafa ekki svo litlar bókmenntir oröiö til um söfn- un frímerkja, og útgáfa blaða og tímarita um frímerki er oröin mikil um allan heim. Þeir, sem vilja fylgj- ast vel meö, veröa að glugga í margt af þessu, og þá má ekki gleyma veröskrám og handbókum, sem eru snar þáttur í öllu saman. Mun ég freista þess aö víkja nánar aö þessu efni í þáttum mínum samhliða ööru því, sem ætla má, aö lesendur hafi gaman af aö fræöast um í sambandi viö frí- merkjasöfnun. 0«5£ Póstpöntunarsími 30980 HAGKAUP Skeifunni15

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.