Morgunblaðið - 21.01.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1983
55
\^L?AKANDI
SVARAR Í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
FÖSTUDA
TIL FÖSTUDAGS
Nú er of seint í rassinn gripið
Langþreyttur sjálfstæðismaöur
skrifar:
„Nú um næstu helgi fer fram
prófkjör sjálfstæðismanna á Suð-
urlandi. Sá fjöldi frambjóðenda,
sem fram hefur komið, kemur
okkur Sunnlendingum ekki á
óvart, því okkur þykir óhætt að
segja að ekkert kjördæmi hafi
fengið jafn litlu áorkað á undan-
förnum árum í hagsmunamálum
sínum og Suðuriandskjördæmi.
Hvar voru þingmenn okkar þeg-
ar steinullarverksmiðja var rædd
á þingi? Hver varð afraksturinn?
Jú, þrátt fyrir augljóst hagræði og
hagnað af steinullarverksmiðju á
Suðurlandi, styrkir ríkið slíka
verksmiðju á Norðurlandi og
skeytir engu um arðsemi. Hvar
var kraftur þingmanna okkar
Sunnlendinga?
Allir þekkja þá hringavitleysu
er ríkir í styrkjum til tapútgerða
hér á landi. Allir vita að þessir
styrkir eru teknir frá hinum vel
reknu útgerðarfyrirtækjum og
færðir í botnlausan hallarekstur
annarra útgerðarfyrirtæja. Hvers
vegna hafa þingmenn hinna vel
reknu verstöðva, eins og Vest-
mannaeyja, ekki mótmælt þessum
aðferðum, mótmælt af hörku? Nei,
nú er of seint í rassinn gripið.
Hvar er réttsýnin, sannfær-
ingarkrafturinn, framkvæmda-
þrótturinn og áhrifin, sem við
hljótum að búast við að þingmenn
okkar hafi?
Við þurfum nýtt blóð í æðakerfi
stjórnmála okkar Sunnlendinga.
Við þurfum menn, sem gera sér
fulla grein fyrir því að þeir skulu
standa reikningsskil gerða sinna,
eða aðgerðaleysis, á 4 ára fresti.
Við þurfum nýja menn, sem koma
til dyranna eins og þeir eru klædd-
ir, engar gungur eða strengja-
brúður á Alþingi íslendinga.
Dæmin um steinullina og útgerð-
ina bera þess glöggt vitni.“
Þessir hringdu . . .
Langar að heyra
meira í Geysis-
kvartettinum
Jónína Jónsdóttir hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Mig
langar svo til að koma á framfæri
þeirri beiðni til Útvarpsins að
meira verði gert en verið hefur af
því að spila lög með Geysiskvart-
ettinum frá Akureyri. Ég á engan
fón, en langar oft til þess að heyra
þessi fallegu lög sem kvartettinn
syngur. Maður fær aldrei að heyra
nema eitt og eitt lag í einu. Væri
ekki hægt að leyfa manni að heyra
svona helminginn af plötunni í
einni lotu?
Skorsteinarnir
eru dauðagildr-
ur fyrir fuglana
Fuglavinur í Borgarnesi hringdi
og hafði eftirfarandi að segja: —
Nú er hitaveita komin í hvert hús
hér í Borgarnesi og skorsteinar
húsa því ónotaðir. I gærmorgun
heyrði ég eitthvert þrusk í arnin-
um heima hjá mér og þegar ég
gætti að var þetta lítill fugl, kom-
inn ofan um strompinn niður í
stofu. Þegar maðurinn minn kom
heim í hádeginu leitaði hann í hin-
um helmingnum af skorsteininum,
niðri í kjallara, og þar var þá ann-
ar fugl innikróaður. Til allrar
hamingju voru báðir fuglarnir lif-
andi og slepptum við þeim út. Ég
held að þeim hafi ekki orðið meint
af þessu, því að ekki fataðist þeim
flugið. Síðan þetta gerðist hef ég
frétt af fleiri dæmum um þetta
sama hér í Borgarnesi og hvet því
Borgnesinga og aðra landsmenn
til að gá hjá sér. Opnir skorstein-
arnir eru lúmskar dauðagildrur
fyrir fuglana. Þeir ramba gjarna á
brúninni til þess að ná sér í vedgju,
en komast hvergi, ef þeir detta
niður um opið.
Þakkir til
Ríkisútvarpsins
Valborg Gunnarsdóttir, Akureyri,
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja: — Mig langar að koma á
framfæri þökkum til Ríkisút-
varpsins fyrir fjóra þætti sem það
hefur tekið upp í dagskrá sína.
Það er þátturinn hennar Hildu
Torfadóttur, Kvöldstrengir, sem
er á sunnudagskvöldum; Kvöld-
gestir Jónasar Jónassonar á föstu-
Hilda Jónas
Þorsteinn Sveinn
dagskvöldum; þættirnir hans
Þorsteins Hannessonar, sem verið
hafa á laugardagskvöldum; og loks
þættirnir hans Sveins Einarsson-
ar, sem verið hafa á fimmtu-
dagskvöldum. Útvarpið á miklar
þakkir skilið fyrir þessa ágætu
þætti.
Viljum líka að
börnin fái sinn
nætursvefn
R.B.E. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Mér fyndist að
sýna ætti Tomma og Jenna fyrr á
kvöldinu. Við hjónin eigum þrjú
lítil börn, 6, 7 og 9 ára gömul, og
þau ganga öll í skóla. Þeir fjand-
vinir, Tommi og Jenni, eru á
dagskrá sjónvarpsins klukkan
rúmlega 20.30 og gera okkur erfitt
um vik að halda þeirri reglu á
heimilinu að koma börnunum í
rúmið um áttaleytið. Það er raun-
ar vonlaust, nema e.t.v. fyrir harð-
stjóra að hafa sitt fram í þessu
efni. En þó að við viljum koma til
móts við börnin, þá viljum við líka
að þau fái sinn nætursvefn. Vegna
Tomma og Jenna endar það ævin-
lega með því, að þau eru ekki kom-
in í rúmið fyrr en rúmlega níu, því
að það á eftir að bursta tennur og
gera ýmislegt áður en lagst er til
svefns. Mér finnst einkennilegt að
Sjónvarpið skuli ekki geta haft
þennan dagskrárlið kl. 19.30 á
undan fréttum á táknmáli; þá eru
börnin hvort sem er ekkert sér-
stakt að gera og hægt að losa þau
við að sitja undir fréttalestri og
auglýsingum.
Svo er það með Fleksnes. Mér
finnst hann nánast vera fyrir börn
og mega vera á svipuðum tíma og
Tommi og Jenni ættu að vera á,
þ.e. kl. 19.30. Fyrir nokkrum árum
fannst mér Fleksnes dálítið snið-
ugur, en nú er þetta komið út í
hreinan fíflagang; hann er geng-
inn í barndóm og ekki ósanngjarnt
að börnin fái að njóta hans.
Stór grýlukerti —
mikið hitatap
Sigurður H. Ólafsson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Mér
varð litið upp eftir húsinu sem
Gjaldheimtan er í, þegar ég átti
þangað leið í dag (þriðjudag), og
þá sá ég grýlukerti á þremur hæð-
um, ef svo má segja, stall af stalli.
Þetta var rétt við innganginn, svo
að augljós slysahætta var þarna
yfirvofandi, ef flykkin losnuðu og
féllu á gangandi fólk. Á eftir fór
ég að gefa þessu frekari gætur á
leið minni heim og þá sá ég að
hættan var víða til staðar.
Annars held ég því fram að
grýlukertin séu ákveðið lesmál.
Stór grýlukerti merkja, að mikið
hitatap sé út úr viðkomandi húsi,
og þar með orkutap, vegna lélegr-
ar hitaeinangrunar. Fróðlegt væri
ef einhver húsasérfræðingurinn, í
einangrunar- eða upphitunarmál-
um, upplýsti okkur frekar um
þetta atriði. Það er alltaf verið að
hvetja fólk til að nýta orkuna sem
best.
Leiðrétting
Guðmundur Stefánsson hringdi
og hafði eftirfarandi að segja: —
Ég sá, að það var verið að skrifa
þarna um Spegilinn sáluga og
ranglega vitnað í ljóð Sigurðar
ívarssonar um það þegar Jónas
frá Hriflu sendi umsagnarbréfið
til Helga Tómassonar á Kleppi.
Mig minnir það hafi verið Daníel
Daníelsson sem fór með bréfið ríð-
andi inn eftir. Svo kom mynd í
Speglinum af Daníel ríðandi á
Skjóna sínum og ljóð Sigurðar. Og
upphafið er rétt svona: „Jónas
vaknar af blíðum blundi,/ brjálað-
ur virtist ekki par ...“
Þessi villa skrifist á reikning
Velvakanda.
GÆTUM TUNGUNNAR
Heyrst hefur: Það gerðist fyrir nokkrum dög-
um síðan.
(Jott mál þætti: Það gerðist fyrir nokkrum
dögum.
Hugheilar þakkir sendi ég öllum þeim er minntust
mín á níræðis afmæli mínu.
Heiðbjört Björnsdóttir.
Þakkir
Alúðarþakkir til allra þeirra, sem sýndu mér vináttu og
vir&ingu á 85 ára afmæli mínu 5. janúar sl. Heimsókn-
ir, gjafir, blóm, kveðjur og hlý handtök veittu mér mikla
gleði.
Bið ég ykkur farsældar á nýja árinu.
Kveðjur,
Rannveig Vigfúsdóttir,
hjúkrunardeild Hrafnistu, Hafnarfirði.
Eingirniskjólar
Vegna fjölda áskorana veröa haldin fleiri nám-
skeiö í eingirniskjólaprjóni. Kennari verður Ragna
Þórhallsdóttir. Nánari upplýsingar eru gefnar í
síma 13404.
Álafossbúdin,
Vesturgötu 2.
Frambodsfrestur
Ákveöið hefur veriö aö viðhafa allsherjaratkvæöa-
greiöslu um kjör stjórnar, trúnaöarmannaráös og
endurskoðenda í Starfsmannafélaginu Sókn fyrir áriö
1983. Framboöslistum eöa tillögum skal skila á
skrifstofu félagsins, Freyjugötu 27, eigi síöar en kl. 12
á hádegi fimmtudaginn 27. janúar 1983.
Starfsmannafélagiö Sókn.
ALLTAF A LAUGARDÖGUM
VIÐEY
— SÖGUSTAÐUR OG
UNAÐSREITUR
VIÐ BÆJARDYR
REYKJAVÍKUR
Fyrsta grein af fjórum.
GARGANTÚI
EFTIR RABELAIS
Lesbók mun birta einu sinni í mánuði
kafla úr þessu gamla og fræga
bókmenntaverki í þýö.
Erlings Halldórssonar.
ARTHUR RUBINSTEIN
Grein í minningu þessa
píanósnillings, sem er nýlátinn,
hálftíræöur.
M Ja
Vöndud og menningarleg helgarlesning
AUGLYSINGASTGFA KRISTINAR HF