Morgunblaðið - 21.01.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.01.1983, Blaðsíða 22
54 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1983 ást er ... ... sólskinsskap á svellköldum morgni. TM R«g U.S. Pat Oft -Jll fights reserved «1982 Los Angeles Times Syndicate Með mortfunkaffinu ur! Hvenær viltu svo vakna í fyrramál- id? HÖGNI HREKKVÍSI „[>ETTA ER- ATTUNPA VIKAW SEM LEHOlR-INW ER. SýN DUR.." Þá yrðu allir jafnir Haraldur Guönason skrifar: „Árið sem leið og lengur hefur gefið að líta í Reykjavíkurblöðum kveinstafi mikla, ekki síst drembi- látra embaettismanna, um þeirra himinhrópandi réttleysi þá er kjósa skal alþingismenn. Blessaðir mennirnir hlunnfarnir af lands- byggðarlýðnum. — Spyrja má: Hversu margir þingmenn kjör- dæma utan SV-svæðisins eru Reykvíkingar, búið þar árum sam- an? Eru þingmenn fyrirsvars- menn einhverrar ákveðinnar hausatölu eða fólksins og kjör- dæmisins sameiginlega. Ef óréttl- ætið fer svo hroðalega fyrir brjóstið á Reykvíkingum og Reyknesingum, þrátt fyrir einar sex kjördæmabreytingar til að jafna met: Af hverju þerjast þeir ekki fyrir því að landið verði gert eitt kjördæmi? Þá yrðu allir jafn- ir, réttlætinu fullnægt, ekkert vol lengur. Hvort verða tillögur um kjör- dæmaskipun og kosningarétt nú í þá átt að tryggja flokkaveldið á alþingi fyrst og fremst eða jafna það margþvælda „vægi“ atkvæða? I Tímanum 21. des. er á forsíðu samtal við Steingrím Hermanns- son alþm., ráðherra og formann Framsóknarflokksins. Var að sjálfsögðu brúkað stórt letur enda stórt spurt: um væntanlegar efna- hagsráðstafanir. „Gengisfelling kemur ekki til greina — svo mikið er víst,“ svarar ráðherrann. Nokkrum dögum seinna er gengið fellt um 9%. Þá skal enn spurt: Er hægt að taka mark á orðum ís- lenskra stjórnmálamanna? Er það lýðræði að gera íslenska skattborgara ómynduga varðandi aflafé, skatta og skyldur? Áður fyrr báru menn persónulega ábyrgð á sínum gjöldum; nú taka ríki og bæir í sinn hlut það sem þeir ákveða, að vísu skv. vissum reglum. Eiganda er svo skilað af- gangi. Og svo er útvarpið notað til þess að hella yfir landslýð hótun- Steingrimur Hermannsson: „Geng- isfelling kemur ekki til greina — svo mikið er víst.“ um og viðurlögum ef ekki er greitt á gjalddaga. Af hverju voru þingmenn látnir fara í langt jólafrí — mánuð? Voru þeir svo þreyttir eftir afrek- in á haustþinginu?" „Kveðið í kútnum“ — athyglisverð frumraun Á.B.S. skrifar: „Góði Velvakandi! Ein lítil ljóðabók er ekki fyrir- ferðarmikil í hinu árlega jóla- bókaflóði þjóðarinnar. Sérstæður byrjandi, er nefnir sig Sverri Stormsker, hefur orðið svo þögn- inni að bráð, að varla nokkur ann- ar en hann sjálfur veit, að bók hans, „Kveðið í kútnum", kom út núna fyrir síðustu jól, en það er útgáfan Fjölvi sem gefur verkið út. Bókin er athyglisverð frum- raun, en hefur ekkert verið aug- lýst og ég hef ekki komið auga á eina einustu umsögn um hana í blöðum, enda þótt ég sé ötull les- andi bókmenntagagnrni blaðanna. Þar sem ég hef séð dæmi þess í dálkum þínum, Velvakandi, að les- endur veki athygli á góðum bókum sem þeir hafa lesið, þá geri ég ein- mitt það hér, í von um að einhver veiti þessum sérstæða og unga höfundi athygli. Sverrir er 19 ára gamall og yrkir mest hefðbundið, en það hlýtur að teljast óvenjulegt um svo kornungan höfund. Hin stuttu kvæði hans minna mann óneitanlega á K.N. gamla, þann vinsæla og dáða hagyrðing, þótt höfundar þessir séu skiljanlega ólíkir. Sverrir er afar hnyttinn orðsmiður og hefur svo góð tök á máli og bragformi að ótrúlegt hlýtur að teljast um 19 ára ungl- ing. Þessi tilvitnun af bakhlið bók- arkápu segir nokkuð um höfund- areinkennin: „Það er svo sérstakt hvernig hann lítur á orðin og horf- ir á þau frá öllum sjónarhornum og beitir þeim síðan eins og eld- flaugum þegar þau eiga verst við og koma miskunnarlausast við kaunin." Hér er bæði um skemmtilega og holla afþreyingu að ræða, og nú á tímum, óvenjulega. Höfundur á sannarlega annað skilið en það að vera þagaður í hel. Með gefnu leyfi hans, læt ég hér þrjú kvæði fylgja, tvö hin fyrri vitna sérstaklega um orðheppni höfundar, hið þriðja um næmt og skáldlegt fegurðarskyn hans. Skollaleikur Flest hér virðist feta sama stig, fæstir vilja að náunganum hyggja. Jörðin snýst í kringum sjálfa sig, sömuleiðis þeir sem hana byggja. Van Gogh Makalausi listmálarinn Gogh léði sinni heittelskuðu eyra, því heitmey fékk af honum meira en nóg og hvorki vildi sjá hann eða heyra. Göfugmennið gat ei skapi stýrt, gjöfullyndið reif sig laust í þjósti. Henni gaf hann gaum og auga hýrt, en gleymdi að visu að senda það í pósti. Fjarri byggð Ég ligg í grænu grasi í gullinni morgunkyrrð. Vorblær strýkur vanga minn. Ég horfi upp i himininn, hvar fuglar tóna sönginn sinn. Mín sál er endurskírð. Með innri eyrum mínum ég heyri dulda hljóma, eilifðina óma. Hugann laugar Ijúfur lækjarniður, fuglakliður, — friður. Með þökk fyrir birtingu." SVERRIR STORMSKER Kueaio í kútnum Endurlífgun RÚV Frieda Briem skrifar: „Velvakandi! Ekki er ég sammála þeim sem gagnrýna ráðstöfun RÚV að hefja útvarp frá Akureyri. Frá mínu sjónarmiði er það eins og hress- andi andblær að fá þætti þaðan og þá ekki síður að hlusta á málfar manna þar og verða þess áskynja að ennþá séu ekki allir íslendingar latmæltir og þvoglumæltir. Dæmin um norðlenskt málfar og skýrmæli koma e.t.v. gleggst fram í barnatímum RÚVÁK og eins þegar börn og unglingar eru tekin tali á víðavangi. Þetta er ánægjuleg tilbreytni. Smám saman kynnist maður nýjum mönnum og merkum, hlustar á þætti þeirra sem nefndir eru Sjóndeildarhringurinn og aðr- ir Hljómspegill. Finnst mér þetta vera endur- lífgun á RÚV. Einnig gæti það e.t.v. dregið úr því geysilega álagi, sem á okkar ágætu þulum á Skúla- götunni hvílir. Allt virðist mér þetta vera til bóta. Það eina, sem vakti kvíða hjá mér við þetta merka átak, var að missa Jónas Jónassön, útvarps- stjóra RÚVAK, úr höndum okkar. En sá kvíði var óþarfur; enn njót- um við kvöldgestanna hans og kynnumst lífi og viðhorfum þeirra. Þessar stundir verða í huga manns að skinandi perlum og á ég þá ekki síst við kvöld ný- ársdags, sem var óviðjafnanlegt og seiðmagnað. Eg þakka Jónasi Jónassyni fyrir ágætar stundir. RÚVAK óska ég vaxtar og viðgangs, og útvarps- stjóranum gæfu og gengis í starfi og einkalífi."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.