Morgunblaðið - 09.02.1983, Qupperneq 8
56
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1983
Vinsælustu
lögin
BRETLAND —
1. (2) Down under/
MEN AT WORK
2. ( 3) Electric avenue/
EDDY GRANT
3. ( 2) You can’t húrry love/
PHIL COLLINS
4. ( 5) Sign of the times/
BELLE STARS
5. (10) TooShy/
KAJAGOOGOO
6. ( 8) Gloria/
LAURA BRANIGAN
7. ( 4) Story of the blues/
WAH! ,
8. ( -) The cutter/
ECHO ANDTHE
BUNNYMEN
9. ( 6) Steppin’out/
JOEJAKCSON
10. ( -) New year’s day/U2
BANDARIKIN —
( 1) Down under/
MEN AT WORK
( 3) Baby, come to me/
PATTI AUSTIN
( 4) Africa/TOTO
( 2) Maneater/
DARYLHALL&
JOHN OATES
( 5) Sexual healing/
MARVÍN GAYE
( 6) Mickey/TONI BASIL
7. ( 7) Dirty laundry/
DON HENLEY
( 9) The other guy/
LITTLE RIVER BAND
(11) Shame on the moons/
BOB SEGER AND THE
SILVER BULLET BAND
(10) You can’t hurry love/
PHIL COLLINS
5.
6.
8.
9.
10.
Vinsælustu
plöturnar
BRETLAND —
1. (1) Business as usual/
MEN AT WORK
2. (5) Richard Clayderman/
RICHARD CLAYDERMAN
3. (—) Night and day/
JOEJAKCSON
4. (2) Raiders of the pop
charts/ÝMSIR
5. (3) Hello, I must be going/
PHIL COLLINS
6. (7) Heartbreaker/
DIONNE WARWICK
7. (6) Collection/
JOHN LENNON
8. (-) Killer on the rampage/
EDDY GRANT
9. (4) Feline/STRANGLERS
10. (9) Cacharpaya/
INCANTATION
Stuttar fréttir
af frægu fólki
Iron Maiden. Clive Burr er annar frá vinstri.
IGGY POP hefur nýverið gefið út
ævisögu sína og ber hún nafnið „I
want more“. Kom bókin út í Banda-
ríkjunum og er ekki að efa, að hún á
eftir að verða mörgum aðdáendum
þessa merka poppara kærkomin.
KIM CARNES komst rétt eina ferð-
ina í Bandaríkjunum fyrir
skemmstu, en að þessu sinni fyrir
nokkuð annað en venja bar til. Það
voru sumsé ekki sönghæfileikar
hennar, sem komu henni í fjölmiðla,
heldur var það videóspóla, sem gerð
Hatar England og Frakkland
mest allra landa heimsins
Langt er um liðið frá því Frank
kappa Zappa var getið á Járnsíðunni,
Clash best
hjá Sounds
„Combat rock“ með Clash var
besta plata síðasta árs að mati plötu-
gagnrýnenda enska vikuritsins
„Sounds.“
Platan, sem hafnaði í öðru sæti
var sú, sem ísienskir gagnrýnend-
ur útnefndu þá bestu, „Too rye ay“
með Dexy’s Midnight Runners.
„New Gold dream" með Simple
Minds hafnaði í 3. sætinu, „Song
to remember" með Scritti Politti
varð í 4. sæti og fimmta sætið kom
í hlut Yazoo með „Upstairs at
Eric’s."
Billy Fury
fallinn frá
Billy Fury, hinn heimskunni popp-
söngvari frá því á árunum upp úr 1960,
lést á föstudag er hann féll niður ör-
endur á heimili sínu f Lundúnum, 42
ára að aldri.
Hið rétta nafn Fury var Ronnie
Wycherley. Hann var sonur kola-
námumanns úr Dingle-hverfinu í
Liverpool. Fury var „uppgötvaður"
er hann var 19 ára gamall og sló
strax í gegn. Hann átti nokkur mjög
vinsæl lög á næstu árum, en hjarta-
galli gerði vart við sig á miðjum
sjötta áratugnum og leiddi hann til
dauða á föstudag í síðustu viku.
ef hann hefur þá nokkru sinni orðið
svo frægur að komast á hana. Karl-
inn er þó lifandi og hress með af-
brigðum þótt sífellt fari minna fyrir
honum í popppressunni erlendis.
Gagnrýnendur segja hann útþynnt-
an, en sjálfur segir hann fólk loks
kunna að meta sig. Hvað um það.
Zappa var fyrir nokkrum vikum
á ferð í Lundúnum (aldrei þessu
vant) og æfði þar verk með Lund-
únasinfóníunni, sem síðar var
flutt í Barbican-menningarmið-
stöðinni.
í viðtali við BBC fyrir tónleik-
ana sagðist Zappa alls ekki vera
neinn nýgræðingur í klassíkinni.
Hann hefði samið sitt fyrsta
klassíska tónverk 14 ára gamall,
þremur árum áður en hann tók til
við rokkið og samdi sitt fyrsta lag
á þeim vettvangi.
poppfréttir
Frank Zappa með tónsprotann í
hendinni.
Þeir eru margir, jafnt hér á landi sem annars staðar, sem bera þá von
heitasta í brjósti, að Deep Purple taki upp þráðinn þar sem frá var horfið og
hefji að leika saman á ný. Skýrt var frá sjónarmiði Ritchie Blackmore
varðandi þetta á Járnsíðunni fyrir skemmstu.
Nú hafa raddirnar um samein-
inguna enn magnast og í nýlegu
eintaki breska poppritsins
„Sounds" er greint frá frekari
vangaveltum í þessum efnum.
Segir þar, að nú standi aðeins á
Jon Lord að gefa samþykki sitt.
Glover er sagður vera til reiðu og
er nú meðlimur í Rainbow. Ian
Paice leikur nú með hljómsveit
Gary Moore og er ennfremur sagð-
ur til í tuskið og Ian Gillan er
þessa dagana í allsherjar hvíld
vegna ofreynslu raddbandanna.
Hann er og sagður hugmyndinni
hlynntur.
Segir Spunds, að verði af þess-
ari sameiningu, muni hún eiga sér
stað í byrjun næsta árs. Muni
sveitin fara í tónleikaferðalag um
Bandaríkin og Evrópu um sumar-
ið. Þá eru plötupælingar einnig
sagðar með í dæminu. Þá er bara
að bíða og sjá, hvort úr rætist.
Er útvarpsmáðurinn innti
Zappa eftir því hvort hann hygðist
ekki halda tónleika í Englandi á
næstunni, svaraði hann því neit-
andi og sagði ástæðuna þá, að
hann hataði England af öllu
hjarta.
Bætti því svo reyndar við, að
England og Frakkland væru þau
lönd jarðar, sem hann hataði
mest. Hann klykkti síðan út með
því að segja, að hann hataði Los
Angeles innilega. Ekki sakar að
geta þess, að kappinn býr í einu
úthverfa þeirrar borgar.
var til að fylgja plötu hennar, „Voy-
eur“, eftir í sjónvarpi. Eitt laganna
er tekið upp á mjög svo vafasömum
skemmtistað í Los Angeles og má sjá
alls kyns „frík“ í kringum söngkon-
una á meðan hún syngur. Sumt af
því, sem bar fyrir augu var greini-
lega svo dapurt, að lesendabréfum
rigndi inn á ritstjórnir margra blaða
og tímarita.
Flest gengur nú á afturfótunum
hjá Cure. Hljómsveitin, sem lengst
af samanstóð af fjórum sveinum,
hefur nú verið skorin niður um
helming. Bassaleikarinn Simon
Gallup er hættur og þá eru bara þeir
Robert Smith og Lawrence Cold-
hurst eftir. Reyndar er Smith nú á
tónleikaferðalagi með Siouxie and
the Banshees þar sem hann leikur í
stað John McGeogh, sem var lagður
á sjúkrahús.
CLIVE BURR, sem barið hefur húðir
í Iron Maiden meginhluta ferils
sveitarinnar, hefur nú ákveðið að
leggja kjuðana á hilluna. Ekki er
hann á þeim buxunum, að ganga til
liðs við einhverja aðra sveit, heldur
hyggst hann hætta í „bransanum"
fyrir fullt og allt.
PETER FRAMPTON, sem margir
minnast e.t.v. þrátt fyrir takmark-
aðan frama undanfarin ár, hefur í
hyggju að ganga í það heilaga á
næstunni. Sú heppna heitir Barbara
Goldberg og mun aðeins yngri en
Framton.
Jett meö 618 tón-
leika á 30 mánuöum!
Joan Jett hefur ekki aldeilis setið auðum böndum undanfarna mánuði.
Hún hefur ásamt hljómsveit sinni, The Blackhearts, verið á stöðugu tónleika-
ferðalagi undanfarna 30 mánuði (tvö og hálft ár!) og hvergi slegið af. Á
þessum tíma hefur hún haldið 618 tónleika og ef það er ekki heimsmet þá er
mér öllum lokið. Þetta þýöir beint, að hún hefur leikið á 20 tónleikum á
mánuði hverjum. Geri aðrir betur!
Talandi um tónleikakeyrslu sak-
ar ekki að geta þess, að Iron Maid-
en hefur verið á stífu prógrammi
að undanförnu. Þeir luku tónleika-
ferðalagi sínu um 14 lönd þann 10.
desember sl. og höfðu þá verið á
stanslausu ferðalagi frá því í
febrúarbyrjun. Á þessum 10 mán-
uðum tæpum léku þeir á 179 tón-
leikum fyrir hálfa aðra milljón
manns og lögðu að baki 55.000
kílómetra í flugvélum. Ekki svo
slæmt!
Orðrómurinn um endur-
lífgun Purple magnast
Deep-Purple-flokkurinn eins og hörðustu aðdáendurnir minnast hans á
blómaskeiðinu.