Morgunblaðið - 09.02.1983, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 09.02.1983, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1983 67 fclk í fréttum Marilyn Monroe-verslunin í París. Marilyn-æðið + í Tókíó um þessar mundir er maður að nafni Shunichi Mizuno gluggaskreytingarmaður í stórverslun einni að hanna Marilyn Monroe í eðlilegri líkamsstærð en hún á að vera eletrón- ísk. Hún er klædd í kabaretfatnað þ.e.a.s. eitt- hvað í líkingu við leikfimibol með tilheyrandi blúndum og pífum, og háhælaöa skól. Þessi róbot af Marilyn opnar og lokar aug- unum, og brosir þessu sérstaka Marilyn brosi, auk þess em Mizuno lætur hana spila á raf- magnsgítar. En Mizuno er ekki sá eini sem hefur trú á aö Marilyn dragi að sér athygli og viðskiptavini, því að í latínuhverfinu í París er að finna sér verslun, sem hefur á boðstólum meir en tvöhundruö og fimmtíu mismunandi hluti tileinkaöa Marilyn. Þar má finna bækur, lampa, skyrtuboli, og úr og síöast en ekki síst dagatal með Marilyn og þá geta aðdáendur hennar horft á hana í hverjum mánuði. Dustin Hoffmann + Dustin Hoffmann leikur konu í sinni nýjustu kvikmynd, „Tootsie“. í raun og veru er hann þó alls engin kona eöa hvernig ætti þá líka konan hans aö vera jafn háólétt og raun ber vitni? Sjálfur segir Dustin Hoffman, aö kvenhlutverkiö hafi ekki haft nein slæm áhrif á karlmennskuna og þá ekki á bankabókina. Hann fékk nefnilega nærri 100 milljónir króna fyrir það aö varalita sig og klæðast nokkrum kvenkjólum. Geri aðrir betur. Art Garfunkel + Art Garfunkel er nú ástfanginn uppfyrir allar sínar krullur og segist meira aö segja vera til- búinn til aö borga fyrir þaö. Þaö er heldur engin hætta á ööru því aö konan hans segist ekki munu sleppa gullfuglinum sínum fyrir minna en 60 milljónir ísl. kr. Þær fær hún líka meö skilum þvi aö Garfunkel hefur nú þegar lofaö því aö giftast konu númer tvö, leikkonunni Penny Marshall, sem sést hér meö honum. Shirley MacLaine + Shirley MacLaine segist nú vera orðin leið á sínu einmana- lega lífi. Hún er aö vísu gift og hefur verið í mörg ár en hún og maöurinn hennar, kvikmynda- framleiöandinn Steve Parker, hafa ekki búiö saman frá því skömmu eftir brúökaupið. Á þessum tíma hefur Shirley átt vingott viö margan manninn en ekkert ævintýranna hefur veriö svo ákaft, aö henni hafi fundist taka því aö skilja viö mann sinn. „Karlmenn vilja ekki binda sig," segir Shirley. „Þeir eru bara aö sækjast eftir skemmtuninni en þegar alvaran kemur í spilið hlaupa þeir eins og byssu- brenndir. Ég sé því enga ástæöu til aö vera aö standa í skilnaöi." Shirley MacLaine segist hins vegar veröa aö viðurkenna aö þaö er ekkert sniöugt viö þaö aö vera bæöi gift og ógift í senn. Henni finnst þaö heldur dapur- legt aö hafa engan til aö deila meö gleöi og sorgum lífsins en til mannsins vill hún ekki flytjast. „Allt, sem viö eigum saman, er æskuást, sem er löngu dauð,“ segir hún. Lisa Minelli aö veröa móðir + Liza Minelli er nú á leiöinni meö aö veröa móöir. Hún og maöur hennar, Mark Gero, hafa nefnilega ákveöiö aö ættleiöa þýskt barn. Liza hefur lengi vonast til aö geta átt sitt eigið barn en hefur hvaö eftir annaö oröiö fyrir því óláni aö missa fóstur. Liza Minelli er 36 ára aö aldri og þaö var eftir vellukkaöa hljómleika í Þýskalandi, sem hún sagöi frá tíðindunum. Segir hún aö eftirvæntingin hjá þeim hjónunum sé engu minni en þótt hún gengi sjálf meö og undirbúningurinn fyrir komu barnsins á nú hug þeirra allan. COSPER — Þakka þér kærlega fyrir, þú hefur læknað mig af minnimáttarkenndinni. HEÍCO Vinnu sloppar Kjólar Jakkar Hvítt Mislitt Stærðir 34- 48 Bankastræti 3 s. 13635 Póstkröfusendum Úr aftursæti venjulegs fólksbfls eru margar útgöngnleiðir fyrirböm án þess að nota dymar! Öll viljum við tryggja sem best öryggi barnanna okkar í umferðinni. Við vitum að það er ekki nóg að Iáta þau sitja í aftursætinu, heldur er mikilvægt að þau séu örugglega skorðuð, hvort sem það er í bílstól, burðarrúmi eða bílbelti. Við höfum sérhæft okkur í öryggisbúnaði fyrir börnin,-búnaði sem hentar í flestar gerðir fólks- bifreiða. Barnastólar (fyrir 9 mán. - 6 ára) verð frá kr. 1.077,- Barnapúðar (fyrir 6-12 ára) verð kr. 357,- Burðarrúmsfestingar (fyrir 0-9 mán.) verð kr. 995,- Beltastóll (fyrir 6-12 ára) verð kr. 1.029.- VELTIR HF Simi 35200 Pfí»rpittMttt»í®> Metsölubladá hwrjum degi!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.